Morgunblaðið - 08.09.2006, Side 44

Morgunblaðið - 08.09.2006, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands Veislan er hafin! í kvöld hefst nýtt starfsár sinfóníuhljómsveitar íslands. ein skærasta söngstjarna norðurlanda kemur þá fram með hljómsveitinni og efnisskráin er fjölbreytt, heillandi og litrík! á morgun halda svo fl group og sinfóníuhljómsveit íslands styrktartónleika fyrir bugl, barna- og unglingageðdeild landspítala - háskólasjúkrahúss. F í t o n / S Í A 08/09 upphafstónleikar Græn tónleikaröð Háskólabíó kl. 19:30. Miðaverð: 3.700 / 3.400 kr. 09/09 styrktartónleikar fl group og sinfóníuhljómsveitar íslands Háskólabíó kl. 17:00. Miðaverð: 3.700 / 3.400 kr. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einsöngur: Solveig Kringelborn efnisskrá Hector Berlioz: Roman Carnival, overture Edvard Grieg: Five Songs Nicolai Rimsky-Korsakov: Sheherazade SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Kvisast hefur að Liz Hurley hafihafnað einum af þrettán brúð- arkjólum sínum vegna þess að hann líkist um of alræmdum kjól sem hún klæddist einu sinni og hefur verið kenndur við öryggisnælur. Leikkonan skýrði nýlega frá því að hún hygðist nota kjólana þrettán í fjögurra daga brúðkaupsveislu henn- ar og Aruns Nayars, unnusta hennar. Sagt er að hún hafi hafnað einum kjólanna vegna þess að hún geti ekki leyft sér að vera of djarflega klædd nú þegar hún er orðin 41 árs. „Hún sagði honum að hún vildi eitthvað sem hæfði aldri hennar, ekki einhver bellibrögð,“ hafði breska blaðið Daily Star eftir ónafngreindum heimildarmanni. Hurley ætlar að halda upp á brúð- kaupið á Englandi og einnig Indlandi, fæðingarlandi mannsefnisins. Hún hefur pantað kjóla frá vinkonu sinni, fatahönnuðinum Donatellu Versace, og hefðbundna indverska kjóla. Hurley olli fjaðrafoki árið 1994 þegar hún mætti á frumsýningu kvik- myndar ásamt þáverandi heitsveini sínum, Hugh Grant, í svörtum stutt- kjól sem haldið var saman með ör- yggisnælu úr gulli. Gianni Versace hannaði kjólinn sem var svo umtal- aður að sagt var í minningargrein um tískukónginn eftir að hann var myrt- ur árið 1997 að nælukjóllinn væri það sem Versace væri þekktastur fyrir. Fólk folk@mbl.is Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is GALLERÍ Turpentine er um þess- ar mundir fullhlaðið skúlptúrum og olíumálverkum af kynjaverum á borð við mannhesta og hálfhrúta. Tilefnið er sýningin Hibridi og vís- ar latneskur titillinn í þann sam- runa manna og dýra sem þar er í aðalhlutverki. Um er að ræða fyrstu einkasýningu listakonunnar Höllu Gunnarsdóttur í Reykjavík en Halla hefur síðastliðin ár verið búsett í New York við nám og störf. Að hennar eigin sögn er inn- blástur sýningarinnar upphaflega sóttur til evrópskra furðusafna 17. aldar og eins hins leikræna of- hleðslustíls barokksins. „Evrópskir aðalsmenn söfnuðu furðulegustu hlutum og settu sam- an vinsæl söfn sem hafa sum hver varðveist alveg vel,“ útskýrir hún. „Þar er t.d. að finna uppstoppuð furðudýr og manngerð nátt- úruundur. Þetta voru skemmtileg og falleg söfn.“ Ofhlaðið galleríið er svo í samræmi við innblásturinn frá barokkinu. Gaman að vinna með málverkið Halla útskrifaðist frá The New York Academy of Art fyrir þremur árum og hlaut við þau tímamót verðlaun og starfsstyrk frá skól- anum. Á námstímanum einbeitti hún sér fyrst og fremst að skúlpt- úrnum. „Ég var aðallega í anatómíu og tæknilegri þjálfun. Þetta er góður grunnur sem maður getur leikið sér með og farið út í að búa til sín eigin furðulegu verk,“ segir hún hlægjandi. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem Halla sýnir olíumálverk. „Ég hef verið að mála svolítið í gegnum tíðina og ákvað að sýna málverk samhliða gifsverkunum, sem reyndist vel. Það er eins og ég hvíli eitt meðan ég sinni hinu. Þeg- ar ég er búin að fá nóg af því að vera í drullugallanum með gifs í hárinu er gott að taka nokkrar vik- ur í olíuna.“ Sýninguna vann Halla hérlendis í sumar, í stúdíói úti á Gróttu. „Ég ákvað að vinna sýninguna á Íslandi í sumar í staðinn fyrir að fara heim til New York og senda svo verkin. Ég gæti ekki hugsað mér betri stað til að vera með stúdíó á en Gróttu.“ Mikilvægt að sýna á Íslandi Að sögn Höllu var gott að koma heim. „Ég var búin að vera úti í 11 ár. Ég fór héðan strax eftir stúd- ent þannig að ég hafði í rauninni aldrei verið fullorðin á Íslandi. Það hefur verið mjög gott að koma heim og skjóta svolítið rótum aft- ur. Mér finnst svo gott að vinna hérna heima og það er svo mikið um að vera og mikill kraftur í fólki. Ég myndi helst vilja vera hérna með annan fótinn og sýna reglulega,“ segir Halla sem heldur aftur út í lok mánaðarins. Upprunalega kom Halla til landsins í vetur til að hanna leik- mynd og búninga fyrir uppsetn- ingar Leikfélags Akureyrar á Litlu hryllingsbúðinni og Maríubjöll- unni. Útkoman var glæsileg og var hún tilnefnd til Grímunnar 2006 fyrir leikmyndina í Maríubjöllunni. Halla segir að hún gæti vel hugsað sé að vinna meira við leikhús í framtíðinni en tekur þó fram að skúlptúrinn verði alltaf í fyrsta sæti hjá sér. „En ég myndi gjarn- an vilja taka leikhúsverkefni að mér við og við. Maður er svo mikið einn þegar maður er að vinna í stúdíóinu. Í mínu tilfelli er þessi einvera ekki holl til lengdar. Þann- ig að það er mjög gott að fara inn í leikhúsið og vera partur af því mikla félagslífi sem þar fer fram.“ Myndlist | Halla Gunnarsdóttir opnar einkasýningu í Galleríi Turpentine í dag Innblásturinn sóttur til evrópskra furðusafna HALLA hefur aðeins einu sinni áður haldið sýningu á Íslandi. Fyrr á þessu ári var sýningin Svefnfarar haldin í Listasafninu á Akureyri en hún var sýnd samhliða sýningu Spencer Tunicks, Bersvæði. Morgunblaðið/Golli Fyrsta sinn í Reykjavík ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDIN Tsotsi (Besta erlenda myndin 2006), tekur á gamalkunnu þjóðfélagsmeini í nýju samhengi og framandi um- hverfi niðurníddra fátækrahverfa Jóhannesarborgar. Slíkar uppeld- isstöðvar illskunnar er að finna í flestum borgum á suðurhveli jarðar, en Tsotsi er byggðá sögu s-afr- íkanska leikritaskáldsins Athol Fugard. Titilpersónan (Chweneyagae), er táningur, sjálfalinn og hertur í of- beldisfullu samfélagi fátækrahverf- isins þar sem margur sér ekki aðrar leiðir né einfaldari en glæpabrautina til að hafa í sig og á. Möguleikar á menntun og atvinnu virðast víðs fjarri og það sem verra er, í þessum heimi ríkir skortur á ást og umönn- un. Tsotsi er forhertur skrattakollur, bak við barnslegt og frítt andlitið býr illfygli sem svífst einskis, hann hikar jafnvel ekki við að ræna far- lama fólk né misþyrma vinum sín- um. Hvað er að gerast innra með slíkum pörupilti, hvað fer fram á bak við barnsgrímuna? Þeirri spurningu svarar Hood á minnisstæðan hátt. Við fáum innsýn í dapra bernsku í skugga veikinda og heimilisofbeldis. Angistin, reiðin og hatrið hefur markað Tsotsi og það þarf kraftaverk til að virkja það góða sem býr inn við bein þessa litla villimanns á sorphaugum lífsins. Myndin sýnir okkur inn í lífsbaráttu undir ómennskum kringumstæðum og hjálparmeðölin til að komast af í slíkri forarvilpu. Samtímis fjallar hún einnig um mannlega reisn, það er sama hvar þú ert og hver þú ert, ef þú berð ekki virðingu fyrir sjálf- um þér færðu goldið í sömu mynt, og leikurinn er tapaður. Tsotsi á engan að aðra en meðlimi þjófagengisins, hann er rótlaust strokubarn án foreldra og hinna mikilvægu tengsla við ættbálkinn sinn, hann virðist glataður þegar hann sér ljósið, sem kemur úr óvæntustu átt. Áhorfandinn á rétt á að vita ekki meira um hverju fram vindur í þessari athyglisverðu mynd, sem fjallar reyndar um kunnugleg efni, en í nýju ljósi. Framúrskarandi leikur Chweneyagae hins unga, tengir mann traustum böndum við átakanlegt efnið, markað ofbeldi, vonleysi, birtu og trú á sigur yfir illskunni á ólíklegustu stöðum. Góður inn við beinið KVIKMYNDIR IIFF 2006: Regnboginn Leikstjóri: Gavin Hood. Aðalleikarar: Presley Chweneyagae, Terry Pheto, Kenneth Nkosi, Mothusi Magano, Zenzo Ngqobe. 95 mín. Suður-Afríka. 2005. Tsotsi  Sæbjörn Valdimarsson Framúrskarandi Presley Chweneyagae leikur hinn unga Tsotsi. www.turpentine.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.