Morgunblaðið - 14.07.2006, Side 43

Morgunblaðið - 14.07.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 43 FRÉTTIR Atvinnuauglýsingar Umboðsmaður Ólafsfirði Morgunblaðið vill ráða umboðsmann á Ólafsfirði. Í starfinu felst dreifing á Morgunblaðinu við komu í bæinn. Nauðsynlegt er að viðkom- andi hafi bíl til umráða. Upplýsingar gefur Örn Þórisson í síma 569 1356 eða í netfangi ornthor@mbl.is. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Varmabrekka 8, fnr. 210-6460, Borgarfjarðarsveit, þingl. eig. Höfði orlofshúsafélag, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands og Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 18. júlí 2006 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 13. júlí 2006. Stefán Skarphéðinsson sýslumaður. Tilkynningar Stækkun móttöku-, flokkunar- og urðunar- svæðis að Strönd í Rangárþingi ytra Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar. Hönnun hf., f.h. Sorpstöðvar Rangáravalla- sýslu bs., hefur tilkynnt til athugunar Skipu- lagsstofnunar frummatsskýrslu um stækkun móttöku-, flokkunar- og urðunarsvæðis að Strönd í Rangárþingi ytra. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur fram- mi til kynningar frá 14. júlí til 25. ágúst 2006 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Rangárþings ytra, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofn- un. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heima- síðu Hönnunar hf., www.honnun.is. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. ágúst 2006 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýs- ingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrif- um, nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 7. júlí var spilað á 9 borð- um. Úrslit urðu þessi í N/S: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófersson 261 Ólafur Ingvarsson – Jón Lárusson 240 Oddur Jónsson – Oddur Halldórsson 225 A/V Þorvarður Guðmss. - Firðrik Hermanns. 268 Björn Björnsson – Jón Ól. Bjarnason 257 Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 252 Þriðjudaginn 11 júlí var spilað á 14 borðum. sonar og Hákonar Sigmundssonar sem lauk með sigri hinna fyrrnefndu, 112–55. Þriðju umferð á að ljúka 30. júlí. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 10.07. Spilað var á 9 borðum. Meðalskor var 216 stig og árangur N-S: Eysteinn Einarss. – Oliver Kristóferss. 246 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 236 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 234 Árangur A-V Ægir Ferdinandss. – Jóhann Lútherss. 255 Alfreð Kristjánss. – Birgir Sigurðsson 247 Bragi Björnsson – Albert Þorsteinsson 237 Næsti spiladagur er fimmtudagurinn 10. ágúst. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi. N/S Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinsson 376 Rafn Kristjánss.– Oliver Kristófersson 370 Bjarnar Ingimarss. – Albert Þorsteinss. 356 Helgi Sigurðsson – Jón Sigvaldason 354 A/V Nanna Eiríksdóttir – Ásgeir Sigurðsson 362 Þorvarður S. Guðmss. – Jón Sævaldss. 347 Jón R. Guðmundss. – Kristín Jóhannsd. 336 Björn Björnsson – Sigríður Gunnarsd. 336 Spilað verður á föstudaginn 17 júlí, sem er síðasta spilamennska fyrir sum- arfrí. Byrjað verður aftur 15 ágúst. Bikarkeppnin Þriðja umferðin er nú hafin og fyrstu staðfestu úrslitin eru úr leik Víðis Jóns- BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson TVÖ rannsóknarverkefni í samstarfi ís- lenska og danskra vísindamanna hljóta styrk úr sjóði Selmu og Kaj Langvad við Háskóla Íslands árið 2006 að upphæð 100.000 danskra króna. Af hálfu Háskóla Íslands hafa umsjón með verkefnunum dr. Hafliði Pétur Gíslason og dr. Kristján Leósson en auk þeirra koma að verkefn- unum sérfræðingar eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands, læknadeildar, raunvísindadeildar, Krabbameinsfélags Íslands, Tæknihá- skólans í Danmörku, auk háskólanna í Álaborg og Óðinsvéum og danskra sprotafyrirtækja, ásamt meistara- og doktorsnemum við háskólana. Annað verkefnið – á sviði ljós- eindatækni sem nýtist meðal annars í tækniþróun fjarskipta – snýr að mæl- ingum á ljósleiðararásum. Samstarfs- aðilar eru örljósatæknideild COM-DTU stofnunarinnar við danska tækniháskól- ann (Danmarks Tekniske Universitet). Framleiðsla ljósleiðararása mun fara fram í örtæknikjarna Háskóla Íslands og ljósmælingar fara fram á Raunvís- indastofnun HÍ. Doktorsnemar við Há- skóla Íslands starfa að verkefninu og munu meðal annars dvelja í Danmörku til að sækja námskeið og nýta sér frekari tækjakost til ljósmælinga. Verkefnið er hluti af viðameira samvinnuverkefni um ljósleiðni á málmyfirborðum sem að koma háskólarnir í Álaborg og Odense auk DTU og Háskóla Íslands. Hitt verkefnið er á sviði líftækni og er í samstarfi við danska sprotafyrirtækið Lumiscence A/S sem þróað hefur nýja tækni til smásjárskoðunar, m.a. á lifandi frumum. Fyrirtækið framleiðir örflögur með lýsingarbúnaði sem getur greint starfsemi við yfirborð frumu s.s efna- flutning gegnum frumuhimnu. Við Há- skólann verða gerðar tilraunir með frumuræktun og litun á örflögunum og niðurstöður bornar saman við staðlaðar greiningaraðferðir. Meistaranemi í læknadeild vinnur að verkefninu ásamt vísindamönnum og sérfræðingum á eðl- isfræðistofu Raunvísindastofnunar HÍ og læknadeildar HÍ, sem og rann- sóknastofu Krabbameinsfélags Íslands. Sjóður Selmu og Kaj Langvad var stofnaður með peningagjöf hjónanna Selmu, fæddri Guðjohnsen og Kaj Lang- vad verkfræðingi til Háskóla Íslands árið 1964. Tilgangur sjóðsins er að efla menn- ingarleg tengsl Íslands og Danmerkur. Í því skyni veitir sjóðurinn styrki úr sjóðn- um til námsdvalar fyrir Íslendinga í Dan- mörku og Dani á Íslandi. Að jafnaði hef- ur verið veitt árlega úr sjóðnum og hafa íslenskir og danskir vísindamenn notið styrkja til verkefna við rannsóknastofn- anir hérlendis og í Danmörku. Tvö rannsóknarverkefni hljóta styrk Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Standandi frá vinstri: styrkþegarnir Kristján Leósson og Hafliði Pétur Gíslason. Sitjandi frá vinstri: Stjórnarmenn í sjóði Selmu og Kaj Langvad, þau Sören Lang- vad, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, formaður stjórnar sjóðsins, og Ármann Snævarr, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands. BBÆNDASAMTÖK Íslands harma þá áráttu í umfjöllun um matvæla- verð á Íslandi að skella skuldinni ítrekað á bændur og innlendar land- búnaðarafurðir. Af umfjölluninni nú megi helst ráða að matvælaverð muni snarlækka við það eitt að toll- ar á innfluttum landbúnaðarafurð- um verði lækkaðir eða felldir niður. Þetta sé mikil einföldun á veru- leikanum. Einvörðungu 5–6% út- gjalda íslenskra heimila renna til kaupa á íslenskum landbúnaðaraf- urðum, segir í ályktun frá samtök- unum. „Neytendasamtökin benda rétti- lega á það í yfirlýsingu sem birtist í dag, 6. júlí, að verðlag á matvörum sé miklu hærra hér á landi en í ná- grannalöndum okkar. Segir í til- kynningunni að verndarstefna gagnvart innfluttum landbúnaðarafurðum eigi þar stóran hlut að máli. Minna er hins vegar gert úr öðrum þáttum sem liggja að baki háu verðlagi matvara á Íslandi, „þótt vissulega komi þar fleira til“, svo vitnað sé orðrétt í yfirlýsinguna. Enn sem fyrr er vegið í sama knérunn; sökudólgurinn er íslensk- ar landbúnaðarafurðir. En er það svo í raun? Bændasamtök Íslands hvetja Neytendasamtökin til að fylgja eftir eigin orðum, sem vísað er í hér að ofan og kanna hvað raun- verulega býr að baki verðmyndun í smásöluverslun.“ Í leiðara nýjasta tölublaðs Bændablaðsins er vikið að Neyt- endasamtökunum. Þar segir m.a.: „Árum saman hafa þau ráðist á landbúnaðinn en ekki rætt í sama mæli um hagræði og óhagræði í ís- lenskri verslun. Enn síður hafa þau fjallað um samskipti smásala og birgja …“ Þá varpar blaðið fram þeirri spurningu hvort samtökin hafi e.t.v. ekki þor til að benda á misfellur í starfsháttum stórfyrir- tækja vegna hugsanlegra hags- munatengsla. Stefán Úlfarsson, hagfræðingur hjá ASÍ, var í viðtali um matvæla- verð á Morgunvakt Rásar 1 í gær, 5. júlí. Hann sagði þar m.a.: „við er- um neydd til að kaupa íslenska framleiðslu“. Hann vék hins vegar ekki að því, að það eru aðrar mat- vörur en innlendar búvörur, sem standa upp úr í alþjóðlegum verð- samanburði. Það er einnig umhugs- unarvert, að fiskur er óvíða dýrari í gervallri Evrópu en einmitt hér. Er það ekki verðugt rannsóknarefni, bæði fyrir ASÍ og Neytendasam- tökin? Bændasamtök Íslands fagna hins vegar málefnalegri og ígrundaðri yfirlýsingu BSRB, sem samtökin sendu frá sér í gær. Í lokaorðum yf- irlýsingarinnar segir orðrétt: „Sam- tökin [BSRB] hafa mjög skýra stefnu í þessum efnum: Um land- búnaðinn á Íslandi þarf að ríkja þjóðarsátt. Hún verður aldrei raun- veruleg nema í góðri sátt á milli bænda og neytenda. Takmarkið er að ná slíkri sátt og að því vill BSRB vinna,““ segir í ályktun Bændasam- takanna. Segja skuldinni ítrekað skellt á bændur að ósekju STEFÁN Bogi Sveinsson, fulltrúi hjá B&B lög- mönnum í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Sambands ungra fram- sóknarmanna, en kjörið verður í embættið á þingi sambandsins í haust. Stefán Bogi er fæddur á Egilsstöðum 9. októ- ber 1980. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ vorið 2000 og hóf nám við lagadeild Háskóla Íslands sama ár það- an sem hann mun útskrifast í október á þessu ári. Stefán hefur í nokkur ár unnið fyrir Fram- sóknarflokkinn og SUF. Hann var formaður fræðslu- og kynningarnefndar SUF árin 2001– 2002 og formaður þjóðmálanefndar SUF 2003– 2004. Hann hefur verið í varastjórn SUF frá árinu 2004. Hann var aðstoðarkosningastjóri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum árið 2003. Í formannskjöri hjá SUF Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli vinnur að af- hendingu minja af vellinum í samvinnu við utan- ríkisráðuneytið en ekki menntamálaráðuneytið eins og kom fram í frétt á bls. 6 í Morgunblaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á þessum misskilningi. LEIÐRÉTT Samvinna við utanríkisráðuneyti ♦♦♦ SUNNUDAGINN16. júlí verður árlegur harm- oníkudagar í Árbæjarsafni í tengslum við Harm- oníkuhátíð Reykjavíkur. Fjöldinn af harm- oníkuspilurum, innlendum sem erlendum mun gleðja gesti safnsins, en ætlunin er að spila inni í flestum safnhúsum og undir berum himni ef veð- ur leyfir. Dagskráin hefst klukkan 13 og lýkur með samspili allra þátttakenda á Torginu klukk- an 16:30. Harmoníkudagar í Árbæjarsafni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.