Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Hvernig var
umhverfið
við landnám?
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞESSI STÚLKA BROSTI TIL MÍN VAR HÚN AÐ REYNA VIÐ MIG?EÐA BROSTI HÚN BARA TIL MÍN
AF VORKUNN
EÐA VAR HENNI BARA SKEMMT
VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER MEÐ OF STÓRT
ENNI
HANN ER
SVO
ÓÖRUGGUR
ÞÚ ERT
ÁNÆGÐUR
MEÐ SYSTUR
ÞÍNA...
...EN ERTU TILBÚINN AÐ
DEILA ATHYGLI FORELDRA
ÞINNA, MEÐ HENNI?
ÞÚ HELDUR EFLAUST AÐ
ÞIÐ FÁIÐ BÆÐI 50% ATHYGLI
EN ÞAÐ ER RANGT, ÞAÐ
VERÐUR SVON 51% OG 49%
EÐA 60% OG 40%
ÞÚ VISSIR EFLAUST
EKKI AÐ FJÖLSKYLDULÍF
VÆRI SVONA
STÆRÐFRÆÐILEGT
ÉG ÞARF AÐ FARA Í
SKÓLANN Á MORGUN! HVAÐ
EIGA KRAKKARNIR EFTIR AÐ
SEGJA?
ÉG ER
BÚINN AÐ
VERA
GANGA
UGLUR Í
SKÓLA?
ÞETTA ER HAMINGJU
DAGUR! HINN EINI
SANNI
HAMINGJUDAGUR!
HVERNIG KYNNTUST ÞÚ
OG HRÓLFUR?
HRÓLFUR STORMAÐI INN Í
KASTALA FÖÐUR MÍNS...
...OG
RÆNDI
MÉR
JÁ, OG ÞAÐ HEFUR
VERIÐ STORMASAMT
HÉRNA SÍÐAN
HVERNIG VAR AÐ
GISTA Á
DÝRASPÍTALANUM,
MARKÚS?
ALLT Í
LAGI,
SVO SEM
MÉR TÓKST
SAMT EKKI AÐ
SOFA MIKIÐ
AF-
HVERJU
EKKI?
ÞAÐ VAR
ALLTAF VERIÐ
AÐ KLÍPA Í
NEFIÐ Á MÉR
VELKOMIN TIL
FÖSTUHÁTÍÐARINNAR
OKKAR. LEN MUN SJÁ UM
HUGVEKJU OG BÆNAHALD
LEYFÐU MÉR AÐ
GEFA ÞÉR RÁÐ UM
AÐ FARA HRATT YFIR
SAMA OG ÞEGIÐ
MARKÚS, ÉG ER BÚINN
AÐ ÁTTA MIG Á AÐ ÞESSI
KAFLI SKIPTIR MÁLI
HVAÐ ER ÞETTA?
ÞETTA ER
ÍTAREFNI. TAKIÐ
EINTAK OG RÉTTIÐ
SVO NÆSTA
MIKIÐ ER
SKRÝTIÐ AÐ
KYSSA ÞIG Í GEG-
NUM ÞESSA
GRÍMU
ÉG SKIL SAMT EKKI
AF HVERJU ÞÚ ERT AÐ
ÞESSU
KÓNGULÓ-
ARMAÐUR
?
GÆTIRÐU KYSST HANA
AFTUR OG SNÚIÐ ÞÉR AÐEINS
LENGRA HINGAÐ
NÚ SKIL ÉG AF
HVERJU
Rauði kross Íslands stendurí dag fyrir fjársöfnun álandsvísu undir kjörorð-inu Göngum til góðs.
Ómar H. Kristmundsson er for-
maður Rauða kross Íslands: „Söfn-
unin í dag er sú fjórða sem við höld-
um undir þessu kjörorði. Síðast
söfnuðum við til styrktar stríðs-
hrjáðum börnum í Palestínu og
Sierra Leone en fjármunum verður
að þessu sinni varið til að hjálpa
börnum í Mósambík, Malaví og Suð-
ur-Afríku sem eiga alnæmissjúka
foreldra eða hafa misst foreldra sína
vegna alnæmis,“ segir Ómar.
Stuðningur landsmanna mun gera
Rauða krossinum kleift að hjálpa
börnunum og aðstandendum þeirra á
ýmsa vegu: „Fyrst má nefna heima-
hlynningu alnæmissjúkra foreldra,
og að börnunum verður tryggt fæði
og klæði. Með peningunum viljum
við líka vinna að því að koma upp
dagheimilum eða athvörfum fyrir
börnin og bjóða upp á fræðslu um al-
næmi til að stemma stigu við van-
þekkingu og fordómum. Einnig fá
foreldrarnir aðstoð við að ganga frá
sínum málum áður en þeir falla frá.“
Rauði kross Íslands heldur fjár-
söfnun af þessu tagi annað hvert ár
og treystir á fjölda sjálfboðaliða til að
ganga í hvert hús á landinu: „Við
þurfum á rúmlega 2.000 sjálf-
boðaliðum að halda í dag, en söfnunin
stendur yfir frá 10 til 18. Undanfarna
daga og vikur höfum við hvatt fólk til
að skrá sig á heimasíðu Rauða kross-
ins, www.redcross.is, eða hringja inn
í aðalsíma RKÍ 570 4000. Þeir sem
ekki hafa skráð sig en vilja leggja
hönd á plóg mega gjarna mæta í þá
söfnunarstöð sem næst þeim er og
bjóða fram krafta sína. Alls eru 67
söfnunarstöðvar víðsvegar um land
og er frekari upplýsingar að finna um
þær í Hjálpinni, upplýsingariti sem
dreift var á öll heimili á fimmtudag,
sem og á heimasíðu Rauða krossins.“
Ómar segir hafa gengið vel að afla
sjálfboðaliða í síðustu skipti sem
gengið hefur verið til góðs: „Það hef-
ur helst skort sjálfboðaliða til að
ganga um Reykjavik og tókst okkur
því miður ekki að ganga um öll hverfi
síðast.“
Safnanir Rauða krossins hafa ver-
ið mjög árangursríkar og má sem
dæmi nefna að síðast söfnuðust um
35 milljónir króna: „Fyrir utan það fé
sem safnast skiptir ekki síður máli að
fólk er vakið til vitundar um hlut-
skipti barnanna sem safnað er fyrir.
Heilu fjölskyldurnar ganga til góðs,
vinahópar og vinnustaðir, og sýna
samhug í verki,“ segir Ómar.
Safnarar eru merktir með barm-
merki og taka við fjárframlögum í
rauðan bauk sem merktur er átakinu
en aðeins verður gengið í dag: „Ef
fólk er ekki heima eða ekki með
reiðufé við höndina er hægt að taka
við greiðslu með kreditkorti. Einnig
má styrkja söfnunina með því að
hringja í síma 907 2020 og færast þá
sjálfkrafa 1.200 kr af næsta sím-
reikningi og renna til söfnunar-
innar.“
Hjálparstarf | Gengið til góðs í dag
Safnað fyrir
góðu málefni
Ómar H.
Kristmundsson
fæddist í
Reykjavík 1958.
Hann lauk B.A.
prófi í fé-
lagsfræði og
uppeldisfræði
frá HÍ 1983,
MPA prófi og
doktorsprófi í opinberri stjórn-
sýslu 2002 frá Connecticut-
háskóla í Bandaríkjunum. Ómar
starfaði sem sérfræðingur hjá
fjármálaráðuneytinu, og hjá
Barnaverndarstofu, og hefur ver-
ið kennari við stjórnmála-
fræðiskor HÍ síðan 2003. Hann
var kjörinn formaður RKÍ vorið
2006. Ómar er kvæntur Stein-
gerði Sigurbjörnsdóttur barna-
lækni og eiga þau þrjú börn.
Handtösku bandarísku kvik-myndastjörnunnar Lindsay
Lohan var stolið á Heathrow flug-
velli í Lundúnum í vikunni. Banda-
rískir fjölmiðlar fullyrtu að skart-
gripir, að verðmæti yfir 1 milljón
dala, jafnvirði yfir 70 milljóna
króna, hafi verið í töskunni.
Talsmaður lögreglunnar í Lund-
únum sagði að þegar Lohan var að
fara út úr Terminal One bygging-
unni á flug-
vellinum rétt
fyrir klukkan
18 í gær að
íslenskum
tíma hefði
hún tekið eft-
ir því að gul
Hermes
handtaska,
sem hún hafði
verið með,
var horfin.
Lögreglan staðfesti að umtals-
verður fjöldi skartgripa hefði verið
í töskunni.
Fólk folk@mbl.is