Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 257. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is MISKUNN DALFISKA FJÓRÐA SÓLÓPLATA EGILS ÓLAFSSONAR ER BENSÍN FYRIR MJÚKAR VÉLAR >> DAGLEGT LÍF ENGIN SÁL GERVIGREINDUR ÚTVARPSMAÐUR Í SMÍÐUM Í HR >> 28 Fá›u sætt bros að launum! Í HÖNNUNARFERLI nýs há- tæknisjúkrahúss Landspítalans er gert ráð fyrir sérstöku göngudeilda- húsi þar sem búast má við að deild- irnar verði reknar með talsvert öðru sniði en nú þekkist, eða einkareknar. „Hugmyndin er að draga að spít- alanum þá starfsemi sem hefur verið að byggjast upp úti í bæ,“ segir Ing- ólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tækja og eigna á LSH, og bætir því við að þeim möguleika sé haldið opn- um að bjóða læknastofum og öðrum aðilum í heilbrigðisgeiranum sem vilja, að vera með einkarekstur í göngudeildahúsinu. Ingólfur segir hugmyndina þó enn vera á byrjunarstigi og að endanleg ákvörðun um húsið liggi ekki fyrir. Þrátt fyrir það verður tekið tillit til hugmyndarinnar í hönnun sjúkra- hússins þannig að þar verði aðskilið göngudeildahús. Ingólfur bendir á að LSH sé háskólasjúkrahús og afar mikilvægt sé fyrir nema í heilbrigð- isgreinum að hafa aðgang að slíkri starfsemi. Á einkareknum stofum fari fram öðruvísi starfsemi og með því að þær séu á sama svæði fái nem- ar þjálfun í víðtækari verkum. Læknastofum boðið á LSH Gert ráð fyrir einkarekstri á nýja hátæknisjúkrahúsinu Bangkok. AFP, AP. | Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, sagðist í gær vilja að efnt yrði til þingkosn- inga í landinu sem fyrst en kvaðst vera hættur í stjórnmálum og hvatti til þjóðar- sáttar eftir valdarán hersins. Thaksin er nú í London og kveðst ætla að helga sig „rannsóknum, þróunarmálum og hugsanlega góðgerðarstarfsemi í þágu Taí- lands“. Thaksin gaf til kynna að hann hefði sætt sig við það að hann væri ekki lengur við stjórnvölinn í landinu eftir að hafa verið við völd í fimm ár. Banna fundi stjórnmálaflokka Nýju ráðamennirnir í Taílandi, undir for- ystu Sonthi Boonyaratglin hershöfðingja, hertu tök sín á landinu gær. Þeir bönnuðu meðal annars alla fundi stjórnmálaflokka og stofnun nýrra flokka þar til annað yrði ákveðið. Þeir tóku sér einnig löggjafarvald eftir að hafa leyst þingið upp og numið stjórnarskrána úr gildi. Talsmaður herforingjanna staðfesti að fjórir af helstu samstarfsmönnum Thaks- ins, þeirra á meðal þrír ráðherrar, væru í varðhaldi. Herforingjarnir ráku einnig þrjá embættismenn, sem taldir eru styðja Thaksin, og herforingi var skipaður yfir- maður leyniþjónustu landsins. Sonthi hershöfðingi hefur sagt að Thaks- in sé velkomið að snúa aftur til Taílands en hann verði ef til vill sóttur til saka, líklega fyrir spillingu. AP Hættur Thaksin Shinawatra með dóttur sinni, Pinthongta, í London í gær. Thaksin boðar þjóðarsátt Kveðst vera hættur af- skiptum af stjórnmálum  Herforingjarnir herða | 16 VÍSIR að íslenskri leyniþjónustu eða öryggislögregludeild var starf- ræktur hér á landi frá því skömmu fyrir seinni heimsstyrjöldina. Voru það áhyggjur ráðamanna af upp- gangi nasista og kommúnista sem réðu mestu um stofnun þjónust- unnar, svo og reynsla þeirra af framgöngu kommúnista á fjórða áratugnum, meðal annars Gúttó- slagnum svonefnda þegar 19 af 28 lögreglumönnum lágu sárir og óvígir eftir átök við æstan múg vopnaðan bareflum. Þetta kemur meðal annars fram í grein eftir Þór Whitehead, pró- fessor, í nýju tölublaði af Þjóðmál- um, undir heitinu Smáríki og heimsbyltingin, þar sem sagt er frá viðbrögðum íslenska ríkisins við hættunni sem lýðræðisskipulaginu stafaði af byltingarstarfsemi og of- beldisverkum á tímum kreppu, heimsstyrjaldar og kalda stríðsins. Fram kemur að Hermann Jón- asson, þáverandi forsætisráðherra, fól lögreglustjóranum í Reykjavík, Agnari Kofoed-Hansen, að stofna „eftirgrennslanadeild“. Það verk- efni var hjá útlendingaeftirliti lög- reglunnar næstu tíu árin, en þá beitti Bjarni Benediktsson, þáver- andi dómsmálaráðherra, sér fyrir stofnun strangleynilegrar öryggis- þjónustudeildar hjá lögreglu- stjóraembættinu í nánum tengsl- um við dómsmálaráðuneytið. Árni Sigurjónsson, sem síðar varð yfir- maður Útlendingaeftirlitsins, starfaði þá þegar að öryggismálum og Sigurjón Sigurðsson, sem þá var orðinn lögreglustjóri, valdi auk þess Pétur Kristinsson úr hópi lög- reglumanna til þessara starfa. Sá Pétur um gagnasöfnun og spjald- skrár en Árni um aðgerðir og eft- irlit. Einn maður bættist við síðar og að auki var hægt að kalla til 1–2 menn úr lögregluliðinu í verkefni. Íslensk leyniþjónusta var starfrækt í áratugi Bjarni Benediktsson stofnaði strangleynilega öryggisþjónustudeild um 1950 Í HNOTSKURN »Bjarni Benediktsson,þáverandi dómsmála- ráðherra, beitti sér fyrir stofnun strangleynilegrar öryggisþjónustudeildar. »Gögn leyniþjónust-unnar brennd í sumar- bústað árið 1976. »Aflað var upplýsingaum grunsamlega menn og ýmsa starfsemi sem laut að öryggi landsins.  Strangleynileg | 32–33 „TÆPU ári af býrókratískri bar- áttu er lokið!“ sagði kampakátur Náttmörður eftir að hann fékk uppáskrifað leyfi fyrir nýja nafn- inu sínu í dómsmálaráðuneytinu í gær. „Ég var á tónleikaferð um Bandaríkin síðasta sumar, og vaknaði einn morguninn í rútunni upp af mjög slæmum draumi. Ég sagði við strákana: „Ég var með þennan rosalega náttmörð!“ Strák- arnir fóru að hlæja, en fóru svo að kalla mig Náttmörð. Ég kunni bara mjög vel við nafnið og vildi taka það upp.“ Náttmörður heitir hér eftir fullu nafni Benjamín Náttmörður Árnason, en hann er söngvari hljómsveitarinnar Man Behind the Wheel og gítarleikari í Flop House Palace. Hann sagði fjölskylduna lítið kippa sér upp við nýju nafngjöfina. „Þau spá nú bara því að þetta eldist af mér, og ég fari að vinna í fjölskyldufyrirtæk- inu.“ Nú þegar hann sé búinn að fá leyfið megi skíra hvern sem er Náttmörð. „Ég vona bara að ég sjái marga litla Náttmerði í fram- tíðinni. Náttmörður lifir!“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Martröðin á enda, Náttmörður lifir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.