Morgunblaðið - 14.07.2006, Blaðsíða 21
HEILSA
UNGLINGADRYKKJA er ekki
ný af nálinni því fullorðnir hafa
reynt að stemma stigu við
henni eins lengi og elstu menn
muna. Fjölmargar hættur eru
samfara drykkju unglinga því
hún eykur stórlega hættu á að
lenda í bílslysum, slagsmálum
og öðrum neikvæðum uppá-
komum er athyglin er ekki til
staðar. Heilsusérfræðingar
fullyrða að kostnaðurinn sem
hlýst af unglingadrykkju sé
himinhár og mun meiri en
menn geri sér grein fyrir því
hátternið dragi úr daglegri fé-
lagslegri virkni sem líta megi á
sem óbeinan kostnað. Nýlegar
kannanir benda til að áfengis-
neysla hafi mun skaðlegri áhrif
á heila unglinga en fullorðinna
og staðhæfingar um að hver
einstaklingur þurfi að drekka
mjög mikið magn yfir langan
tíma áður en það fer að hafa
skaðleg áhrif á taugafrum-
urnar eru ekki lengur við hæfi.
Þá benda rannsóknir líka til að
ofneysla áfengis geti skaðað
getu taugafrumna til að verja
líkamann gegn alkóhólinu.
Könnun, sem náði til ríflega
43 þúsund manna, leiddi í ljós
að 47% þeirra sem hófu að
drekka áfengi fyrir 14 ára ald-
ur urðu áfenginu háðir á ein-
hverjum tímapunkti en sú tala
var komin í 9% ef menn biðu
með áfengisneysluna fram til
21 árs aldurs. „Þetta eru ný
sannindi því það var hreint
ekki vitað fyrir fimm til tíu ár-
um að alkóhólið hefði önnur
áhrif á heila unglinga en full-
orðinna,“ sagði Aaron White,
prófessor við Duke-háskólann,
í samtali við New York Times.
Unglinga-
drykkjan
skaðleg
heilabúinu
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 21
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
Göngugarpurinn Páll ÁsgeirÁgeirsson er höfundurbókarinnar Bíll og bak-poki: 10 nýjar gönguleiðir
um Ísland sem Mál og menning gaf
nýverið út. „Eitt af markmiðunum
með þessari bók er að fjölga val-
kostum fyrir ferðalanga því ég er ein-
göngu að lýsa nýjum leiðum,“ segir
Páll, en meðal fyrri bóka hans um
útivist eru Hálendishandbókin,
Gönguleiðir, Hornstrandir og Úti-
vistarbókin. „Vegna gerðar fyrri
bóka minna komst ég á snoðir um
margar nýjar gönguleiðir sem pöss-
uðu þá ekki nákvæmlega inn í það
sem ég var að gera. Hugmyndin að
þessari bók er meira en tíu ára göm-
ul, við áttuðum okkur á því að það
væri sniðugt að safna saman þessum
nýju gönguleiðum og setja í eina bók,
frekar en að fella þær inn í þekktar
gönguleiðir í öðrum bókum. Það var
farið í málið af alvöru fyrir fjórum ár-
um, seinasta sumar settum við svo
lokahnykkinn á þetta og gengum
þrjár eða fjórar af þessum leiðum en
hinar leiðirnar voru þá tilbúnar.“
Frekar léttar gönguleiðir
Páll hefur gengið allar leiðirnar
sjálfur og sumar oftar en einu sinni.
„Hugmyndin að baki bókinni er í
fyrsta lagi að fólk geti ferðast sjálf-
stætt, þess vegna endar ferðin alltaf
þar sem hún hófst sem þýðir að menn
ráða sér algjörlega sjálfir. Við reynd-
um að velja leiðir sem uppfylltu það
skilyrði að vera nýjar, að þeim hefði
ekki verið lýst áður og að þær væru
ekki of erfiðar, þ.e. að það væri ekki
yfir of há fjöll að fara eða erfið vöð,
svo ég tel að þessar leiðir séu fyrir
alla sem á annað borð ráða við að
ganga með bakpoka. En til að koma
til móts við hina, sem ekki treysta sér
til að labba með allt á bakinu, er í lok
hvers kafla bent á hvernig má stytta
sér leið til að skoða þær náttúru-
perlur sem eru í leiðarlýsingunni,“
segir Páll og bætir við að gönguleiðir
af þessu tagi krefjist ágæts útbún-
aðar og að fólk sé svolítið vant göngu,
en annars séu leiðirnar frekar léttar.
Páll hefur ferðast fótgangandi um
landið í mörg ár og seg-
ist hafa sérstakt dálæti
á landkönnunarþætti
þess að ferðast. „Ég vil
helst ferðast upp á eigin
spýtur og uppgötva
sjálfur. Það eru mín
draumaferðalög þegar
ég les um eitthvað í bók
og fer svo sjálfur á stað-
inn og finn það. Mér
hefur alltaf leiðst að
elta fararstjóra.“
Langisjór
minnisstæður
Spurður hver sé uppáhalds-
gönguleiðin hans í bókinni svarar
Páll að það sé úr vöndu að ráða. „Af
þessum tíu leiðum er mér alveg sér-
staklega minnisstæð gangan um-
hverfis Langasjó. Þar er að finna
stórbrotnari og sérstæðari náttúru
en manni sýnist í fljótu bragði þegar
komið er að vatninu. Auk þess sem
Langisjór er í skotlínu
virkjunarsinna, en það
er til áætlun um Skaft-
árveitu sem myndi
breyta ásýnd þessa
svæðis verulega þó
ekki hafi verið ákveðið
að ráðast í hana, og fyr-
ir vikið horfir maður
þarna í kringum sig
með sérstöku hugarfari
ef það kynni að fara svo
að maður sæi þetta
ekki svona aftur. Þessi
leið er mér líka minn-
isstæð vegna þess að við gengum
hana þegar Skaftárhlaupið í fyrra
var að hjaðna og útsýnið af Fögru-
fjöllum yfir aura Skaftár inni við jök-
ulinn var frábært,“ segir Páll að lok-
um og augljóst er af orðum hans að
bókin Bíll og bakpoki er tilvalin fyrir
unnendur útivistar sem eru ávallt á
höttunum eftir spennandi gönguleið-
um.
FERÐALÖG| Tíu nýjar gönguleiðir um Ísland komnar út í bók
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gangan umhverfis Langasjó í Vestur-Skaftafellssýslu er Páli Ásgeiri minnisstæð.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Vildi fjölga valkostum ferðalanga
Morgunblaðið/Þorkell
Páll Ásgeir hefur fundið tíu nýjar
gönguleiðir um Ísland.
Meðlæti í pakka
fyrir 4
8 kartöflur (600 g)
1 pakki ferskar sykurbaunir (300 g)
12 kokteiltómatar
½ tsk. salt
basilíku- og ostasmjör
1½ dl rifinn gouda-ostur, sterkur
½ knippi basilíka, söxuð
50 g smjör, við stofuhita
Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og
skerið í sneiðar. Takið fjórar arkir af
álpappír og smyrjið aðeins með
ólífuolíu. Skiptið kartöfluskífunum í
fjóra parta og raðið á miðju pappírs-
ins ásamt tómötum og sykur-
baunum. Rífið ostinn og saxið basil-
íkuna og hrærið saman með mjúku
smjöri. Skiptið basilíku-ostasmjör-
inu ofan á grænmetið. Brjótið ál-
pappírinn saman og lokið að ofan,
þannig að auðvelt sé að opna þegar
búið er að grilla. Geymið pakkana í
kæli þar til tími er til að grilla. Það
er líka þægilegt að taka pakkana
með sér út í náttúruna og grilla þar.
Þá er komið kartöflur, grænmeti
og sósa, allt í einum pakka, og því
einstaklega hentugt og þægilegt.
Grillið á heitu grilli í um það bil
fimm mínútur, gott að byrja á að
grilla smástund á opnanlegu hlið-
inni. Það er hægt að grilla þetta í
ofni líka, þá er það í u.þ.b. 10 mín-
útur við 225ºC.
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson