Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 244. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TÖFRAAUGNABLIK MIKILVÆGT AÐ GETA HLEGIÐ AÐ SJÁLFUM SÉR GUNILLA BERGSTRÖM Í LESBÓKARVIÐTALI BRAIN POLICE „VISSUM NÁKVÆMLEGA HVAÐ VIÐ VILDUM“ Á FERÐ OG FLUGI >> 59 FULLYRT er í skýrslu leyniþjón- ustunefndar öldungadeildar Banda- ríkjaþings, sem birt var í gær, að Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hafi ekki haft nein formleg tengsl við al-Qaeda-samtökin og hafi litið á íslamska ofstækismenn sem ógnun við stjórn sína. George W. Bush Bandaríkjaforseti og Dick Cheney varaforseti fullyrtu fyrir innrásina í Írak 2003 að Saddam hefði haft slík tengsl við hryðju- verkasamtökin. Fram kemur í skýrslunni að leyni- þjónustan, CIA, hafi sannanir fyrir því að fulltrúar al-Qaeda og íraskra stjórnvalda hafi nokkrum sinnum átt fundi á tíunda áratugnum en ekki sé hægt að tala um formleg tengsl eða samstarf í því sambandi. Bush og Cheney hafa verið sak- aðir um að hafa reynt að blekkja al- menning með því að tengja innrásina í Írak við baráttuna gegn alþjóðleg- um hryðjuverkasamtökum. Óspart var vitnað í gömul ummæli Bush og Cheneys í gær og ljóst að demókrat- ar munu notfæra sér málið. „Þegar Saddam Hussein var við völd í Írak og stýrði einhverri blóð- ugustu ríkisstjórn 20. aldar … var hann lengi búinn að hafa tengsl við al-Qaeda,“ sagði Cheney í júní 2004. Engin formleg tengsl Stjórn Bush Bandaríkjaforseta sögð hafa beitt blekkingum fyrir Íraksstríðið til að tengja Saddam við al-Qaeda Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is REGNHLÍFAR komust í tísku í Bretlandi á 19. öld og eru mikið þarfaþing en oft er nokkuð vandasamt að hemja þær í þjóðlegum íslenskum rokrassi eins og hér er barist við í Reykjavík. Sums staðar rignir þó ekki minna en á suðvesturhorninu, þannig segja Norðmenn að í Bergen fæðist fólk með regnhlífar. Þorsteinn Jóns- son, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, sagði í gærkvöldi að fremur hlýtt væri á landinu miðað við árstíma, þurrt yrði á Norðurlandi en búast mætti við skúrum og rigningu næstu daga sunnan- og vestanlands. Þeir sem ætla sér að nota tæki- færið um helgina og tína krækiber og bláber í tæka tíð fyrir frostnæturnar verða því að taka fram viðeigandi klæðnað eða taka afleiðingunum. Morgunblaðið/Ásdís Lárétt og þjóðleg rigning Madrid. AP. | Stjórnendur Pasarela Cibeles, þekktrar tískusýningar í Madrid á Spáni, nota nú ákveðna mælingaformúlu, þar sem meðal annars er borin saman þyngd og hæð, til að meta hvort fyrirsæturnar séu grennri en boðlegt þyki. Um 30% kvenna sem ætlunin var að sýndu fatnað á sýningunni féllu á prófinu. Sýningarstjórarnir sögðust vilja ráða konur sem væru ímynd „feg- urðar og hreysti“ en ekki „sárþjáðar renglur“ sem virtust vera nánast á grafarbakkanum. Þegar sýningin var haldin í fyrra bárust mótmæli frá læknum og kvennahreyfingum vegna þess að sumar stúlkurnar voru svo grindhor- aðar. Ákváðu ráðamenn í Madrid því að þrýsta á sýningarstjórana um að ráða eðlilega skapaðar konur. Þær gætu þá orðið fyrirmynd ungra stúlkna sem eru sumar helteknar af holdafarinu og eiga til að svelta sig svo harkalega að þær veikjast. Renglurnar af sviðinu Haag. AFP. | Umhverfisvernd- arsamtökin Greenpeace hvöttu í gær Evrópusambandið til þess að banna notkun á efnasamböndum sem gera plastefni í kynlífsleikföngum, sem stundum eru kölluð „hjálpartæki ástalífsins“, mýkri og meðfærilegri. Mýkingarefnin, sem nefnast þalöt, gætu valdið notendum heilsutjóni. „Í kynlífsleikföngunum eru sams konar eiturefni og Evrópusam- bandið hefur bannað að notuð séu í leikföng fyrir börn,“ sagði í frétta- tilkynningu frá aðalstöðvum Green- peace í Hollandi í gær. „Við höfum rannsakað margs kon- ar framleiðsluvörur síðustu árin en höfum aldrei rekist á jafnhátt hlut- fall [af þalötum],“ sagði talsmaður samtakanna, Bart van Opzeeland. Liðsmenn Greenpeace segja að rannsóknir sanni að þalöt geti rask- að jafnvægi hormóna í líkamanum, dregið úr frjósemi og haft slæm áhrif á nýru og lifur. Baneitruð kynlífstæki? Eftir Brján Jónasson og Örlyg Stein Sigurjónsson HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavík- ur um að 16 ára piltur skuli sæta gæsluvarðhaldi til 26. september nk. vegna hnífstungu. Piltinum er gefið að sök að hafa stungið 25 ára karlmann í bakið með hnífi að tilefnislausu í Laugardalnum að- faranótt sl. þriðjudags. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því á þriðjudag er haft eftir piltinum að hann hafi farið á netið til að kynnast manni með það í huga að drepa ein- hvern. Þar hafi hann komist í samband við manninn sem hann síðar stakk í bakið. Fram kemur að þeir hittust þrisvar. Fyrst við heimili piltsins, þar sem þeir töl- uðu saman. Síðar fóru þeir á rúnt- inn og tók pilturinn að eigin sögn þá hníf með til að stinga og drepa manninn, en sagðist ekki hafa fengið tækifæri til þess. Pilturinn sagði lögreglu að hann hefði svo farið aftur á rúnt- inn með fórnarlambinu aðfara- nótt sl. þriðjudags. Leið þeirra hefði legið í Laugardalinn við Skautahöllina, þar sem pilturinn hefði farið út að reykja og mað- urinn farið út úr bílnum til að kasta af sér vatni. Kvaðst piltur- inn þá hafa laumast aftan að manninum og stungið hann í bak- ið. Hann sagði manninn þá hafa litið við og hann því tekið á rás og hlaupið í burtu. „Aðspurður kvað hann þetta hafa verið vilja sinn og að hann langaði að prófa að drepa mann Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir 16 ára pilti sem stakk mann í bakið Langaði að prófa að drepa mann »Eftir að 16 ára pilt-urinn var handtekinn var gerð húsleit á heimili hans. Þar fundust tveir hnífar og leðurslíður af þeim þriðja. »Hnífurinn sem beittvar fannst í bifreið mannsins sem var stung- inn. Hnífurinn var með tæplega 10 cm löngu blaði, og var blóðugur eftir árás- ina. »Árásarmaðurinn þarfað sæta geðrannsókn samkvæmt úrskurði hér- aðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti. Í HNOTSKURN ♦♦♦ og að [maðurinn] hefði verið sá fyrsti sem hann fann til þess,“ segir í úrskurði héraðsdóms um gæsluvarðhald, sem Hæstiréttur hefur nú staðfest. Í ljósi þessa metur lögregla það svo að pilturinn kunni að vera hættulegur og því nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi svo fleiri verði ekki fyrir árásum hans. Að auki megi ætla að ef pilt- urinn verði látinn laus geti hann torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á vitni. Karlmaðurinn sem var stung- inn dró hnífinn úr baki sínu og gat komið sér sjálfur á slysadeild. Betur fór en á horfðist, því hnífs- lagið fór í gegnum vöðva og reyndist nóg að sauma sárið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.