Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 55
menning Selvaag Gruppen is announcing the third round of our
international sculpture competition based on scenes
from Henrik Ibsen’s masterpiece, “Peer Gynt”. Sculptors
are invited to submit their figurative contributions.
Deadline for submission is 15th January 2007. For further
information please visit our website:
Selvaag Gruppen has tradition of using sculptures to
please and inspire the public. We are now creating a
national memorial in Oslo for the world-renowned
Norwegian writer Henrik Ibsen.
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Mirale er eini
viðurkenndi sölu-
aðili Alessi og
Cassina á Íslandi
afsláttur
15% afsláttur
af sérpöntuðum
húsgögnum
Opið í dag frá
kl. 10–18
10–70%
ÚTSALA
NÝ grein hefur bæst við kvik-
myndaflóruna, við höfum eignast
fyrstu, íslensku kung fu-myndina.
Ekki skal ég segja að Jón Grétar
haldi vöku fyrir Ang Lee að svo
komnu, en mér kæmi ekki á óvart
að þessi ungi maður, sem er að
halda utan í kvikmyndanám, eigi
eftir að láta að sér kveða í framtíð-
inni. Þ.e.a.s., ef hann hefur jafn
gaman af að gera aðrar bíómyndir
og Öskrandi api, ballett í leynum.
Frumraun Jóns Grétars, sem er
allt í öllu; leikstjóri, handritshöf-
undur, tökumaður, tónskáld, ásamt
hljómsveitinni 6íDjazz, er langtíma
verkefni sem hann hefur verið að
vinna að undanfarin sex ár.
Upphaflega var hugmyndin að gera
stuttmynd, en hún hefur heldur
betur safnað á sig holdum, uns hún
endaði í rösklega 100 mínútum.
Öskrandi api …, er fullkomlega
heimatilbúin, kostaði lítið sem ekki
neitt, tekin á digital tökuvél, leik-
hópurinn og aðrir aðstandendur, úr
vinahópi leikstjórans.
Með þessar forsendur beið mað-
ur þess að myndin hæfist og í ljósi
þeirra var ég hrifinn af eldmóðinum
sem geislar af myndinni, ánægjunni
og bjartsýninni í hópnum og eink-
um hnyttnum húmor sem er burð-
arás myndarinnar. Öskrandi api …,
er eins og nafnið bendir til, skop-
stæling á austurlenskum bardaga-
myndum. Ekki þeim bestu, á borð
við þá sem myndin sækir í nafngift-
ina, heldur verkum á borð við The
Big Boss, og ámóta hallærislegum
smámyndum sem ruddu brautina.
Þær einkenndust af einfaldleik á
flestum sviðum öðrum en bardaga-
atriðunum, ekki síst hvað snerti
samtöl og sögufléttu. Jón Grétar
heldur klippt og skorið barna-
bókastílnum, gjarnan kenndum við
Litlu gulu hænuna, og tekst það
býsna vel með góðri tímasetningu
vel flestra leikaranna. Það er ekk-
ert að gerast, en alltaf eitthvað í
gangi.
Leikararnir eru með á nótunum
og fíflast eins og þeim sé borgað
fyrir það (sem ég tel frekar ósenni-
legt), og áttu ríkan þátt í að gera
þessa kvöldstund að óvæntri
skemmtun, hlutverkin eru að vísu
ekki tiltakanlega strembin við-
ureignar. Öskrandi api …, gengur í
stuttu máli út á átök tveggja bar-
dagahópa, annar er að þróa
„ballett-karatestíl“, þar sem „átt-
faldi snúningurinn“, er toppurinn
og er mikið sjónarspil. Hinn,
Öskrandi aparnir, er á hefðbundn-
ari nótunum og hatast andstæðing-
arnir mjög og manndráp tíð. Ætt-
fræði aðalpersónanna er það flókin
að hún verður látin liggja á milli
hluta, en er uppspretta fyndnustu
línanna.
Tæknilega er Öskrandi api …,
rétt eins og efni standa til, hrá,
stundum muskuleg sem hæfir vel
e.t.v. fyrstu, íslensku költmyndinni,
og ekki annað að sjá en Jóni Grétari
og fólkinu hans hafi tekist mæta vel
það sem hann ætlaði sér. Sem fyrr
segir er húmorinn aðall Öskrandi
apa …, en um leið hennar Akkiles-
arhæll, því öllum finnst svo gaman
að þeir vilja helst ekki hætta …
Sagan af
áttfalda
snún-
ingnum
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjóri, handrit, kvikmyndataka: Jón
Grétar Gissurarson. Tónlist: Jón Grétar
Gissurarson og hljómsveitin 6íDjazz.
Aðalleikendur: Hrafn Stefánsson, Einar
Carl Axelsson, Örn Sigurbergsson, Hjör-
dís Lilja Örnólfsdóttir, Anna Rúna Krist-
insdóttir, María Lovísa Ásmundardóttir.
107 mínútur. Ísland. 2006.
Öskrandi api, ballett í leynum Sæbjörn Valdimarsson
Gagnrýni Húmorinn er að mati
gagnrýnanda aðall Öskrandi apa …
en um leið Akkilesarhæll hennar.