Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Hljómsveitin Klassík
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill ásamt tilboðsseðli öll kvöld.
www.kringlukrain.is sími 568 0878
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
24. júní kl. 12.00:
Thomas Trotter, orgel.
25. júní kl. 12.00:
Hinn heimsþekkti, breski orgelleikari
Thomas Trotter leikur verk eftir
Bach, Mozart, MacMillian,
Stravinsky, Wammes og Flagler.
! " #
$$$
%
!"#$ !%
&'( )( * + ,( ) - . /
+.
. 0 + 1 ,*2+, 3
&4(5
( * + ,( ) - . /
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning í Borgarnesi
MIÐAPANTANIR
Í SÍMA 437 1600
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
Leikhústilboð. frá kr. 4000 - 4800
Matur, leiksýning og frítt í Hvalfjarðargöngin
til baka. í boði Landnámsseturs
Lau. 24. júní kl. 20 laus sæti
Fös. 30. júní kl. 20 laus sæti
Lau. 1. júlí kl. 20 laus sæti
Sun.2. júlí kl. 20 laus sæti
Fös. 7. júlí kl. 20 laus sæti
Lau. 8. júlí kl. 20 laus sæti
Sun.9. júlí kl. 20 laus sæti
Fös. 14. júlí kl. 20 laus sæti
Lau. 15. júlí kl. 20 laus sæti
Sun.16. júlí kl. 20 laus sæti
Fös. 21. júlí kl. 20 laus sæti
Lau. 22. júlí kl. 20 laus sæti
Sun.23. júlí kl. 20 laus sæti
Fös. 28. júlí kl. 20 laus sæti
Lau. 29. júlí kl. 20 laus sæti
Sun.30. júlí kl. 20 laus sæti
Á ÞAKINU
29. júní – Frumsýning Uppselt
30. júní – Uppselt
1.júlí – Uppselt
6.júlí – laus sæti
7.júlí – laus sæti
8.júlí – laus sæti
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
ÞJÓÐBÚNINGADAGUR verður í
Norska húsinu í Stykkishólmi í dag
og geta gestir kynnt sér íslenska
þjóðbúninga og handverk þeim tengt
,á milli kl. 14 og 16.
Á jarðhæð Norska hússins er upp-
settur vefstóll og geta gestir spreytt
sig við vefnað, og á efri hæðinni verð-
ur sýnt knippl og baldýring. Byggða-
safni Snæfellinga var færður íslensk-
ur skautbúningur að gjöf fyrir
skemmstu og verður hann sýndur
sem og faldbúningur Ingibjargar
Ágústsdóttur.
Faldbúningurinn dregur nafn sitt
af höfuðbúnaðinum, svonefndum faldi
sem gerður var úr samanbrotnum
klútum sem vafðir voru um höfuðið.
Búningurinn mótaðist í tímans rás og
19. öld var hann einkum notaður sem
sparibúningur og á seinasta fjórðungi
19. aldar lagðist notkun hans af.
Skautbúningurinn var hins vegar
hannaður sem íslenskur hátíðarbún-
ingur af Sigurði Guðmundssyni mál-
ara, með hliðsjón af gamla faldbún-
ingnum. Báðar tegundir af þessum
íslensku búningum eru mjög glæsi-
legar og er mikils um vert að konur
fari að gefa þeim aukinn gaum. Í sam-
félagi samtímans er mikilvægt að
gamalli verkþekkingu og handverki
búningsins sé haldið við og það
gleymist ekki og er markmiðið með
búningadeginum að auka skilning og
þekkingu almennings á því handverki
sem felst í íslenska þjóðbúningnum.
Í tilefni dagsins er ókeypis inn á
safnið og einnig er öllum konum sem
klæðast íslenskum þjóðbúningi þenn-
an dag boðið í kaffiboð í stássstofunni
hjá frú Önnu Magdalenu í Norska
húsinu.
Konur sem eiga eða hafa afnot af
íslenskum búningi eru hvattar til að
bera hann þennan dag og mæta í
Norska húsið en aðrir eru hvattir til
að koma og kynna sér íslenskt hand-
verk.
Þjóðbúningaklæddum boðið í kaffi
Morgunblaðið/Eyþór
Konur eru hvattar til að mæta í þjóðbúningi í Norska húsið í Stykkishólmi.
Í LISTASAFNI Árnesinga verður í
dag kl. 16 opnuð sýningin Granna-
gróður. Um er að ræða samsýn-
ingu, en Randi S. Vang og Jónhild
Johannessen arkitekt hafa valið
verk eftir 32 einstaklinga til að
kynna færeyska list, listiðnað og
hönnun. Fyrirtæki þeirra Randi og
Jonhild, Gluggaglæma, var stofnað
árið 2003, en það stendur fyrir sýn-
ingum, samkeppnum og ráðstefnum
innan og utan Færeyja. Við opn-
unina syngur Sigrid Rasmussen og
spilar á gítar.
Ríkey Kristjánsdóttir hönnuður,
búsett á Seyðisfirði, opnar á sama
tíma sína fyrstu einkasýningu í
hönnunarstofu safnsins, en sýningin
ber nafnið Endurunnar minningar.
Ríkey útskrifaðist sem handavinnu-
kennari frá Håndarbejdets Frem-
mes Seminarium í Kaupmannahöfn
vorið 2003, með útsaum sem að-
alfag og textílhönnun sem valfag.
Tvöföld opnun í
Listasafni Árnesinga
SÉRSTÖK hrynlistasýning verður
haldin í dag kl. 13 í Salnum í Kópa-
vogi. Sýningin er á vegum hóps sem
nefnir sig Eurythmie-Bühnenen-
semble.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
hrynlist nefnist á þýsku Eurythmie
og sé sérstök gerð hreyfilistar sem
Rudolf Steiner lagði grunninn að ár-
ið 1912. Hrynlist tjáir tónlist og talað
mál á sjónrænan hátt. Þannig er
hægt að upplifa lífskrafta og andleg
gæði sem búa í hverjum tóni og
hverjum samhljóða og sérhljóða.
Allt eru þetta öfl sem hafa áhrif á
manneskjuna, bæði flytjandann og
áhorfandann.
Hrynlist er til í þremur formum:
sem hreint listform, sem meðferð-
arform vegna uppbyggjandi eig-
inleika hennar og sem námsgrein í
Waldorfskólum.
Eurythmie-Bühnenensemble býð-
ur upp á kynningu fyrir sýningu fyr-
ir alla þá sem vilja öðlast meiri inn-
sýn. Hún hefst kl. 12 í dag og
stendur í um 45 mínútur.
Á sýningunni sjálfri verða m.a.
flutt Adagio í h-moll eftir W.A. Moz-
art, Sarabande og Gigue úr Svítu nr.
5 eftir J.S. Bach, etýða nr. 3 í As-
Dúr og „Regentropfenprelude“ eftir
F. Chopin, tvö verk eftir Schumann
og Sagan af Dimmalimm eftir Guð-
mund Thorsteinsson.
Hrynlistasýning í Salnum
Morgunblaðið/Eggert
Hrynlistahátíð verður haldin í Salnum í dag.
Fréttir á SMS
NÚ ERU síðustu forvöð til að sjá
nokkrar áhugaverðar sýningar
sem verið hafa á boðstólum að
undanförnu.
Á sunnudaginn lýkur alþjóðlegu
farandsýningunni „HOMESICK“ í
Listasafninu á Akureyri. Sjö lista-
menn frá fjórum löndum koma að
sýningunni og takast hver með
sínum hætti við heimþrána.
Þann sama dag eru sýningarlok
í Listasafni Íslands á sýningum
Birgis Andréssonar og Steingríms
Eyfjörð. Leiðsögn verður um báð-
ar sýningarnar klukkan 14 á
sunnudaginn í fylgd Rakelar Pét-
ursdóttur.
Þá er síðasta sýningarhelgi í
Safni, en á annarri og þriðju hæð-
inni má líta skúlptúr, textaverk,
málverk, ljósmyndir og vídeóverk
eftir Karin Sander og Ceal Floyer
sem báðar hafa sýnt í virtustu
galleríum heims. Á grunnhæð
Safns býður svo fyrrnefnda lista-
konan gestum að hlýða á hljóð-
verk eftir 40 listamenn.
Ennfremur er síðasta tækifærið
til að sjá sýningu Erlu Þórarins-
dóttur í galleríinu Anima um
helgina, „Dældir og duldir“. Um
er að ræða verk unnin á striga,
tölvuprentaðar ljósmyndir og
fleira.
Að lokum er vert að benda á
sýningarlok í Listasafni ASÍ á sýn-
ingu þeirra Hugins Þórs Arasonar
og Unnars Arnar J. Auðarsonar,
„ASÍ - FRAKTAL - GRILL“. Lista-
mennirnir gera þar tilraun til að
fletta ofan af „illsýnilegum,
óskráðum en kannski augljósum
hliðum“ þess samfélags/umhverfis
sem þeir starfa innan.
Sýningarlok um helgina