Morgunblaðið - 08.09.2006, Page 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Girnilega
r
uppskrift
ir
í lokinu
Dala Fetasneiðar – gómsæt nýjung!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
S 10–18 m/s,
talsverð rigning
við suðvest-
urströndina.
Hægari SV-átt og styttir
upp vestantil síðdegis. » 8
Heitast Kaldast
18°C 9°C
FRAMKVÆMDIR við Hellisheiðar-
virkjun ganga vel og er vonast til
að fyrsta vélasamstæðan verði tek-
in í notkun eftir 10 daga. Í fyrstu er
gert ráð fyrir að framleiða 45 MW
og að í október verði komist í 90
MW. Víða er unnið að frágangi við
virkjunina og í gær var m.a. verið
að klæða rör sem liggur frá stöðv-
arhúsinu og að niðurdælingarholu
sunnan við Suðurlandsveg. Klæðn-
ingin er ljósgræn og því ber minna
á rörinu en áður.
Miklar leiðslur hlykkjast frá bor-
holum og til stöðvarhússins og setja
þær mikinn svip á heiðina. Þegar
Skipulagsstofnun fjallaði um um-
hverfismat virkjunarinnar sáust
ekki þessir hlykkir heldur voru rör-
in sýnd með tiltölulega beinum lín-
um. Þóroddur Fr. Þóroddsson hjá
Skipulagsstofnun segist þó ekkert
geta sagt til um hvort það hefði
haft áhrif á niðurstöðu stofnunar-
innar, hefði það verið ljóst að leiðsl-
urnar hlykkjuðust með þessum
hætti.
Hlykkjunum á lögnunum er ann-
ars vegar ætlað að draga úr áhrif-
um jarðskjálfta en megintilgang-
urinn er að verjast hitaþenslu sem
getur verið gríðarmikil. Í mörgum
lögnum Orkuveitu Reykjavíkur er
þetta vandamál leyst með hita-
þenslustykkjum en Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri OR, segir að
hönnuðir virkjunarinnar hafi ekki
treyst sér til að setja þenslustykki í
svo heitar lagnir. | Miðopna
Morgunblaðið/RAX
Fellur að umhverfinu Græn klæðning sker minna í augun en undirlagið.
Setja Hellis-
heiðarvirkjun
í gang eftir
nokkra daga
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
BJÖRGUNARÞYRLUR banda-
ríska varnarliðsins fljúga af landi
brott hinn 15. september, en herinn
hafnaði beiðni Landhelgisgæslu Ís-
lands (LHG) um að þyrlurnar yrðu
til taks hér á landi til 1. október, þeg-
ar fyrsta leiguþyrla gæslunnar kem-
ur hingað til lands.
„Við óskuðum eftir því að þyrlurn-
ar yrðu hér til 1. október, og reikn-
uðum með að þeir [varnarliðið] sam-
þykktu það, en við fengum
upplýsingar um það síðastliðinn
mánudag að þeir myndu ljúka sinni
vakt klukkan 16 föstudaginn 15.
september,“ segir Georg Kr. Lárus-
son, forstjóri LHG.
„Þetta á ekki að skapa nein vand-
ræði. Við fáum fyrstu leiguþyrluna –
sem er sambærileg við stærri þyrl-
una okkar – hinn 1. október, og við
erum búnir að skipuleggja okkar
starfsemi miðað við að báðar okkar
vélar verði í lagi þangað til,“ segir
Georg.
Hann óttast ekki að alvarlegt
ástand verði ef önnur hvor þyrla
gæslunnar bilar áður en leiguþyrlan
kemur. Ef óvænt ástand komi upp
megi reikna með aðstoð frá Norð-
mönnum til að brúa bilið. Um það sé
munnlegt samkomulag.
Falskt öryggi í sumar
„Við teljum okkur vera í ágætum
málum með þessa hluti, þótt það
hefði auðvitað verið æskilegt að hafa
bandarísku þyrlurnar til mánaða-
móta,“ segir Georg. Hann bendir þó
á að þær tvær þyrlur sem varnarliðið
hafi verið með hér á landi í sumar
hafi verið meira og minna bilaðar,
ýmist önnur eða báðar, svo að segja
megi að það hafi verið falskt öryggi
að treysta á þær.
Þyrlur varnar-
liðsins af landi
brott eftir viku
Varnarliðið hafnaði beiðni LHG um að
hafa þyrlurnar í tvær vikur til viðbótar
»Bandarísk stjórnvöld til-kynntu íslenskum stjórnvöld-
um að þau hygðust flytja varnar-
liðið af landi brott 15. september.
»Sögðust bandarísk stjórnvöldþrátt fyrir þetta ætla að
standa við varnarsamning þjóð-
anna tveggja frá 1951.
»Viðræður hafa staðið umframtíð varnarsamstarfsins
síðan, en engin niðurstaða er
komin og varnarliðið nú að mestu
farið af landi brott.
Í HNOTSKURN
ÞORGERÐUR
Katrín Gunnars-
dóttir, varafor-
maður Sjálfstæð-
isflokksins, mun
sækjast eftir því
að leiða lista
flokksins í suð-
vesturkjördæmi.
Hún var í 4. sæti
framboðslistans í
kjördæminu fyrir
alþingiskosningarnar 2003.
Þorgerður tjáði Morgunblaðinu
þessa ákvörðun sína í gær, eftir að
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra
og oddviti Sjálfstæðisflokksins í suð-
vesturkjördæmi, lýsti því yfir að
hann ætlaði að gefa kost á sér í
fyrsta sæti lista flokksins í suður-
kjördæmi. | 4
Þorgerður
Katrín í
fyrsta sætið
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
„HANN er að fá þá viðurkenningu sem hann á
skilið,“ segir Eyrún Huld Haraldsdóttir, unnusta
rokkarans sem hefur verið á allra vörum undan-
farið, Magna Ásgeirssonar. Eins og alþjóð veit
komst Magni í úrslit veruleikaþáttarins Rock
Star: Supernova og nk. þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld mun hann berjast við þau Toby,
Lukas og Dilönu um hylli hljómsveitarinnar. Þeg-
ar Morgunblaðið hafði samband við Eyrúnu í gær-
kvöldi var hún nýbúin að tala við Magna. „Hann
var mjög hress og kátur, enda hélt hann að þeir
Toby hefðu leitt atkvæðagreiðsluna í gær [mið-
vikudag] nokkuð örugglega,“ segir Eyrún.
Í gær lauk Magni upptökum á fyrstu smáskífu
sem gefin verður út í nafni Supernova, en þeir
keppendur sem eftir eru þurftu allir að gera það
svo allt verði tilbúið í næstu viku þegar úrslitin
ráðast. „Það gekk þrusuvel hjá honum og tók ekki
nokkra stund, enda fagmaður á ferð,“ segir Ey-
rún. Spurð hvað Magna hafi fundist um stuðning
íslensku þjóðarinnar segir Eyrún hann hafa kom-
ið honum á óvart, í raun hafi hann búist við að
verða sendur heim í fyrradag og fyrir rúmri viku.
Eyrún og nánasta fjölskylda Magna munu halda
vestur um haf í boði Icelandair nk. mánudag til
þess að berja Magna augum í Los Angeles. Hún
segir enga ástæðu til annars en að halda sig á
jörðinni en viðurkennir þó að spennan sé orðin
mikil. Faðir Magna, Ásgeir Arngrímsson, sauð-
fjárbóndi á Brekkubæ í Borgarfirði eystra, tekur
undir með Eyrúnu og segist hafa tekið úrslitum
síðasta þáttar með jafnaðargeði. „Við erum ekki
farin að telja dollara hér, það væri nær að tala um
rollur og þess konar fé í því samhengi, enda haust-
göngur hafnar og byrjað að senda í sláturhús,“
kveður Ásgeir. Hann segir Magna uppskera eins
og hann sái, en finnst frammistaða Magna ekki
svo frábrugðin því sem gerist og gengur á sveita-
böllum hljómsveitar hans, Á móti sól.
Magni á siglingu
Er búinn að taka upp smáskífu með Supernova
Ljósmynd/Matthías A. Ingimarsson
Í úrslit Magni stillir sér upp fyrir myndatöku á
rokkstjörnusetrinu í Los Angeles.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is