Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 45
DAGBÓK
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Hvenær settist
fólk að í
Reykjavík?
WWW.EBK.DK
Grafningur, Nesjavallavegur nr. 360, c/a 6 km frá gatnamótum Þingvallavegar nr. 30
Glæsileg dönsk hönnun með fallegum úthugsuðum smáatriðum. Stórir útsýnisgluggar, háar
framhliðar, hátt upp í mæni i öllu húsinu, sem hleypa inn mikilli birtu og skapa gott loft og vellíðan.
EBK býður 4 tegundir húsa og 35 útfœrslur. Möguleiki er á sérútfœrslum á innréttingum og að fá húsin
á mismunandi byggingarstigum. Við höfum verið hluti af sumar húsalífi á Íslandi og í Danmörku i 30 ár.
Sölumenn okkar og ráðgjafar Morten Eistorp GSM + 45 21 61 58 56 eða Anders Jensen
GSM +45 20 86 46 59 gefa allar upplýsingar á dönsku/ensku og senda sölubœklinga (á dönsku).
Nýtt: OPIÐ HÚS laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. júní kl. 13-16
Aðalskriftstofa: +45-58 56 04 00
Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Mán.- fös.: 8-16.30
Sun. og helgidaga: 13-17
BELLA CENTER: +45-32 52 46 54
C.F. Møllers Allé, Ørestaden, København
Mán.- mið. og lau. 13-17
Sun. og helgidaga: 10-17
6
32
9
EBK Lyngholm 80; 72 fm stórglæsilegt, bjart sumarhús á einni hæð með yfirbyggðum sólpalli. Inngangur,
2 herbergi, bað, eldhús og stofa með stórum gluggum, sem ná niður í gólf með dyrum út á sólpall.
Á heimasíðu okkar er hægt að sjá husin sem við bjóðum. Sýningahús eru staðsett við
aðalskrifstofu okkar og við Bella Center:
OPIÐ HÚS Í GRAFNINGI
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 500-700 fm skrifstofuhúsnæði á einni
hæð á einhverjum framangreindra staða.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI VIÐ BORGARTÚN,
SKÚLATÚN EÐA Í MÚLAHVERFI ÓSKAST
Ferðamálaskóli Íslands útskrifaði á vor-mánuðum nemendur í ferðaráðgjöf,ferðamarkaðsfræði og leiðsögn. FriðjónSæmundsson er skólastjóri Ferðamála-
skólans: „Skólinn kennir ferðaráðgjöf samkvæmt
alþjóðlegum staðli alþjóðasamtaka flugfélaga og
ferðaskrifstofa, IATA/UFTA, og þreyta nemendur
samræmt alþjóðlegt próf að námi loknu,“ útskýrir
Friðjón. „Við erum eini skólinn hérlendis sem
kennir samkvæmt þessum staðli og höfum gert all-
ar götur síðan 1990. Námsefni í ferðaráðgjöf er í
grófum dráttum þríþætt: ferðalandafræði, far-
seðlaútgáfa og bókunarkerfi flugfélaga og ferða-
skrifstofa. Að námi loknu eru nemendur tilbúnir til
að hefja þegar störf í ferðageiranum, hvort sem er
hjá flugfélögum eða ferðaskrifstofum.“
Að þessu sinni útskrifuðust frá skólanum 25
ferðaráðgjafar, en kennsla varir hvern vetur frá
miðjum september til miðs mars. „Mikil eftirspurn
er eftir fólki með slíka menntun og áttu þeir nem-
endur sem luku námi í vor allir kost á að hefja störf
við hæfi. Óhætt er að segja að vöntun er á ferðaráð-
gjöfum við flugfélög og ferðaskrifstofur á Íslandi
þessi misserin.“
Ferðamarkaðsfræði hefur skólinn kennt frá
1998, einnig samkvæmt staðli IATA/UFTA. „Við
útskrifuðum að þessu sinni 15 ferðamarkaðsfræð-
inga, sem hafa stundað nám frá október og luku nú
námi með alþjóðlegu prófi sem þreytt er samdæg-
urs um allan heim. Nemendur hafa lært sölu- og
markaðsfræði, og stefnumótun á sviði ferðaþjón-
ustu.“
Þá útskrifuðust 24 úr leiðsögumannanámi: „Í því
námi er fólki kennt að taka með sem bestum hætti
á móti innlendum og erlendum ferðamönnum sem
vilja skoða landið. Í námsefninu er fjallað ítarlega
um alla landshluta, auk þess sem nemendur læra
hjálp í viðlögum, fræðast um listasögu og
bókmenntir, flóru og fánu og annað það sem ferða-
menn þyrstir að vita um land og þjóð,“ segir Frið-
jón.
„Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað mjög og
fyrirsjáanleg frekari aukning á næstu árum. Áætl-
að er að í ár sæki 400.000 útlendingar Ísland heim
og spáð að árið 2016 verði fjöldi ferðamanna árlega
kominn yfir eina milljón. Skiptir þar sköpum bæði
að fleiri flugfélög bjóða upp á ferðir hingað til lands,
og fargjöld eru orðin viðráðanlegri, til viðbótar við
þá náttúru, menningu og öryggi sem hér má njóta.“
Friðjón segir námið við Ferðamálaskólann krefj-
andi og umfangsmikið: „Námið er alþjóðlega við-
urkennt og veitir þannig réttindi sem nemendur
geta nýtt sér hvar sem er í heiminum.“
Umsóknarfrestur til náms í Ferðamálaskólanum
er til loka júnímánaðar. Mörg verkalýðsfélög veita
styrki til niðurgreiðslu kennslugjalda. Nánari upp-
lýsingar má finna á www.menntun.is.
Menntun | Umsóknarfrestur til náms í Ferðamálaskóla Íslands til loka júnímánaðar
Fjölbreytt ferðamálanám í boði
Friðjón Sæmundsson
fæddist í Reykjavík
1949. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Versl-
unarskólanum í Reykja-
vík 1971. Friðjón
starfaði sem skrif-
stofustjóri á skrifstofu
Flugfélags Íslands í
Lundúnum frá 1971 til
1975. Hann var fram-
kvæmdastjóri Ferða-
miðstöðvarinnar 1975 til 1982, starfaði hjá
Tölvufræðslunni 1982 til 1986 og stofnaði
Tölvuskóla Íslands 1986. Síðar setti hann á
laggirnar Stjórntækniskóla Íslands og árið
1988 hóf Ferðamálaskóli Íslands starfsemi.
HM í Veróna.
Norður
♠D8753
♥KD1082 S/AV
♦–
♣DG4
Vestur Austur
♠G92 ♠K
♥– ♥G754
♦1064 ♦DG98532
♣Á876532 ♣K
Suður
♠Á1064
♥Á963
♦ÁK7
♣109
Það var norrænn blær á úrslitaleik
Rosenblum-keppninnar í Veróna: Í sig-
ursveitinni spiluðu Norðmennirnir Geir
Helgemo og Tor Helness undir merkj-
um bandarísku konunnar Rose Meltzer
– hinnar sömu og stýrði liðinu sem vann
Norðmenn í frægum úrslitaleik HM
2001 í París. Með þeim spiluðu Kyle
Larsen, Alan Sontag og Roger Bates,
en þeir tveir fyrstnefndu voru einnig í
sigurliðinu í París. Önnur bandarísk
kona, Henner-Welland, fór fyrir keppi-
nautunum, og með henni spiluðu fjórir
landsliðsmenn Svía, þeir Lindkvist,
Fredin, Bertheau og Nyström, ásamt
Bandaríkjamanninum Marc Jacobus.
Úrslitaleikurinn var tiltölulega jafn,
en Meltzer tók þó strax forystuna og
hélt henni samfleytt til enda. Spiluð
voru 64 spil og fóru leikar 179-133 í
IMPum. Helness og Helgemo áttu góð-
an dag að vanda, en misstigu sig þó illa í
spilinu að ofan, sem er frá fyrstu lot-
unni:
Vestur Norður Austur Suður
Bertheau Helgemo Nyström Helness
– – – 1 grand
Pass 2 hjörtu * Pass 3 lauf
Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu
Pass 5 tíglar Pass 5 spaðar
Pass Pass Pass
Eftir 15–17 punkta grandopnun yf-
irfærir Helgemo í spaða og Helness
sýnir fjórlitarstuðning og um leið tvíspil
í laufi með þremur laufum. Helgemo
sýnir þá stuttan tígul með stökki í fjóra
tígla (splinter), og sú sögn hefði átt að
bæla slemmudrauma Helness, því ÁK í
tígli er ekki uppbyggilegur styrkur á
móti stuttlit. En hann freistaðist til að
segja frá hjartafyrirstöðunni og það
varð til þess að þeir þvældust upp á
fimmta þrep.
Sem var einum of hátt. Út kom laufás
og meira lauf, og þótt fyrstu slagirnir
væru dramatískir (tveir blankir kóngar
úr austrinu) kom það ekki í veg fyrir að
vestur fengi þriðja slaginn á tromp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hvalfjarðargöng
HVERNIG í ósköpunum stendur á
því að ekki er betri lýsing í Hval-
fjarðargöngunum? Ég er nýkom-
inn úr göngunum og það verður að
segjast eins og er að það er stór-
hættulegt að keyra gegnum göng-
in vegna lélegrar lýsingar.
Það er nauðsynlegt að bæta úr
þessu áður en fleiri slys verða þar.
Sérstaklega er nauðsynlegt að
bæta úr lýsingunni fyrstu 100 til
200 metrana þegar komið er í
göngin því þá er nánast ókeyrandi
vegna lélegrar lýsingar.
Ökumaður.
Óskiljanleg rukkun
tryggingafélags
ÉG fékk kvittun frá Vátrygginga-
félagi Íslands yfir vátryggingar
sem ég borga og var hún sund-
urliðuð. Einn liðurinn er: Þjófn-
aður úr grunnskóla kr. 5.100. Ég
hringdi í Vátryggingafélag Ísland
til að fá skýringu á þessu en það
gat enginn gefið mér skýringu,
mér var bara sagt að svona væri
þetta. Ég er eldri borgari og að
verða áttræð og við þetta fullorðna
fólk skiljum ekki svona. Er ein-
hver sem getur útskýrt þetta fyrir
mér?
Anna.
Bílastæðahús autt 17. júní
17. júní skildi ég bílinn eftir í bíla-
stæðahúsinu á Vesturgötu 7. Þeg-
ar ég kom til baka um kl. 17 var
bílum lagt á Vesturgötunni báðum
megin götunnar upp fyrir Norð-
urstíg öllum til ama og leiðinda.
Skiltið á bílastæðahúsinu sýndi
fullt, en þegar inn var komið voru
einn eða tveir bílar í húsinu auk
bílsins míns, og sláin innakst-
ursmegin var niðri. Kolaportið var
á sama tíma með báðar slárnar
uppi.
Gilda aðrar reglur um Vest-
urgötuhúsið, má ekki hleypa nema
örfáum bílum inn í það? Þetta er
því miður ekki í fyrsta skipti er ég
kem í húsið að skiltið sýnir fullt en
inni eru örfáir bílar.
Jóhann G. Guðjónsson.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 24. júní, erníræð Lillý Kristjánsson, til
heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Lillý og fjölskylda munu fagna þessum
tímamótum sunnudaginn 25. júní og
bjóða ættingjum og vinum til afmæl-
isveislu í Setrinu á Grand hóteli í
Reykjavík kl. 15–17.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is