Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þórður Ásgeirs-son fæddist á
Húsavík 4. júní
1930. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 3. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Ásgeir Kristjánsson
f. 18. des 1906, d.
22.okt 1981, og Sig-
ríður Þórðardóttir,
f. 13. okt. 1905, d. 9.
júní 1981. Bróðir
Þórðar er Kristján,
f. 26. júlí 1932. Fóst-
urbróðir þeirra er Steinþór Þor-
valdsson f. 28.maí 1932, bróður-
sonur Sigríðar.
30. júní 1951 giftist Þórður
eftirlifandi eiginkonu sinni Frið-
riku Sigríði Þorgrímsdóttur, f. 8.
júní 1932. Börn þeirra eru Birgir
Þór, f. 23.sept 1951, kvæntur
Maríu Alfreðs-
dóttur, f. 18. nóv.
1954. Þau eiga fimm
börn og tíu barna-
börn. Sigríður
Björg, f. 8. sept.
1954, var gift Brynj-
ari Sigtryggssyni, f.
18. Ágúst 1949. Þau
eiga þrjú börn. Ás-
geir, f. 14. ágúst
1957 kvæntur Haf-
dísi Hallsdóttur, f.
18. mars 1957. Þau
eiga tvær dætur og
eitt barnabarn. Þor-
grímur Jóel, f. 2. okt. 1966,
kvæntur Ölmu Lilju Ævarsdóttur,
f. 28.okt. 1966. Þau eiga einn son.
Þórður stundaði sjómennsku í
62 ár og þar af 55 ár í eigin út-
gerð. Hann verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku afi. Þá er þessu lokið, ég held
áfram með von um að þér líði betur
þar sem þú ert núna. Nú verð ég bara
að eiga þig í minningum. Sem betur
fer á ég margar og bara góðar minn-
ingar um þig. Sú fyrsta sem mér kem-
ur í hug er þegar að ég var svona 2 ára
og kom niður í skúr og þér tókst að
láta mig borða hákarl og eftir þetta
bað ég þig alltaf um að gefa mér
„kall“. Þú ætlaðir sko að láta mig
verða alvöru konu. Ég man einnig eft-
ir öllum ferðalögunum sem að þið
amma tókuð okkur yngri barnabörnin
með í, kiwanisböllin, þar sem þú sást
um happdrættið, gleymast líka seint
og svo það sem að okkur krökkunum
líkaði allaf best, það var ef amma
bannaði eitthvað fór maður bara til
afa og fékk leyfi. Að horfa á þig síð-
ustu daga svona veikan og geta til
dæmis varla tjáð þig við okkur er búið
að vera hræðilegt og ég skil ekki
hvernig þú gast þraukað svona lengi.
Á sama tíma og ég er þakklát fyrir að
þú hafir loksins fengið að fara, líður
mér líka ömurlega yfir því að hafa
misst þig úr lífi mínu. Þú varst mín
mesta fyrirmynd og verður það alltaf.
Það var alltaf hægt að treysta á þig og
þú varst alltaf svo stoltur af manni.
Held að það sé varla hægt að elska
svona eins og þú elskaðir okkur öll.
Elsku besti afi, guð geymi þig, þín er
sárt saknað.
Þín,
Harpa.
Elsku afi. Það er svo sárt að þurfa
að kveðja þig en ég trúi því að nú líði
þér betur. Eftir að þú veiktist hefur
hugurinn æ oftar leitað til baka og þá
koma upp svo margar skemmtilegar
minningar. Allar Kiwanis-útilegurnar
sem við krakkarnir fórum í með ykk-
ur ömmu ásamt jólaböllunum og öll-
um góðu stundunum sem ég átti hjá
ykkur á Álfhólnum sem barn, þar var
nú oft fjör þegar við krakkarnir vor-
um öll saman komin. Þú varst alltaf að
segja okkur krökkunum hversu
ánægður þú værir með okkur og
breytti engu þótt við yrðum fullorðin,
alltaf hélstu áfram að segja okkur
hversu ánægður og stoltur þú værir
af okkur.
Fyrir tveimur árum flutti ég ásamt
minni fjölskyldu í næsta raðhús við
ykkur ömmu og við það jukust sam-
verustundir okkar mjög mikið. Varla
leið sá dagur að ég ekki rölti yfir í
heimsókn og átti ég þá margar góðar
stundir með ykkur sem mér finnst í
dag svo ómetanlegt.
Elsku afi, það hefur verið svo sárt
að fylgjast með þér berjast við þenn-
an illvíga sjúkdóm og þó það sé sárt er
ég svo fegin að þú hefur fengið hvíld-
ina. Guð geymi þig, elsku afi minn.
Þín,
Arna
Elsku afi minn, nú ert þú farinn á
brott frá okkur, en minning þín lifir
samt enn og mun gera um ókomna tíð.
Það sem við gerðum saman hér áður
fyrr er mér flest í fersku minni, sjó-
ferðirnar, rjúpnaveiðin og ekki síst
svartfuglinn, þar sem ég fékk hrós
fyrir það þegar ég náði fleiri en einum
fugli í skoti, en svo heyrði ég stapp ef
ég var of bráður á mér og „feilaði“
jafnvel. En flest sem ég kann í dag,
hef ég lært af þér, bæði af leiðsögn
þinni og að fylgjast með þér í leik og
starfi. Eitt er það sem mér þykir mjög
vænt um, en það er þegar einhver
segir að ég líkist þér, bæði taktar,
hegðun og einstaka svipmót, þá fyllist
hjarta mitt hlýju og stolti og þá veit ég
að ég er að gera eitthvað rétt.
En allt tekur þetta víst enda og nú
er þínu hlutverki lokið hér hjá okkur
og eitthvað annað spennandi tekur nú
við, kannski er „Siggi Valli búinn að
kaupa bátinn“ svo þið getið byrjað að
róa strax, því þú varst aldrei mikið
fyrir það að bíða með hlutina.
Með þökk fyrir allt kveð ég þig með
söknuði.
Ein í huga mér
lifir þín mynd
svo heil og sönn.
Sem aðeins lítil stund
væri mér liðin hjá
síðan þú varst
hér í faðmi mér.
Ein í hjarta mér
lifa þín orð,
þitt vinar þel,
sem aldrei sveik þó ég
gæti ei skilið allt
sem að þú gafst
mér þá af hjarta þér.
Þó ár og fjarlægð skilji okkur að
og engin geti komið í þinn stað
mun samt minningin þín lifa
á meðan lifi ég
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
En ár og eilífð skilja okkur að
og engin getur komið í þinn stað,
þó skal minning þín lifa
á meðan lifi ég,
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
(Friðrik Erlingsson)
Þinn Þórður.
Kveðja til afa.
Í barnsins djúpa trega ég kem að hvílu þinni
með kveðjublómin mín.
Þín minning verður alltaf einsog vor í vitund
minni.
Þar vermir sól og skín.
Ég treysti þér og fann að í hita handar þinnar
var heilög von og þrá.
Þú vaktir, hjartans afi, í barmi bernsku minnar
Það besta, sem ég á.
Og núna þegar blærinn strýkur heitri hendi
og heilsar grænni jörð,
Þá hverfur þú í burtu að ævi þinnar endi,
en ást og þakkargjörð
er kveðja mín og okkar, hún er eldur sá á arni,
sem yljar kaldan dag.
En Guð, sem öllu ræður, gef þínu besta barni
hið bjarta sólarlag.
(Valdimar Hólm Hallstað)
Guð geymi þig, elsku afi
Barnabarnabörn.
Í dag kveð ég mætan mann sem
mér þótti mjög vænt um. Doddi var
kvæntur Rikku föðursystur minni og
að sjálfsögðu kallaði ég hann því alltaf
Dodda frænda þegar ég var barn og
hef gert það allar götur síðan og mun
halda því áfram.
Doddi hafði stórt hjarta og þann
eiginleika að öll börn löðuðust að hon-
um enda var hann jafnan kallaður afi
Doddi af flestum þeirra þó blóðtengsl
væru engin. Það segir meira en mörg
orð.
Ég á ótal minningar um þig, elsku
Doddi minn, og þegar ég rifja þær
upp er Rikka frænka oftast partur af
þeim því þið mynduðuð órjúfanlega
heild.
Ég minnist kríueggjaleiðangurs út
í Flatey á Ásgeiri Þh. Mér leist ekki á
að fara með þar sem ég óttaðist mjög
að verða sjóveik en ferðin út í eyju
gekk vel. Heimferðin var ekki eins vel
heppnuð, farið að gefa í vind og brjál-
uð bræla að mínu mati en þú hlóst að
mér og sagðir að þetta kallaðist ekki
bræla, ég vissi ekki hvað það væri. Við
Rikka og Sirrý kúrðum niðri í lúkar
og ég varð svo sjóveik að mig langaði
hreinlega að deyja. En öll komust við
heim en ég var með sjóriðu í marga
daga á eftir.
Ég minnist ferða á sjóstöng með
þér og pabba á sumarkvöldum í
blankalogni. Sólin að setjast og allt
svo friðsælt og yndislegt. Flóinn svo
fallegur og fullt af fiski, Kinnarfjöllin
speglast í sjónum og þú við stjórnvöl-
inn. Þetta hefðum við aldrei getað án
þín.
En það er tvennt sem stendur upp
úr þegar minningarnar hrannast upp.
Önnur sú minninga er þegar þú, á
góðum stundum með glas í hendi
tókst Mexíkanahattinn. Þú varst
óborganlegur í því hlutverki, þú
söngst af svo mikilli innlifun og gleði
og með svo miklum tilþrifum að allir
sungu með. Og því meira sem sungið
var með því meiri tilþrif hjá þér. Eng-
inn getur toppað þá frammistöðu.
Hin minningin er um hina árlegu
svartfuglsveislu sem þið Rikka buðuð
okkur fjölskyldunni í um hver einustu
jól. Ég veit hversu mikla vinnu þú
lagðir á þig við að skjóta, hamfletta og
svíða fuglinn og Rikka síðan að mat-
búa hann ásamt öllu meðlætinu en
fyrir okkur var þetta hápunktur
jólanna. Að koma til ykkar um jólahá-
tíðina, finna svartfuglsilminn í loftinu
og lesa jólakortin sem þið fenguð er
minning sem aldrei gleymist.
En það voru fleiri en við fjölskyldan
sem nutu gestrisni ykkar, það sýndi
sig í þeim mikla bunka af kortum sem
þið fenguð hver einustu jól þar sem
fólk lofaði gestrisni ykkar og hjarta-
hlýju enda var vel tekið á móti öllum
sem sóttu ykkur heim eða kynntust
ykkur á annan hátt og þeir voru
margir.
Elsku Rikka, síðasta ár er búið að
vera erfitt í veikindum Dodda en nú
líður honum betur. Að kveðja lífsföru-
naut sinn til rúmlega fimmtíu ára skil-
ur eftir sig sorg og tómarúm. En þá er
gott að eiga minningar um góðan
mann og gleðiríkar stundir.
Elsku Birgir og Maja, Sirrý, Ásgeir
og Hafdís, Jóel og Alma, ég votta ykk-
ur, börnum ykkar og barnabörnum
mína innilegustu samúð.
Elsku Doddi, takk fyrir allt.
Kveðja.
Þórný.
Einn af máttarstólpum Húsavíkur,
dugnaðar- og eljumaður er fallinn frá.
Það er óhætt að segja að Þórður
frændi minn Ásgeirsson, eða Doddi
eins og hann var jafnan kallaður hafi
frá fyrstu tíð unnið hörðum höndum
eða síðan hann náði að teygja sig uppá
beitningaborðið við hlið föður síns
sem stráklingur, uns kraftar hans
vorum á þrotum nú í vor sökum sjúk-
leika.
Sjómennskuna gerði hann að sínu
ævistarfi, fyrst hjá öðrum útgerðum
en síðan stofnaði hann sína eigin út-
gerð og varð skipstjóri á Húsavík alla
tíð.
Doddi ásamt félaga sínum, lét
smíða fyrir sig 12 rúmlesta bát á
Seyðisfirði árið1971 og var hann
skírður Ásgeir í höfuðið á föður
Dodda, Ásgeiri Kristjánssyni sem líka
var einn af máttarstólpum Húsavíkur
á sínum tíma, bæjarfulltrúi til margra
ára, og forystumaður í verkalýðsmál-
um þar í bæ. Til gamans má geta þess
að föðuramma Dodda, Þuríður
Björnsdóttir var ein af stofnendum
Verkakvennafélagsins Vonar á Húsa-
vík 28. apríl 1918 og var kosin fyrsti
formaður þess . Þá voru einungis fjög-
ur félög verkakvenna á landinu öllu og
sýnir það hversu rótgróin og sterk
verkalýðshreyfingin er á Húsavík.
Uppvaxtarár Dodda voru því mót-
uð af sterkri félagshyggju og að bera
hag lítilmagnans sér fyrir brjósti en
einnig að vinna hörðum höndum til að
sjá sér og sínum farborða og í því
samhengi finnst mér nauðsynlegt að
minnast á Sigríði Þórðardóttur móður
Dodda sem var ein sú besta kona sem
ég hefi kynnst. Hún bjó fjölskyldu
sinni afar hlýlegt og fallegt heimili í
s.k. Ásgeirshúsi sem allir Húsvíking-
ar þekkja. Heimili Ásgeirs og Sigríðar
var opið öllum, ekki síst þeim sem
minna máttu sín og komu þangað
margir til að þiggja velgjörðir hjá
þessum höfðingjum. Þá var ekki spurt
um stétt né stöðu, allir voru velkomn-
ir.
Doddi sótti stíft sjóinn á Ásgeiri
sínum og reri á línu á vetrarvertíðum,
stundum allt norður fyrir Kolbeinsey
og fiskaði jafnan mikið. Ekki voru
flókin siglingar- eða fiskileitartæki
um borð en jafnan skilaði Ásgeir sér í
land á réttum tíma þrátt fyrir rysjótt
veður á erfiðu hafsvæði. Doddi frændi
var hörku sjómaður en hann var gæt-
inn og hafði öryggið jafnan í fyrir-
rúmi.
Þess vegna var hann alla tíð farsæll
skipstjóri sem lét sér annt um mann-
skapinn og bátinn sinn.
Seinna keyptu þeir félagar sér
stærri bát sem einnig var skírður Ás-
geir og stunduðu þeir m.a. rækjuveið-
ar á Skjálfandaflóa ásamt línuveiðum.
Á síðustu árum hefur Doddi gert út
minni bát með syni sínum Ásgeiri og
hefur hann þá sinnt störfum í landi og
hefur beitningaskúrinn hans verið
viðkomustaður margra Húsvíkinga
sem leið hafa átt um höfnina. Kannski
gerðu menn sér ferð niður á höfn til
að koma við í beitningaskúrnum hans
Dodda. Ég fór þangað oft þegar ég
kom til Húsavíkur til að heilsa uppá
frænda minn sem jafnan dreif mig
með sér heim ef ekki voru háalvar-
legar umræður í gangi í skúrnum.
Doddi var einstakt ljúfmenni, hafði
góða kímnigáfu og jafnan lék bros um
varir. Ég veit hins vegar að hann gat
verið harður í horn að taka ef svo bar
undir en það sá ég aldrei.
Mín fyrsta minning um Dodda er
þegar ég kom til Húsavíkur sem smá-
polli með móður minni í heimsókn á
strandferðaskipi. Þá vorum við hjá
Dodda og Rikku og er mér sérstak-
lega minnisstætt þegar við Ásgeir
frændi minn ásamt fleiri strákum not-
uðum pottlokin hennar Rikku fyrir
stýri í bílaleik og brunuðum á milli
hæða og fylgdi okkur mikill hávaði.
Einnig man ég þegar Doddi fór
með mig niður á bryggju til að sýna
mér alla bátana. Mér fannst þetta
mikill ævintýraheimur, allt var svo
stórt og mikið miðað við smáþorpið
þar sem við bjuggum vestur á fjörð-
um og bátarnir svo óendanlega marg-
ir.
Einnig kem ég mikið til Kristjáns,
eða Kidda, en þeir voru einu synir
þeirra Sigríðar og Ásgeirs. Engin
stelpa var á heimilinu fyrr en móðir
mín kom sem unglingur inná heimili
þeirra er hún stundaði nám á Húsa-
vík, en móðir hennar Bára var systir
Ásgeirs. Ég held að Ásgeir og Sigga
hafi ætíð litið á móður mína eins og
dóttur sína. Afskaplega kært var á
milli ömmu minnar Báru og bræðra
hennar, hún eina stelpan en þeir sex
bræðurnir.
Friðrika Þorgrímsdóttir, eða Rikka
eins og hún er kölluð, hefur verið lífs-
förunautur Dodda í meira en hálfa
öld. Heimili þeirra hefur verið fastur
viðkomustaður minn þegar ég hef átt
leið um Húsavík og þar hefur alltaf
verið einstaklega gott að koma enda
gestrisni þeirra beggja við brugðið.
Í veikindum Dodda hafa Rikka og
Kiddi verið vakin og sofin yfir líðan
hans og gat hann þess vegna verið
heima hjá Rikku sinni allt þar til fjór-
um dögum fyrir andlátið.
Oft sátum við frændur við eldhús-
borðið og sagði hann mér sögur af
sjónum, útgerðinni eða úr bænum og
Rikka töfraði fram glæsilegt kaffi-
borð á nokkrum mínútum. Doddi
sagðist hafa verið að kaupa svo og svo
mörg tonn af kvóta, hann keypti og
fiskaði eins og hann mátti, en hann
skildi ekkert í þeim sem voru að
braska og leiga frá sér kvótann til að
gera ekki neitt. Nei, það var ekki hans
stíll. Hans stíll var að vinna og afla.
Þess vegna var hann einn af mátt-
arstólpum Húsavíkur og líka einn af
máttarstólpum íslensku þjóðarinnar.
Takk fyrir trygga vináttu, frændi
minn, megi guð geyma þig.
Við móðir mín og fjölskylda, send-
um öllum ættingjum Dodda innilegar
samúðarkveðjur.
Páll Ægir Pétursson.
Mín fyrstu kynni af Dodda voru
þegar ég kom um tvítugt til Húsavík-
ur með kærustunni og við fórum í
heimsókn til Rikku frænku og Dodda.
Á móti mér tók stór og veðurbarinn
sjóari með stórt hjarta, sem elskaði að
vera innan um börn, sem öll kölluðu
hann afa Dodda. Þau hjónin tóku á
móti okkur eins og við værum þeirra
eigin börn og svo hefur verið um okk-
ar börn líka og eiga þau ótal minn-
ingar um Kiwanis útilegur og
skemmtanir sem þótti sjálfsagt að
bjóða þeim í rétt eins og öllum hinum
börnunum. Doddi átti fleiri „barna-
börn“ en gengur og gerist af því að
hjá honum voru öll börn afabörnin
hans. Að heimsækja afa Dodda og
Rikku (því maður nefnir ekki afa
Dodda nema Rikka fylgi með, svo
samhentar voru þessar elskur) var
alltaf svo notalegt. Hvort sem um var
að ræða kaffisopa, gott vínglas með
smá pólitísku ívafi, (þó ekki værum
við nú alltaf sammála um menn og
málefni), eða svartfuglsveisluna ár-
legu um jólin sem við söknuðum lengi
eftir að við fluttum suður, alltaf voru
móttökurnar eins og um kóngafólk
væri að ræða og enginn fór svangur
frá þeim bæ, svo mikið er víst.
Þegar við fjölskyldan fluttum suður
sáum við minna af Dodda en hann
fylgdist með og kom í heimsókn til
okkar og við til hans. Honum fannst
ófært að hafa okkur fisklaus þarna á
Suðurlandinu, því ekki væri ætan fisk
að fá þar að hans sögn. Hann kom því
Þórður Ásgeirsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson