Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 18
18 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
( )
*+,
-
-
./*0
123
-
-
424 563 *78
-
-
563 97'
(
-
-
:403 1; <
-
-
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu 12,3 milljörðum
króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 5,0 milljarða. Úrvals-
vísitala aðallista hækkaði um 1,0% í
gær. Mest hækkun varð á hlutabréf-
um FL Group, en þau hækkuðu um
11,4% í viðskiptum upp á 2,6 millj-
arða. Bakkavör hækkaði næst
mest, eða um 2,0% en mest lækkun
varð hins vegar á bréfum Avion Gro-
up, eða 0,9%.
Hækkun í Kauphöll
● SÖLUHAGNAÐUR Kaupþings
banka vegna sölunnar á 2,8% hlut
bankans í Exista til fagfjárfesta
nam um 3,4
milljörðum króna
en bréfin voru
seld á genginu
21,5
Kaupþing
banki seldi níu
lífeyrissjóðum
6,1% eignarhlut í
Exista í byrjun
ágúst og inn-
leysti af þeirri
sölu 5,7 millj-
arða í geng-
ishagnað.
Kaupþing banki mun selja 1,2%
til viðbótar fyrir skráningu Exista
15. september, helminginn til
starfsmanna og hinn helminginn til
almennings og verður söluhagnaður
af þeim hluta tæpir 1,5 milljarðar
til viðbótar. Samanlagður söluhagn-
aður Kaupþings vegna 10,1% hlutar
í Exista á þriðja ársfjórðungi verður
því nálægt 10,6 milljörðum króna.
Kaupþing fær á ellefta
milljarð í söluhagnað
SAMANLÖGÐ íbúðalán bankanna
og Íbúðalánasjóðs drógust saman
um 29% á milli júlí og ágúst. Þau
námu 8,7 milljörðum króna í júlí en
6,2 milljörðum í ágúst.
Íbúðalán bankanna námu 3,6
milljörðum króna í júlí en 3,0 millj-
örðum í ágúst og drógust því saman
um 17% milli mánaða. Útlán Íbúða-
lánasjóðs drógust enn meira saman,
eða um 37%, en þau voru 5,1 millj-
arður í júlí en 3,2 milljarðar í ágúst.
Þess ber að geta að útlán Íbúða-
lánasjóðs í júlí voru 18% meiri en í
mánuðinum á undan. Útlán sjóðsins
í júlímánuði voru meiri en saman-
lögð íbúðalán bankanna í fyrsta
sinn frá því bankarnir hófu sam-
keppni við Íbúðalánasjóð í ágúst ár-
ið 2004.
Upplýsingar um útlán Íbúðalána-
sjóðs fyrir ágústmánuð koma fram í
Mánaðarskýrslu sjóðsins sem birt
var í gær, en útlán bankanna koma
fram í tölum frá Seðlabankanum.
Vísbending um samdrátt
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbanka Íslands kemur fram að
alls hafi verið tekin 317 ný íbúðalán
hjá bönkunum í ágúst, samanborið
við 1.577 lán í ágúst í fyrra og yfir
3.000 í einum mánuði þegar mest
var haustið 2004. Þá segir að ágúst
sé fimmti mánuðurinn í röð sem
fjöldi veittra íbúðalána hjá bönk-
unum nái nýju lágmarki frá því
þessi tegund útlána kom fram fyrir
tveimur árum. Meðalfjárhæð íbúða-
lána sé nú um 9,5 milljónir króna en
hafi verið yfir 11 milljónir á tíma-
bilinu frá september til desember
2004. Segir greiningardeild Lands-
bankans að fækkun íbúðalána og
lækkandi fjárhæð sé sterk vísbend-
ing um samdrátt eftirspurnar á
fasteignamarkaði.
Í hálf fimm fréttum greiningar-
deildar Kaupþings banka segir að
það sem af eru þessu ári hafi heild-
ar íbúðalán bankanna og Íbúða-
lánasjóðs dregist saman um tæp
55% miðað við sama tímabil í fyrra.
Kemst deildin að þeirri niðurstöðu
að hér sé því á ferðinni enn ein vís-
bending um að fasteignamarkaður-
inn sé að hægja á sér.
Íbúðalán dragast
umtalsvert saman
Samdráttur í útlánum bæði hjá bönkum og Íbúðalánasjóði
Morgunblaðið/ÞÖK
Samdráttur Greiningardeildir bankanna segja að samdráttur í íbúða-
lánum sé vísbending um að fasteignamarkaðurinn sé að hægja á sér.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
ÞÓTT EKKERT framhald yrði á út-
gáfu erlendra banka á skuldabréfum
í íslenskum krónum, svokölluðum
jöklabréfum, það sem eftir er ársins
myndu útgefin bréf vera um 43 millj-
örðum meiri en sem nemur jökla-
bréfum sem falla á gjalddaga á
árinu. Þetta kemur fram í Markaðs-
upplýsingum Lánasýslu ríkisins.
Búið er að gefa út jöklabréf fyrir
um 110 milljarða króna það sem af er
þessu ári en bréf fyrir um 67 millj-
arða koma til innlausnar á árinu.
Fyrsta innlausn jöklabréfa hefst um
miðjan september en alls koma til
greiðslu höfuðstóll og vextir fyrir um
50 milljarða króna í mánuðinum.
Frá marsbyrjun nemur útgáfa
jöklabréfa um 49 milljörðum og
segja sérfræðingar Lánasýslunnar
það gefa til kynna stöðugan áhuga
erlendra útgefenda og fjárfesta á
skuldabréfum í íslenskum krónum.
Heildarútgáfa jöklabréfa frá því
útgáfa þeirra hófst snemma hausts í
fyrra er 263 milljarðar. Stórtækastir
í útgáfunni eru KfW Bankengruppe
með 70,5 milljarða, Evrópski fjár-
festingabankinn, 50 milljarða, og
Rabobank í Hollandi, 39 milljarða.
Útgáfa jöklabréfa
umfram innlausn
Í VEGVÍSI greiningardeildar
Landsbankans er það sagt miður
að Tryggingamiðstöðin (TM) hafi
ekki tilkynnt um lækkun lánshæf-
ismats norska tryggingafyrirtæk-
isins NEMI Forsikring til Kaup-
hallar Íslands. Lækkunin geti haft
áhrif á virði samstæðunnar, að
mati greiningardeildar Lands-
bankans.
Matsfyrirtækið Standard &
Poor’s (S&P) lækkaði lánshæf-
ismat NEMI úr BBB í BBB-, auk
þess sem NEMI verður áfram á at-
hugunarlista S&P með neikvæðum
horfum. Því gæti lánshæfismatið
verið lækkað enn frekar. En lækki
það um einn flokk til viðbótar sé
félagið dottið niður í svokallaðan
„ruslflokk“ (junk rating). Ástæðan
fyrir lækkuninni er samkvæmt
Vegvísi Landsbankans sú, að TM
fjármagnaði kaupin með víkjandi
láni.
TM keypti um 90% hlut í NEMI
síðastliðinn apríl og fyrir liggur
að TM muni eignast félagið að
fullu. Greiningardeild Landsbank-
ans segir að lægra lánshæfismat
dragi úr möguleikum NEMI til
vaxtar, sérstaklega ef matið verði
lækkað enn frekar. Þá segir í
Vegvísinum að samkvæmt upplýs-
ingum frá TM hyggist félagið mót-
mæla ákvörðuninni og grípa til
þeirra ráðstafana sem tryggi
hærra mat.
S&P lækkar
lánshæfis-
mat NEMI
»Útlán Íbúðalánasjóðs námu4,3 milljörðum króna í júní,
5,1 milljarði í júlí og 3,2 millj-
örðum í ágúst.
»Af 3,2 milljarða króna útlán-um Íbúðalánasjóðs í ágúst
námu almenn lán 3,1 milljarði en
leiguíbúðalán 100 milljónum.
»Íbúðalán bankanna námu5,2 milljörðum króna í júní,
3,6 milljörðum í júlí og 3,0 millj-
örðum í ágúst.
Í HNOTSKURN
! "
2= >!"? 7
2
= 7
2! >!"? 7
2 >!"? 7
@ '! >!"? 7
1 A!B 7
.C >!"? 7
>! A 7
9 "?D A 7
C A 7
6 !
7
6 = . 7 7
,E. 2 = ,
!
"
*! ""!F@"! !# .&#!A 7
G"! 7
#
$ %
. >!"? 7
@ >! 7
:=
= >!"? 7
(H7
!& 7
/!I ' 7
J"' 7
&$' ( )
*#"!K *" "!
( * + :40L
*M
!
@!
I !#
I!!
!
F
F F
F F F
F F
F
F
F
F
F
-$
-$
F
-$
-$
F
-$
-$
-$
-$
-$
-$
-$
-$
F-$
F-$
F
F-$
F
F
F
F
F
! ?
/A M
9 "? *
F
F
F
F
F
F
F
J ? M DB !
2/ N 27"" ! .&'
?
F
F
F
F
F