Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 23

Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 23
Þarna kynntist ég meðal annars lautinant úr nasistahernum sem sagði mér margar ægilegar sögur úr lífi sínu. Ég gaf honum nokkrar Íslendingasögur á þýsku og honum fannst þær helst til blóðugar,“ seg- ir Bjarni og snýr sér aftur að fugl- unum. „Bjarni afi minn á Mýrunum kveikti hjá mér áhuga á fuglum sem hefur haldist alla tíð og ég á mikið safn af uppstoppuðum fugl- um sem ég hef viðað að mér á löngum tíma. Ég var svo heppinn að alast upp í fuglagarði hjá þess- um afa mínum. Hann átti fullt af fuglum og við lékum okkur að því að setja and- aregg undir hænurnar og gæs- aregg undir endurnar. Við borð- uðum líka margskonar fugla, ég reyndi til dæmis að éta álft sem hafði verið soðin í 12 tíma en hún endaði í hundskjafti, hún var ól- seig, ætli hún hafi ekki verið um sextugt.“ Frásagnargáfa Bjarna nýtur sín vel þegar hann rifjar upp gamla tíma í sveitinni. „Þegar heyskap- urinn var að baki þá fór móð- urbróðir minn inn í land og sótti stærsta lambið og fargaði því heima. Þetta var bara einn sprettur Töðugjöldin fólust í því að fá ný- meti sem gladdi bæði maga og sál. Og reiðlagið var þó nokkuð öðru- vísi þegar ég var pjakkur en það sem nú tíðkast. Þá sneri maður hestinum einfaldlega að Fláajökli þegar maður fór á bak og reyndi svo að snúa honum heim þegar upp að jökli kom. Þetta var bara einn sprettur.“ Haustið er framundan og öll þau verk sem þeim árstíma fylgja í sveitum landsins. „Við þurfum að standa okkar fjallskil og hver veit nema ég fari í leitir í haust,“ segir Bjarni með vonarglampa í augum og sýpur á kaffi sem hann drekkur aldrei án rjóma. stélfjöðrunum Vinir Endurnar og hundarnir leika sér saman. Fuglaáhugamaður Bjarni gaukar góðgæti að hænu- og hanahópnum. Sérvaldir Sumir hanar eru kynbótahanar. Forréttindi Merkilegustu hanarnir eru í betri stofunni. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 23                               !"# $%  &' ()*+"# ,-# .$/ $0  1112+232#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.