Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 36

Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 36
36 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í FYRSTA lagi. Samkvæmt er- indisbréfi frá 16. janúar 2006 var verkefni Ásmundar-nefndarinnar tvíþætt. Annars vegar að fjalla um búsetu- og þjónustumál aldraðra með tilliti til fjölbreyttari búsetu- forma, stoðþjónustu og samþætt- ingar heimahjúkrunar og fé- lagslegrar heimilisþjónustu. Þetta var forgangsverkefni, enda meginskylda okkar að búa veikum öldruðum viðunandi og nútímalegan dval- arstað og þjónustu, en á því sviði erum við langt á eftir nágranna- löndum. Í öðru lagi að skoða fyrirkomulag tekjutengingar bóta með hliðsjón af skerð- ingum bóta lífeyr- isþega vegna tekjuöfl- unar, þar sem jafnframt verði þó horft til tekjujöfnunarhlutverks tekjutengingar bóta. Að okkar áliti náðist viðunandi árangur varðandi fyrra verkefnið – ef staðið verður við gefin loforð. Varðandi síðara verkefnið náðist alls ekki sá árangur sem við sótt- umst eftir. Við teljum aðalástæðu þess vera skýr skilaboð frá stjórn- völdum um að ef ekki yrði gefið eft- ir í lífeyrismálum væri þjón- ustuþátturinn í uppnámi. En fleira kom til er olli okkur verulegum erfiðleikum í viðræðum við stjórnvöld og sýnir í hnotskurn að afar erfitt er að ná samningi við þá aðila, m.a. vegna þekkingar- og skilningsleysis á högum aldraðra. Staðreynd er að stjórnvöld hafa ekki birt grundvallarupplýsingar um hagtölur, sem aðrar þjóðir birta árlega og hefðu haft áhrif á afstöðu okkar. Þessu til sönnunar má nefna eftirfarandi: 1. Upplýsingar um „opinberan framfærslukostnað“ í landinu fást ekki. 2. Engar upplýsingar lágu fyrir um meðaltalslífeyri. 3. Upplýsingar um hratt vaxandi launamun samkvæmt svokölluðum Gini-stuðli, hafa ekki verið birtar sl. áratug á Íslandi. Hinn mikli launa- munur kemur harðast niður á eldri borgurum, en nær helmingur 67 ára og eldri falla í lægstu tíund launa- skalans. 4. Fyrir tíu árum var launa- mismunur einna minnstur á Íslandi í Vestur-Evrópu, en nú erum við í hópi þeirra þjóða sem hafa hæstan Gini-stuðulinn. Staða bótaþega á Íslandi er þó í raun verri en í mörgum nágranna- löndum því að matar- og lyfjakostnaður er 40 til 50% hærri en í ná- grannalöndum, sam- anber úttekt ríkisend- urskoðunar og ASÍ 2006. Fjármálaráðuneytið neitar blákalt að skatt- byrði á lægstu laun hafi þyngst um 10% á sl. áratug. Ríkisskattstjóri og háskólamenn eru sammála okkur í þessu máli. Einu svör fjármálaráðu- neytis, og nú síðast formanns stærsta þingflokksins í Frétta- blaðinu sl. laugardag, eru upp- skálduð reiknisdæmi sem á engan hátt eiga við um bótaþega. Það er staðreynd að kaupmáttur láglauna- fólks hefur hækkað mun minna en almennings. Gagnorðuðum og vel unnum rannsóknum Stefáns Ólafs- sonar er svarað með illa unnum yf- irlýsingum. Við teljum okkur hafa skrifað undir áætlun í formi yfirlýsingar og höfum aldrei samþykkt að störf okkar að frekari úrbótum væru lögð á hilluna næstu fjögur árin. Á fund- inum í Ráðherrabústaðnum þann 19. júlí s.l. og í Kastljósi með for- sætisráðherra gerðum við fulla grein fyrir þeim kröfum sem enn stæðu útaf borðinu. Má þar m.a. nefna ítarlega úttekt á trygg- ingalöggjöfinni, eins og segir í er- indisbréfi forsætisráðherra. Nánari útfærslu á lækkun skerðinga gagnast í auknum mæli þeim sem meiri tekjur hafa, ef ekki koma til fleiri skattþrep, og gerðum við ít- arlega grein fyrir kröfum okkar um tvö skattþrep og fjármagnssköttun á ávöxtunar- og verðbótahluta líf- eyrissjóðsgreiðslna. Að lokum skal tekið fram að í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar og LEB segir m.a. „að yfirlýsingin sé til vitnis um gagnlegt samstarf og samráð aðila og endurspegli sam- komulag um aðgerðir ríkisvaldsins í málefnum aldraðra sem komi til framkvæmda næstu fjögur árin, eins og nánar er lýst í tillögum nefndarinnar.“ Þessi yfirlýsing, eða samkomulag, kemur á engan hátt í veg fyrir að LEB haldi áfram harðri baráttu fyrir bættum kjörum aldraðra, sam- anber þær kröfur sem að framan greinir, enda er í yfirlýsingunni eða samningnum ekki greint frá fyrr- nefndum kröfum. Leitað verður til Alþingis í þess- um efnum og væntum við stuðnings þingmanna við okkar óskir. Við treystum því að samkennd og mannúð stýri afstöðu þingmanna í þessu máli. Að öðrum kosti verður barist fyrir því að ellilífeyrisþegar og 68-kynslóðin, sem nú hefur vakn- að, muni fylgja þeim frambjóð- endum í þingkosningum sem styðja kröfur okkar um úrbætur á lífs- kjörum láglaunafólks, þar á meðal ellilífeyrisþega. Við erum ekki lögst í kör Ólafur Ólafsson fjallar um kjör eldri borgara » Staða bótaþega á Ís-landi er þó í raun verri en í mörgum ná- grannalöndum því að matar- og lyfjakostn- aður er 40 til 50% hærri en í nágrannalönd- um … Ólafur Ólafsson Höfundur er formaður LEB. MIG langar til að koma á framfæri þakklæti við Rauða kross Íslands og Íslendinga sem hafa stutt dyggilega við starf Rauða kross- ins í Malaví í þágu þeirra sem eiga um sárt að binda vegna alnæm- is. Samstarfið hófst árið 2000 í framhaldi af söfnun Rauða kross Ís- lands fyrir alnæm- issmitaða í sunn- anverðri Afríku. Það sama ár hétu Rauða kross félögin í Afríku og samstarfsfélög þeirra því að auka að- stoð við þá sem líða vegna alnæmisvandans. Á þessum tíma skorti okkur í Malaví reynslu á þessu sviði og fjár- magn til að vinna að undirbúningi og fram- kvæmd alnæmisverk- efna. Hins vegar gátum við nýtt reynslu okkar af öðrum verkefnum sem byggjast á starfi sjálfboðaliða að fræðslu og heilsuvernd í sínu samfélagi. Samstarfi Rauða kross Íslands og mal- avíska Rauða krossins var valinn staður í Nkalo í Chiradzulu-héraði en það er eitt fátækasta svæði landsins. Þar er hlutfall alnæmissmitaðra hvað hæst og félags- og heilbrigðisþjónusta er bágborin. Í Nkalo er þéttbýlt, mennt- unarstig er lágt og flestir eru sjálfs- þurftarbændur með litla landskika til ræktunar. Sjálfboðaliðar úr héraðinu voru þjálfaðir í heimahlynningu fyrir þá sem á þurftu að halda. Að auki sjá sjálfboðaliðar um fræðslu og koma af stað sjálfshjálparhópum í samvinnu við smitaða. Verkefnið gengur nú mjög vel og í samráði við Rauða kross Íslands var ákveðið að beina sjónum enn frekar að börnum sem líða vegna alnæmisvand- ans. Nauðsynlegt er að hlúa að foreldrum svo þeirra njóti við sem lengst og finna mun- aðarlausum börnum ný heimili. Einnig þarf að aðstoða fóstur- fjölskyldur og upplýsa börnin um uppruna sinn og erfðarétt. Veita þarf börnum aðstoð til að halda áfram skólagöngu og tryggja að þau fái góða næringu, m.a. með að koma upp mat- jurtagörðum. Yngstu börnin fá mat í athvörf- um sem verið er að koma upp og fá þar kennslu og umönnun. Þorpsbúar sjá um að byggja athvörfin en Rauði krossinn útveg- ar efnið sem til þarf. Vonir standa til að hægt verði að byggja þrjú at- hvörf í Nkalo strax á þessu ári. Í öllu okkar starfi er mikil áhersla lögð á fræðslu við að koma í veg fyrir fordóma í garð smitaðra og aðstand- enda, og til að hefta út- breiðslu sjúkdómsins. Alnæmisverkefnið í Nkalo er nú fyr- irmynd verkefna í þágu barna sem stefnt er að að framkvæma í fleiri hér- uðum Malaví. Starf okkar til stuðnings börnunum í Nkalo getum við ekki unnið án stuðn- ings ykkar Íslendinga og því hvetjum við ykkur til að leggja okkur lið í dag. Stuðningur Íslend- inga er mikilvægur Ethel Kaimira þakkar Íslend- ingum þeirra framlag í átakinu Gengið til góðs Ethel Kaimira » Í öllu okkarstarfi er mikil áhersla lögð á fræðslu við að koma í veg fyrir for- dóma í garð smitaðra og að- standenda, og til að hefta út- breiðslu sjúk- dómsins. Höfundur er aðstoðarframkvæmda- stjóri Rauða kross Malaví. EINS OG fram hefur komið sögðu sjálfstætt starfandi hjarta- læknar upp samningi sínum við ríkið um síðustu áramót og tók uppsögnin gildi 1. apríl sl. Sama dag tók gildi ný reglugerð nr. 241/ 2006. Reglugerð í stað samninga Reglugerðin hefur í för með sér að ef sjúklingur vill að Trygg- ingastofnun ríkisins taki þátt í kostnaði við heimsókn til sjálf- stætt starfandi hjartasérfræðings þarf hann tilvísun frá heim- ilislækni til að fá endurgreiðslu frá TR. Þar sem áður dugði ein ferð til hjartalæknis þarf sjúkling- ur nú þrjár ferðir á jafnmarga staði. Stór hluti samskipta hjarta- lækna og sjúklinga þeirra hefur verið reglubundið eftirlit án milli- göngu annarra lækna. Ástæður fyrir uppsögn hjartalæknanna á samningnum var að einingar í samningi sérgreinalækna og ríkis nægðu ekki fyrir þeim fjölda er til þeirra leitaði. Hjartaheill og Hjartavernd hafa lengi haldið uppi áróðri og boðið upp á mælingar á blóðfitu og blóð- þrýstingi til að vekja fólk til vit- undar um fyrstu einkenni hjarta- sjúkdóma. Mælingarnar hafa aukið sókn í þjónustu hjartalækna og verið forvörn gegn alvarlegum áföllum. Fleiri komast nú fyrr undir læknishendur, komast hjá að fara í stórar og dýrar aðgerðir og geta síðan lifað eðlilegu lífi. Það er árangur sem hlýtur að skipta miklu máli og sýnir nauð- syn fullnægjandi þjónustu við hjartasjúklinga. Þetta mál vekur margar áleitn- ar spurningar. 1) Er ekki sjálfsögð krafa að stjórnvöld leiti eftir áliti og sam- starfi við hagsmunasamtök sjúk- linga? Hjartasjúklingar hafa með sér öflug samtök sem einnig eru ásamt nokkrum öðrum sjúklinga- samtökum aðilar að SÍBS. Um- rædd reglugerð var sett á af stjórnvöldum án nokkurrar vitn- eskju, hvað þá samráðs við samtök þessa hóps. Deilan snerist þó fyrst og fremst um hagsmuni þeirra. Auk þess var kynning stjórnvalda á reglugerðinni ófullnægjandi. Sjúklingasamtök gegna mik- ilvægu hlutverki. Innan þeirra geta sjúklingar sótt styrk hver til annars og þau berjast fyrir og gæta hagsmuna þeirra. Eitt besta dæmið þar um eru samtök berkla- sjúklinga, SÍBS sem byggðu upp Reykjalund af ótrúlegri framsýni og krafti. Eins og flestir vita er nú rekin þar öflugasta endurþjálfunarstöð landsins sem sinnir mörgum sjúklinga- hópum. Það er algerlega úr takti við nú- tímann að neyt- endur þjónustu hafi ekkert um fram- kvæmd hennar að segja. 2) Er ekki augljós mismunun í því fólgin að setja tilvís- unarskyldu á suma hópa sjúklinga en ekki aðra ? Stenst það jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar? Við höfum fullan hug á, ef ekki rætist úr, að fá úrskurð umboðs- manns Alþingis þar um. Reglu- gerðin mismunar einnig hjarta- sjúklingum. Aðeins þeir sem hafa notið þjónustu sjálfstætt starfandi hjartalækna þurfa tilvísun en þeir sem leita til hjartalækna starfandi innan veggja sjúkrahúsa þurfa enga tilvísun að sýna. Til eru lög um réttindi sjúklinga. Fróðlegt væri einnig að fá túlkun lögfróðra hvort þessi reglugerð gengur ekki gegn 3. grein þeirra laga. Þá mis- munar hún læknum þar sem sér- staklega er kveðið á að einungis heilsugæslu- og heimilislæknar megi skrifa þessar tilvísanir. 3) Leiðir reglugerðin til hag- ræðingar? Eins og margir óttuðust þegar reglugerðin var sett hefur fimm mánaða reynslutími ekki sýnt fram á að hún sé hagkvæm á nokkurn hátt, a.m.k. ekki fyrir sjúklingana. Hver sjúklingur verð- ur nú að fara þrjár ferðir fram og til baka til að fá endurgreidda þjónustu hjartalæknis. Varla þarf að útskýra það óhagræði, tímasóun og kostnað sem þessu fylgir. Þyngst verður þetta þeim sem búa við lakastar aðstæður og heilsu. Hætta er á að margur úr þeim hópi muni veigra sér við að leita sér nauðsynlegrar lækn- ishjálpar þegar frá líður. Þá er vitað að ýmsir sem heimsækja hjartalækna greiða allan kostn- aðinn sjálfir. Heilbrigðisráðherra sagði í blaðaviðtali 14. ágúst sl. að þau mál sem hún hefði sett á oddinn væru lýðheilsumál og málefni eldri borgara. SÍBS og Hjarta- heill fagna þessu frumkvæði ráð- herra og óska henni alls góðs í framkvæmd góðra mála. Lýð- heilsa er umfangsmikið hugtak og rúmar fjöldamarga þætti. Einn mjög mikilvægur er að sjúklingar fái rétta meðhöndlun sem fyrst og síðan reglulega eft- irfylgd þeirra sem best kunna til verka til að vinna bug á eða halda sjúkdómnum í skefjum. Það minnkar líkur á sjúkra- húsvist og dýrum aðgerðum, vinnutapi og jafnvel ótímabærum dauða. Það er því þjóðhagslega mjög hagkvæmt. Lausn á þessu máli byggist á að samningar náist milli ríkisins og sjálfstætt starfandi hjarta- lækna og því skorum við á heil- brigðisráðherra að hafa frum- kvæði að samningaviðræðum við hjartalækna þegar í stað. Það er mikilvægt lýðheilsumál og engin ástæða til að ætla annað en að heilbrigðisráðherra vilji fylgja orðum sínum eftir með aðgerðum sem sátt er um meðal hjarta- sjúklinga. Hjartaheill og SÍBS eru fús til samstarfs við ráðherra og ráðu- neyti heilbrigðis- og trygginga- mála og önnur stjórnvöld um öll mál er snúa að forvörnum, bættri heilsu, betri og hagkvæmari heil- brigðisþjónustu fyrir félagsmenn sína og aðra landsmenn. Ósanngjörn reglugerð Haraldur Finnsson og Helgi Hróðmarsson fjalla um þjón- ustu við hjartasjúklinga » Lausn á þessu málibyggist á að samn- ingar náist milli ríkisins og sjálfstætt starfandi hjartalækna og því skorum við á heilbrigð- isráðherra að hafa frumkvæði að samn- ingaviðræðum við hjartalækna þegar í stað. Helgi Hróðmarsson Haraldur Finnsson er formaður Hjartaheilla á höfuðborgarsvæðinu. Helgi Hróðmarsson er fram- kvæmdastjóri SÍBS. Haraldur Finnsson Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi. Gunnar Jóhannesson skrifar um trú og vísindi. Guðjón Sveinsson: Rík þjóð en fátæk í anda. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.