Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.09.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 45 Frá kl. 17:00 - 19:00 Húsið opnar kl. 16:30 . (KK) Gréta Fyrir rúmri viku fagnaði and-legi hugleiðslumeistarinnog friðarsinninn Sri Chinmoy Kumar Ghose 75 ára af- mæli sínu. Af því tilefni var haldin mikil hátíð í New York-borg þar sem meistarinn hefur búið meiri- hluta ævi sinnar. Þar voru saman komin konur og menn sem hafa heillast af friðarboðskap og and- legu fordæmi Sri Chinmoys og voru m.a. flutt leikrit, ljóð og lög sem afmælisbarnið hefur samið í gegnum tíðina. Er ljóst að fylg- ismenn Sri Chinmoys hafa haft úr nógu að velja í þeim efnum því meistarinn hefur nýtt sín 75 ár bet- ur en flestir myndu treysta sér til.    Byrjum á tónlistinni. 13. júlí síð-astliðinn samdi Sri Chinmoy 13.000. lagið sitt á bengölsku. Hef- ur hann þá samið yfir 20.000 lög. Alls hefur hann svo haldið yfir 750 tónleika og voru tónleikar sem hann hélt í Háskólabíói í október árið 2000 þeir 600. í röðinni.    Sri Chinmoy hefur auk þessskrifað og gefið út alls 1.545 bækur með alls yfir 112.524 ljóð- um, ófáum leikritum og viskuorð- um sem hafa að geyma andlega speki hans og friðarboðskap.    Myndlist sína kallar SriChinmoy Jarna-Kala eða „uppsprettulist“. Nafngiftin helg- ast af því að hún flæðir frá hjart- anu eins og uppspretta eftir því sem hann sjálfur segir. Hann byrj- aði að mála 19. nóvember 1974 og hafði, þegar hann hélt upp á 75 ára afmælið, gert yfir 200.000 mál- verk og teikningar. Þar eru ekki taldir með þeir 15.500.000 „sál- arfulgar“ sem hann hefur málað frá 29. desember 1991. Verk hans hafa verið sýnd um allan heim, meðal annars í Ráðhúsi Reykjavík- ur.    Það er ljóst að Sri Chinmoy erenginn venjulegur maður. Hann hefur ætíð varað við því að fólk festist í viðjum eigin hug- arfars og hvatt til þess að menn stígi frekar skrefinu lengra en þeir telja sér fyrirfram fært. Það er ljóst að hér er á ferð maður sem lætur ekki sitja við orðin tóm. Máttur andans ’13. júlí síðastliðinnsamdi Sri Chinmoy 13.000. lagið sitt á bengölsku.‘ Andlegur Sri Chinmoy ólst upp í andlegu samfélagi á Indlandi. Síðan 1970 hefur hann verið með „friðarhugleiðslu“ hjá SÞ tvisvar í viku. floki@mbl.is AF LISTUM Flóki Guðmundsson AMBULANCE byrjar á stuttu lagi sem heitir Erik. Það minnir á Radio- head en það er eitthvað sem ég hef löngu sætt mig við að margar gít- arrokk-hljómsveitir eiga til. Svo koma lögin koll af kolli og eru í sjálfu sér ekkert slæm. Þau eru nákvæm- lega eins og þau eiga að vera. Þetta er ruddur vegur, troðin slóð eða hvað sem þú vilt kalla það. Í raun er ekkert hægt að segja um The Telepathetics nema að þeir bera nafn með rentu. Ef að Muse er uppá- halds hljómsveitin þín, hlauptu þá út í plötubúð og fáðu þér þennan disk. Þú átt eftir að elska hann. Hér er dansað á vegi með- almennskunnar. Söngurinn bylur í gegnum tilgangslaust gítarsarg og ég spyr mig hvort ég nenni yfir höf- uð að klára að hlusta á þetta. Ég sinni starfi mínu hins vegar af metn- aði og hlusta. Oft. Þeir eru flinkir hljóðfæraleikarar og hafa fengið til liðs við sig gott fólk til framleiðslu plötunnar. Upptök- urnar hljóma vel og skemmtilegt er að heyra blásturshljóðfærin, þetta er vel útsett plata. Strengirnir eru líka skemmtileg viðbót. The Telepathetics gætu orðið heimsfræg hljómsveit. Þetta er ein- mitt sú tónlist sem XFM spilar linnulaust, daginn út og daginn inn. Þeir hafa þetta element sem gerir fólk að stjörnum. Vönduð dramatísk vein og gítar, svo ofsalega mikið af gítar. Strákarnir á Rás 2 gætu jafn- vel tekið þá upp á sína arma og spil- að þá á hverjum degi. Hljómsveitir eins og þessi eiga aldrei eftir að hætta að vera til. Aldrei. Allt í einu reif ég af mér heyrn- artólin, kastaði þeim í gólfið og hugsaði með mér: Nú nenni ég ekki að hlusta á þetta lengur. Ég skil vel og virði að þessi tónlist er gerð af lífi og sál þeirra sem hana eiga en snefill af frumleika er hér eigi að finna. Það besta voru útsetningarnar og Radio- head-áhrifin í fyrsta laginu. Annað var það ekki. Ófrumlegt gítarrokk TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Geisladiskur The Telepathetics nefndur Ambulance. The Telepathetics eru Andr- eas Boysen sem slær á trommur, Eyþór Rúnar Eiríksson syngur og spilar á gítar, Óttar Guðbjörn Birgisson leikur einnig á gítar og Hlynur Hallgrímsson plokkar bassa. Lög og textar eru eftir þá sjálfa. Pétur Þór Benediktsson útsetti strengi og blásturshljóðfæri en Þorbjörn Sigurðs- son útsetti píanó og Hammond orgel. The Telepathetics útsettu sjálfir. Birgir Jón Birgisson sá um hljóðsetningu, hljóð- blöndun og masteringu. Upptökur og vinnsla fór fram í Sundlauginni. TeleTone gefa út en 12 Tónar sjá um dreifingu. The Telepathetics – Ambulance  Helga Þórey Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.