Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 36
|mánudagur|28. 8. 2006| mbl.is
Staðurstund
Ljósmyndari fór á stjá og heils-
aði meðal annars upp á fjöl-
miðlakonur á föstudegi og kíkti á
óperutónleika á Akureyri. » 39
flugan
Á fjórða tug tónleika verður
haldinn í Tíbrártónleikaröð Sal-
arins í Kópavogi og kennir þar
ýmissa grasa. » 38
tónlist
Stuðmenn kynntu nýja söng-
konu á dansleik á Seltjarnarnesi
á laugardaginn; Steinunni Ólínu
Þorsteinsdóttur. » 38
fólk dómur
Börnin verða ekki skilin út-undan í Þjóðleikhúsinu ívetur því verk eftir einnástsælasta barnabókahöf-
und landsins, Guðrúnu Helgadóttur,
verður frumflutt á stóra sviðinu.
Alls verða tíu leikverk frumflutt á
Íslandi á komandi leikári Þjóðleik-
hússins, en þar á meðal eru ný ís-
lensk og erlend verk, auk sígilds
verks sem ekki hefur verið sýnt hér
á landi.
Fyrsta frumsýning haustsins á
Stóra sviðinu er Sitji guðs englar í
leikgerð Illuga Jökulssonar eftir
hinum vinsælu barnabókum Guð-
rúnar Sitji Guðs englar, Saman í
hring og Sænginni yfir minni, en
þríleikurinn byggist á æsku Guð-
rúnar og uppvexti í Hafnarfirði.
Leikstjóri er Sigurður Sigurjónsson
en Þórarinn Eldjárn gerði söng-
texta. Meðal leikara eru Brynhildur
Guðjónsdóttir og Þröstur Leó
Gunnarsson, en verkið verður frum-
sýnt hinn 29. september.
Í lok október verður gamanleik-
urinn Stórfengleg frumsýndur, en
verkið er byggt á ævi Florence
Foster Jenkins sem hefur verið köll-
uð „versta söngkona allra tíma“.
Jenkins naut ótrúlegra vinsælda
þrátt fyrir afar takmarkaða söng-
hæfileika, og sem dæmi má nefna að
húsfyllir var á lokatónleikum henn-
ar í Carnegie Hall í New York í
október árið 1944. Leikstjóri verks-
ins er Ágústa Skúladóttir en með
aðalhlutverk fara Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Örn Árnason.
Um jólin verður einn þekktasti
harmleikur grísku gullaldarinnar,
Bakkynjur eftir Evrípídes, frum-
sýndur í fyrsta sinn á íslensku leik-
sviði. Leikstjóri verksins er Giorgos
Zamboulakis, en hann beitir sér-
stökum vinnuaðferðum sem byggj-
ast á forngrískri leikhúshefð í sam-
vinnu við Thanos Vovolis sem sér
um leikmynd og búninga. Þetta mun
ekki vera í fyrsta skipti sem þeir
Zamboulakis og Vovolis koma að
uppfærslu í Þjóðleikhúsinu, en þeir
unnu með Eddu Heiðrúnu Backman
að Mýrarljósi í byrjun árs 2005.
Leg er nýr íslenskur vísindasöng-
leikur eftir Hugleik Dagsson, en
verkið fjallar um unga stúlku á
menntaskólaaldri sem verður ólétt.
Leg verður frumsýnt í febrúar í
leikstjórn Stefáns Jónssonar, en
eins og fram hefur komið er þetta í
fyrsta sinn sem verk eftir Hugleik
er flutt í Þjóðleikhúsinu. Hann hef-
ur notið mikilla vinsælda í ár og
skemmst er að minnast sýning-
arinnar Forðist okkur sem sýnd var
í Borgarleikhúsinu í vetur, auk þess
sem nýverið kom í ljós að Penguin-
bókaútgáfan mun gefa út eftir hann
bók á næstunni.
Nýtt íslenskt verk
á Smíðaverkstæði
Síðasta frumsýning leikársins á
stóra sviðinu verður Hjónabands-
glæpir eftir Eric-Emmanuel
Schmitt, en um er að ræða nýtt verk
eftir höfund Abel Snorko býr einn
og Gestsins. Edda Heiðrún Back-
man leikstýrir en með aðalhlutverk
fara Elva Ósk Ólafsdóttir og Hilmir
Snær Guðnason. Í Kassanum verða
tvö verk frumsýnd, Ókannað land
eftir Jacob Hirdwall í leikstjórn
Maríu Ellingsen og
Hálsfesti Helenu eftir Carole
Fréchette. Þá verður verðlaunasýn-
ingin Pétur Gautur eftir Henrik Ib-
sen tekin upp frá síðasta leikári. Á
Smíðaverkstæðinu verða svo sett
upp verkin Sumardagur eftir Jon
Fosse í leikstjórn Egils Heiðars
Antons Pálssonar, Patrekur 1,5 eftir
Michael Druker í leikstjórn
Gunnars Helgasonar og Amma djöf-
ull, nýtt íslenskt verk eftir Ásdísi
Thoroddsen í leikstjórn Ágústu
Skúladóttur.
Á litla sviðinu verður sett upp
brúðusýning Bernds Ogrodniks,
Umbreyting – Ljóð á hreyfingu,
sem var frumsýnd á Listahátíð í
Reykjavík í vor. Auk Péturs Gauts
og Umbreytingar verða þrjú verk
sett upp frá fyrra leikári, Eldhús
eftir máli – Hversdagslegar hryll-
ingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem
byggð er á sögum Svövu Jak-
obsdóttur, Fagnaður eftir Harold
Pinter og barnasýningin Leitin að
jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson
og Árna Egilsson. Þá verða einnig
gestasýningar frá Japan, Póllandi,
Svíþjóð, Frakklandi og Bretlandi á
fjölum Þjóðleikhússins í vetur, auk
íslenskra gestasýninga.
Leikhús | Nýtt leikár Þjóðleikhússins kynnt
Bakkynjur, börn
og Amma djöfull
Morgunblaðið/Kristinn
Bernskubrek Sitji guðs englar byggir á bernsku Guðrúnar í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Golli
Fjölbreytt Það kennir ýmissa grasa í Þjóðleikhúsinu í vetur.
www.leikhusid.is
Líf, störf og ástir starfs-manna og viðskiptavina ílíkamsræktarstöð er við-fangsefni nýs íslensks
sjónvarpsþáttar sem áætlað er að
sýningar hefjist á fyrir jól. Þátturinn
hlaut styrk úr Kvikmyndasjóði og
var lofaður fyrir sérstaklega vandað
og áhugavert handrit.
Þættirnir hafa fengið nafnið
Venni Páer, eftir aðalsöguhetjunni:
„Þetta er frumleg viðbót við íslensku
sjónvarpsflóruna. Það má helst líkja
þáttunum við hina vinsælu Office-
þætti – þeir byggjast á sniðugum
samtölum og samskiptum milli fólks
án þess að það sé mikið grínast. Það
fer kannski best á að lýsa þessu sem
gamanþáttum sem leiknir eru án alls
gríns,“ segir Sævar Guðmundsson,
leikstjóri þáttanna, og bætir við að
þó engum stökkvi bros á vör í atrið-
unum, sem birtast munu á skjánum,
sé hlegið svo mikið á settinu að það
gangi á köflum erfiðlega að vinna.
Sævar eignar Vernharði Þorleifs-
syni júdókappa hugmyndina að þátt-
unum: „Hann tók upp á því með
sjálfum sér að skrifa stutt grínatriði
og þurfti ekki að sækja efniviðinn
langt enda með nokkurra ára einka-
þjálfaraferil að baki. Hann setti sig
svo í samband við mig og Kristján
Kristjánsson pródúsent og við tók-
um til við að skrifa lengri þætti sem
svo þróaðist út í handrit að 8 þáttum
upp á 25 mínútur,“ segir Sævar.
Það varð úr að láta Vernharð
sjálfan leika aðalhlutverkið en með-
al annarra leikara má nefna Berg
Þór Ingólfsson og Guðlaugu El-
ísabetu Ólafsdóttur sem bæði hafa
leikið í Stelpunum, auk Höllu Vil-
hjálmsdóttur og Steins Ármanns
Magnússonar. Hver þáttur myndar
sjálfstæða frásögn, en saman segja
allir þættirnir átta eina heildarsögu
og bregður þar fyrir í gesta-
hlutverkum leikurum á borð við
Gunnar Eyjólfsson, Sigurð Skúlason
og Óskar Jónasson.
Tökur hafa staðið yfir und-
anfarnar þrjár vikur og hefur sér-
lega verið vandað til gerðar þátt-
anna sem hafa kostnaðaráætlun á
við litla íslenska kvikmynd en Skjár
Einn hefur keypt sýningarrétt að
þeim.
Sjónvarp | Venni Páer á Skjá Einum
Hlátursköst hafa
hamlað tökum
Líkamsrækt „Það fer kannski best á að lýsa þessu sem gamanþáttum sem
leiknir eru án alls gríns,“ segir Sævar Guðmundsson, leikstjóri þáttanna.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Ríkharður Örn Pálsson skellti
sér til Ólafsfjarðar og kíkti á
Berjadagatónleika í höf-
uðkirkju bæjarins. » 38
Að mati Heiðu Jóhannsdóttur
er You, Me and Dupree fremur
óeftirminnileg dæmigerð
Hollywood-gamanmynd. » 39
kvikmyndir