Morgunblaðið - 24.06.2006, Page 24
Í hvert glas þarf:
2 msk. hrásykur
½ til 1 dl vatn
6–8 klaka
Safa úr 1–2 lime-ávöxtum
Einn tvöfaldan af rommi (helst
Havana Club), má sleppa
Lúku af ferskri myntu
Sódavatn
Öllu nema rommi og nokkr-
um fallegum myntustilkum er
dembt í blandara og klakinn
mulinn og myntan tætt meðan
sykurinn leysist upp (3–4 glös
komast í blandara). Ef á að
hafa drykkinn áfengan er
rommið sett í hátt glas ásamt
fallegum stilk af myntu með
laufum og blöndunni hellt yfir
þar til glasið er um 2⁄3 fullt.
Fyllið upp með sódavatni,
hrærið og drekkið strax!
„Mojito“
Ég smakkaði þennan drykkí fyrsta sinn á Kúbu fyrirátta árum. Þá var tekið ámóti okkur á flugvell-
inum með ísköldum Mojito, sem var
ótrúlega svalandi, og þetta er sann-
arlega mikill sumardrykkur sem á
vel við í sól og hita,“ segir Ragnheið-
ur Erla Rósarsdóttir eða Raggý,
sem finnst gaman að búa til Mojito,
enda býr hún svo vel að eiga krydd-
jurtahorn í garðinum heima hjá sér,
þar sem hún ræktar meðal annars
myntu, sem skiptir öllu máli þegar
Mojitodrykkurinn er annars vegar.
„Myntan verður að vera fersk og
auðvitað best að hún sé beint úr
garðinum. Myntan gerir drykkinn
svo fallegan og girnilegan.“
Mojitostemning í veiðihúsinu
Undanfarin fimmtán ár hefur það
verið árlegur viðburður hjá Raggý
og vinkonum hennar að fara saman
á sumri og veiða lax. „Frá því ég fór
til Kúbu hefur Mojitodrykkurinn
verið ómissandi partur af þeirri
ferð. Ég tek þá hráefnið með mér og
bý drykkinn til á staðnum og það
skapar mikla stemningu að reiða
hann fram í veiðihúsinu.“ Raggý
segir að Kúbverjar setji stundum
angostura út í Mojitodrykkinn, en
það er kryddsósa ekki ósvipuð og
tabaskó. „Þeir setja nokkra dropa
út í, sem ýkir bragð drykksins, en
ég hef aldrei gert það. Ég mæli aft-
ur á móti með óáfengum Mojito-
drykk, þar sem romminu er sleppt.
Hann er mjög góður og ég bý hann
gjarnan til handa börnunum mín-
um.“
Raggý segir myntuna vera frá-
bæra í matargerð og hún notar hana
til dæmis þegar hún býr til heilsu-
drykk (boost) í matvinnsluvélinni.
„Myntan er auðræktanleg, það er
hægt að pota henni niður hvar sem
er. Hún er mjög harðger og það er
hægt að nota hana yfir veturinn,
þótt hún sé svolítið slöpp á þeim
tíma.“
Tíu metra fjölskylduvinur
Raggý er mikil garðakona og not-
ar hverja stund sem gefst til að vera
í garðinum. „Á góðviðrisdögum
stækkar húsið okkar í raun um þá
fermetra sem garðurinn er. Þá er
mikið líf og fjör hérna, vinir krakk-
anna okkar koma og þau klifra í
trjánum sem eru stór og freistandi.
Við köllum stóra reynitréð hér í
horninu til dæmis tíu metra fjöl-
skylduvininn.“
Grænn og
girnilegur
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Ragnheiður Erla Rósarsdóttir sækir sér oft myntu út í garð en þar er hún með lítið kryddjurtahorn.
júní
Daglegtlíf
SUMARDRYKKUR | Ragnheiður Erla Rósarsdóttir notar myntu beint úr garðinum
ÞAÐ eru ekki meira en um tíu ár
síðan konum þótti það frekar
vandræðalegt ástand að vera
þungaðar og gerðu allt til að fela
hið breytta vaxtarlag. Tímarnir
hafa heldur betur breyst, því nú
orðið leggja konur frekar áherslu
á stækkandi kúluna með klæða-
burði sínum. Á vef New York
Times segir kona nokkur sögu af
atviki sem gladdi hana og ber
þessu breytta hugarfari glöggt
vitni. „Hárið á mér var rosalega
flott þennan dag,“ lýsir hún. „Ég
var í nýtísku gallabuxum og í
toppi og skóm samkvæmt nýjustu
tísku. Þar sem ég stóð og var að
velja mér sólgleraugu kom sölu-
konan til mín og sagði: Oh, þú ert
svo Angelinu Jolie-ólétt.“ Í lokin
lýsir hún því að þetta ávarp sölu-
konunnar hafi alveg bjargað deg-
inum.
Að hluta til er talið að rekja
megi þetta breytta hugarfar til
þess, að konur fresta orðið barn-
eignum fram yfir þrítugt. Þá eru
þær búnar að finna sinn eigin stíl
og hafa efni á því að láta ým-
islegt eftir sér í fatavali. Angel-
ina Jolie hefur ekki síður átt þátt
í breyttu hugarfari kvenna, en
hún klæddi sig ætíð samkvæmt
nýjustu tísku á nýliðinni með-
göngu.
Tískuhönnuðir hafa gripið
þetta breytta hugarfar á lofti og
hanna meðgöngufatnað í gríð og
erg. Áður fyrr var ekki um auð-
ugan garð að gresja fyrir konur
sem áttu von á sér, en nú bætast
æ fleiri tískufyrirtæki í hóp
þeirra sem gleðja þungaðar kon-
ur með glæsilegri hönnun. Svo
langt hefur jafnvel gengið að
konur, sem ekki eru barnshaf-
andi, sækja í tískufatnað þennan.
Netið hefur líka átt sinn þátt í
vaxandi áhuga á meðgöngufatn-
aði, sem tilheyrir hátísku, því
auðvelt er að kaupa slíkan fatnað
í netverslunum.
Meðgöngufatnaður sem hátíska
TÍSKA
neimanmarcus.com
nordstrom.com
UNGMENNAFÉLAG Íslands hvet-
ur fólk þetta sumar til að ganga sem
mest og af því tilefni er Leiðabók
UMFÍ komin út. Bókin er gefin út í
fjórða sinn og inniheldur upplýsingar
um stikaðar gönguleiðir. Um er að
ræða styttri leiðir sem tekur um 1–2
tíma að ganga. Í bókinni eru veittar
upplýsingar um upphafsstað hverrar
göngu og gefin stutt leiðarlýsing.
Gefið er yfirlit yfir um 272 gönguleið-
ir um allt land. Gönguleiðabókin inni-
heldur einnig upplýsingar um 23 fjöll
sem hafa á toppnum gestabækur og
þeir sem skrá sig í þær lenda í lukku-
potti UMFÍ sem dregið verður úr í
kringum fyrsta vetrardag. Þetta
verkefni kallast Fjölskyldan á fjallið.
Frekari upplýsingar um leiðirnar
272 sem eru í bókinni og um lengri
gönguleiðir ásamt upplýsingum um
lengd þeirra, eru að finna á vefnum
www.ganga.is. Á heimasíðunni má
einnig finna fjölda upplýsinga er við-
kemur göngubúnaði og undirbúningi
fyrir gönguferðir.
Leiðabókin er aðgengileg á öllum
Olísstöðvum um landið og er öllum að
kostnaðarlausu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hjörleifshöfði á Mýrdalssandi er hluti af verkefninu Fjölskyldan á fjallið.
Stuttar gönguleiðir
BÆKUR
www.ganga.is
SAMSETNING þessa drykkjar
fer alfarið eftir því hvað er til á
heimilinu. En alveg nauðsynlegt
er að hafa eftirfarandi þannig að
hann verði góður:
1 banani
6–8 klakar
vanilluskyr (eða eftir smekk) eða
2 msk af góðu próteini með van-
illubragði eða sojajógúrt
góð lúka af berjum (vínber, blá-
ber, hindber, kirsuber, einhver
fersk og helst lífrænt ræktuð ber)
lúka af myntu (eða piparmyntu)
2 Weetabix
Öllu dembt í blandara og bland-
að þar til allt er komið í mauk.
Síðan er bara að nota ímyndunar-
aflið og bragðlaukana til að fikra
sig áfram. Oft er nauðsynlegt að
þynna drykkinn og fer þá eftir
smekk hvað fólk notar. Vatn, und-
anrenna, sojamjólk eða jafnvel
djús (á ekki vel við með skyrinu).
Síðan hefur hörfræolía og grænt
te ratað í drykkinn líka.
Ef það er hollt og maukast má
setja það út í.
Heilsudrykkur