Morgunblaðið - 24.06.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 27
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Sími: 50 50 600 • www.hertz.is
www.hertz.is
Bókaðu
bílinn heima
- og fáðu 500
Vildarpunkta
Vika í
USA
21.200*
San Fransisco
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
17.800*
Florida
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
*
23.300*
Boston
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
32
54
6
05
/2
00
6
Það eru engir bílar í miðbænum í
Pag í Króatíu og fallegar, gamlar
byggingarnar hýsa kaffihús og veit-
ingastaði þar sem fólk kemur saman
til að spjalla, sýna sig og sjá aðra.
Kjörbúðin er á götuhorninu og börn-
in geta hlaupið til bakarans í næsta
nágrenni og keypt bakkelsið með
morgunkaffinu. Ströndin er í göngu-
færi.
Það er þarna á eyjunni Pag sem
hjónin Brynhildur Guðmundsdóttir
og Ivica Gregoric og Örn Valdimars-
son og Aðalheiður Guðbjörnsdóttir
hafa fjárfest í tveimur húsum sem
þau ætla að leigja út til ferðamanna.
„Þetta hófst með því að foreldrar
mínir voru að íhuga sumarhúsakaup
og fannst spennandi kostur að
kaupa hús í Króatíu enda hæg
heimatök því maðurinn minn er
Króati,“ segir Brynhildur Guð-
mundsdóttir en hún á með fjölskyldu
sinni hús á eyjunni Pag þar sem stór-
fjölskyldan eyðir sumarfríunum.
Þegar við fréttum af húsnæði sem
væri laust í gamla bænum ákváðum
við með vinahjónum að kaupa tvö
hús til að leigja út.“
Krakkarnir elska frelsið
„Húsin eru nálægt ströndinni en í
gamla bænum þar sem bara eru
göngugötur og stutt í kjörbúðina
eða til bakarans og mjög fjöl-
skylduvænt umhverfi. Krakkarnir
okkar tapa sér alveg í frelsinu
þarna, geta þess vegna farið í fót-
bolta úti á götu eða hlaupið út í bak-
arí án þess að líta til hægri og vinstri
og svo er stutt í strandlífið en sjór-
inn er í um tvö hundruð metra fjar-
lægð frá gamla bænum. Sjórinn í
kringum Pag hefur einnig fengið
bestu einkunn bláa flaggsins og er
kristaltær. Það er hægt að leigja
litla báta til að stytta sér stundir
þegar fólk er á ströndinni
Á ströndinni og í bænum eru ótal
kaffihús og veitingastaðir og það er
oft líf á aðaltorginu við sjóinn, tón-
leikar á kvöldin og mikið um að
vera. Á ströndinni er líka tívolí fyrir
krakkana yfir sumarið.“
Náttúrufegurð og menning
Brynhildur segir að ýmislegt sé
hægt að hafa fyrir stafni í Króatíu. „
Það er gaman að skreppa til Novalja
sem er vinsæll sumarleyfisstaður hjá
ungu fólki en þangað er um korters
akstur. Plitvicka Jazera-þjóðgarð-
urinn eða vatnaþjóðgarðurinn er
engu líkur en þangað tekur um tvo
tíma að aka frá Pag. Eyjan Pag og
samnefndur bær eru á miðri Dal-
matíuströndinni og þaðan er um það
bil einn og hálfan tíma verið að aka
til borgarinnar Split og þar er margt
að skoða. Í nágrannabænum Zadar
er síðan boðið upp á siglingu til Ítal-
íu ef fólk vill skreppa yfir.
Landið hefur upp á margt að
bjóða, mjög fallega náttúru, glæsta
menningu og maturinn og vínið er í
hæsta gæðaflokki. Víða í Pag er boð-
ið upp á ferskt sjávarfang og svo
gætir líka ítalskra áhrifa í matseld-
inni því það er stutt til Ítalíu.
Pag er ein stærsta eyja Króatíu og
gamli bærinn eins og hann kemur
fyrir sjónir í dag á rætur að rekja til
ársins 1443.
Ódýrt að kaupa í matinn
Steinhúsin sem Brynhildur er að
leigja út eru orðin 300–400 ára göm-
ul en það er búið að gera þau upp í
samræmi við kröfur um varðveislu
bygginga í gamla bænum og bæði
eru þau búin öllum nútímaþæg-
indum.
En hvernig er verðlagið í Pag?
„Enn sem komið er, er Pag að
mestu óspilltur bær af nútíma ferða-
mennsku sem þýðir að allt er ódýr-
ara þarna en þar sem margir ferða-
menn dvelja í Króatíu.
Það er mjög ódýrt að kaupa í mat-
inn og einnig að fara út að borða.“
Um þrif á húsunum annast roskin
kona í Pag og viðhald húsanna er í
höndum tengdaforeldra Brynhildar.
KRÓATÍA | Leigja út tvö hús í gamla bænum á eyjunni Pag
Fjölskylduvænt sumarfrí
Ströndin við eyjuna Pag er hrein og sjórinn alveg tær.
Í gamla bænum geta börn leikið sér á götum úti því bílaumferð er bönnuð.
Nánari upplýsingar
um húsin fást á slóð-
inni www.kroatia.is
allao@centrum.is og
brynhld@internet.is
Símar 8675141 og
6630504
gudbjorg@mbl.is
Hægt er til dæmis að fljúga með Heimsferðum til
Trieste og aka þaðan til eyjunnar Pag í Króatíu en
aksturinn þangað tekur um fjórar klukkustundir.
Einnig er hægt að fljúga til London og Frankfurt
og þaðan til Split, Zagrep og fleiri borga í Króatíu.
Þess má geta að bílaleigur eru á öllum þessum
stöðum.
Sagan og Berlín
Express-ferðir hafa sett upp nokkrar
ferðir til Berlínar. Berlín og þriðja rík-
ið er yfirskrift ferðar sem verður far-
in 7.–12. september undir leiðsögn
Óttars Guðmundssonar læknis sem
þekkir sögu Berlínar. Farið verður á
helstu staði sem tengjast pólitískri
sögu borgarinnar, Weimar-lýðveld-
isins, þriðja ríkisins, kalda stríðsins
sem leiddi til sundrungar borg-
arinnar og síðan sameiningar borg-
arinnar 1989. Einnig verður farið á
slóðir gyðinga, á ólympíuleikvanginn
og í Sachsenhausen-fangabúðirnar.
Þetta er fróðleg sögu- og menning-
arferð. Berlín hefur upp á mikið að
bjóða í mat, drykk, listum og menn-
ingu og gefst farþegum tækifæri til
að njóta þess ásamt góðri leiðsögn.
Haustferðir til St. John’s
Hópferðamiðstöðin – Vesttravel
stendur í ár fyrir haustferðum til St.
John’s, höfuðborgar Nýfundnalands
í Kanada, með nokkuð nýju sniði.
Undanfarin átta ár hefur verið boðið
upp á þriggja nátta ferðir en nú ferð-
ur hægt að gista í fjórar nætur í
borginni.
Í fréttatilkynningu frá Hópferða-
miðstöðinni – Vesttravel, kemur
fram að borgin, sem er á stærð við
Reykjavík, hafi vakið athygli fyrir
hagstæða verslun en standist einnig
aðrar kröfur ferðamanna hvað varð-
ar hótel, afþreyingu og veitingahús.
St. John’s á sér ríka sögu sem ein
mikilvægasta hafnarborg á austur-
strönd Norður-Ameríku.
Áætlaðar eru þrjár ferðir í haust og
sú fyrsta verður 28.–31. október.
Seinni tvær ferðirnar eru fjögurra
nátta, 31. október – 4. nóvember og
4.–8. nóvember. Flogið er í beinu
leiguflugi sem tekur 3–3½ klst. Í
boði verða m.a. skoðunarferðir til
Cape Spear, austasta odda N-
Ameríku.
www.vesttravel.is