Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 45 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sagt er að vitrir menn óski sér þess ekki endilega að vera yngri. Þá hlýtur hrút- urinn að vera vitur svo um munar því hin síunga nálgun hans leitar sífellt eftir auknum þroska, eins og þegar fimm ára segist vera fimm og hálfs. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hvers vegna leita að tækifærum þegar maður getur búið þau til? Hið fyrra byggist á heppni, hið síðara veitir full- nægju, styrk og lífsgleði. Ástalífið tekur kipp í framhaldi af tækifærinu sem þú býrð til. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Framtak sem tvíburinn telur erfitt er ekkert erfiðara en hlutirnir 100 sem hann gerir á hverjum degi án vand- kvæða. Himintunglin draga fram kosti endurtekningarinnar. Skortur á þekk- ingu er það eina sem gerir viðleitni manns erfiða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn gerir þá snilldarlegu uppgötv- un að þó að einhver sé fyndinn er ekki víst að hann sé bjáni, og þó að einhver sé alvarlegur er ekki þar með sagt að hann sé klár. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Er hugsanlegt að ljónið sé ástfangið á ný? Löngunin til að gera einhvern ódauð- legan í list, með orðum eða tónum, er yf- irþyrmandi. Það er svo margt annað sem þú ættir að vera að gera. Hvað er mik- ilvægast? Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ekki óttast! Lífið fer bara fram á að þú gerir þitt besta, ekki hið ómögulega. Það er sama hvert vandamálið er, það er allt- af til leið út úr því. Trúðu því og þá verð- ur það þannig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekki hafa áhyggjur af því hvað aðrir segja þótt þú virkilega leggir þig fram. Allir aðrir eru of uppteknir af því að tjá sig til þess að mega vera að því að spá í hvernig hinir líta út. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Samstaða himintunglanna hvetur sporð- drekann til þess að kanna svið ímynd- unaraflsins. Leiðinlegt starf verður skemmtilegra og þú gætir meira að segja uppgötvað eitthvað heillandi í fari ein- hvers sem þér fannst áður leiðinlegur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ef þú veist hvað þú vilt er það nánast komið fram á varirnar hvað eftir annað. Þetta gefur fyrirheit um að eitthvað eigi eftir að fara fyrir lítið. Hallærislegustu viðskiptin eru þau sem þú átt eftir að vera stoltastur af. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Yfirburðaárangur næst vegna fram- úrskarandi frammistöðu steingeit- arinnar. Ekki vera hissa þótt vinsældir þínar eigi eftir að stigmagnast. Þú ert svo aðlaðandi þegar þú lifir í samræmi við gildismat þitt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vá. Áskorun dagsins smellpassar fyrir vatnsberann og framkallar mátulegan þrýsting til þess að hann geti látið ljós sitt skína. Einhver hefur aðrar hug- myndir um skemmtun en vatnsberinn. Vertu meira með fólki sem er „nær“ þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn trúir á við tíu manns, þess vegna er hann vinsæll. Hann lætur jafn- an kylfu ráða kasti og því er lífið stans- laust ævintýri. Eitthvað langsótt gæti meira að segja orðið að veruleika. Stjörnuspá Holiday Mathis Samspil Venusar og Nep- túnusar varpar ljósi á það sem maður á að gera í líf- inu, en þarfirnar líka. Þverstæðan felst svo í því að eitthvað sem maður taldi áður heilbrigðan valkost á eftir að valda of miklum kvíða og spennu. Slök- um á og sættum okkur við allar hliðar hinnar flóknu mannlegu tilvistar. SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar hélt sinn árlega kynningardag á Víðistaðatúni á laugardag þar sem íbúum Hafnarfjarðarbæjar var boð- ið að kynnast komandi vetrarstarfi félagsins. Að sögn Jakobs Guðna- sonar, skátaforingja, var boðið upp á kanósiglingu á tjörninni á Víð- istaðatúni, opinn klifurveggur stóð áhugasömum til boða, eldað var of- an í gesti og gangandi og þeim boð- ið upp á að kynnast bygging- araðferðum skáta. Að sögn Jakobs hófst innritun nýrra skáta einmitt í gær, en krakkar þurfa að vera orðnir átta ára til þess að mega ganga til liðs við skátana. Að- spurður segist Jakob sjálfur hafa verið í skátunum sl. tólf ár. Spurður hvað það sé sem heilli við starfið svarar hann um hæl að það sé sam- gisti aðfaranótt laugardags, grilluð voru lambalæri á kolum í holu sem grafin var í túninu, farið var í næt- urferð í Suðurbæjarsundlaugina og að henni lokinni tók við sam- verustund kringum varðeld þar sem, að sögn Jakobs, var boðið upp á heitt kakó með sykurpúðum. Morgunblaðið/ Jim Smart Namminamm Eftir langan dag voru grilluð fimm lambalæri á kolum. vinnan og samveran með öðrum skátum. Sem upphitun fyrir vetrarstarfið stóðu Hraunbúar fyrir hópefli með- al skáta í félaginu á aldrinum 15–18 ára, en alls tóku um 30 manns þátt í því. Byggðar voru tjaldbúðir á Víðistaðatúni þar sem hópurinn Vetrarstarfið kynnt á Víðistaðatúni Mývatnssveit | Réttað var í gær í Hlíðarrétt og Baldursheimsrétt í skýjuðu veðri og hægri norðanátt. Leitir gengu vel í góðu veðri en ekki er gott að segja til um vænleik dilka, sumarið varla liðið og lömbin ekki náð að þroskast. Réttardagurinn færist stöðugt framar og er nú þremur vikum fyrr en venjulegt var hér áður, sem var 17. september. Sumir bændur nýta sér nú sumarslátrun strax í næstu viku. Haustslátrun hefst annars eft- ir viku hjá Norðlenska. Til Hlíðarréttar var smalað um 2.000 fjár. Líklega eru það erlendu ferðamennirnir sem mestan svip setja á réttina umfram það sem áð- ur var, en mikill og vaxandi fjöldi þeirra kom í Hlíðarrétt að þessu sinni og fylgdist af áhuga með þeim sérstaka viðburði sem réttin er. Ferðamenn í fjárréttum Morgunblaðið/BFH Réttir Fjöldi fólks kom í Hlíðarrétt og voru erlendir ferðamenn áberandi. OPNI Listaháskólinn mun standa fyrir fyrirlestraröð í vetur alla mánudaga frá kl.12.30–13.30 í myndlistardeild, Laugarnesi og þriðjudaga frá kl. 17–18 í hönnunar- og arkitektúrdeild, Skipholti 1. Fyrsti fyrirlestur vetrarins verður í dag, mánudaginn 28. ágúst. í Laug- arnesi en þá fáum við til okkar dönsku myndlistarkonuna Birthe Jörgensen. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Fyrirlestraröð í Listaháskólanum Morgunblaðið/Einar Falur SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village. PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI eee V.J.V - TOPP5.IS eee S.V. - MBL GEGGJUÐ GRÍNMYND með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum, ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas. Ein fyndnasta grínmynd ársins úr smiðju Jim Henson Frábær skemmtun fyrir alla fjölskyldunaeeeL.I.B. Topp5.iseeeS.V. Mbl. P.B.B. DV. eeee SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI YOU, ME AND DUPREE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 YOU, ME AND DUPREE LUXUS VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LADY IN THE WATER kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára. 5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 4 - 6 PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5 - 7 - 8 - 10 B.i. 12.ára. THE LONG WEEKEND kl. 8 B.i. 14.ára. OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 3:45 Leyfð OVER THE HEDGE M/- ensku tal. kl. 10:10 Leyfð BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 3:45 Leyfð LADY IN THE WATER kl. 6 - 8:10 - 10:30 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN. 5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 6 MIAMI VICE kl. 8 - 10:45 B.i. 16.ára. PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8 - 10:45 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN. OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð DIGITAL SÝN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.