Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Verkstjóri óskast Traust verktakafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að verkstjóra. Mikil vinna framundan. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Umsækjandi skal vera eldri en 25. ára. Upplýsingar í síma 898 4202. Raðauglýsingar Til leigu Hólmaslóð – Grandar Höfum til leigu um 67 fm vinnustofu/skrifstofu við Hólmaslóð. Húsnæði í góðu ástandi. Laust nú þegar. Nánari uppl. veitir: Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4, s. 570 4500. ✝ Magnús Jónssonfæddist í Vest- mannaeyjum 11. september 1929. Hann lést á heimili sínu á Hrafnistu í Reykjavík 16. ágúst síðastliðinn. Kjör- foreldrar hans voru Jón Ólafsson út- gerðarmaður frá Hólmi í Vest- mannaeyjum og fyrri kona hans Stefanía Ein- arsdóttir. Þau áttu dæturnar Önnu og Eygló. Jón átti soninn Ólaf með síðari konu sinni, Guðrúnu Helgadóttur. Blóðfor- eldrar Magnúsar voru Pálína Jó- hanna Pálsdóttir f. 29.9. 1890, d. 23.11 1980, og Símon Guðmunds- son útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum f. 21.5. 1883, d. 2.4. Lóa, f. 29.7. 1971, sambýlismaður Ingvar Helgason, f. 3.2. 1965, börn þeirra eru Jón Helgi, Sindri og Hrefna Dögg. b) Ágúst, f. 29.1. 1974, sambýliskona Erla Guð- finna Jónsdóttir, f. 30.1. 1977, sonur þeirra er Jón. c) Hafsteinn Jónsson, f. 29.7. 1975, unnusta Kristín Svandís Jónsdóttir, f. 25.5. 1978. d) Þórunn Jónsdóttir, f. 16.1. 1977, sonur hennar er Ágúst Aron Guðjónsson. e) Hafdís María, f. 17.2. 1982, sambýlis- maður Örvar Arason f. 17.8. 1978, börn þeirra eru Ívar Ari og Soffía Ýr. Seinni kona Magnúsar var Katrín Héðinsdóttir, f. 1.4. 1927, d.1.4. 2004. Magnús stundaði sjómennsku frá unga aldri, bæði á bátum og togurum og var eftirsóttur sjó- maður. Eftir að Magnús hætti til sjós starfaði hann í Húsdýragarð- inum í Reykjavík. Útför Magnúsar verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 1955. Þau bjuggu á Eyri í Vest- mannaeyjum og eignuðust 14 börn, 4 dóu í bernsku og 10 komust til fullorðins- ára. Systkini Magn- úsar eru: Sigríður, f. 10.2. 1914, d. 27.4. 1994, Fjóla, f. 9.9. 1918, Guðmundur Einar, f. 8.9. 1920, d. 6.11. 1998, Margrét, f. 11.5. 1923, Helga, f. 4.7. 1925, Karl, f. 16.11. 1926, d. 12.4. 1976, Sigríður Svanborg, f. 6.12. 1927, Sverrir, f. 19.12. 1930 og Sveinbjörg, f. 18.1. 1934. Fyrri kona Magnúsar var Soffía Alfreðsdóttir frá Fáskrúðs- firði. Dóttir þeirra er Hrefna, f. 7.5. 1952, maki Jón Ágústsson, f. 18.5. 1942. Börn þeirra eru: a) Elsku pabbi, í dag kveðjum við þig í hinsta sinn. Ljúf er minningin sem við eigum er þú komst í heimsókn um síðustu mánaðamót. Þá varstu svo hress og ánægður. Þú fórst í afmæli og við fórum saman í heimsókn til Lárusar og Bjargar í Indriðakoti. Þar var nú heldur betur rifjað upp frá liðinni tíð í Vestmannaeyjum. Síðan fórum við austur að Skarðshlíð þar sem þú varst mikið sem barn. Í marga daga á eftir talaðir þú um hvað þetta hefði verið gaman. Síðustu ár hafa verið okkur mik- ilvæg. Við höfum bæði reynt að bæta upp þann tíma sem við misstum af á árum áður. Á hverju kvöldi hringdir þú til að fylgjast með hvernig við hefðum það. Mikið á ég eftir að sakna þess að heyra glaðlegu röddina þína. Ávallt endaði símtal okkar á því að þú sagðir: „kysstu litlu stelpurnar mínar, hana Soffíu Ýr og Hrefnu Dögg frá mér.“ Þú varst svo glaður og stoltur þegar þú varst nærri litlu langafabörnunum þínum og þau nutu þess þegar þú varst í heimsókn. Árið 2004 fluttir þú úr Stórholtinu, þar sem þú varst búinn að búa í rúm þrjátíu ár, að Jökulgrunni við Hrafn- istu. Þar hittir þú marga gamla vini og eignaðist stóran vinahóp. Þú und- ir hag þínum vel og varst ánægður. Ég hef margsinnis hitt menn sem voru með þér til sjós eða þekktu til þín, allir bera þeir þér sömu söguna: Með eindæmum duglegur og skemmtilegur félagi. Ég kveð þig þá, elsku pabbi minn, með söknuð í hjarta. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Blessuð sé minning þín. Þín, Hrefna. Nú er ástkær afi minn, Magnús Jónsson eða afi Maggi, skyndilega fallinn frá. Á yngri árum þekkti ég afa Magga lítið. Síðustu ár naut ég þeirra forréttinda að búa í nágrenni við afa og kynnast honum mun betur en ég hafði áður haft tækifæri til. Þessi ár eru mér dýrmæt og ég verð ævinlega þakklát fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman. Í sum- ar áttum við til dæmis ógleymanlega stund á fótboltaæfingu þar sem við fylgdumst með langafabarni hans, syni mínum, skora mark. Bæði lifð- um við okkur mikið inn í leikinn. Við fögnuðum innilega þegar litli sex ára drengurinn setti boltann í netið. Mér er minnisstætt að afi hnippti í þjálf- arann, benti á þann stutta og sagði hreykinn; ,,Sjáðu þennan, þetta er alvöru Valsari!“ Afi Maggi var gjafmildur og ljúfur maður sem kunni að tjá væntum- þykju sína. Hann var mikil fé- lagsvera og naut sín vel innan um fólk á öllum aldri. Hann var glað- lyndur og hnyttinn að eðlisfari. Ásamt því að horfa á fótbolta var dans eitt aðaláhugamál hans og ekki skaðaði að dansinum fylgdu sam- skipti við fólk. Einn af þeim þáttum í fari hans sem mér fannst áberandi var hversu gott lag hann hafði á að láta fólki, hvort heldur kunnugu eða ókunnugu, líða vel í návist sinni. Það náði þó ekki bara til fólks. Afi Maggi var mikill dýravinur og hafði margar sögur að segja af þeim. Ég heyri því stundum fleygt að við afi hefðum verið nokkuð lík. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál og náðum vel saman, svo mikið er víst. Hann var ekki bara afi minn og langafi sonar míns heldur jafnframt vinur okkar og félagi. Elsku afi Maggi.Við Ágúst Aron geymum minninguna um þig í hjarta okkar alla tíð. Guð geymi þig og varðveiti. Þórunn Jónsdóttir. Hann Maggi bróðir okkar er dá- inn. Þannig hljómuðu orðin milli okkar systkinanna þegar við fréttum um lát hans. Við litum alltaf á hann sem bróður okkar og hann á okkur sem systkini sín og móður okkar kallaði hann mömmu. Við þökkum samveru liðinna ára og biðjum honum Guðs blessunar. Innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hans. Systkinin frá Eyri í Vestmanneyjum. Það að deyja er jafneðlilegur hlut- ur og að fæðast. Munurinn er sá að annar atburðurinn er gleðilegur en hinn svo sannarlega sorglegur. Mig langar með nokkrum orðum að minnast afa míns, afa Magga, sem lést hinn 16. ágúst síðastliðinn. Léttur í lund og spori, hlýlegur, glaðlegur, brúnn og huggulegur kemur hann upp í minningu minni og ekki má gleyma hvað hann var alltaf flottur í tauinu. Já, hann afi var kátur og skemmtilegur og alltaf leið manni vel í návist hans. Afi var duglegur að koma í heim- sókn síðastliðin ár í Akurey. Þar átt- um við margar skemmtilegar sam- verustundir með honum og munum við Örvar og börnin okkar ætíð geyma minninguna um þær í hjarta okkar alla tíð. Hann vildi alltaf vita hvernig öll- um gengi í því sem verið var að gera hverju sinni. Hann var stoltur og sæll af okkur barnabörnunum og barnabarnabörnunum öllum sem og mömmu sem honum þótti mikið vænt um. Sérstaklega er mér minnisstæð koma hans í skírn litlu stelpunnar minnar, hennar Soffíu Ýrar. Nafnið hennar hitti hann í hjartastað, það þótti mér sérlega skemmtilegt og lét hann mig vita að þetta hefði nú verið gott val á nafni og brosti sína glað- lega brosi með blik í augunum. Við höfum hlegið saman og átt góða tíma saman þegar við höfum hist. Þeir tímar sem ég hef átt með afa eru svo sannarlega dýrmætir, tímar sem ekki koma aftur. Í dag kveðjum við þig í hinsta sinn, þín verður sárt saknað. Elsku afi minn, ástarþakkir fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman. Þær mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Minningin er mild og góð, man ég alúð þína, stundum getur lítið ljóð, látið sorgir dvína. Drottinn sem að lífið léði, líka hinsta hvílu bjó, dýrð sé yfir dánarbeði, dreymi þig í friði og ró. (Bjarni Kristinsson.) Guð blessi minningu þína. Þín dótturdóttir, Hafdís María. Magnús Jónsson ✝ GuðmundurAdam Ómarsson fæddist í Reykjavík 11. október 1984. Hann lést af slysför- um 16. ágúst síðast- liðinn. Móðir hans er Svanhvít Sigríð- ur Jóhannsdóttir og fósturfaðir hans Jón Kristjánsson. Systk- ini Guðmundar sam- mæðra eru: a) Haf- steinn Már, f. 1976, unnusta Anna Elín, dætur þeirra eru Al- dís Vala og Hildur Ýr, b) Helgi Sævar, f. 1979, unnusta Jóhanna Ótta, börn þeirra eru Halldór Ingi og Aþena Rún, c) Kristján, f. and- vana 1993, og d) Kristín Sig- urbjörg, f. 1994. Systir Guð- mundar samfeðra er Eva Sigurrós, f. 1975, unnusti Árni Ólafsson, börn þeirra eru Jóhann Ingi, Róbert Fannar og Andrea Mist. Guðmundur lauk grunnskólaprófi frá Grunnskólanum í Sandgerði, en síðan lá leiðin út á vinnu- markaðinn. Starfaði hann m.a. við sjó- mennsku og fisk- vinnslustörf, bygg- ingarvinnu og nú síðast við pípulagnir. Útför Guðmundar verður gerð frá Safnaðarheimilinu í Sand- gerði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Gummi bróðir, ég elska þig af öllu hjarta. Ég mundi ekki vilja skipta á þér og neinum öðrum. Ég man þegar við fórum í tívolí og við fórum í eitthvað tæki sem snýst og ég varð svo hrædd og fór að gráta, þá tókstu skóinn þinn og kastaðir honum í stjórnklefann, þannig að maðurinn í stjórnklefanum stoppaði tækið og við fórum úr tækinu. Þú varst svo góður við mig að þú hélst á mér og huggaðir mig og svo eftir það fórum við að reyna að vinna Bang- símonbangsa en það gekk ekkert svo vel hjá okkur. Ég elska þig Gummi af öllu hjarta. Gummi, manstu þegar þú varst alltaf að taka nammið mitt svo ég faldi það og þú varst alltaf að spyrja mig um nammið mitt en ég gaf þér aldrei, en bara svo þú vitir, þá var nammið mitt inni í skápnum mínum. Ég elska þig Gummalíus, ég mun sakna þín alveg rosalega mikið og ég vildi að þú gætir verið hjá mér en hefðir ekki þurft að fara. Þín verður sárt saknað, takk fyrir þessi 12 litlu ár. Minning þín lifir að eilífu í litla hjartanu mínu. Sofðu vel, ég elska þig, elsku Gummalíus, góða nótt. Þín elskandi litla systir Kristín Sigurbjörg. Elsku vinur og bekkjarbróðir, við kveðjum þig með söknuði. Margar eru þær minningar sem rifjast upp í huga okkar. Þú varst góður vinur okkar allra og nú er búið að höggva stórt skarð í hópinn okkar. Þér við munum aldrei gleyma. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið, í huganum kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo vinur kæri vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu og vina Gumma. Þínir vinir og gömlu bekkjarfélag- ar, árgangur ’84. Elsku Gummi minn, hjarta mitt brast, er síminn hringdi miðviku- dagskvöldið 16. ágúst, og mér var tjáð að þú hefðir lent í alvarlegu bíl- slysi og værir látinn. Ekki hvarflaði það að mér þegar að við hittumst seinast, að það væri okkar allra síð- asta samtal í þessu lífi. Upp í huga minn fljúga margar minningar, eins og þegar ég var ný- flutt frá Hvammstanga, til Keflavík- ur og fékk vinnu í Sandgerði. Ég var einungis búin að vinna í viku, þegar þú fékkst þar líka vinnu. Fyrsta minningin um þig kemur upp í huga mínum, þegar við sátum tvö ein í kaffitímanum inni í kaffistofu, og þorðum ekki að tala við hvort annað. En það liðu ekki margir dagar, þar til ég var farin að fara með þér heim í kaffitímanum, þar fengum við okk- ur alltaf það sama, samloku með skinku og osti. Stuttu seinna flutti ég heim til þín, við bjuggum í her- berginu þínu á neðri hæð, en mamma þín og pabbi og Kristin litla voru uppi á hæðinni. Þau tóku mig strax inn í fjölskylduna, með opnum Guðmundur Adam Ómarsson Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.