Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 26
26 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Flug til Glasgow. Haldið í áttina að skosku hálöndunum og gist í tvær
nætur á huggulegu hóteli úti á landi. Þaðan verður farið í
áhugaverða skoðunarferð til eyjarinnar Skye, en víkingarnir voru á
sínum tíma mikið á þessum slóðum. Því næst er haldið meðfram Loch
Ness vatninu til höfuðborgar hálandanna, Inverness. Hér verður farið
í dagsferð upp í hálöndin áður en haldið er aftur í áttina til Glasgow,
þar sem gist verður í þrjár nætur. Á leiðinni verður farið á alveg
einstaka smalahundasýningu og í viskísmökkun. Skoðunarferð verður
til Edinborgar, þar sem gefst færi á að skoða kastalann og margt
fleira, en einnig verður frjáls tími í Glasgow.
Fararstjóri: Árni Snæbjörnsson
Verð: 119.570 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus!
Sumar 9
Inverness–Edinborg
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
16. - 23. ágúst
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Skoskueyjarnar–
Ég fór fyrst til London, síðantil Ítalíu, Grikklands, Tyrk-lands, Íran, Pakistan, Afg-
anistan, Tajikistan, Kirgistan, Ús-
bekistan, Turkmenistan, aftur til
Afganistan, Indlands og svo heim til
Íslands,“ segir Björgvin Agnarsson
sem kom nýlega heim úr árs bak-
pokaferðalagi um Mið-Asíu. „Fyrstu
þrjá mánuði ferðarinnar var ég með
íslenskum vini mínum. Við byrjum
ferðina í Istanbúl, fórum um Tyrk-
land og Íran og vorum einn mánuð í
Pakistan, svo fór hann heim og ég
var einn það sem eftir var.“ Björgvin
segir það ekki erfitt að ferðast einn
því auðvelt sé fyrir þá bakpoka-
ferðalanga sem séu á sömu leið að
vera í samfloti.
Þegar Björgvin lagði af stað í
þetta ævintýri sitt hafði hann ekki
hugmynd um hvað hann yrði lengi.
„Ég hafði ákveðið að fara til Ist-
anbúl og Katmandu og vera í um
fjóra mánuði, en svo bara fór ferðin
svona.“
Byssuþorpið
Eftirminnilegustu staðirnir í huga
Björgvins eru Íran, Afganistan, ætt-
bálkasvæðin í Pakistan, og Aral-
vatnið í Úsbekistan. „Ég hafði enga
hugmynd um Íran þegar ég fór
þangað og það kom mér á óvart
hversu nútímavætt landið er. Í Pak-
istan fannst mér ég fyrst kynnast
þriðja heiminum, í Íran voru sam-
göngur svo auðveldar en í Pakistan
var allt afturábak, þar upplifði ég t.d
nítján tíma ferð í gamalli rútu í
gegnum eyðimörkina Baluchistan á
leið til Quetta. Ættbálkasvæðin við
landamæri Pakistan og Afganistan
eru ótrúleg. Þau eru ekki undir
stjórn Pakistans og útlendingum er
meinaður aðgangur en ég mútaði
mér inn í eitt þorp þar sem eru ein-
göngu framleiddar byssur. Það eru
verðir þar sem eiga að henda útlend-
ingum út en ef maður borgar þeim
taka þeir mann túr um þorpið. Við-
horfið til byssu þarna er skrítið, þær
eru lífið þeirra og það óma stans-
lausir skothvellir um þorpið.“ Í
seinni ferð sinni um Afganistan fór
Björgvin í gegnum Ghor fylkið sem
er eitt einangraðasta svæðið í þar í
landi og segir hann það hafa verið
eins og að fara tvöhundruð ár aftur í
tímann.
Björgvin segist hafa upplifað allt
annað í þessum heimshluta en það
sem Íslendingar sjá í fréttunum.
„Það kom mér mest á óvart hvað Ír-
anar leitast mikið við að fá vestræn
gildi inn í landið. Ég hafði þessa
ímynd um þriðja heims ríkið og svo
kemur maður þarna inn og þá er Te-
heran heimsborg, allir eru með
gervihnattadisk og fullt af fólki talar
ensku. Afganistan var síðan allt ann-
að, allt að hruni komið eftir áratuga
stríðsátök. Þar eru allar samgöngur
vonlausar nema þar sem bandaríski
herinn þarf að fara.“
Björgvin segir erfitt að segja til
um hvort hann hafi einhverntíman
verið í hættu. „Ég hef stundum sagt
að Afganar séu snillingar í falskri
öryggiskennd. Maður er alltaf svo
velkominn að maður áttar sig ekki á
hættunni, það er aldrei að vita nema
að það sé einhver á bak við næsta
horn. Ég hef verið ótrúlega heppinn
á mínum ferðum en það virðist vera
að þeir sem ferðast með mér lendi í
vandræðum. T.d lenti ferðafélagi
minn frá Suður-Afríku í því að vera
handtekinn í Pamir fjallgarðinum
því hann leit út eins og Afgani.“
Grýttur af börnum
Björgvin viðurkennir að hann hafi
stundum orðið hræddur og nefnir
sem dæmi einn dag á landamærum
Afganistan. „Við vorum þrír saman
og ætluðum í gegnum ætt-
bálkasvæðið og Khyper skarðið til
Kabúl. Í gegnum ættbálkasvæðið
þurfum við vopnaðan vörð, landa-
mæri Torkham voru öll í flækju,
trukkar og fólk út um allt, bílar við
bíla og heiftarleg rifrildi á milli bíl-
stjóra, það var mikill blóðhiti þenn-
an dag og maður gat ekki annað en
fundið til ótta.
Í Afganistan lenti ég svo óvart á
pílagrímastað á einum heilagasta
degi múslima. Göturnar þarna voru
fullar af fólki, ég var eini hvíti mað-
urinn og það hópaðist fólk í kringum
mig. Ég varð þá svolítið stressaður,
heyrði hvísl í kringum mig, sá illsku-
legar augngotur og krakkar voru
farnir að grýta mig. Löggan kom þá
og bjargaði mér í burtu.“ Björgvin
varð þó aldrei vitni að stríðsátökum
á ferðalagi sínu.
Verkstjóri í smíðavinnu
Ein óvenjulegasta reynsla Björg-
vins í ferðinni var þegar hann fékk
vinnu í Afganistan. „Ég var á hóteli í
Kabúl að fá mér morgunmat og
spjalla um daginn og veginn við
Ástrala sem var þar líka. Svo segi ég
meira við sjálfan mig en hann að það
væri nú fínt að vinna hérna í Afgan-
istan. Hann spyr mig þá hvað ég
geri, ég segist vera smiður og eftir
fjóra daga er ég kominn í vinnu. Ég
var verkstjóri í smíðavinnu hjá
bandarísku fyrirtæki sem byggir
hús fyrir bandaríska herinn. Ég
vann við þetta í einn og hálfan mán-
uð og fékk þá nóg. Þetta var um vet-
ur, ég bjó í tuttugu feta gámi með
fimmtán Pakistönum, það var ekki
heitt vatn, fyrirtækið var í vandræð-
um og ég bara gafst upp.“
Björgvin endaði svo ferðina á Ind-
landi þar sem hann dvaldi í tvo mán-
uði. „Ég þurfti að komast á þægileg-
an stað, ég var alveg dauðþreyttur
eftir tímann í Afganistan vegna nær-
ingarskorts og erfiðs aðbúnaðar.“
Eftir þetta ferðalag segist Björg-
vin vera breyttur maður. „Þetta
braut niður ýmsar hugmyndir hjá
mér. Ég varð svartsýnni á ástandið í
heiminum,“ segir Björgvin og bætir
við að þrátt fyrir það ætli hann að
ferðast fljótlega um þetta svæði aft-
ur. „Ég er hrifinn af þessum heims-
hluta og hef ekki sagt skilið við
hann.“
FERÐALÖG | Björgvin Agnarsson fór í bakpokaferð um Mið-Asíu
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Götumarkaður í Herat, myndina tók Björgvin ofan af hótelinu sínu.
Þessa mynd tók Björgvin af börnum mitt á milli Jam og Gharm inni í miðju
Afganistan. Hann ætlaði að taka mynd af einum strák þegar allur krakka-
skarinn kom hlaupandi frá þorpinu í baksýn og vildi vera með.
Maðurinn var að fara frá Jam niður á aðalveg í gegnum miðju Afganistan.
Vann sem verkstjóri í
smíðavinnu í Afganistan
Á VEFSÍÐU British Airways fyrir
Ísland hefur verið tekin í notkun
svokölluð „innkaupakarfa“, þar
sem væntanlegir farþegar með
British Airways geta bókað „allan
pakkann“ vegna ferðar sinnar til
London. Jafnframt því sem keypt-
ir eru farseðlar er nú leikur einn
að kaupa í sömu afgreiðslu hót-
elgistingu, leikhúsmiða, útsýn-
isferðir, leigja bíl og margt fleira.
Verð í íslenskum krónum
Í fréttatilkynningu frá British
Airways kemur fram að sem við-
skiptavinir British Airways njóti
farþegar afslátta og fríðinda bæði
á hótelum og hjá bílaleigum og í
öllum tilvikum er verð birt í ís-
lenskum krónum að sköttum með-
töldum.
Á vefsíðu British Airways er
hægt að fá upplýsingar um fjölda
möguleika sem borgin hefur upp á
að bjóða á þeim tíma sem áætlað
er að dvelja í London eða ná-
grenni.
FLUG | Hægt að bóka samtímis flug, hótel, bíl og leikhúsmiða
Allur pakkinn bókaður í einu
Morgunblaðið/Ómar