Morgunblaðið - 08.09.2006, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ICELAND FILM FESTIVAL 2006
Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER
RENAISSANCE
JASMINE WOMANLOOKING FOR ...
THE LIBERTINE
WHERE THE TRUTH..
DOWN THE VALLEY
HETJAN... SKRÍMSLIÐ... GOÐSÖGNIN.
DÝRASTA
KVIKMYND
SEM
GERÐ
HEFUR
VERIÐ
Á ÍSLANDI.
BJÓLFSKVIÐA
BJÓLFSKVIÐA kl. 8 - 10:30 B.i.14. ára.
The Libertine kl. 8 B.i.12. ára.
Renaissance kl. 10:30 B.i.12. ára.
Down in the Valley kl. 5:45 B.i.16. ára.
Where the Truth Lies kl. 5:45 B.i.16. ára.
Looking for comedy in the Mus... kl. 8 leyfð
Jasmin Women kl. 10:10 B.i.12. ára.
eeee
blaðið
eee
H.J. - MBL
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS B.J. BLAÐIÐ
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 5:45 - 8 - 10:15 leyfð PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10:15 B.i. 12.ára.
HEIMURINN HEFUR
FENGIÐ AÐVÖRUN.
AÐSÓKNARMESTA HEIMILDARMYN-
DIN Í ÁR. MYNDIN HEFUR FENGIÐ
EINVALADÓMA BÆÐI FRÁ GAG-
NRÝNENDUM OG VÍSINDAMÖNNUM.
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK AL GORE, FYR-
RUM VARAFORSETA BANDARÍKJANNA.
HEIMILDARMYND ÁRSINS SEM
TEKUR Á EFNI SEM SNERTIR
ALLA JARÐARBÚA.
eeeee
H.J. MBL
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
MEÐ KYNTRÖLLINU CHANNING
TATUM (“SHE’S THE MAN”)
FRAMLEIDD AF
TOM HANKS.
MAURAHRELLIRINN / ANT BULLY M/ÍSL TALI kl. 6 leyfð
STEP UP kl. 6 - 8 - 10 Leyfð
MAURAHRELLIRINN Ísl tal. kl. 6 Leyfð
UNITED 93 kl. 8 - 10 B.i. 12
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 - 10:10 Ley
LITTLE MAN kl. 8 B.i
MAURAHELLIRINN Ísl tal. kl. 6 Ley
YOU ME AND DUPREE kl. 10 B.I
GRETTIR 2 Ísl tal. kl. 6 Ley
/ AKUYREYRI / KEFLAVÍK
4 vikur
á toppnum á Íslandi ! V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
www.haskolabio.isHAGATORGI • S. 530 1919
FRÁBÆR DANSMYND
HLAÐIN GEGGJAÐRI
TÓNLIST EN MYNDIN KOM
HELDUR BETUR Á ÓVART Í
USA FYRIR NOKKRU.
DEITMYNDIN Í ÁR
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ
TAKA FYRSTA SPORIÐ.
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Í sumar sótti Vík-verji nokkuð fjöl-
mennan blaðamanna-
fund. Þar voru margir
fjölmiðlamenn saman
komnir sem og ýmsir
sérfræðingar á því
sviði sem málefni fund-
arins snerist um. Eftir
framsöguerindi nokk-
urra manna óskaði
fundarstjóri eftir
spurningum úr sal og
létu fjölmiðlamenn sitt
ekki eftir liggja og
lögðu ýmsar spurn-
ingar fyrir þá sem sátu
fyrir svörum. Víkverji
var meðal þeirra sem spurðu.
Víkverji hafði í upphafi fundarins
sett upptökutæki sitt á borð þeirra
sem fyrir svörum sátu til að ná sem
bestri upptöku af því sem þeir
höfðu til málanna að leggja. Hafði
hann gert viðkomandi grein fyrir
tækinu.
Eitthvað virðast þeir háu herrar
sem ætluðu að fræða fjölmiðla-
menn, og þar með almeninning,
hafa gleymt sér þegar leið á fund-
inn því þegar Víkverji hlustaði á
upptökuna að fundi loknum mátti
heyra athugasemd þeirra sín á milli
við spurningum fjölmiðlamanna. At-
hugasemdin, sem sögð var í hálfum
hljóðum svo ekki
heyrðist út í sal, var
eitthvað á þessa leið:
„Hvers konar spurn-
ingar eru þetta eig-
inlega? Hver var að
spyrja að þessu?“ Svo
var hlegið létt.
Víkverja fannst
þetta fyrst ofsalega
fyndið. Að þeir miklu
menn sem sátu fyrir
svörum skyldu gera
grín að spurningum
fréttamanna. Í raun
gera lítið úr þeim. Það
sem þeir virðast að
mati Víkverja hafa
gleymt er að fréttamenn spyrja
ekki sem sérfræðingar heldur sem
fulltrúar almennings. Spyrja spurn-
inga sem brenna á almenningi.
Spurningar fréttamanna á þessum
tiltekna fundi voru einmitt þess eðl-
is.
Víkverja hætti að finnast þessar
athugasemdir mannanna fyndnar á
öðrum degi. Í dag finnst honum
þær bara sorglegar. Sérfræðingar í
ákveðnum málefnum gefa sig út
fyrir að vilja uppfræða almenning,
en þegar á hólminn er komið finnst
þeim spurningar almennings bara
asnalegar og vitlausar. Engin furða
að stundum sé gjá þarna á milli.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins : Mannssonurinn er ekki kominn til
að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa.
(Lúk. 9, 56.)
Í dag er föstudagur
8. september, 251. dagur
ársins 2006
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Styttur sem hverfa
úr kirkjugörðum
ÉG las í Velvakanda sl. miðvikudag
pistil um styttu sem hvarf af leiði í
Fossvogskirkjugarði.
Þetta virðist vera algengt því ég
veit að það var tekin stytta af leiði
barns í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Þegar ég fór að kanna málið betur þá
komst ég að því að búið var að stela 7
styttum af barnaleiðum í garðinum,
allt voru þetta eins styttur og þetta
gerðist um jólin. Virðist þetta hafa
gerst í skjóli nætur.
Sagði kirkjugarðsvörðurinn að af
einu barnaleiðinu hefði þrisvar sinn-
um verið tekin stytta af leiðinu og
þurftu foreldrarnir að kaupa styttu á
leiðið í fjórða skiptið. Sjálfsagt eru til
fleiri tilvik þar sem þetta hefur gerst.
Manni hefur helst dottið til hugar
að það sé verið að stela þessum stytt-
um til að senda utan.
Ég er sammála þeirri sem skrifaði
í blaðið og vil ég að eitthvað sé gert í
þessu því þetta eru rándýrar styttur
– fyrir utan sorgina sem þetta veldur
aðstandendum.
Móðir.
Skelfilegar afleiðingar
ÍSLENSKA þjóðin verður gjald-
þrota ef baráttumál Vinstri grænna,
Samfylkingar og Frjálslyndra ná
markmiðum sínum: Að hætta við og
slá á frest öllum virkjunarfram-
kvæmdum á Íslandi.
Þeim hefir tekist að blekkja þjóð-
ina með lævísum lygaáróðri, að
heilaþvo þjóðina og í könnunum sópa
þeir til sín fylgi. Er þetta það sem
þjóðin vill? Gerir þjóðin sér grein
fyrir hinum hrikalegu afleiðingum?
Nei, það held ég ekki.
Hugsið það ef bara Kára-
hnjúkavirkjun einni yrði slegið á
frest, þó ekki væri nema í eitt til tvö
ár, þá kostar það þjóðina 400 millj-
arða í beinar skaðabætur, auk þess
stæðu fleiri þúsund manns uppi með
hálf- eða fullbyggð hús og aðrar eign-
ir verðlausar. Atvinnuleysi og upp-
lausn sem engan órar fyrir, afleiðing-
arnar yrðu skelfilegar.
Þetta yrði stórkostlegasta áfall
allra tíma fyrir íslensku þjóðina.
Þetta boða vinstri flokkarnir í dag,
sérlega Steingrímur J. og hans fólk.
Já, vel á minnst. Vinstri grænir stór-
auka við sig fylgi. Er ekki kominn
tími til að þjóðin fari að taka afger-
andi afstöðu og sjá í hvað stjórnmálin
eru komin?
Að lokum skora ég á alla ritfæra
menn og fjölmiðla að taka meiri þátt í
að upplýsa þjóðina um áætlanir
vinstri öfgamanna, sem vilja steypa
þjóðinni í glötun. Af landinu lifa
menn og hafa alltaf gert.
Einn sem vill lifa af því sem landið
gefur.
Sigurður P. Þorleifsson.
Morgunblaðið/Ásdís
90 ára afmæli.11. september
nk. verður níræð Jó-
hanna Lind Pálsson,
Gunnlaugsgötu 10,
Borgarnesi. Af því
tilefni tekur hún og
fjölskylda hennar á
móti gestum sunnudaginn 10. sept. kl.
15 til 18 í Félagsmiðstöðinni Óðal
(gamla Samkomuhúsið), Borgarnesi.
60 ÁRA afmæli.Í dag, 8. sept-
ember, er sextugur
Ágúst Oddur Kjart-
ansson. Af því tilefni
verða hann og kona
hans, Guðrún Svein-
björnsdóttir, að með
opið hús laugardaginn 9. sept. kl. 16 í
sumarhúsi Verkstjórafélags Reykja-
víkur að Kjarrbraut nr. 3, í landi Vað-
ness, Grímsneshreppi. Ættingjar og
vinir velkomnir.
40 ára afmæli. 10.september nk.
er fertug Ragna Lóa
Stefánsdóttir, fyrr-
verandi fótbolta-
stjarna og þjálfari.
Hún tekur á móti
gestum á heimili
sínu í London á afmælisdaginn.
140 ára afmæli. 10. septembernk. verður sjötug Elínborg
Karlsdóttir, Aðalgötu 11, Stykk-
ishólmi. Eiginmaður hennar, Helgi Ei-
ríksson, varð sjötugur 27. júní sl. Þau
verða með opið hús á Veitingahúsinu
Narfeyrarstofu í Stykkishólmi laug-
ardaginn 9. sept. milli kl. 17 og 21 og
taka á móti vinum og vandamönnum.