Morgunblaðið - 08.09.2006, Síða 28

Morgunblaðið - 08.09.2006, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LEYNIFANGELSI OG RÉTTARFAR Nú hefur George Bush Banda-ríkjaforseti viðurkennt til-veru leynilegra fangelsa bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, og sagði að þar hefðu háttsettir liðs- menn hryðjuverkasamtakanna al- Qaeda verið í haldi og yfirheyrðir. Sagði hann að 14 menn, sem hefðu verið í haldi á ótilgreindum stað eða stöðum, hefðu nú verið fluttir í fanga- búðirnar í Guantanamo á Kúbu. Eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu í gær sagði Bush að fangarnir myndu framvegis njóta allra þeirra réttinda, sem Genfar-sáttmálarnir veita stríðsföngum. Hann sagði að CIA hefði beitt óhefðbundnum aðferðum við yfirheyrslur, en ekki pyntingum. „Bandaríkin pynta menn ekki,“ sagði hann. „Ég hef ekki heimilað slíkt og mun ekki gera það.“ Stjórn Bush hefur verið gagnrýnd harkalega bæði heima fyrir og á al- þjóðlegum vettvangi vegna meðferð- ar hennar á föngum. Bandarískir embættismenn hafa reynt að skil- greina pyntingar þröngt gagnvart bæði bandarískum lögum og Genfar- sáttmálanum til að hægt væri að ganga eins langt í yfirheyrslum og sagt að tilteknir fangar nytu ekki þeirra réttinda sem þar væri kveðið á um. Litið er á þetta útspil forsetans sem tilraun til þess að bæta ímynd Bandaríkjamanna. Bush greindi frá þessu í fyrradag. Þá kom einnig út ný handbók banda- ríska landhersins, sem dregið hefur verið að gefa út í heilt ár vegna deilna um meðferð fanga.. Í frétt í Interna- tional Herald Tribune segir frá því að þar sé sérstaklega lagt bann við átta tilteknum yfirheyrsluaðferðum, það er þvingaðri nekt eða kynlífsathöfn- um, notkun hauspoka eða límbands, barsmíðum, raflostum, kaffæringum, hita- eða kuldameðferð, sviptingu vatns eða matar, þykjustu-aftökum og notkun hunda til að skjóta föngum skelk í bringu. Ýmsum þessara að- ferða var beitt í Abu Ghraib-fangels- inu í Bagdað. Eins og segir í fréttinni á leiðarvís- irinn við um fanga í haldi á vegum varnarmálaráðuneytisins og tekur því til Guantanamo, þar á meðal nýju fanganna. Tveir mannanna 14 eru sagðir hafa verið höfuðpaurarnir í að skipuleggja hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Nú hyggst Bush sækja þá til saka og láta stríðsglæpa- réttarhöld fara fram í Guantanamo. Þar vill hann fá svigrúm, sem hæsti- réttur Bandaríkjanna hefur þegar neitað honum um, og sækist væntan- lega eftir fulltingi þingsins til að geta farið sínu fram. Bandaríkjamenn hafa sett ofan vegna meðferðar sinnar á föngum. Það er góðs viti að fangarnir, sem um ræðir, muni njóta allra þeirra rétt- inda, sem Genfar-sáttmálarnir veita stríðsföngum, en Bandaríkjamenn eru með fleiri fanga í haldi. Hver verður staða þeirra? Það á einnig eft- ir að koma í ljós með hvaða hætti verður réttað yfir föngunum fjórtán. Samfangar þeirra í Guantanamo- fangelsinu hafa verið án dóms og laga. Bush vill veita sakborningum takmarkaðan aðgang að sönnunar- gögnum og upplýsingum, sem ekki myndi viðgangast fyrir dómstólum í Bandaríkjunum. Meira að segja lög- fræðingar Bandaríkjahers tóku vara fyrir því að takmarka rétt sakborn- inga með þessum hætti í vitna- leiðslum fyrir Bandaríkjaþingi í gær. Ef reglur réttarríkisins eru of tak- markandi verður að kyngja því. Það er betra en að kasta þeim á glæ. KONUKOT Starfsemi Konukots hefur skiptmiklu máli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Nú er starfsemi þess á ákveðnum tímamótum og vet- ur fer í hönd. Í ljósi ummæla, sem höfð eru eftir Jórunni Frímannsdótt- ur, formanni velferðarráðs Reykja- víkurborgar í Morgunblaðinu í dag verður að teljast tryggt að gerðar verði ráðstafanir til að heimilislaus- um konum verði tryggt athvarf, sem ekki sé jafnframt opið körlum. Það er í sjálfu sér ekki viðunandi að á götum Reykjavíkur sé að finna heimilislaust fólk. Í einhverjum til- vikum hefur þar verið um að ræða fólk, sem á við alvarlegar geðraskan- ir að stríða. Samfélaginu er skylt að sjá þessu fólki fyrir húsaskjóli og ekki bara yfir blánóttina. Það getur verið kalt á Ís- landi að vetri til. Þess vegna verður að ganga út frá því sem vísu, að rekstur Konukots verði tryggður áður en samkomulag um núverandi rekstur þar rennur út. Eftir Rúnar Pál runarp@mbl.is E umtalsverð, e virkjun sjá m Þegar kom vert sveru rö viðarhól og a veg. Flestöll fyrir norðan og að því hly Á löngum ka stöðum er lög verið lagðir e urnar og til a virkja sjást fr fleiri borholu séð. Það vekur að rörin sem hlykkjótt. Hl hitaþenslu en þensla í málm vinna gegn þ setja á þau sé einnig gegn á ingum frá OR Voru beinn Þóroddur Fr Skipulagssto hverfismat v unblaðið, að þ verið sýnd m „Þegar við fe ið að hanna þ líta út eða hv bara línur og færu. En ég g einhverju var Umhverfið Bólstrarnir sem nú stíga upp af virkjunarsvæðinu munu hverfa þegar virkjunin verður tek Virkjunin á Borho mátt lá Hiti Lagnirnar eru látnar hlykkjast til að vinna gegn áhrifum hitaþenslu. BLAIR Í VANDA Tony Blair, forsætisráðherraBreta stendur nú frammi fyrir vanda, sem ekki er óþekktur hjá þeim, sem gegnt hafa embætti for- sætisráðherra í Bretlandi. Vandinn er sá, að flokksmenn hans eru búnir að fá nóg af honum og það dugar hon- um ekki lengur að hafa komið Verka- mannaflokknum til valda á ný eftir langa útilegu. Líklega vilja flokksmenn hans losna við hann sem fyrst og verður fróðlegt að sjá, hvort yfirlýsing hans í gær um að hann hverfi á braut innan árs dugi til að lægja öldurnar í flokki hans. Þessi tegund af vanþakklæti fyrir unnin verk er vel þekkt í brezkum stjórnmálum. Margrét Thatcher fékk að kenna á því sama og raunar margir aðrir. Jafnvel Winston Churchill fékk ekki frið til þess að standa upp úr embættisstól á eigin forsendum. Það verður erfitt fyrir Blair að sitja í embætti við þessar aðstæður. Betri kostur hefði verið að standa upp og hætta, frekar en að láta ýta sér hægt og bítandi úr embætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.