Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 44
44 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Unnur BettýGuðmundsdóttir
fæddist í Reykjavík
5. september 1987.
Hún lést af slysför-
um 28. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar eru Guðrún
Elín Björnsdóttir og
Guðmundur Krist-
ján Sigurbjörnsson
búsett á Sauðár-
króki. Bræður Unn-
ar eru Björn Svavar
f. 11. janúar 1985,
og Brynjar Örn f. 5.
maí 1991.
Unnur ólst upp á Hofsósi til
1996, hún fluttist þá til Sauðár-
króks, þar sem hún stundaði nám
í Grunnskóla
Sauðárkróks og síð-
ar nám í grunndeild
tréiðna í Fjölbrauta-
skóla Norðurlands
vestra á Sauðár-
króki. Unnur starf-
aði við hótel- og
veitingaþjónustu á
Staðarskála í
Hrútafirði, af-
greiðslustörf í
Shellsport, Hótel
Áningu, fiskvinnslu-
störf hjá Fiskiðjunni
Skagfirðingi og nú
síðast á Hótel Eddu Eiðum.
Útför Unnar Bettýjar verður
gerð frá Hofsósskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson.)
Oft hafa skipst á skyn og skúrir í
lífi Unnar Bettýjar, en að hún þyrfti
að enda ævina svona fljótt, á ég erfitt
með að sætta mig við. Ég minnist
hennar svo sterklega þegar hún kom
til mín nú í maí síðast liðnum og var
þungt yfir henni og sagðist ætla að
reyna að fá aðra vinnu.
Fáum dögum síðar kom hún í
dyrnar hjá mér glaðhlakkaleg bros-
andi út að eyrum og sagðist vera búin
að fá vinnu austur á Eiðum. Hjá mér
var gamall nágranni sem vildi vita
hver þessi glaðlega stúlka væri. Ég
sagði honum hróðug, að ég ætti svo-
lítið í henni.
Daginn áður en Unnur Bettý ætl-
aði austur áttum við notalegt samtal,
en mér fannst hún reisa sér of miklar
skýjaborgir og fór að hafa áhyggjur
hvernig henni ætti eftir að vegna. Ég
fékk viðvörun á mjög einkennilegan
hátt og ákvað því að reyna mitt besta
til að vara hana við. Allar þær hættur
sem hugsanlega gætu verið á vegi
hennar, lagði ég fyrir hana, eins og
hún væri dóttir mín og bað hana að
hugsa til móðurömmu sinnar þegar
eitthvað bjátaði á. Hún lofaði því að
gera sitt besta.
Um það bil mánuði síðar kom hún í
heimsókn geislandi af lífsþrótti og
virtist loksins vera orðin hamingju-
söm. Austurland hafði greinilega tek-
ið vel á móti henni og haft góð áhrif á
hana. Nú leið henni loksins vel.
Morguninn sem sorgarfréttin
barst okkur, kom gamli nágranninn
minn gagngert til að spyrjast fyrir
um þessa glaðlegu stúlku sem honum
fannst svo einstaklega bjart og glað-
legt yfir. Ég sagði honum að henni
liði mjög vel, væri mjög ánægð og allt
annað yfirbragð á henni og von mín
væri sú, að það yrði áfram. En von
mín varð að engu.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: ,,Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum
(Björn Halldórsson í Laufási.)
Elsku Gummi, Guðrún, Björn og
Brynjar, við hér í Skógargötu 16 biðj-
um Guð að styrkja ykkur á erfiðum
stundum.
Eyrún.
Það er sannarlega farið að hausta
og myrkrið verður meira og meira.
Dimmur var mánudagurinn 28. ágúst
þegar mér bárust þær hræðilegu
fréttir að Unnur Bettý systurdóttir
mín væri dáin.
Maður trúði þessu varla, að þessi
tæplega 19 ára stúlka sem er rétt að
byrja lífið væri látin. Gat þetta virki-
lega verið satt?
Sumum hlutum í lífinu ráðum við
ekki. Það er einhver annar sem
stjórnar og nú hefur greinilega verið
þörf fyrir hana Unni Bettý „kallið var
komið“.
Ég er þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að kynnast þér og mun varðveita
minningarnar um þig. Ég vona að
núna sértu á friðsælum og björtum
stað þar sem þú hittir Bettý ömmu
þína því ég veit hún tekur vel á móti
þér. Þið áttuð svo margt saman og
voruð svo nánar. Eftir standa ástvinir
og reyna eftir fremsta megni að fóta
sig í sorginni. Guð gefi ykkur styrk.
Blessuð sé minning Unnar Bettýj-
ar.
Hugsandi um engla ég hugsa til þín.
Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn.
Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín.
Hugsandi um engla ég hugsa til þín.
Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber.
Þótt farin þú sért, þá veistu sem er.
Að sorg okkar hjörtu nístir og sker.
Við sjáumst á ný þegar kemur að mér.
(KK – þýð. ÓGK)
Elsku Guðrún, Gummi, Björn og
Brynjar Ykkur votta ég mína dýpstu
samúð.
Jón Ágúst Björnsson.
Elsku hjartans frænka.
Af hverju þú, sem eftir langan veg
varst farin að sjá ljós og tilgang með
lífinu, því er þér svo svipt frá okkur í
blóma lífsins? Hefur þér elsku Unnur
verið ætlað annað? Við erum sann-
færð um það elsku Unnur. Núna ert
þú hjá Bettý ömmu þinni, Níels afa
og Steinunni ömmu okkar og sem
prinsessa.
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
né blómstígar gullskrýddir alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngu til himinsins helgu borgar.
En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu þó leiðin sé myrk.
Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(Staðf. Hjálmar Jónsson.)
Með þessari bæn kveðjum við þig
elsku Unnur en þú verður alltaf bros-
andi í huga okkar.
Megi guð og allir góðir mættir
styrkja ykkur Guðrún mín, Guð-
mundur, Björn og Brynjar í sorg
ykkar sem enginn mannlegur máttur
fær skilið.
Níels, Þórdís, Svandís og Gyða.
Elsku Unnur mín. Það er svo
margt sem maður vildi hafa sagt en
gerði ekki. Allar góðu stundirnar
okkar sem við áttum á Króknum eru
vel geymdar í mínu hjarta. Þegar
mér var sagt að þú værir farin frá
okkur fór stórt brot úr mínu hjarta
því þú varst mér meira en frænka,
alltaf skildir þú mig, hvernig mér leið
og ég vissi hvernig þér leið.
Við söknum þín svo mikið að því er
ekki hægt að lýsa, þú varst eins og
stóra systir Anítu og Hemma og allt-
af gátu þau leitað til þín á Króknum.
Aníta mín sagði að núna hefði guð
vantað fallegan engil til sín. Margar
af mínum bestu stundum átti ég með
þér því þú varst mín stoð og stytta í
einu og öllu.
Þetta er til þín, Unnur mín:
Hugsandi um engla ég hugsa til þín.
Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn.
Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín.
Hugsandi um engla ég hugsa til þín.
Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber.
Þótt farin þú sért, þá veistu sem er,
að sorg okkar hjörtu nístir og sker.
Við sjáumst á ný þegar kemur að mér.
(KK – þýð. ÓGK)
Við biðjum guð um að geyma þig,
elsku fallega frænka okkar, og veita
Guðrúnu, Gumma, Bjössa og Brynj-
ari styrk á þessum erfiðu tímum.
Þín verður sárt saknað.
Hrefna, Guðjón og börn.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Unnur Bettý, ég vil varla
trúa því, að það sé búið að taka þig frá
okkur. Þú sem varst alltaf svo hress,
kát og brosmild stelpa og alltaf
varstu svo hlý og góð við mig. Ég var
búin að hæla þér fyrir hvað þú hefur
breyst við að fara austur á land, ég
fann það svo vel þegar þú komst til
mín helgina sem þú varst að fara á
Húnavökuna og alltaf varstu kátari
og hressari. Ég var svo ánægð þegar
þú sagðist ætla að fara að vinna fyrir
austan. Því ég kunni svo vel við mig
þar.
Elsku Unnur Bettý, ég vil að síð-
ustu þakka þér fyrir hvað þú reyndist
ömmu þinni vel og hvað þú hlustaðir
alltaf vel á hana.
Elsku frænka mín, hvíl þú í friði.
Elsku Gummi, Guðrún, Björn
Svavar og Brynjar Örn.
Guð styrki ykkur í ykkar miklu
sorg.
Berta.
Elsku Unnur, ég gleymi aldrei
þeim degi þegar þú kvaddir þennan
heim, mér fannst allt vera hrunið, og
lítið eftir til að halda áfram með lífið.
Við frænkurnar vorum ótrúlega góð-
ar vinkonur og að missa þig var öm-
urlegt. Ég veit að lífið á að halda
áfram og ég veit að þú myndir vilja
það, en það er ótrúlega erfitt að þurfa
að halda áfram og hafa þig ekki, en
núna veit ég að þú verður alltaf hjá
mér.
Ég á margar góðar minningar um
okkur saman og þeim gleymi ég aldr-
ei. Ég man hvað það var leiðinlegt
þegar þú fluttir frá Hofsósi, við sem
vorum alltaf saman, vorum allt í einu
teknar í sundur. Við brölluðum margt
saman og gátum gert ömmu okkar
virkilega þreytta á öllum látunum í
okkur. Og allt sem við gerðum sem
við máttum ekki, það var ekkert sem
gat stoppað okkur að gera það, sama
þó að það væri elskulega amma okk-
ar, en við vissum að hún yrði aldrei
reið við okkur og héldum alltaf áfram.
Ef amma var þreytt á okkur þá lét
hún okkur í hendurnar á afa, af því að
við vorum skotturnar hans, og þá var
komið að því að gera afa þreyttan.
Það var svo gott þegar þú komst eitt
sumarið til ömmu og varst að vinna í
unglingavinnunni, þá var Unnur
frænka komin aftur heim. Ég gleymi
ekki þegar þú sagðist þurfa að koma
til mín þegar ég bjó á Króknum og
segja mér eitthvað, þú varst svo
Unnur Bettý
Guðmundsdóttir
Kæru vinir og vandamenn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku
drengsins okkar, bróður, barnabarns, mágs og
frænda,
PÉTURS SNÆS PÉTURSSONAR,
Vallargötu 42,
Sandgerði.
Guð blessi ykkur öll.
Snæfríður Karlsdóttir, Pétur Guðlaugsson,
Ari Gylfason, María G. Pálsdóttir,
Hrannar Már Pétursson,
Guðrún Pétursdóttir,
Helgi Pétursson,
Helena Sirrý Pétursdóttir,
Arna Siv Pétursdóttir,
Gréta Frederiksen, Karl Einarsson
og frændsystkini.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞORGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hamrahlíð 17,
lést á Landakoti miðvikudaginn 30. ágúst.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu frá Fossvogskapellu
föstudaginn 8. september.
Ólafía Andrésdóttir,
Halldóra Andrésdóttir,
Guðmundur Andrésson,
Haukur Andrésson,
Valgerður Andrésdóttir,
Hörður Andrésson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
HELGA SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést á heimili sínu, Hvammi á Húsavík, þriðju-
daginn 5. september.
Jarðsungið verður frá Húsavíkurkirkju þriðju-
daginn 12. september kl. 14.00.
Sigurjón Pálsson,
Katla Leósdóttir,
Páll Þór Sigurjónsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ANNA S. JÓHANNSDÓTTIR,
Fornhaga 11,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
6. september.
Ásgeir Sæmundsson,
Sæmundur Ásgeirsson, Steinunn Jóhannsdóttir,
Ásdís Ásgeirsdóttir, Helgi Árnason,
Haukur Ásgeirsson, Ásdís Pálsdóttir,
Anna Guðný Ásgeirsdóttir, Bjarni Á. Friðriksson,
Hafdís Ásgeirsdóttir,
Gyða Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN LAXDAL,
er látin.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Elín Laxdal,
Jón Laxdal Arnalds, Ellen Júlíusdóttir,
Ragnar Arnalds, Hallveig Thorlacius,
barnabörn og barnabarnabörn.