Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Kvöldvaka í
Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
FYRSTA kvöldvakan á þessu hausti
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði verður
annað kvöld kl. 20.
Slíkar kvöldvökur eru haldnar
einu sinni í mánuði yfir vetrartím-
ann og eru alltaf vel sóttar. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiðir söng-
inn undir stjórn Arnar Arnarsonar
en að þessu sinni er kvöldvakan
helguð ólíkum sálmum í sálmabók-
inni og fjallað um söguna á bak við
einstaka sálma.Boðið verður upp á
kaffi í safnaðarheimilinu að lokinni
kvöldvöku.
Kærleiksþjónusta
í Vídalínskirkju
NÆSTI sunnudagur hefur verið
valinn dagur kærleiksþjónustunnar
í Þjóðkirkjunni. Í tilefni af því verð-
ur messa í Vídalínskirkju kl. 11, þar
sem prestar safnaðarins Jóna
Hrönn Bolladóttir, og Friðrik J.
Hjartar þjóna fyrir altari ásamt
Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna.
Jafnframt verður Ármann H. Gunn-
arsson, nýráðinn æskulýðsfulltrúi,
boðinn velkominn til starfa. Þegar
kemur að hinni hefðbundnu predik-
un munu sr.Friðrik J. Hjartar og
Nanna Guðrún Zoëga ásamt Jó-
hönnu Ólafsdóttur, sem bráðlega
verður vígð sem skóladjákni, verða
með kynningu á kærleiksþjónustu
safnaðarins og jafnframt munu þau
kynna ýmsar nýjungar sem fara af
stað á þessu hausti í safnaðarstarf-
inu. Þegar kemur að kynningunum
munu Ármann H. Gunnarsson
æskulýðsfulltrúi og sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir fara með börnin yfir
safnaðarheimilið þar sem þau fá
fræðslu og verkefni í sunnudaga-
skólanum. Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir lofgjörðina ásamt
kór Vídalínskirkju. Strax að lokinni
messu verður súpa í umsjá Lions-
klúbbs Garðabæjar. Allir velkomn-
ir. Sjá www.gardasokn.is
Samverur í
Kópavogskirkju
FYRSTA samvera haustsins verður
í safnaðarheimilinu Borgum þriðju-
daginn 12. september kl. 14:30. Í
þeim er lögð áhersla á góðar og
nærandi samverur þar sem almenn-
ur söngur skipar verðugan sess.
Það er hinn kunni söngvari og kór-
stjóri Sigrún Þorgeirsdóttir sem
leiðir sönginn en undirleik annast
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Mál
dagsins er á dagskrá og samver-
unum lýkur á ritningarlestri og
bæn. Allir eru velkomnir.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kvöldmessa og
trúfræðsla í
Laugarneskirkju
NÚ hefjast þær að nýju, kvöldmess-
urnar í Laugarneskirkju og hefjast
annan sunnudag í hverjum mánuði
kl. 20, sem er háftíma fyrr en áður
var. Þessar messur hafa fyrir löngu
öðlast sitt sjálfstæða líf. Kór Laug-
arneskirkju leiðir gospelsönginn
við undirleik djasskvartetts Gunn-
ars Gunnarssonar. Hann skipa, auk
Gunnars, Matthías M.D. Hemstock
á trommur, Tómas. R. Einarsson á
bassa, Sigurður Flosason á saxófón.
Að messu lokinni er molasopi og
kertaljós í safnaðarheimilinu.
Við messuna annað kvöld mun sr.
Bjarni Karlsson prédika og þjóna
við altarið ásamt sr. Hildi Eir Bolla-
dóttur og Sigurbirni Þorkelssyni
meðhjálpara.
Loks er þess að geta að kvöld-
söngur er öll þriðjudagskvöld kl. 20
í Laugarneskirkju. Kl. 20:30 ganga
12 spora hópar til sinna verka í
safnaðarheimilnu en sr. Bjarni býð-
ur upp á trúfræðslutíma í gamla
salnum. Yfirskrift hans næstu 7
þriðjudaga verður þessi: „Hvers
vegna lækkar trúin kvíða?“
Barnastarfið og
söngstarfið að
hefjast í Áskirkju
SUNNUDAGSSKÓLINN er á
sunnudagsmorgnum kl. 11 í umsjá
sóknarprests, Elíasar Bjarnasonar
og Hildar Bjarkar Gunnarsdóttur
og almennar guðsþjónustur kl. 14.
Kirkjugestum boðið upp á hress-
ingu á eftir.
Foreldramorgnar á fimmtudög-
um kl. 10-12 í umsjá Jóhönnu Óskar
Valsdóttur og Tinnu Sigurðar-
dóttur. Þær eru með áhugaverða
dagskrá á haustönninni.
Opið hús á fimmtudögum kl. 14 –
16 í efri sal í september: Samsöngur
sem Kári Þormar organisti leiðir af
stakri snilld. Boðið upp á kaffi og
meðlæti eftir sönginn
Barnastarfið. Á fimmtudögum er
8-9 ára klúbburinn kl. 17 og TTT-
starfið fyrir 10-12 ára verður kl. 18.
Laufey Fríða Guðmundsdóttir og
Guðrún Halla Daníelsdóttir sjá um
þessa tvo þætti og bjóða upp á
skemmtilega dagsskrá.
Innritun fermingarbarna fer
fram í kirkjunni 13. og 14. septem-
ber kl. 17.
Hádegisbænin er á þriðjudögum
kl. 12 í umsjá sóknarprests, boðið
upp á súpu á eftir. Brids/whist milli
14-16 með kaffihléi. Hreyfing og
bæn hefst aftur miðvikudaginn
21.sept. kl. 11-12.
Safnaðarfélagið heldur upp á 30
ára afmæli sunnudaginn 1. október
eftir messu. Væntanlegar uppá-
komur: félagsvist og bingó og
kökubazar o.fl., allt nánar auglýst
síðar.
Vonandi geta sóknarbörn og vin-
ir fundið eitthvað við sitt hæfi í
vetrardagskrá Áskirkju. Kirkjan er
opin þriðjudaga – föstudaga frá 10-
18.30. Alltaf heitt á könnunni. Allir
velkomnir.
Alfanámskeið í
Óháða söfnuðinum
Á ÞRIÐJUDAGINN kemur 12.
september kl. 19 verður kynningar-
kvöld á Alfanámskeiði I í Óháða
söfnuðinum. Á þessu námskeiði
verður farið í grundvallaratriði
kristindómsins. Eins konar fullorð-
insfræðsla um þau fræði. Hefst
hvert kvöld, sem verða 9 næstu
þriðjudagskvöld, á viðamiklum við-
urgerningi. Er hverju kvöldi lokið
kl. 22 og eru allir velkomnir.
Vestrarstarf Íslensku
kristskirkjunnar
VETRARSTARF Íslensku krists-
kirkjunnar, Fossaleyni 14, hefst á
sunnudaginn með fjölskylduguðs-
þjónustu kl. 11. Þar verður nýtt
barnastarf kynnt og tvö börn skírð.
Fjölbreytt samkoma verður kl.20
í umsjá unga fólksins. Lögð verður
áhersla á gott barnastarf í vetur og
öll börn í hverfinu verkomin að
taka þátt í því.
Hið sívinsæla Alfanámskeið hefst
með kynningarkvöldi 12. sept.
kl.20. Einnig verður haldið nám-
Morgunblaðið/Ómar
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
ÁSKIRKJA: Barnastarfið hefst með
sunnudagaskóla kl. 11 í umsjá sóknar-
prests og leiðtoganna Hildar Bjarkar
Gunnarsdóttur og Elíasar Bjarnasonar. Ný
kirkjubók afhent. Verið með frá byrjun.
Messa kl. 14. Kór Áskirkju syngur, organ-
isti Kári Þormar. Sr. Sigurður Jónsson.
HRAFNISTA í Reykjavík: Guðsþjónusta kl.
10.30 í samkomusalnum Helgafelli.
Organisti Kári Þormar, kór Hrafnistu
ásamt félögum úr kirkjukór Áskirkju leiða
söng. Ritningarlestra lesa þau Edda Jó-
hannesdóttir og Leopold Jón Jóhann-
esson. Prestur sr. Svanhildur Blöndal.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fjölskyldumessa kl.
11.00. Upphaf vetrarstarfsins, þar sem
börnin, foreldrar, afar og ömmur eru vel-
komin. Félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða
sönginn og allir taka undir. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Kynnt verður form á
barnamessum sem verða kl. 11.00 og
almennum guðsþjónustum sem verða kl.
14.00. Molasopi eftir messu. Sr. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan
á messu stendur.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Upphaf barnastarfsins í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur. Sr.
Ólafur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til
Gídeonfélagsins. Molasopi að lokinni
guðsþjónustu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Einsöngur Ari B.
Gústavsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
Sr. Sveinbjörn Bjarnason.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11.00. Sr. Birgir Ásgeirsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum.
Umsjón barnastarfs. Magnea Sverrisdótt-
ir. Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Kaffisopi eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Umsjón með barna-
guðsþjónustu Erla Guðrún Arnmundar-
dóttir og Þóra Marteinsdóttir. Organisti
Douglas A. Brotchie. Léttar veitingar eftir
messu. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 14.00 á Landspítala
Landakoti. Sr. Gunnar Rúnar Matthías-
son, organisti Birgir Ás Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta og barnastarf kl.
11. Upphaf fermingarstarfs og verður
stuttur fundur fyrir væntanleg ferming-
arbörn og foreldra þeirra eftir guðsþjón-
ustuna. Barnastarfið hefst í kirkjunni en
síðan fara börnin í safnaðarheimilið.
Kvartett úr Kammerkór Langholtskirkju
syngur. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og Sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Ragnheiður Sverris-
dóttir djákni prédikar í tilefni af degi kær-
leiksþjónustunnar. Í messunni syngja
hjónin Erna Blöndal og Örn Arnarson lög af
nýjum geisladiski. Djáknar safnaðarins
Guðrún K. Þórsdóttir, Jón Jóhannsson og
Kristín Axelsdóttir þjóna ásamt sr. Bjarna
Karlssyni, Aðalbjörgu Helgadóttur með-
hjálpara, kór Laugarneskirkju og Gunnari
Gunnarssyni organista. Sunnudagaskól-
inn er í höndum sr. Hildar Eirar Bolladótt-
ur, Stellu Rúnar Steinþórsdóttur og Þor-
valdar Þorvaldssonar. Svo býður Gunn-
hildur Einarsdóttir kirkjuvörður upp á
molasopa og djús eftir messu. Guðsþjón-
usta kl. 13.00 í sal Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu Hátúni 12. Sóknarprestur,
djákni og organisti þjóna ásamt hópi sjálf-
boðaliða. Kvöldmessa kl. 20.00. Sr.
Bjarni Karlsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Hildi Eir Bolladóttur og Sigur-
birni Þorkelssyni meðhjálpara. Kór Laug-
arneskirkju leiðir gospelsönginn við
undirleik djasskvartetts Gunnars Gunn-
arssonar. Messukaffi.
NESKIRKJA: Messa og barnastaf kl.
11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Sr. Kjartan Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni
en fara síðan í safnaðarheimilið. Sögur,
brúður og söngur.Öll börn fá kirkjubókina
og límmiða. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir
sálmasöng og messusvör. Organisti Pavel
Manasek. Sr. María Ágústsdóttir héraðs-
prestur predikar og þjónar fyrir altari.
Sunnudagaskólinn á sama tíma.Verið
hjartanlega velkomin. Við minnum á
æskulýðsfélagið kl. 20.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14.00. Barnastarf á sama tíma. Sýnt
verður barnaleikritið „Sigga og skessan í
fjallinu“. Maul eftir messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl 14. Barn borið til skírnar. Al-
mennan safnaðarsöng leiða Carl Möller
og Anna Sigga ásamt Fríkirkjukórnum.
Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina
og prédikar. Allir velkomnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Ungir og aldnir gleðjast sam-
an í kirkjunni með sögum, söng og
skemmtilegheitum. Kaffi, djús og kex að
stundinni lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson. Organisti.
Magnús Ragnarsson. Fermingarbörn og
foreldrar hvött til að mæta. Fundur með
foreldrum fermingarbarna verður strax að
lokinni messu. Barnaguðsþjónusta kl. 11
í umsjá Elínar, Karenar, Lindu og Jóhanns.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús B. Björnsson. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B
hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama
tíma. Súpa og brauð í safnaðarsal að
messu lokinni (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
og altarisganga kl. 11 í Fella- og Hóla-
kirkju. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur. Kór Fella- og Hólakirkju
leiðir safnaðarsöng undir stjórn Lenku Ma-
teovu. Sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjá Sigríðar R. Tryggvadóttur. Brúðu-
leikrit, Biblíusaga og mikill söngur. Börnin
fá límmiða í brosbókina sína. Kyrrðar-
stundir hefjast aftur þriðjudaginn 12.
sept. kl. 12. Orgelleikur, íhugun og bæn.
Súpa og brauð eftir stundina. Opið hús
eldri borgara hefst einnig á þriðjudaginn
12. sept. kl. 13–16.
GRAFARHOLTSSÓKN: „Verndum bernsk-
una!“ Fjölskyldumessa í Ingunnarskóla kl.
11. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir,
organisti Hrönn Helgadóttir, barnakór
Grafarholtssóknar syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra Bjarna Þór
Bjarnasyni. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti. Hörður Bragason. Fermingar-
börnum úr Borga- Engja- Rima- Korpu- og
Víkurskóla og foreldrum þeirra er boðið
sérstaklega til guðsþjónustu. Að lokinni
guðsþjónustunni er fundur, þar sem rætt
verður um fermingarfræðsluna, ferming-
una sjálfa og því sem henni tengist. Eftir
fundinn verður hádegisverðarhlaðborð á
boðstólum, en beðið er um að hver fjöl-
skylda komi með eitthvað matarkyns á
það hlaðborð. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
Grafarvogskirkju. Prestur séra Lena Rós
Matthíasdóttir. Umsjón. Hjörtur og Rúna.
Undirleikari. Stefán Birkisson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Borgarholtsskóla. Prest-
ur séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón.
Gunnar, Díana og Dagný. Undirleikari.
Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 og Opið
hús á fimmtudag kl. 12 (sjá einnig á
www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Karl V. Matthíasson predikar og þjónar
fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng undir stjórn Sigrúnar
Steingrímsdóttur organista. Barnastarf í
kirkjunni kl. 12.30. Umsjón. Sigríður, Þor-
kell Helgi og Örn Ýmir. Bæna- og kyrrðar-
stund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Vetrarstarfið
hefst að nýju með guðsþjónustu og
sunnudagaskóla í Lindaskóla kl. 11.
Þessi fyrsta guðsþjónusta vetrarins er
jafnframt síðasta guðsþjónustan sem
haldin verður í Lindaskóla, því framvegis
verður helgihaldið í Salaskóla. Sr. Bryndís
Malla Elídóttir og Keith Reed tónlistar-
stjóri verða sérstaklega boðin velkomin til
þjónustu við söfnuðinn. Kór Lindakirkju
leiðir safnaðarsöng undir stjórn Keith
Reed. Prestar safnaðarins, sr. Guðmund-
ur Karl Brynjarsson og sr. Bryndís Malla
Elídóttir leiða helgihaldið. Sjá nánar á
www.lindakirkja.is
SELJAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Söngur, sögur, ný bók og myndir! Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðs-
son prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng.
Jón Bjarnason er organisti. Sjá nánar um
kirkjustarf á www.seljakirkja.is.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Vetrarstarfið
hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.
Barnastarfið kynnt, tvö börn verða skírð
og Friðrik Schram predikar. Kl. 20 er fjöl-
breytt samkoma í umsjá unga fólksins.
Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“
er sýndur á Ómega kl. 14.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp.
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 17. Heimsókn frá Fær-
eyjum. Fjórir karlar frá Eysturey syngja og
vitna. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: „Moldavía í brenni-
depli“. Umsjón Anne Marie Reinholdtsen.
Allir velkomnir. Mánudag. Heimilasam-
band fyrir konur kl. 15. Þriðjudag. Alfa-
kynningarkvöld kl. 19.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a. Sam-
koma kl. 14. Margrét S. Björnsdóttir talar
Orð Guðs. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Allir eru hjartan-
lega velkomnir. Athugið breyttan sam-
komutíma. Nú eru samkomurnar á sunnu-
dögum kl. 14.00.
FÍLADELFÍA: Laugardagur. Jesú Konur kl.
10–12. Uppbyggileg kennsla og hlýlegt
samfélag. Konur á öllum aldri velkomnar.
Sunnudagur. English speaking service at
12.30pm. Speaker. Vesa Juhani Matto.
The entrance is from the car park in the
rear of the building. Everyone is welcome.
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðum.
Helgi Guðnason. Gospelkór Fíladelfía leið-
ir lofgjörð. Fyrirbænir í lok samkomu. Allir
eru velkomnir. Barnakirkjan 1–12 ára. Frá
og með 10. sept. fara börnin beint niður,
fyrir samkomu. Tekið er við börnum frá kl.
16.15 undir aðalinnganginum, rampinum.
Hægt er að hlusta á beina útsendingu á
Lindinni eða horfa á www.gospel.is Á
Omega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu kl.
20. www.gospel.is
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3. Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ. Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis
á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: Messa kl. 18.00. Alla laugar-
daga: Barnamessa kl. 14.00 að trú-
fræðlsu lokinni. Reykjavík, Maríukirkja
við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl.
18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Rif-
tún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnar-
fjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa
kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl.
18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga:
Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl.
8.00. Keflavík, Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnu-
daga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska
kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnu-
daga: Messa kl. 11.00.
BRAUTARHOLTSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Gunnar Kristjánsson, sóknar-
prestur.
REYNIVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Félagar í Gídeonfélaginu
kynna starf sitt. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Guðspjall dagsins.
Miskunnsami
Samverjinn.
(Lúk. 10.)
MESSUR Á MORGUN