Morgunblaðið - 08.09.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 21
AUSTURLAND
Hornafjörður |
Þórbergssetur á
Hala í Suðursveit
opnaði formlega
sýningarhúsnæði
sitt í júlíbyrjun.
Jöfn og góð að-
sókn hefur verið
að setrinu í sumar
og um fjögur þús-
und manns komið
í heimsókn og
skoðað sýningar.
Einnig hefur fjöldi fólks komið í setrið
til að njóta veitinga og kynna sér þau
verkefni sem Þórbergssetur vinnur
að. Áberandi er hve margir spyrja um
bækur Þórbergs, hvar þær séu fáan-
legar og erlendir ferðalangar spyrja
mikið um þýðingar á bókum hans.
Framundan er því að kynna verk Þór-
bergs betur fyrir erlendum gestum
og tengja verkefnið frekar sögu og
menningu Suðursveitar.
Í vetur verður hafist handa við að
markaðssetja setrið fyrir nemenda-
hópa og segja forsvarsmenn að ótelj-
andi verkefni geti tengst þeim sýn-
ingum sem þegar eru komnar upp í
Þórbergssetri.
Í tilefni af opnun Þórbergsseturs
og byrjun á formlegri starfsemi í nýju
og glæsilegu húsnæði efnir Þórbergs-
setur til hátíðaþings dagana 13. og 14.
október nk.
Dagskrá þingsins verður fjölbreytt
og má nefna fyrirlestra um bók-
menntir, og bækur Þórbergs,
skemmtun af ýmsu tagi, upplestur og
gönguferðir. Dagskrá og frekari til-
högun verður auglýst síðar.
Hátíðarþing
um Þórberg
undirbúið
Þórbergsþing
Safnið á Hala fær
góða aðsókn.
Neskaupstaður |
Skólarnir eru
byrjaðir og má
víða sjá þess
merki í sam-
félaginu. Kenn-
arar og nem-
endur Nesskóla
hafa verið dug-
legir að nota
góðviðrið und-
anfarna daga til
útikennslu og
hafa þeir sést víða um bæinn í hóp-
um. Nemendur í sjötta bekk fóru til
að mynda í fjöruna að safna í sarp-
inn fyrir líffræðikennslu. „Ég fann
marglyttu, ég fann marglyttu!“
heyrðist í einum nemanda sem pot-
aði í dauða hveljuna með priki.
Sjáiði – ég fann
marglyttu!
Náttúrurannsókn
Nemendur Nes-
skóla í Norðfjarð-
arfjöru.
TÍMAMÓT verða í virkjunarfram-
kvæmdunum í fyrramálið þegar
risaborinn TBM1 slær í gegn í að-
rennslisgöngum Kárahnjúkavirkj-
unar og lýkur þar með því verki
sem honum var ætlað milli Hálslóns
og Fljótsdals, tæplega 15 kílómetr-
um. Færiböndin, sem flytja grjót-
mulninginn út úr göngunum hafa
valdið meiri vandræðum eftir því
sem á verkið hefur liðið. Þetta eru
reyndar ein lengstu færibönd sem
um getur í svona verki í veröldinni
og marga, samhæfða mótora þarf
til að halda þeim gangandi. Erfitt
hefur reynst að samhæfa alla mót-
ora og þegar eðlilegt slit bætist við
skapast vandræði. Á milli bora 2 og
3 eru nú rúmir 2 km óboraðir.
Slegið í gegn í
aðrennslisgöngum
Reyðarfjörður | Á dögunum mættu
30 nýir starfsmenn til vinnu hjá Al-
coa Fjarðaáli á Reyðarfirði. Þetta er
fyrsti stóri hópurinn sem þangað
kemur í einu. Fólkið byrjar á því að
setjast á skólabekk í þrjár vikur.
Þá auglýsti fyrirtækið nýverið eft-
ir fólki í 100 stöður.
„Það mun fremur óvenjulegt á ís-
lenskum vinnustað að starfsfólk
byrji störf með því að setjast á skóla-
bekk,“ segir Erna Indriðadóttir,
upplýsingafulltrúi fyrirtækisins.
„Þetta er breiður hópur og í honum
margar konur, sem eru margar að
skipta um störf til að hækka sig í
launum. Þetta fólk er að fara að gera
allt mögulegt hjá fyrirtækinu, það
fer í störf hjá innkaupadeild, um-
hverfisdeild, í kerskálum og víðar.“
Erna segir töluvert af fólkinu af
Austurlandi og víðar af landinu, aðr-
ir komi erlendis frá og eitthvað sé
um íslenska ríkisborgara af erlendu
bergi brotna. Næstu þrjár vikur lær-
ir fólkið um starfsemi Alcoa og sögu,
um áliðnaðinn hnattrænt, öryggis-
og umhverfismál og þær hugmyndir
sem Alcoa starfar eftir.
Viljum gjarnan fólk um sextugt
„Í tengslum við starfsmannahald
hafa verið fréttir af því að fólk t.d. á
Suðurnesjunum sem vann hjá Varn-
arliðinu og er komið á miðjan aldur,
á erfitt með að fá vinnu“ segir Erna.
„Við hér viljum sérstaklega laða til
okkar fólk um sextugt og teljum að
fólk hafi fulla starfsorku og þrek á
þeim aldri og vildum gjarnan nýta
starfskrafta slíks fólks ef það er á
lausu. Við viljum þó auðvitað hafa
fólk í vinnu hjá okkur á öllum aldri
og af báðum kynjum, en því leggjum
við mikið upp úr og höfum sérstaka
stefnu þar að lútandi.“
Alcoa Fjarðaál auglýsti nýlega 100
laus störf fyrir framleiðslustarfs-
menn, rafvirkja og vélvirkja.
Í auglýsingunni er tekið fram að
þegar framleiðslustarfsmaður hefur
fengið þjálfun og vottun til að vinna
sjálfstætt á tilskildum fjölda starfs-
stöðva eru viðmiðunarlaun yfir árið
um 4.032.258 kr. fyrir fullt starf í
vaktavinnu. Viðmiðunarárslaun iðn-
aðarmanns með sveinspróf og
þriggja ára starfsreynslu í faginu,
sem vinnur við viðhaldsstörf hjá Al-
coa Fjarðaáli og hefur lokið innri
vottun, geta orðið um 3.502.400 kr.
fyrir fullt starf í dagvinnu.
Á vef fyrirtækisins kemur fram að
umsækjendur þurfi að svara stöðl-
uðum spurningum um hvort gildi Al-
coa Fjarðaáls og þeirra fari saman
og leitað sé umsagnar meðmælenda.
IMG Mannafl-Liðsauki annast
fyrstu úrvinnslu umsókna. Ráðning-
arferlið í heild er sagt geta numið allt
að þremur mánuðum.
Þrjátíu nýir starfsmenn
í þriggja vikna nám
Mikill áhugi á fjölbreyttum störfum í álverinu á Reyðarfirði
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Engin vettlingatök Alcoa Fjarðaál safnar nú starfsfólki í álverið og eru
nýir starfsmenn þess þegar sestir á skólabekk um þriggja vikna skeið.
LANDIÐ
ÓBORGANLEGAR GAMANSÖGUR!
3. sætið á
metsölulista
Pennans yfir
handbækur/fræði-
bækur/ævisögur.
5. sætið á
heildarlista
Pennans.
Grímsey | Hann er vinur og aðdáandi dr.
Daníels Willard Fiske, hins mikla vel-
gjörðarmanns Grímseyinga, Bjarni
Reykjalín Magnússon hreppstjóri og sýnir
það svo sannarlega í verki.
Báturinn hans heitir Fiske og á honum
veiðir hann í matinn og háfar lunda. Fiske
hefur Bjarni átt í 8 ár. Ekki nóg með þetta,
landbíllinn hans á Akureyri hefur núm-
eraplötuna Fiske.
Bjarni hreppstjóri sagði skemmtilega
sögu um bílnúmerið. Þannig var að hann
fór með bílinn til Færeyja ekki fyrir löngu
og lenti þá í því að vera stoppaður þegar
hann ætlaði í gegnum göngin til Klakks-
víkur. Eitthvað fannst fólki númerið dul-
arfullt og varð Bjarni að útskýra skriflega
hvernig númerið væri til komið áður en
honum var hleypt í gegn á bílnum. Í Fær-
eyjum keypti Bjarni sér svo gullstafi til að
merkja húsbílinn sinn með nafni vinarins
kæra, Fiske.
Þurfti að útskýra Fiske-vinskapinn
Morgunblaðið/Helga Mattína
Fiske Bjarni Reykjalín Magnússon, ásamt barnabarni sínu og al-
nafna, um borð í Fiske í Grímseyjarhöfn.
Vestmannaeyjar | Síminn mun á
morgun, laugardag, kl. 16 afhjúpa
minnismerki á Þrælaeiði í Vest-
mannaeyjum þar sem nú eru 95 ár
liðin frá því Vestmannaeyjar komust
í símasamband við umheiminn. Þá
var sæstrengur dreginn á land á
Þrælaeiði í Eyjum. Það var Rit- og
talsímafélag Vestmannaeyja sem
stóð að framkvæmdinni.
Stofnun Rit- og talsímafélags
Vestmannaeyja er einstök í fjar-
skiptasögu landsins, því félagið er
eina dæmið frá þessum tíma um að
einkaaðila hafi verið veitt leyfi til
símareksturs á Íslandi. Sæstrengur-
inn var tengdur við símalínu í landi
fimm árum eftir að Ísland tengdist
umheiminum.
Að sögn Sigurgeirs Brynjars
Kristgeirssonar, stjórnarmanns í
Símanum, býður Síminn til kaffisam-
sætis í húsi Oddfellow við Strandveg
í Eyjum að athöfn lokinni.
Minnisvarði
vígður í Eyjum