Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 41

Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 41
skeiðið Að sættast við fortíðina. Samkomur fyrir ungt fólk eru öll föstudagskvöld kl. 20. Mót verður haldið í Vatnaskógi 29. sept.–1. okt. Verið er að vinna við framkvæmdir í kirkjunni þessa daga til að skapa betri aðstöðu fyrir starfið. Kirkjan sendir líka út þætti á Ómega og út- varpsstöðinni Lindinni. Haustguðsþjónusta eldri borgara Á UNDANFÖRNUM árum hafa Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts- dæma og kirkjurnar í prófastsdæm- unum staðið fyrir sameiginlegri haustguðsþjónustu sem er sér- staklega ætluð eldri borgurum og markar hún upphaf vetrarstarfs þeirra í kirkjunum. Að þessu sinni verður haustguðs- þjónustan í Digraneskirkju þriðju- daginn 12. september kl. 14. Sr. Magnús B. Björnsson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Digraneskirkju leiða almennan söng undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar organista. Eftir guðsþjónustuna eru kaffi- veitingar í boði sóknarnefndar Digraneskirkju og Ellimálaráðs. Allir eru velkomnir og eru eldri borgarar sérstaklega hvattir til að taka þátt í guðsþjónustunni þennan dag. Fjölskylduguðs- þjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA kl 14. Barn borið til skírnar. Al- mennan safnaðarsöng leiða að venju þau Carl Möller og Anna Sigga en njóta þó aðstoðar Frí- kirkjukórsins sem kemur nú aftur til starfa. Hjörtur Magni Jóhanns- son leiðir stundina og prédikar. All- ir velkomnir. Nanda kirkjuvarða býður upp á kaffi í anddyrinu eftir guðsþjónustuna. Minnum á bænastundir í safn- aðarheimilinu á þriðjudögum kl. 11.30. Blómlegt vetrar- og kórastarf í Grafarvogskirkju NÚ ER vetrar- og kórastarf Grafar- vogskirkju hafið. Í Grafarvogs- kirkju starfa fjórir kórar. Í þessum kórum sem hafa sett sterkan svip á safnaðarstarf kirkjunnar á undan- förnum árum syngja yfir hundrað einstaklingar. Kirkjukórinn hefur hafið vetrarstarfið, eftir að hafa farið ógleymanlega söngför til Finnlands og Eistlands á liðnu sumri. Kórstjóri er Hörður Braga- son organisti. Fjölbreytt dagskrá er framundan í vetur. Innritun í kórana stendur nú yfir. Upplýsingar veita kórstjórar, Gróa í síma 699-1886 og Svava í síma 867-7882. Vetrardagskrá safnaðarins sem hér segir: Foreldramorgnar. Starfið hjá þeim hefst fimmtudaginn 14. sept- ember kl. 10–12 í Grafarvogskirkju og eru vikulega. Dagskráin er fjöl- breytt. Tíu til tólf ára – TTT. Fyrir börn á aldrinum 10–12 ára, verður í skól- um hverfisins. Auglýsingar með tímasetningu birtast síðar. Eldri borgarar. Eldri borgarar hittast í kirkjunni á hverjum þriðju- degi kl. 13.30. Kirkjukór. Kirkjukórinn hefur þegar hafið vetrarstarfið undir stjórn Harðar Bragasonar, organ- ista og kórstjóra. Æskulýðsfélag. Fyrir unglinga í 8.–10. bekk á mánudagskvöldum kl. 20 í Grafarvogskirkju. Safnaðarfélagið. Fundir hjá safn- aðarfélaginu eru á mánudögum. Fyrsti fundur vetrarins verður mánudaginn 9. október kl. 20. Alfa-námskeið. Hefst fimmtudag- inn 11. janúar 2007. Um er að ræða 10 vikna fræðslunámskeið um kristna trú og tilgang lífsins. Krakkakór. Er fyrir sjö og átta ára börn. Æfingar eru á mánudög- um kl. 17.30–18.30. Kórstjóri: Gróa Hreinsdóttir. Barnakór. Fyrir börn frá níu ára aldri. Æfingar eru á þriðjudögum kl. 17.15–18.30. Kórstjóri: Svava Kr. Ingólfsdóttir. Unglingakór. Er fyrir 12 ára og eldri. Æfingar eru á þriðjudögum kl. 16–17.45 og fimmtudögum kl. 16.30–18. Kórstjóri: Svava Kr. Ing- ólfsdóttir. Kyrrðarstundir í Grafarvogs- kirkju verða í hádeginu á mið- vikudögum kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp á létt- an hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Stundirnar hefj- ast miðvikudaginn 6. september. Sorgarhópur sem fjallar um sorg og sorgarviðbrögð mun starfa í vet- ur, líkt og síðastliðna vetur. Prestar kirkjunnar sjá um skráningu í hóp- inn og hefst starfið í janúar 2007 og verður á mánudögum í 10 skipti. Ætlað þeim sem hafa misst nána ástvini. Að búa einn/ein. Um mánaða- mótin sept.–okt. hefst námskeið í Grafarvogskirkju sem nefnist „Að búa einn/ein“. Námskeiðið er ætlað þeim sem gengið hafa í gegnum skilnað nýlega. Bænahópur. Á hverju sunnu- dagskvöldi kl. 20 hittist bænahópur í kirkjunni og er hann öllum opinn. Al-Anon er með fundi á föstu- dagskvöldum kl. 20. AA-hópur hittist á laugardags- morgnum kl. 11. Fermingarstarf. Sunnudaginn 10. september kl. 11 er fermingar- börnum úr Borgaskóla, Engjaskóla, Korpuskóla, Rimaskóla og Víkur- skóla og foreldrum þeirra boðið sérstaklega til guðsþjónustu í Grafarvogskirkju. Að loknum guðs- þjónustunum verður fundur með foreldrum og fermingarbörnum. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 41 FRÉTTIR Fiðluleikur. Hjörleifur Valsson. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þórir. Fermingarfræðslan er að hefjast í Lága- fellssókn og eru börnin sem ætla að taka þátt í því starfi hvött til að mæta í guðs- þjónustuna. Sunnudagaskólinn hefst í Lágafellskirkju kl. 13. Prestarnir. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti Antonia Hevesi. Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Sunnu- dagaskólar í Strandbergi og Hvaleyrar- skóla á sama tíma. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu- dagaskólinn kl. 11. Nú hefst barnastarf vetrarins með nýju og spennandi efni. Fjöl- breytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Ver- ið með frá upphafi. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Víðistaðasóknar flytur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Sunnudaga- skóli kl.11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Edda, Hera og Örn. Kvöldvaka kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir tónlist og söng. Fjallað verður um ólíka sálma í sálmabókinni og söguna á bak við þá. Kaffi í safnaðarheimilinu að lokinni guðs- þjónustu. ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka, Ásvöllum: Guðsþjónusta kl. 17. Prestur sr. Carlos Ferrer. Kór Ástjarnarsóknar und- ir stjórn nýs tónlistarstjóra safnaðarins, Kristínar Waage. Kaffi og léttar veitingar að helgihaldi loknu. KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Presdtur sr. Carlos Ferrer. Kór Kálfatjarnarkirkju undir stjórn Franks Her- lufsen. Kaffi og léttar veitingar að helgi- haldi loknu. VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11. Prest- arnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir altari ásamt Nönnu Guð- rúnu Zoëga djákna. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Ármanns H. Gunn- arssonar æskulýðsfulltrúa. Jóhann Bald- vinsson leiðir lofgjörðina ásamt kór Vídal- ínskirkju. Allir velkomnir. Sjá www.gardasokn.is NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Organisti Dagmar Kunakova og meðhjálpari er Krist- jana Gísladóttir. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Að guðsþjónustu lokinni fer fram aðalsafnaðarfundur Keflavíkur- sóknar. Allir velkomnir. AKUREYRARKIRKJA: Æðruleysismessa kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa og sr. Sólveig Halla. Arna Valsdóttir og Pálmi Gunnars- son sjá um tónlist og leiða söng. Móheið- ur Guðmundsdóttir syngur einsöng. Kaffi í safnaðarheimili á eftir. GLERÁRKIRKJA: Barnastarf og guðsþjón- usta kl. 11. Fermingarbörn ásamt for- eldrum hvött til að koma. Sr. Arnaldur Bárðarson þjónar. Félagar úr Kór Glerár- kirkju syngja. Organisti er Hjörtur Stein- bergsson. Hádegissamvera miðvikudag. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Fjöl- skyldusamkoma kl. 11. Upphaf vetrarins í barna- og unglingastarfinu. Jóhanna Benný Hannesdóttir. Allir velkomnir. ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Fermingarbörn vetrarins eru boðuð til kirkjunnar og taka á móti Biblíu og hefja með þeim þætti fermingar- störfin. SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Organisti er Kristín Björnsdóttir. Almennur safnaðarsöngur. Væntanleg fermingarbörn næsta vors sér- staklega hvött til að mæta með forráða- mönnum sínum. Sóknarprestur. REYNISKIRKJA í Mýrdal: Guðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Organisti er Kristín Björnsdóttir. Almennur safnaðarsöngur. Fjölmennum til kirkju. Sóknarprestur. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Kvöld- guðsþjónusta sunnudag kl. 21. Organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Sr. Egill Hallgríms- son, dómkirkjuprestur í Skálholti, messar í sumarfríi sóknarprests. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11 sunnu- dag. Kirkjukórinn syngur, organisti Jörg Sondermann. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu að lokinni athöfninni. Þriðjudaginn 12. september 2. septem- bertónleikar. Hörður Áskelsson leikur á orgel Selfosskirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Kaffisopi á eftir. Miðvikudagur- inn 13. september kl. 11. Foreldra- morgunn í lofti Safnaðarheimilisins. Opið hús, hressing og spjall. Sr. Gunnar Björns- son. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. MOSFELLSKIRKJA í Grímsnesi: Messa sunnudag kl. 14. Sr. Rúnar Þór Egilsson. Heilsustofnun NLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Reyniskirkja í Mýrdal. BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA frum- sýnir um helgina tvo lúxusbíla frá Mercedes-Benz af gerðinni GL- Class og E-Class. GL-Class er rúmgóður lúxusjeppi með háu og lágu drifi auk þess að vera búinn ríkulegum staðalbúnaði. Mercedes-Benz GL-Class er fáan- legur með öflugum dísil- og bensín- vélum sem skila allt að 388 hest- öflum. GL-Class er búinn öllum þeim búnaði sem kröfur eru gerðar til í lúxusbílum, auk þess að vera rúmgóður og fáanlegur með sætum fyrir allt að sjö manns. Á sama tíma er frumsýndur nýr E-Class en tækninýjungar í honum eru margar. E-Class er meðal annars búinn nýrri gerð framljósa sem lýsa mun lengra en áður hefur þekkst án þess að trufla umferð sem kemur á móti. Einnig er E-Class búinn stöð- ugleikakerfi sem tryggir öruggan akstur, segir í fréttatilkynningu. Sýningin um helgina stendur yfir í húsakynnum Öskju við Laugaveg og fer fram í dag, laugardag og á morg- un, sunnudag frá kl. 12 - 17. Einnig geta Mercedes-Benz eigendur kom- ið með bíla sína í bremsu- og högg- deyfaskoðun í boði þjónustudeildar Öskju við Laugaveg. Boðið verður upp á kaffi og reynsluakstur á nýjum Mercedes-Benz bílum. Askja frumsýnir tvo bíla LISTAMENN taka höndum saman og sýna stuðning við nátt- úruvernd á Íslandi með listsköpun og tónlistarviðburðum í dag, laug- ardaginn 9. september. Farið verður frá Hlemmi kl. 13, með karnivalgöngu sem fer niður Laugaveginn og endar á Aust- urvelli en þar verða tónleikar og uppákomur og er öllum opið að taka þátt. M.a. koma fram: Mr. Sillu og Mongoose, Ghostdigital, Palindrome, Cocktail Vomit, Bent og Magga Legó. Einnig verður opnun í Gallerí Gyllinhæð og silkiþrykk fyrir utan Nakta apann og getur fólk komið með flíkur og töskur til að láta prenta á, segir í fréttatilkynningu. Nánari uppl. á skapandiskodun@hotmail.com. Karnivalganga og tónleikar STYRKTARHÁTÍÐ verður hald- in í Festi Grindavík á morgun, sunnudaginn 10. september kl. 17–19. Hátíðin er haldin til að styrkja 10 ára gamlan dreng, Frank Bergmann Brynjarsson sem greindist með hvítblæði fyrr á þessu ári og er að fara til Sví- þjóðar í mergskipti. Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru: Latibær, KK, Ellen, Rúnar júl, Bigalow, Bjarni Ara og Ástvaldur Traustason, Bríet Sunna, Ingó, Gréta, Davíð og Stefán, Skítamórall o.fl. Miðaverð fyrir fullorðna er 1.500 kr. og 1.000 kr. fyrir börn. Einnig er hægt að leggja frjálst framlag inn á reikn nr: 143-26-199 kt:140996-3199. Styrktarhátíð í Grindavík DAGANA 18. og 19. september stendur Endur- menntunarstofn- un Háskóla Ís- lands fyrir námskeiði með Mike Richards- son undir heit- inu: Hvernig næst afburða ár- angur í stjórnun hjá opinberum að- ilum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur skoði aðstæður, við- horf og hegðun á eigin vinnustað í ljósi fimm lykilþátta í því að ná af- burða árangri. Mike Richardson hefur komið hingað til lands þrisvar áður sem ráðgjafi og leiðbeinandi hjá Reykja- víkurborg, Reykjanesbæ og kennari hjá Endurmenntun HÍ árin 2004 og aftur 2005. Á því námskeiði gáfu 95% þátttakenda matsþætti nám- skeiðsins „hæfni til að miðla náms- efninu“ hæstu einkunn og 100% sögðu að efnið myndi nýtast þeim mjög vel eða vel í starfi. Mike var framkvæmdastjóri borgarinnar Christchurch á Nýja Sjálandi á ár- unum 1992-2002. Borgin vann til margvíslegra verðlauna fyrir árang- ur og brautryðjendastarf og hefur verið talin í fremstu röð vel rekinna borga. Hann hefur verið ráðgjafi fjölmargra opinberra aðila víðs veg- ar um heiminn, m.a. WHO, Alþjóða- heilbrigðismálastofnunar Samein- uðu þjóðanna, um stjórnkerfi borga í Suðaustur-Asíu og er eftirsóttur gestafyrirlesari um umbætur í op- inberri stjórnsýslu. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Endurmenntun H.Í. síma 525-4254 eða endurmenntun@hi.is Námskeið um árangur í stjórnun hjá opinberum aðilum Mike Richardson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.