Morgunblaðið - 08.09.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 17
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, staðfesti í gær að hann hygðist
láta af embætti innan árs.
„Næsta flokksþing eftir hálfan
mánuð verður síðasta flokksþing
mitt sem leiðtogi Verkamanna-
flokksins … en ég ætla ekki að dag-
setja þetta nákvæmlega núna,“ sagði
Blair. Þarnæsta flokksþing verður í
september á næsta ári.
Mikil ólga hefur verið í þingflokki
breska Verkamannaflokksins síð-
ustu daga vegna tregðu Blairs til að
greina frá því hvaða dag hann ætli að
láta af embætti. Sjö þingmenn sögðu
sig úr áhrifastöðum í ríkisstjórn
Blairs til að mótmæla þessari tregðu
hans.
Stuðningsmenn Blairs vona að
ummæli hans í gær verði til þess að
vangaveltum um pólitíska framtíð
hans linni. Aðrir
þingmenn Verka-
mannaflokksins
sögðu hins vegar
að ummælin
nægðu ekki til að
binda enda á
ófriðinn í flokkn-
um.
„Við þurfum að
fá nákvæma dag-
setningu frá forsætisráðherranum,“
hafði fréttavefur breska ríkisút-
varpsins, BBC, eftir einum þing-
manna Verkamannaflokksins, Jer-
emy Corbyn.
Miðað við 4. maí?
Aðstoðarmenn Blairs hafa neitað
því að samkomulag hafi náðst um að
hann dragi sig í hlé sem leiðtogi
flokksins 4. maí, daginn eftir sveit-
arstjórnarkosningar í Bretlandi.
Þremur dögum áður verða tíu ár lið-
in frá því að Blair varð forsætisráð-
herra.
Gangi þetta eftir lætur Blair af
embætti forsætisráðherra 15. júní,
eftir leiðtogakjör í Verkamanna-
flokknum.
Að sögn BBC er þessi tímaáætlun
aðeins til bráðabirgða og hún gæti
því breyst. Fast hefur verið lagt að
Blair að víkja fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í maí, en talið er að
Verkamannaflokkurinn gjaldi þá
mikið afhroð. Gordon Brown fjár-
málaráðherra, líklegur eftirmaður
Blairs, er einnig sagður vera
óánægður með að taka við leiðtoga-
embættinu skömmu fyrir sumarhlé
þingsins.
Hyggst víkja innan árs
Tony Blair
afleiðingum að hann andaðist á
skömmum tíma.
Greer lét ummæli sín um Irwin
falla í viðtali við ástralska sjón-
varpsstöð í fyrradag. Sagði hún þá
að þeir sem syrgðu Irwin væru
GERMAINE Greer, sú kunna
kvenréttindakona, hefur valdið
miklu uppnámi í Ástralíu með
gagnrýni sinni á „krókódílamann-
inn“, Steve heitinn Irwin, en hann
var í miklu uppáhaldi meðal landa
sinna fyrir sjónvarpsþætti um villt
dýr, ekki síst þau allra hættuleg-
ustu. Greer sagði að Irwin hefði
verið „til skammar“ og orðið fræg-
ur fyrir „að niðurlægja dýr“.
Steve Irwin, sem varð fyrst fræg-
ur fyrir sjónvarpsþáttinn „Krókó-
dílaveiðimaðurinn“, lést síðastliðinn
mánudag en þá var hann að gera
þátt um stingskötur, sem eru með
baneitraða brodda á halanum. Kom
ein þeirra höggi á hann með þeim
„fífl“ og kvaðst trúa því að milljónir
landa hans hefðu skammast sín fyr-
ir hann.
„Ég er ekki hissa á að illa hafi
farið fyrir honum,“ sagði Greer og
bætti við að loksins hefðu dýrin
„komið fram hefndum“.
Eins og líklegt er hafa þessi um-
mæli ekki fallið í frjóan jarðveg
meðal aðdáenda Irwins og hafa
margir orðið til að hneykslast á
þeim.
Peter Beattie, ríkisstjóri Queens-
lands, sagði að yfirlýsingar Greer
væru „heimskulegt róttæklinga-
rugl“ og að það væri fjarri öllum
sanni að Irwin hefði farið illa með
dýr.
Greer harðorð um Irwin
Germaine Greer Steve Irwin
INDVERSKUR búddatrúarmunkur
með grímu dansar hefðbundinn
dans á trúarhátíð í Rabangla
Manelhakhing-klaustrinu í ríkinu
Sikkim í norðausturhluta Indlands í
gær.
Reuters
Dans á trúarhátíð
„Ársskýrsla Glitnis er aðgengileg og vönd-
uð og gott jafnvægi ríkir á milli einstakra
málaflokka. Hún er mjög upplýsandi fyrir
hluthafa, fjárfesta og aðra hagsmunaaðila
bankans og tekur á öllum helstu þáttum
í starfsemi hans og framtíðaráformum.“
Úr umsögn dómnefndar
Til hamingju, Glitnir
með ársskýrslu ársins 2005
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Iceland Stock Exchange