Morgunblaðið - 09.09.2006, Síða 31
fólks en hún er svolítið brettaleg.
Við seljum líka mikið af svokölluðum
tölvuskinnum, sem er þunnt en
sterkt slíður utan um tölvuna og þá
er hægt að hafa hana vel varða í
venjulegri tösku eða grípa hana með
sér undir hendinni.“
Töskur til skiptanna
Sigurður segir að það sé mikil sala
í tölvutöskum allt árið og þeir selji
varla orðið fartölvu án þess að fólk
fái sér tösku með. „Fólk kemur líka
til að endurnýja fartölvutöskuna eða
kaupa sér aðra til skiptanna. Þegar
verið er að þvælast um með tölvuna
allan daginn, alla daga, vill fólk eiga
tösku til skiptanna.“
Sigurður bendir á sér til stuðn-
ings um breytta tíma í far-
tölvutöskum að þeir hafi sett upp
spegla í búðinni eftir margend-
urteknar athugasemdir við-
skiptavina um að slíkt vantaði. „Fólk
vill spegla sig með töskuna til að sjá
hvernig hún passar við það.“
Fartölvutöskur fást ekki eingöngu
í tölvubúðum því þær má einnig
finna í raftækjabúðum, tískuvöru-
og ritfangaverslunum. Auk þess sem
hægt er að finna mikið úrval af þeim
á hinum ýmsu netsíðum. Þá er bara
að passa að kaupa tösku af réttri
stærð undir tölvuna og sjá til þess að
hún sé í stíl við persónu hvers og
eins svo heildarútlitið sé í lagi þegar
mætt er í vinnuna eða skólann.
Nettar Fartölvutöskur sem líta
ekki út fyrir að vera fartölvutöskur
eru málið um þessar mundir. Græn
og rósótt úr Apple-búðinni og svört
úr Debenhams.
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 31
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
12
0
Á NÆSTUNNI munu fetaostar frá Mjólku sem seldir eru í gler-
krukkum koma á markað með breyttum merkingum. Með því að
breyta merkingunum er brugðist við óskum um að aðgreina betur
framleiðslu Mjólku frá vörum annarra framleiðenda um leið og útlit
merkinga er samræmt betur því sem er á öðrum fetaosti frá
Mjólku. „Við föllumst á að það hafi verið ákveðin hætta á ruglingi
og teljum að það sé í þágu neytenda að það fari ekki á milli mála
hvenær þeir eru að kaupa feta frá Mjólku og hvenær þeir eru með
innflutta eða ríkisstyrkta vöru í höndunum,“ segir Ólafur M. Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Mjólku, í fréttatilkynningu frá Mjólku.
Þar stendur enn fremur að á þeim níu mánuðum sem liðnir eru
frá því að fetaosturinn frá Mjólku kom fyrst á markað hafi viðtökur
neytenda verið mjög góðar og á fyrstu sex mánuðunum hafi fyrir-
tækið náð tveggja ára sölumarkmiðum sínum. Í dag eru fram-
leiddar 12 tegundir af fetaosti hjá Mjólku auk fjögurra tegunda af
sýrðum rjóma.
Mjólka breytir merkingum
Freyðandi freist-
ingar Húsgagnahöll-
in, Bodum pressu-
kanna 2.490 kr.
Bodum mjólkurþeyt-
ari 1.480 kr. Kaffi-
tár: Update mjólk-
urkanna 2.190 kr. Te
og kaffi, Espresso
krumpuglas 545 kr.
Sætt og seiðandi Kaffitár, Amaretto
kaffisýróp 187 ml. 380 kr. Súkku-
laðihúðaðar kaffibaunir 100 gr. 300
kr. Selebes kaffi 250 gr. 580 kr. Hús-
gagnahöllin, Zone súkkulaðidreifari
1.380 kr.