Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 29
matur
Haustferðir
fyrir eldri borgara 5. eða 12. okt.
Costa del Sol – nokkur sæti laus
Frá
39.990 kr.
Netverð á mann, m.v. 2
í stúdíó á Aquamarina,
5. eða 12. okt. í viku
Innifalið í verði: Flug, gisting,
skattar og íslensk fararstjórn.
Aukavika í boði.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Hafnarfjörður
sími 510 9500 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Hotel Mediterraneo – fjögurra stjörnu hótel með hálfu fæði.
Frá
84.990 kr.
Netverð á mann í tvíbýli með
hálfu fæði, 3 vikur á Hotel
Mediterraneo, 5. eða 12. okt.
Innifalið í verði: Flug, skattar,
gisting með hálfu fæði og íslensk
fararstjórn.
Aukavika í boði.
Aquamarina – góð staðsetning og góðar íbúðir.
Tryggðu þér sæti í
glæsilega haustferð
Benidorm – viðbótargisting!
ÞEGAR haustar er oft ofgnótt af
kryddum, berjum og ilmandi jurt-
um og þá er um að gera að nýta
tækifærið og fanga þetta dásam-
lega bragð til að gæða sér á í vetur.
Það má til dæmis gera með því að
stinga kryddjurtum í vel hreinsaða
flösku og hella yfir olíu. Eða setja
ber út í edik og fá þannig til dæmis
bláberja-, hindberja- eða rifs-
berjaedik á salatið eða út í sósu.
Hér eru uppskriftir næstum
óþarfar. Það eina sem getur gerst
er að olían verði of bragðlítil og þá
má bæta við kryddi, eða of bragð-
mikil og þá má bæta olíu út í. Velj-
ið bara krydd sem fellur að bragð-
laukum heimilismanna. Það allra
einfaldasta er samt að setja hvít-
lauk út í olíu og láta standa í
nokkra daga, þá er komin fyrirtaks
hvítlauksolía. Gaman er þá að
steikja til dæmis fisk og grænmeti
upp úr kryddolíu.
Flöskur með krydduðu ediki og
olíu geta líka verið svo fallegar að
þær verða fyrirtaks skraut í eld-
húsið eða frumleg tækifærisgjöf.
Morgunblaðið/Arnaldur
Kryddaðar olíur
og berjaedik
Eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur
Af börnum og
kennitölum
Erlingur Sigtryggsson veltirfyrir sér fréttum af því að
börnum án kennitölu sé meinað um
skólagöngu fyrir vestan:
Við Ísafjörð er hrímkalt haust.
Harðna veður, myrkvast nætur.
Kennitölu- liggur laust
lítið barn á þúfu og grætur.
Davíð Hjálmar Haraldsson telur
að málin gætu þróast á annan hátt:
Þroskast berið, þrútnar ax,
þrátt við Djúpið refir góla.
Kennitölum kasta strax krakkar sem ei
nenna í skóla.
Valdimar Gunnarsson kennari
við MA leikur sér að orðum:
Sú túlkun er ný, sem nú er beitt
naumast að kerfið er mikils virði
Án kenni-tölu þú kemst ekki neitt
til kenn-aranna á Ísafirði.
Loks yrkir Björn Ingólfsson,
fyrrverandi skólastjóri á Grenivík:
Ekki veit ég baun um barnamennt,
búinn þó við hana lengi að glíma.
Óteljandi krökkum hef ég kennt
en kennitölum aldrei nokkurn tíma.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORN
Fréttir
í tölvupósti