Morgunblaðið - 08.09.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 53
Stórkostleg mynd frá
leikstjóranum Paul Grengrass
sem hlotið hefur einróma lof
gagnrýnenda.
Þann 11.september 2001 var fjórum flugvélum rænt.
Þrjár þeirra flugu á skotmörk sín.
Þetta er saga fjórðu vélarinnar.
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
"ÁKAFLEGA STERK MYND OG SÖMULEIÐIS EIN SÚ
MIKILVÆGASTA SEM KOMIÐ HEFUR ÚT UMGOTT
SKEIÐ. BESTA MYND ÁRSINS HINGAÐ TIL!"
FRAMLEIDD AF
TOM HANKS.
FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
„the ant bully“
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
eee
S.V. - MBL
eee
V.J.V - TOPP5.IS
eeeee
blaðið
yfð
. 12
yfð
.14
yfð
STEP UP kl. 4 - 6:10 - 8 - 10:10 leyfð
STEP UP LUXUS VIP kl. 5:05 - 8 - 10:10 leyfð
UNITED 93 kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 14
YOU, ME AND DUPREE kl. 5:45 - 8 - 10:20 leyfð
LADY IN THE WATER kl. 6:15 - 8:20 - 10:30 B.i. 12
STEP UP kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:10 leyfð
LADY IN THE WATER kl. 8:10 - 10:30 B.i. 12 DIGITAL SÝN.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10 B.i. 12 DIGITAL SÝN.
THE ANT BULLY Enskt tal kl. 6 - 8 leyfð
MAURAHRELLIRINN Ísl. tal. kl. 4 - 6 leyfð
OVER THE HEDGE Ísl. tal. kl. 4 leyfð DIGITAL SÝN.
MAURAHRELLIRINN Ísl tal. kl. 4 - 6 leyfð
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:20 B.i. 12
BÍLAR Ísl tal. kl. 4 leyfð
OVER THE HEDGE Ísl tal. kl. 3:50 leyfð
5 CHILDREN AND IT Enskt tal kl. 3:50 leyfð
/ KRINGLAN/ ÁLFABAKKI
með Owen Wilson (Wedding Crashers)
sem fer á kostum, ásamt Kate Hudson,
Matt Dillon og Michael Douglas.
Ein fyndnasta grínmynd ársins
eeee
HJ, MBL
eeeee
LIB - topp5.is
“ógleymanleg og mögnuð
upplifun sem mun láta
engan ósnortinn”
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nýttu þér þitt trausta og einbeitta hug-
arástand, með því að skrá hugsanir þín-
ar. Það er eitthvað við skriftir sem krist-
allar hugrenningar þannig að þær geti
nýst sem leiðarvísar í framtíðinni, eða
næst þegar þú ert ráðvilltur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið er forvitið. Það er viturlegt að
lesa og stúdera ókunna heimspeki.
Hafðu í huga, að enginn er betur til þess
fallinn að búa til heimspeki sem passar
þér en einmitt þú sjálfur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Augu tvíburans eru skýr og þegar hann
talar endurómar rödd hans í dúr. Hver
getur ekki nýtt sér glaðværa manneskju
eins og hann í sínu liði? En auðvitað get-
ur þú ekki verið í öllum liðum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Yfirleitt vill krabbinn finna út úr hlut-
unum jafnóðum. En að þessu sinni væri
gott að búa yfir dálítilli formlegri þekk-
ingu. Það eina sem gæti orðið dýrara en
að borga fyrir námskeið, er að sleppa
því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er sama hversu ákveðið markmið,
málstaður eða ástríða ljónsins er, þú
uppgötvar hóp sem hentar þér í dag.
Fólk sem borðar súrar gúrkur með
hnetusmjöri? Eða fer í siglingu í viðhafn-
arklæðnaði? Engin hugmynd er of
geggjuð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ofurgreind meyjunnar er svo sann-
arlega kostur, en ef hún hefur ekki næg-
ar ástæður til þess að ná tilgangi sínum,
kemst hún ekki á leiðarenda. Himin-
tunglin varpa ljósi á að minnsta kosti tíu
til viðbótar áður en degi hallar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Innileg tjáning hjálpa voginni við að
þróa samband þangað sem það þarf að
stefna. Í sumum tilvikum kemur spurn-
ingin um hjónaband til álita. Búðu þig
undir gestakomu eða þá að ástvinur snýr
til baka í kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ertu á höttunum eftir þungu viðfangs-
efni, eins og til dæmis list, heimspeki eða
eðlisfræði? Nú er rétti tíminn til þess að
byrja. Tiltekin manneskja sýnir þér
hvaða dyr á að opna til þess að komast
beint að kjarnanum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn vinnur ekki á sama hraða
og þeir sem eru í kringum hann. Hraðar
er ekki betra og hægar er ekki verra. En
það sem þú getur verið viss um, er að
framlag þitt er svo sannarlega dýrmætt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er mjög hæfileikaríkur stúd-
ent mannlegrar náttúru og það gefur
henni forskot í öllu sem hún kýs að taka
sér fyrir hendur. Tækifæri berst þér upp
í hendurnar. Manneskja sem orðin er
þreytt lætur keflið af hendi, nú er komið
að þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur slíkt vald yfir hugs-
unum sínum núna, að honum tekst að
tala sjálfan sig inn á vandamálalaust
svæði. Með réttu viðhorfi gæti þér fund-
ist sem þú hefðir engin vandamál – og
kannski er það rétt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vinnan er samfélagslegt átak um þessar
mundir. Fiskurinn er kannski ekki alveg
viss um að takmarkið sé sanngjarnt, en
hann verður að reyna hið ómögulega svo
hann viti hvað er hægt.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Stríðsplánetan Mars er á
leið í vogina, merki frið-
arins. Það hefur þveröfug
áhrif, beislar árásargirni
Mars og hleypir lífi í hina
hlutlausu vog. Við getum
nýtt okkur þessa afstöðu, sem varir fram
til 23. október og reynt að láta okkur líka
vel við eitthvað í fari óvinarins. Eða tek-
ist á við neikvæðar hliðar ótilgreindrar
vináttu – því fyrr, því betra.
Menningar- og listafélagið Beinlaus
biti stendur fyrir útgáfuhátíð laug-
ardaginn 9. september í tilefni af
nýjum geisladisk hljómsveitarinnar
Roðlaust og beinlaust, Sjómanna-
sögur.
Hátíðin ber nafnið Bryggjuskrall
í Ólafsfirði og verður haldin í
gamla salthúsinu hans Sigvalda
Þorleifssonar í Ólafsfirði og hefst
kl. 14.
Fjölmargir gestir munu koma
fram, kórar, hljómsveitir og söngv-
arar, auk þess sem myndlistarmenn
frá Siglufirði og Ólafsfirði munu
sýna verk sín á staðnum.
Sjá dagskrá á vefslóðinni:
www.mogo.is/bryggjuskrall Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Bryggjuskrall í Ólafsfirði
Michael Jackson hefur verið fyr-irskipað að greiða fyrrverandi
eiginkonu sinni 60.000 dollara, sem
svarar 4,2 milljónum króna, vegna
kostnaðar sem hún hefur orðið fyrir
vegna málshöfðunar
hennar á hendur
söngvaranum.
Eiginkonan fyrr-
verandi, Deborah
Rowe, höfðaði mál á
hendur Jackson til að
fá forræði yfir tveim-
ur börnum þeirra.
Hún hafði óskað eftir
því að fá 195.000
pund, sem svarar 13,6
milljónum króna, en
dómarinn hafnaði
þeirri kröfu og benti
á að Rowe ætti að fá
átta milljónir dollara,
sem svarar 560 millj-
ónum króna, frá
Jackson samkvæmt
fjárskiptasamningi
þeirra frá 2001. Rowe
hefur sagt að Jackson hafi hætt fyrir
þremur árum að greiða henni sam-
kvæmt samningnum.
Dómarinn veitti Jackson frest til 28.
þessa mánaðar til að greiða Rowe
kostnaðinn.
Við skilnaðinn afsalaði Rowe sér for-
ræði yfir börnunum tveimur, Prince
Michael og Paris, og reyndar öllum
umgengnisrétti. Hún höfðaði hins veg-
ar mál árið 2004 og krefst þess að fá
forræði yfir börnunum.
Jackson kvæntist Rowe, sem er fyrr-
verandi hjúkrunarkona, árið 1999 og
þau skildu tveimur árum síðar.
Fólk folk@mbl.is
Sjónvarpsstjarnan Paris Hilton hef-ur verið handtekin og ákærð fyrir
að aka undir áhrifum áfengis í Holly-
wood.
Lögreglumenn stöðvuðu
bíl hennar vegna grun-
samlegs ökulags og báðu
hana að blása í blöðru. Í
ljós kom að áfengismagnið
í blóði hennar var yfir
leyfilegum mörkum.
Talsmaður Hilton sagði
að hún hefði verið á heim-
leið eftir fjársöfn-
unarsamkomu á vegum
góðgerðasamtaka þegar
hún var handtekin. Hún
hefði drukkið eitt glas af
víni og líklega sýnt ein-
kenni ölvunar vegna þess
að hún hefði drukkið á fast-
andi maga og verið þreytt
eftir að hafa unnið við
upptökur á tónlistar-
myndbandi.