Morgunblaðið - 14.07.2006, Page 24

Morgunblaðið - 14.07.2006, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN www.bluelagoon.is Styrkur VIÐ bændur í Dyrhólahverfi fylgjumst náið með lífríki Dyr- hólaeyjar og erum mæta vel meðvituð um þær hættur sem steðja að fuglalífinu þar. Í útvarpsþættinum „Í vikulokin“ á Rás 1 laugardaginn 8. júlí sl. var meðal gesta dr. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands. Viðvera hans í þættinum er sjálf- sagt til komin af fréttum liðinnar viku af málefnum fugla, einkum þó fréttum af eyðingu kríuvarpsins í friðlandinu á Dyr- hólaey. Kristinn Haukur viðurkenndi í upphafi að þekkja ekki til þessa máls. Engu að síður lagði hann sig í líma við að sýna fram á að engar líkur væru á því að menn hefðu komið hér við sögu, heldur bæri að líta til við- komubrests, skorts á æti og staðbundinna áhrifa svo sem refs. Jafnframt lýsti hann miklum áhyggjum af því frétta- mati Morgunblaðsins að setja mál- ið á forsíðu, þar þyrfti að „taka til“ eins og hann orðaði það. Og þrátt fyrir að segjast ekki þekkja til þess afgreiddi Kristinn Haukur málið í lokin með því að fullyrða að „það verður örugglega engin ákæra gefin út í þessu máli, það er alveg ljóst“. Fréttatilkynning okkar bænda um hvarf kríuvarps og ut- anvegaakstur sem áttu sér stað um sama leyti innan friðlandsins vakti vissulega athygli. Gerð var grein fyrir málinu í flestum fjöl- miðlum og rætt við ýmsa máls- aðila af því tilefni, okkur bændur, Umhverfisstofnun og lögreglu. Það hlýtur að teljast fagnaðarefni að fjöl- miðlar segi frá því þegar tjón verður á umhverfi okkar, ekki síst ef líkur benda til þess að menn hafi verið þar að verki. Allt pukur með slíkt veitir þeim ómaklegt skjól sem tjóninu valda. Okkur þykir skjóta skökku við ef líffræðingur á Nátt- úrufræðistofnun er annarrar skoðunar. Við bændur í Dyr- hólahverfi fylgjumst náið með lífríki Dyr- hólaeyjar og erum mæta vel meðvituð um þær hættur sem steðja að fuglalífinu þar. Reynslan hefur kennt okkur að alhæf- ingar um ástand fjöl- þætts lífríkis eins og þess sem er á Dyr- hólaey gagnast sjaldan við umönnun þess. Or- sakir þess að friðað kríuvarp hverfur af tveimur nærliggjandi svæðum samtímis verður að meta í fullri vitund um mögulegar ástæður, en jafnframt á grundvelli góðrar staðþekkingar og reynslu af umhirðu viðkomandi svæða. Það er hluti af ábyrgð og skyldum okkar ábúenda að gera slíkt mat og því miður bendir flest til þess að hér hafi menn verið að verki. Tilgáta Kristins Hauks um æt- isskort kemur hvorki heim og saman við bættan hag lunda í Dyrhólaey, né þá staðreynd að öll krían, sem þá var tiltölulega ný- orpin, hvarf skyndilega án þess að skilja eftir sig egg eða skurn. Til- gáta hans um að refur hafi rústað kríuvarpinu er sömuleiðis ósenni- leg þar sem annar fugl (mófugl og æðarfugl) á sömu svæðum hélt áfram varpi sínu ótruflaður og höfð er sérstök aðgát á ferðum slíkra rándýra við Dyrhólaey. Að sama skapi ber það vott um skort á ábyrgð af hálfu Kristins Hauks að útiloka það að mönnum sé um að kenna, án þess að hafa kynnt sér málið og skoðað að- stæður. Hvaða skilaboð eru það frá Kristni Hauki til þeirra sem leynt eða ljóst vinna slík skemmdarverk á fuglalífi í landinu? Það er þakk- arvert að vekja rækilega athygli á mögulegum áhrifum fæðuskorts í hafinu á viðkomu varpfugla hér á landi. Það er hins vegar áhyggjuefni þegar vísindamaður á einni meg- instofnun náttúrufræðirannsókna hérlendis ákveður að afgreiða al- varlegt tjón á lífríki einnar helstu fuglaparadísar suðurstrandarinnar án þess að kynna sér aðstæður, láta vísbendingar um skemmd- arverk sem vind um eyru þjóta, og setja ofan í við fjölmiðla fyrir að vekja athygli á slíkum vísbend- ingum. Slík afgreiðsla verður a.m.k. ekki klædd í búning hlutlægni og vísinda. Kristinn Haukur, krían á Dyrhólaey og fréttamat Morgunblaðsins Margrét Guðmundsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson fjalla um Dyrhólaey ’Það hlýtur að teljastfagnaðarefni að fjölmiðlar segi frá því þegar tjón verður á umhverfi okkar, ekki síst ef líkur benda til þess að menn hafi verið þar að verki. ‘ Margrét Guðmundsdóttir Höfundar eru bændur á Vatnsskarðshólum í Mýrdal. Þorsteinn Gunnarsson MORGUNBLAÐIÐ birti úttekt um Hafrannsóknastofnun á mið- opnu blaðsins 20. júní sl. og var þar tafla þar sem fram kemur „upphaflega mæld stofnstærð“ og „endurmetin stofn- stærð“. Mismunurinn er að meðaltali 76 þúsund tonn á ári í 21 ár = 1.596 þúsund tonn af þorski, sem hafa þá glatast við tilraunina til að „byggja upp stofn- inn“. Þorskur sem mælist vera til – á að „byggja upp“ – virð- ist hverfa, flýr svo til Grænlands eða Fær- eyja í fæðuleit, eða drepst úr hungri. Þá eru mistökin ekki viðurkennd (hækkuð afföll) heldur er „ár- legt endurmat“ látið skrá að hann hafi aldrei verið til! Þetta er svipað og ef það væri mat- arskortur í Reykjavík og þorskveiðiráð- gjafar Hafró reyndu að koma sér austur á Selfoss í matarleit, eða færust úr hungri. Þegar þeir sæjust ekki lengur í Reykja- vík væru þeir afskráðir úr mann- tali Hagstofunnar – eins og þeir hefðu aldrei fæðst! Ásgeir heitinn Jakobsson rithöf- undur skrifaði grein í Morg- unblaðið árið 1996, „FISKILEYS- ISGUÐINN“. Þar kom hann inn á; „að ekki væri farið að tillögum stofnunarinnar.“ Ásgeir taldi þá að fylgni við tillögur stofnunar- innar væri 80–85% árin 1971–1996 (25 ára afmælið) og væri það marktæk fylgni. Um að ekki hefði verið farið nóg og róttækt „að til- lögum stofnunarinnar“ sagði Ás- geir: „Þetta minnir á að læknir hefði gefið sjúklingi 80 til 85 með- alaglös á ári við tilteknum sjúk- dómi – og sjúkling- urinn væri að tærast upp af meðalagjöfinni, þá kæmi læknirinn og heimtaði að með- alagjöfin yrði aukin í 100 glös …“ Samlíking Ásgeirs heitins er góð. Frá 1996 hefur „með- alagjöfin“ verið 92 til 95 glös og sjúkling- urinn tærist enn … Ef meiri þorskur hefði verið geymdur, hefði þetta þá tekist? Ef fæðuskortur ung- þorsks er vandamál við uppbyggingu þorskstofnsins eins og sumir ráðgjafar héldu fram strax 1984 (vaxt- arhraði er alltaf að falla), hvernig er hægt að halda því fram að þetta hefði gengið bet- ur ef enn fleiri þorsk- ar hefðu bitist um of litla fæðu og étið meira hver annan? Af hverju sýnir Morgunblaðið ekki þá sjálfsögðu fagmennsku að taka viðtöl við þá ráðgjafa hérlendis sem sögðu strax 1984 að stofninn myndi minnka með þessari aðferðafræði? Er það ekki frétt að þetta kunni að vera mistök – friðun smáþorsks án þess að hugað væri að fæðu og allt ferlið virðist mistök og bókað aflatap sem „endurmat“ hjá Haf- rannsóknastofnun sé 1.596 þúsund tonn á 21 ári? Ekki frétt? Kristinn Pétursson fjallar um grein Morgunblaðsins um Hafrannsóknastofnun Kristinn Pétursson ’Af hverju sýnirMorgunblaðið ekki þá sjálf- sögðu fag- mennsku að taka viðtöl við þá ráð- gjafa hérlendis sem sögðu strax 1984 að stofninn myndi minnka með þessari að- ferðafræði? ‘ Höfundur er fiskverkandi á Bakkafirði. Sagt var: Það er eftir þessu bréfi sem beðið var. RÉTT VÆRI: Það er þetta bréf sem beðið var eftir. Gætum tungunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.