Morgunblaðið - 14.07.2006, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MS drykkjarvörur í fjallgönguna
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
ENNÞÁ ÁRÁSIR Í BEIRÚT
Her Ísraels herti árásir sínar á
Líbanon í gær, setti hafnbann á
landið og varpaði sprengjum á eina
alþjóðaflugvöll þess. Eru þetta hörð-
ustu loftárásir á Líbanon í 24 ár.
Tugir manna liggja í valnum og báð-
ir aðilar hafa teflt á tæpasta vað.
Guðni í framboð
Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins, hefur lýst því
yfir að hann hyggist sækjast eftir að
gegna embætti varaformanns
flokksins áfram. Telur hann sig velja
leið sátta og samheldni í flokknum
með því að bjóða sig fram.
Óljós mynd af Þingvöllum
Fornleifarannsókn á Þingvöllum
sem fram fór á árunum 2002-2006
hefur leitt í ljós að sú mynd sem við
höfum haft af Þingvöllum er óljós og
í mörgum atriðum röng. Þetta segir
Adolf Friðriksson sem stjórnað hef-
ur rannsókninni.
Stíflan langt komin
Vinna við Kárahnjúkavirkjun
gengur samkvæmt áætlun ef undan
er skilin vinna við aðrennslisgöng.
Um 95% fyllingarefnis eru komin í
Kárahnjúkastíflu og vinna við káp-
una vatnsmegin er rúmlega hálfnuð.
Stofnanavæðing víkur
Vikið verður frá stofnanavæðingu
með aukinni áherslu á heimahjúkrun
og byggingu minni, heimilislegri ein-
inga í stað stórra öldrunarstofnana
eins og nú þekkjast, samkvæmt
stefnumótun Sivjar Friðleifsdóttur,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, í öldrunarmálun, en hún var
kynnt á blaðamannafundi í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 24/31
Fréttaskýring 8 Forystugrein 28
Úr verinu 11 Bréf 31
Viðskipti 12 Minningar 32/40
Erlent 14/15 Brids 43
Minn staður 16 Myndasögur 44
Höfuðborgin 18 Dagbók 44/47
Akureyri 18 Staður og stund 46
Suðurnes 19 Menning 48/49
Landið 19 Bíó 50/53
Austurland 19 Ljósvakamiðlar 54
Daglegt líf 20/21 Veður 55
Menning 22 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FULLORÐNUM manni og 12 ára
dreng á litlum seglbáti í eigu Skáta-
hreyfingarinnar var bjargað úr sjáv-
arháska af félögum í Kayakklúbbn-
um í Reykjavík og Slökkviliðinu eftir
að bátnum hvolfdi við Geldinganes í
gærkvöldi. Drengnum var orðið
mjög kalt þegar björgin kom enda
var hann ekki klæddur í sjóheldan
fatnað. Báðir voru þeir þó með
björgunarvesti. Seglbáturinn ber
nafnið Hákarl og er einmastra stutt-
ur bátur án kjalar. Vindhviða feykti
bátunum á hliðina þegar hann var
kominn um 300 m frá landi við eiðið á
Geldinganesi, skammt frá aðstöðu
Kayakklúbbsins. Þorsteinn Guð-
mundsson kajakræðari var þá stadd-
ur í landi og varð vitni að óhappinu.
Sjósetti hann tveggja manna kajak
og reri út til bjargar. „Drengnum
var orðið mjög kalt en maðurinn bar
sig vel,“ sagði hann. Þorsteinn reri
síðan með drenginn í land og um
svipað leyti komu björgunarbátar á
vettvang. „Þeir voru undraskjótir á
staðinn og líklega hefur það ekki tek-
ið nema nokkrar mínútur fyrir þá að
koma,“ sagði hann.
Hinum fullorðna var síðan bjargað
um borð í björgunarbát Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins og bátar
HSSK og Björgunarsveitarinnar Ár-
sæls fóru með bátinn í land.
Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð
á staðinn og fluttu skipbrotsmennina
á sjúkrahús en óslasaða þrátt fyrir
volk.
Skátahreyfingin eignaðist bátinn í
vor og hefur hann verið geymdur við
Geldinganes síðan.
Bjargað úr sjávarháska
Morgunblaðið/ÞÖK
Seglbátnum komið á réttan kjöl eftir atvikið við Geldinganes í gærkvöldi.
MÓTMÆLAFUNDUR á vegum félagsins Ísland-
Palestína fór fram á Austurvelli í gær. Guðrún Ög-
mundsdóttir alþingismaður og Sveinn Rúnar Hauks-
son, læknir og formaður félagsins, fluttu erindi og
hljómsveitirnar Llama og KK stigu á svið.
Boðað var til fundarins til að mótmæla stríðs-
glæpum Ísraelshers á Gaza og sýna samstöðu með
mannréttindabaráttu palestínsku þjóðarinnar eins og
segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Fundarmenn
gerðu ýmsar kröfur og meðal þeirra má nefna að Ísr-
aelsher færi burt úr Palestínu og að blóðbaðið yrði
stöðvað. Félagið leggur áherslu á að aðskilnaðarmúr
sem Ísraelar byggja á Vesturbakkanum verði fjar-
lægður í samræmi við úrskurð alþjóðadómstólsins í
Haag en sl. sunnudag voru tvö ár síðan úrskurðurinn
var kveðinn upp.
Mótmæltu aðgerðum Ísraela
Morgunblaðið/Sverrir
RÍFLEGA fimmtíu einstaklingar
sem tekið hafa íbúðalán hjá KB
banka hafa undanfarna daga fengið
bréf frá bankanum þar sem þeim er
tilkynnt að þeir uppfylli ekki skilyrði
um viðskipti við bankann sem sett
séu í skilmálum lánsins. Því eigi þeir
á hættu að missa 0,75% afslátt af lán-
inu og geti því þurft að greiða 4,9%
vexti í stað 4,15% vaxta sem þeir
greiða nú.
Í skilmálunum frá upphafi
Í bréfinu segir að skilyrði fyrir því
að fá áðurnefndan afslátt séu að við-
komandi sé með launareikning hjá
KB banka auk þess sem hann þarf að
hafa tvennt af eftirtöldu hjá bank-
anum; lífeyrissparnað, greiðslukort
eða greiðsluþjónustu.
Friðrik S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
KB banka, segir í samtali við Morg-
unblaðið að skilyrðin hafi verið í skil-
málum íbúðalána frá upphafi og að-
eins sé verið að framfylgja þeim.
„Á skuldabréfunum stendur að
þau séu með 4,9% vöxtum, en að við-
skiptavinir bankans geti fengið
0,75% afslátt uppfylli þeir ákveðin
skilyrði. Það er því ekki verið að
breyta skilmálum lánanna á nokkurn
hátt.“
Friðrik segir hugsanlegt að ein-
hverjir hafi fengið lán afgreidd á
4,15% vöxtum þrátt fyrir að hafa
ekki uppfyllt skilyrðin á þeim tíma.
„Það hefur hins vegar aðeins verið
gert gegn því að lántakandi gerði
ráðstafanir til að uppfylla skilyrðin
að láninu veittu. Verið getur að það
hafi farist fyrir eða gleymst hjá ein-
hverjum og eru þeir því minntir á
það nú,“ segir Friðrik.
Gætu misst af-
slátt af íbúðaláni
Lántökum hjá KB banka sent bréf
VIGDÍS Finn-
bogadóttir, fv.
forseti Íslands,
var nýverið sæmd
heiðursdokt-
orsnafnbót við
Glasgow Cale-
donian Univers-
ity í Skotlandi.
Vigdísi var
veitt nafnbótin fyrir að hafa um ára-
bil í hvívetna tekið málstað menn-
ingarinnar, bæði í heimalandi sínu
og á alþjóðlegum vettvangi, og fyrir
að vera einarður talsmaður þess að
sterk menningarleg sjálfsvitund
hverrar þjóðar auðveldi fólki að
skilja menningu annarra með opn-
um huga á jafnréttisgrundvelli.
Glasgow Caledonian University er
18. háskólinn, sem sæmir Vigdísi
heiðursdoktorsnafnbót.
Gerð að heiðurs-
doktor í Skotlandi
TRUFLANIR urðu á þjónustu Og-
Vodafone eftir að verktakar að
störfum við Kalkofnsveg rufu mik-
ilvægan ljósleiðara fyrirtækisins
um níuleytið í gærmorgun.
Ljósleiðararofið hafði víðtæk
áhrif á þjónustu við viðskiptavini
með farsíma, fastlínu og ADSL, að
sögn Gísla Þorsteinssonar, upplýs-
ingafulltrúa OgVodafone. Áhrif-
anna gætti bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og utan þess.
Meðan viðgerðir á ljósleið-
aranum stóðu yfir voru notendur
fluttir eftir föngum á varaleiðir þar
sem samband var eðlilegt.
Farsímasamband og ADSL var
komið í lag seinni partinn og stefnt
var að því að viðgerðum á ljósleið-
aranum yrði lokið undir kvöldið.
Truflanir vegna
rofins ljósleiðara
FRANSKA skútan Azawakh III
strandaði við Akurey á Kollafirði
skömmu eftir hádegi í gær og braut
stýrið. Björgunarbátur björg-
unarsveitarinnar Ársæls í Reykja-
vík, Gróa Pétursdóttir, var í ná-
grenni skútunnar og kom fljótt á
vettvang. Náðu björgunarsveit-
armenn að koma línu yfir í skútuna
og halda henni. Björgunarskipið
Ásgrímur S. Björnsson var kallað
út og kom það á staðinn stuttu síð-
ar. Þegar skútan strandaði var há-
fjara en þrátt fyrir það tókst að losa
hana og færa til hafnar. Einn mað-
ur var um borð og slapp ómeiddur.
Skúta strandaði
við Akurey