Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 20
ÞAÐ er engin ástæða að skilja gæludýrin út undan þegar gæða húsgagnahönnun er annars veg- ar. Í Bretlandi er að finna fyrirtæki sem heitir Lila Paws, sem hefur sérhæft sig í að framleiða sófa og bæli fyrir hunda og ketti. Það eru Anna Iskander, fyrrverandi hattagerðarmeistari, og húsgagnahönnuðurinn Barnaby Reynoldssem sem ákváðu að smíða fallegt bæli fyrir hundinn sinn Charlie, til þess að fá hann til að liggja annars staðar en í þeirra eigin sófa. Það gekk ekki fyrr en fætur voru settir undir bælið og það gert að „alvöru sófa“, að Charlie lét segjast og nú unir hann sæll í sínum eigin sófa. Smám saman fréttist af fallegu hunda- og kattasófunum og nú hefur fram- leiðslan undið upp á sig. Lila Paws framleiðir nokkrar stærðir af sófum og úr mismunandi efnum. Undir sófana eru settir fætur, ýmist úr tré eða málmi og er öll framleiðslan handgerð. Sigrún Sandra Ólafsdóttir fór á stúfana og skoðaði skemmtilega hluti fyrir hunda.. Morgunblaðið/ÞÖK Litagleði Stundum er hægt að nota skálar sem ætl- aðar eru mannfólkinu undir mat gæludýra. Skál- arnar eru úr Habitat og kostuðu á útsölu 240 kr. Morgunblaðið/ÞÖK Glysgjarn Snati getur fengið nafnið sitt í skrautstöfum á ólina sína og annað skraut með. Ólin kostar 1.590 krónur og hver stafur 390 krónur og aukaskraut 490 krónur. Fæst í Dýrabæ. Traustir Keramikdallarnir eru frá framleiðandanum Dog On. Þeir fást hjá Fiskó. Stór dallur kostar 790 krónur og sá minni er seldur á 330 krónur. Morgunblaðið/ÞÖK Morgunsopinn Þessir bollar eru tilvaldir fyrir kaffi hundaeigandans þegar búið er að fara út og viðra. Þeir voru á útsölu í Habitat, sá stærri á 234 krónur og espressóbollinn með undirskál á 294 krónur. Hágæða hundasófar Skemmtilegt Lila Paws fram- leiðir nokkrar stærðir af sófum fyrir hunda og ketti. Notalegt Það getur verið erfitt fyrir hvolpa þegar þeir eru teknir frá mæðr- um sínum og þeir fara á nýtt heimili. Þeir sakna hlýjunnar frá móðurinni og hinum hvolpunum. Til að láta þeim líða betur í bælinu er hægt að kaupa hitapoka með grjónum sem settur er í örbylgjuna í stutta stund. Pokinn fæst í Dýrabæ, Smáralind, og kostar 980 krónur. Mo rgu nbl aði ð/Á rni Sæ ber g FLESTIR hundar sofa þegar þeir eru einir heima en sumir eiga við aðskilnaðarvanda að stríða og verða vitlausir einir; gelta, urra, naga og bíta í ýmsa hluti og gera stykki sín út um allt. Vandamálið er hægt að leysa en það krefst þjálfunar segir á vefsíðunni www.forskning.no. Ekki þarf að vera nein sérstök ástæða fyrir því að hundurinn vill ekki vera einn heima en það get- ur komið upp á hverjum degi þegar eigandinn fer í vinnuna, vegna flutninga, vegna óvenju- lega langs aðskilnaðar, breytinga á félagslegu umhverfi eða að hundurinn upplifir sálrænt áfall. Það er hægt að kenna hund- inum að vera einn heima og auð- veldast er að vera með fyr- irbyggjandi aðgerðir heldur en að reyna að leysa vandamálið þegar það er komið upp. Lítill hvolpur er ekki fær um að vera aleinn heima en það er best að byrja að kenna honum það ungum. Aðalatriðið er að byrja snemma, taka eitt skref í einu, forðast neikvæðar upplifanir og refsa hundinum aldrei fyrir eitt- hvað sem hann hefur gert af sér einn heima. Sumir hundar kunna líka bara að vera einir heima á daginn en ekki á kvöldin og þarf að venja þá á það líka segir á norsku vefsíðunni. „Aðalatriðið er að kenna hund- inum að vera í búri þegar hann kemur inn á heimilið,“ segir Atli Þorsteinsson eigandi K-9 hunda- skólans og hundahótels. „ Það tekur að öllu jöfnu þrjá til fjóra sólarhringa að venja hund við búr og þegar hann er orðinn van- ur því fer hann sjálfur inn í búrið þegar eigandinn fer að heiman. Vandræðahundar hafa yfirleitt aldrei verið settir í búr og það eru þeir sem eru hlaupandi út í glugga og eru geltandi þegar eig- andinn er ekki heima.“ Atli segir að hundar af öllum stærðum og gerðum séu settir í búr. „Fólk á ekki að fá sér stóran hund nema það hafi hýbýli til að hafa hann svo það hafi m.a pláss fyrir stór búr.“ Allir hundar sætti sig við það í nokkra klukkutíma að vera lokaðir inni í búri að sögn Atla. „Það eru oft eigendurnir sem sætta sig ekki við þetta en þeir eru yfirleitt rótin að öllum vandamálum hjá hund- um. Áður en hundurinn er lokaður í búrinu á að fara með hann út að pissa og ekki láta matar- eða drykkjarskálar inn til hans því þá er fólk að búa sér til vandamál. Reyndar una margir eldri hundar sér vel heima án þess að vera lok- aðir í búri. Mjög unga hunda á ekki að skilja eftir lengur eina heima en í hámark tvo tíma.“ Að sögn Atla á fólk að fá sér búr um leið og það fær sér hund- inn og fara strax að kenna hund- inum að nota búrið og virða það. „Ef það þarf að koma hundinum fyrir á hundahóteli er líka mik- ilvægt að hundurinn sé búrvanur. Hundarnir sjálfir sækja oft í að vera í búrinu og fá frið frá eigend- unum og þá eiga þeir að virða þann vilja hundsins.“ Atli segir að sem betur fer sé fólk í auknum mæli að sækja sér aðstoð í þjálfun og uppeldi á hund- um. „Við bjóðum upp á hvolpa- og hlýðninámskeið og svo kemur fólk mikið í viðtalstíma til að fá ráð- gjöf, jafnvel áður en það fær sér hund.“ Morgunblaðið/Eggert Hundalíf Getur örugglega verið skemmtilegt stundum. Morgunblaðið/Ingó Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Það á að kenna hundum að vera í búri gæludýr 20 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.