Morgunblaðið - 08.09.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 43
menning
BÁRA Kristinsdóttir vakti athygli
mína fyrir ekki mjög löngu með
óvenjulegri ljósmyndasýningu í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, þar
sem hún kom fram með skapandi
sýn á heim gróðurhúsa. Nú sýnir
Bára í Gallerí Anima við Ingólfs-
stræti, sýning hennar ber titilinn
Umhverfi bróður míns. Yfirlætislaus
titill á látlaus verk, en áhrifamikil
sýning engu að síður. Ljósmyndir
Báru birta myndir frá Ameríku,
götumyndir þar sem ekkert sérstakt
er að sjá. Íburðarlítil hús, ekkert
landslag, götuhorn með óeftirminni-
legum vöfflustað, grindverk sem
hallast, skólabygging sem þó ber
öðrum tíma vitni, ef til vill hefur
hverfinu farið hnignandi. Myndirnar
segja lítið, það er formáli Báru sem
ljær þeim merkinu og tilfinningalega
hleðslu. Bróðir hennar, Páll S. Krist-
insson, bjó í þessu umhverfi, en hann
fluttist til Bandaríkjanna 1970 og
sneri aldrei aftur heim. Hann lést í
febrúar sl. sextugur að aldri, þá fór
Bára til Flórída vegna andlátsins og
tók myndirnar við það tækifæri. En
þær eru blessunarlega lausar við
alla tilfinningasemi þessar myndir,
þær eru hugleiðing í mun víðara
samhengi en þeirra Báru og Páls
heitins. Spurningar vakna um líf ein-
staklingsins og tengingu okkar við
umhverfið. Setjum við mark okkar á
það eða öfugt? Um leið og við veltum
því fyrir okkur hvernig það væri nú
að búa þarna, getum við spáð í það
hvernig það er að búa hér, okkar
eigið umhverfi, kosti þess og galla.
Báru tekst vel að mynda umhverfið
án allra sérkenna, eina vísbendingin
sem hún gefur áhorfandanum um
bróðurinn er kryddhillan, líklega var
hann góður kokkur. Hún sýnir leit
án niðurstöðu og í henni felst ákveð-
inn sannleikur og raunsæi, því lífið
býður sjaldnast upp á niðurstöðu,
svör við spurningum, lausn allra
mála.
Þessar ljósmyndir minna að
nokkru leyti á ljósmyndir Sophie
Calle sem líkt og einkaspæjari á eig-
in vegum elti eitt sinn ókunnugan
mann alla leið frá París til Feneyja
og myndaði hann, birti síðan mynd-
irnar með textum. Hún vann einnig
við herbergisþrif á hóteli og mynd-
aði herbergi fólks, eigur þess og um-
gengni. Tengsl einstaklings og um-
hverfis eru meginþemað, eins og í
verkum Báru og ljósmyndarinn er í
hlutverki rannsóknarmanns, mann-
fræðings. Hér tekst Báru á hóf-
stilltan hátt að koma á framfæri
vangaveltum sínum um líf bróður
síns, án þess að falla í gryfju tilfinn-
ingasemi þar sem hún sjálf væri í að-
alhlutverki. Hún nær að gera vanga-
veltur sínar almenns eðlis og kemur
inn á ýmsa fleti, t.a.m. fólksflutninga
milli landa og Ameríku sem fyrir-
heitna landið. Hún sýnir enn að hún
er hugmyndaríkur ljósmyndari og
tekst hér vel til með vandmeðfarið
viðfangsefni.
Ljósmynd/Bára Kristinsdóttir
Umhverfi bróður míns „Yfirlætislaus titill á látlaus verk, en áhrifamikil
sýning engu að síður,“ að mati Rögnu Sigurðardóttur.
Ekki lengur hér
MYNDLIST
Gallerí Anima
Ljósmyndir, Bára Kristinsdóttir. Til 9.
september. Opið fim. fös. og lau. frá kl.
13–17. Aðgangur ókeypis.
Umhverfi bróður míns
Ragna Sigurðardóttir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
„ÉG ÞOLI EKKI
MENNINGARPÍKUR.“
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhusid.is
DAGUR VONAR
EFTIR BIRGI SIGURÐSSON
Innritun daglega í síma 551 3129 kl. 16 til 22
Heiðar, sími 896 0607
Tölvup.: heidarast@visir.is
Kennum alla
samkvæmisdansa
Barnadansa
Keppnisdansa
Salsa
Freestyle
50ára
Kennsla hefst 12. sept.
Reykjavík Mosfellsbæ