Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 21
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 21
Ballettskóli Eddu Scheving
Ballettskóli Sigríðar Ármann
Ballettskóli Guðbjargar Björgvins
Innritun er
hafin!
Það á alls ekki að sleppa því að
borða morgunmat og ástæðurnar
eru til dæmis:
»Með því að borða morgunmatkemur fólk af stað efnaskipt-
unum og fer fyrir bragðið að
brenna hitaeiningum.
» Rannsóknir hafa sýnt að fólksem borðar morgunverð á auð-
veldara með að léttast og halda lík-
ams þyngdinni sinni í jafnvægi.
»Morgunverður hjálpar þér aðvakna á morgnana. Þeir sem
borða morgunmat standa sig betur
á prófum en þeir sem sleppa hon-
um. Börn og fullorðnir sem borða
ekki morgunverð geta orðið sljóir,
áhugalausir og pirraðir þegar
kemur að því að leysa verkefni
dagsins hvort sem það er í skóla
eða vinnu.
» Í morgunmat hefur þú tækifæritil að borða þær fæðutegundir
sem þú borðar annars ekki yfir
daginn, t.d. hafra, ber og mjólk í
einni skál sem gefa þér trefjar, B-
vítamín og kalk.
» Rannsóknir hafa sýnt að fólksem borðar morgunmat er yf-
irleitt í betra skapi en hinir sem
borða hann ekki.
» Ef þú borðar hollan morg-unverð ertu líklegri til að velja
eitthvað skynsamlegt og hollt að
borða í hádeginu.
» Ekki borða sykraðan morg-unverð. Það veldur því að blóð-
sykurinn fellur nokkru seinna og
þá langar þig í eitthvað til að narta
í og ert þá líklegri til að grípa í
eitthvað sætt til að fá blóðsykurinn
upp aftur.
» Sem foreldri þarft þú að veragóð fyrirmynd. Ef þú sleppir
morgunverði munu börnin þín
halda að hann sé ekki mikilvægur.
» Sykraðar kornstangir eru ekkikjarngóðurmorgunmatur, sum-
ar kornstangir innihalda næstum
því jafnmikinn sykur og súkku-
laðistangir.
» Lestu utan á morgunkorns-pakkann. Margar tegundir af
morgunkorni, sérstaklega fyrir
börn, innihalda of mikið magn af
sykri sem er ekki gott fyrir neinn.
Mikilvægi morgunverðar
Morgunblaðið/Kristinn
Hollt Það ættu allir að borða morgunverð þegar farið er á fætur og leggja uppúr hollustu hans.
Fréttir í tölvupósti