Morgunblaðið - 09.09.2006, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ræður milli deiluaðila með milli-
göngu þriðja aðila, þ.e. Þýskalands.
Margir Ísraelar eru ósáttir við að
ÍSRAELAR afléttu í gær endanlega
átta vikna löngu hafnbanni sínu á
Líbanon en áður höfðu þeir leyft
flug til og frá landinu. „Herfloti
Sameinuðu þjóðanna undir forystu
Ítala hefur tekið við eftirliti á svæð-
inu í fullu samráði við ísraelska her-
inn og mun tryggja að ekki verði
flutt inn vopn handa Hizbollah,“
sagði Miri Eisin, talsmaður skrif-
stofu Ehuds Olmerts, forsætisráð-
herra Ísraels, í gær.
Ítalir munu leggja fram 2.450 her-
menn í alþjóðlega friðargæsluliðið
sem mun taka sér stöðu við landa-
mæri Ísraels og Líbanons en einnig
munu Frakkar og Spánverjar leggja
fram mikið lið. Amir Peretz, varn-
armálaráðherra Ísraels, tjáði í gær
Frank-Walter Steinmeyer, utanrík-
isráðherra Þýskalands, að hann von-
aði að Ísraelar yrðu búnir að draga
á brott allt innrásarlið sitt frá Líb-
anon innan tveggja vikna. Peretz
sagði ennfremur að Þjóðverjar gætu
lagt fram „mikilvægan skerf“ í til-
raunum sem gerðar eru til að fá Hiz-
bollah-menn til að láta lausa tvo ísr-
aelska hermenn sem þeir rændu á
sínum tíma. Ránið átti stóran þátt í
að Ísraelar ákváðu að gera innrás í
Líbanon til að reyna að knésetja
Hizbollah er hafði skotið fjölda flug-
skeyta á nyrstu byggðir Ísraels.
Steinmeyer svaraði að hann væri
ekki sannfærður um að rétti tíminn
væri runninn upp til að hefja við-
aðgerðunum í Líbanon skyldi ljúka
án þess að hermennirnir væru látnir
lausir.
AP
Standið rétt Liðsmenn frönsku Útlendingahersveitarinnar við hátíðlega
athöfn í gær þegar vígð var ný brú sem þeir reistu í Suður-Líbanon.
Hafnbanni Ísraela á
Líbanon endanlega aflétt
Peretz vill að Þjóðverjar hafi milli-
göngu um lausn ísraelskra hermanna
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
New York. AP. | Nokkrir fyrrverandi
embættismenn í valdatíð Bills Clint-
ons hafa gagnrýnt ABC-sjónvarps-
stöðina fyrir að ætla að sýna leikna
heimildarmynd um aðdraganda at-
burðanna 11. september 2001 en
þeir segjast hafa heimildir fyrir því
að í henni sé að finna rangfærslur.
Talsmenn ABC vísa gagnrýninni
hins vegar á bug og segja að enginn
hafi enn séð endanlega útgáfu
myndarinnar, m.a. af því að enn sé
verið að klippa hana til.
The Path to 9/11 er fimm
klukkustunda löng mynd sem sýnd
verður í tveimur hlutum, nk. sunnu-
dag og mánudag, en meðal leikara í
henni eru Harv-
ey Keitel og
Donnie Wahl-
berg. Byggt er á
viðtölum og fyr-
irliggjandi
gögnum, þ.m.t.
ítarlegri skýrslu
nefndar Banda-
ríkjaþings um
atburðina 11.
september 2001,
en forráðamenn ABC segja koma
fram að fálmkennd framganga
embættismanna hafi valdið því, að
hryðjuverkamönnum tókst ætl-
unarverk sitt.
Hópur demókrata, m.a. Made-
leine Albright, fyrrverandi utanrík-
isráðherra, og Sandy Berger, sem
var þjóðaröryggisráðgjafi, segist
hins vegar hafa heimildir fyrir því
að í myndinni séu atriði, sem alls
ekki byggist á veruleikanum. Hefur
Berger mótmælt atriði, þar sem
hann er sýndur hafna beiðni CIA
um leyfi til að gera árás á Osama
bin Laden. Og Albright er ósátt við
atriði þar sem hún er sýnd vara
stjórnvöld í Pakistan við yfirvof-
andi loftárásum á Afganistan 1998.
„Þetta atriði, eins og mér er sagt að
það sé, er ósatt og ærumeiðandi,“
sagði hún.
Madeleine
Albright
Gagnrýna mynd um 11. september
Kabúl. AP. | Að minnsta kosti átján
manns týndu lífi í sjálfsmorðsárás
nærri sendiráði Bandaríkjanna í
Kabúl í Afganistan, sextán Afganar
og tveir bandarískir hermenn, auk
sprengjumannsins. Tilræði þetta
kemur í aðdraganda þess, að Banda-
ríkjamenn minnast þess nk. mánu-
dag að fimm ár eru liðin frá hryðju-
verkaárásunum 11. september 2001.
Tilræðismaðurinn ók bíl sínum á
bílalest á vegum Bandaríkjahers.
Þrjátíu og einn særðist í árásinni, en
hún átti sér stað í aðeins um 100
metra fjarlægð frá bandaríska
sendiráðinu. Þetta var ein mann-
skæðasta árásin af þessum toga í
Kabúl en talibanahreyfingin hefur
lýst ábyrgð á ódæðinu á hendur sér.
Átök hafa harðnað mjög í Afgan-
istan að undanförnu og í gær sagði
yfirmaður breska heraflans í land-
inu, Ed Butler, að bardagar milli
hersveita Atlantshafsbandalagsins
og talibana væru nú harðari en átök í
Írak. Áður hafði James L. Jones, yf-
irhershöfðingi NATO, sagt að senda
yrði fleiri hermenn til Afganistans til
að taka þátt í aðgerðum gegn talib-
önum. Um 20.000 hermenn eru nú á
vegum NATO í landinu og u.þ.b. jafn
margir bandarískir hermenn.
Átján
týndu lífi
í Kabúl
Reuters
Rústir Bandarískur hermaður á
vettvangi sjálfsmorðsárásarinnar.
LARS Leijonborg, leiðtogi Þjóð-
arflokksins í Svíþjóð, baðst afsök-
unar í fyrrakvöld á því, að sam-
flokksmenn hans skyldu hafa
brotist inn í tölvukerfi Jafn-
aðarmannaflokksins.
Leijonborg stóð sig vel í sjón-
varpinu og virðast Svíar vilja trúa
því, að hann hafi ekkert vitað fyrr
en sl. sunnudag. Það nýjasta er svo
það, að tveimur tölvum var stolið
frá Hægriflokknum í Västerås í
fyrrinótt. Trúlegt þykir, að „venju-
legir innbrotsþjófar“ eigi sök á því
en tölvurnar eru sagðar geyma við-
kvæmar upplýsingar.
Svíar vilja trúa
Leijonborg
Peking. AFP. | Stjórnvöld í Kína hafa
lítið gert til að halda minningu Maós
formanns á lofti í tilefni af því að í dag
eru 30 ár liðin frá dauða hans. Margir
Kínverjar hafa þó Maó enn í háveg-
um og minnast liðinnar tíðar með ljúf-
sárum söknuði, einkum fátækt fólk
sem hefur síður notið góðs af hag-
vextinum í Kína, er óánægt með vax-
andi launamun í landinu og kvartar
yfir spillingu.
Margir Kínverjar gerðu sér ferð til
Peking í því skyni að skoða smurt lík
Maós og votta minningu hans virð-
ingu sína á dánarafmælinu.
„Það hefur verið draumur minn að
fara til Peking og sjá Maó formann,“
sagði Lei Fuchun, 64 ára fyrrverandi
verkamaður sem fór til höfuðborg-
arinnar í fyrsta skipti frá suðvest-
anverðu Kína til að sjá lík Maós.
„Hann var mikill leiðtogi,“ sagði Lei í
biðröð við grafhýsi Maós á Torgi hins
himneska friðar í Peking. „Ég dái
hann og er honum þakklátur. Á
valdatíma hans voru tengslin á milli
fólks einföld, þau einkenndust ekki af
blekkingum og svikum eins og núna.“
Hundruð manna voru í biðröðinni
og margir þeirra sögðust sakna
valdatíma Maós. „Á þessum tíma
tíma tók fólk byltinguna alvarlega,
óttaðist refsingu og slæm áhrif,“
sagði Jiang Bin, 58 ára ríkisstarfs-
maður frá Shanxi-héraði. „Núna, eftir
umbæturnar, hefur efnahagurinn
þróast og fólk er orðið ósvífnara. Ég
tel að þessir tímar hafi verið betri,
það var jöfnuður meðal hinna vinn-
andi stétta og embættismennirnir
voru ekki eins spilltir.“
Margir ungir Kínverjar virðast
einnig bera mikla virðingu fyrir Maó.
„Ég tel að Maó hafi verið mikilmenni,
í huga okkar var hann ekki maður,
heldur guð,“ sagði Cai, Kínverji á fer-
tugsaldri, en hann var aðeins barn
þegar byltingarleiðtoginn dó.
Mörg mistök
Líkt og margir aðrir Kínverjar
kvaðst Cai dá Maó fyrir þátt hans í
byltingunni og stofnun kínverska al-
þýðulýðveldisins. „Hann sameinaði
Kína og hjálpaði fátæka fólkinu. Ef til
vill hefur annað fólk í heiminum ímu-
gust á honum en við Kínverjar mun-
um alltaf líta á hann sem mikinn leið-
toga.“
Maó stóð þó fyrir pólitískum
hreinsunum og herferðum sem leiddu
til hungursneyðar og kostuðu millj-
ónir manna lífið. Nöfn herferðanna
voru sakleysisleg – hundrað blóm,
stóra stökkið, menningarbyltingin –
en afleiðingar þeirra voru skelfilegar.
„Ég tel að við getum sagt núna að
Maó hafi orðið á mörg mistök,“ sagði
Kínverji sem skoðaði safn til minn-
ingar um byltingarleiðtogann í fæð-
ingarþorpi hans, Shaoshan. „Það leik-
ur ekki nokkur vafi á því að
menningarbyltingin var verst, en
honum urðu á mörg önnur mistök.“
Leiðtogar kommúnistaflokksins
viðurkenndu fimm árum eftir dauða
Maós að honum hefðu orðið á mikil
mistök með því að hrinda menning-
arbyltingunni af stað.
Gagnrýni bönnuð
Ráðamennirnir í Kína hafa þó
bannað opna umræðu og gagnrýni á
arfleifð Maós þar sem þeir óttast að
hún geti orðið til þess að fólk taki að
gagnrýna núverandi leiðtoga og ein-
ræði kommúnistaflokksins.
Ekkert benti til þess í gær að kín-
versk stjórnvöld hygðust minnast
dánarafmælisins opinberlega og sér-
fræðingar í málefnum Kína sögðu að
stjórnin óttaðist að mikil minning-
arhátíð gæti leitt til óánægjubylgju
og götumótmæla.
„Kínverska þjóðfélagið á við alvar-
leg vandamál að stríða. Ef menn
standa ekki rétt að dánarafmælinu
getur almenningur notfært sér það til
að fá útrás fyrir óánægju sína,“ sagði
blaðamaðurinn Li Datong. „Þegar
menn tala um Maó geta þeir ekki
komist hjá því að minnast á menning-
arbyltinguna og þá staðreynd að tug-
milljónir manna sultu í hel.“
„Hann var ekki maður, heldur guð“
AP
Dáður og dýrkaður Ungir Kínverjar syngja áróðurssöngva í veitingahúsi í
Peking þar sem minningu Maós formanns er haldið á lofti.
»Menningarbyltingin í Kínaseint á sjöunda áratugnum
og í byrjun áttunda áratugarins
kostaði tugi milljóna manna líf-
ið.
»Menningarbyltingin byggð-ist á hugmyndum Maós um
stöðuga stéttabaráttu til að
koma í veg fyrir endurreisn
kapítalisma. Byltingin leystist
upp í óöld.
»Leiðtogar kínverska komm-únistaflokksins lýstu því yf-
ir fimm árum eftir dauða Maós
að hann hefði haft „70% rétt
fyrir sér og 30% rangt“ á valda-
tíma sínum.
Í HNOTSKURN