Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 35 SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur ávallt haft það að stefnu sinni að skattar skulu vera eins lágir og hægt er og að skattkerfið skuli vera einfalt og gegnsætt. Það er ljóst að á síðustu árum hafa verið stigin mörg jákvæð skref í þá átt, til að mynda með lækkun tekjuskatts, lækkun og einföldun erfðafjárskatts og afnám eignaskatts. Allt eru þetta jákvæðar aðgerð- ir í átt að einföldu og sanngjörnu skattkerfi. Enn eru þó brýn verk- efni sem ber að vinna að á sviði skattamála og ber þar hæst virð- isaukaskattinn (vsk). Almenna virðisauka- skattprósentan er of há 24,5%. Kerfið er of flók- ið með tveimur skatt- þrepum 14% og 24,5% og fjölda undanþága. Á síðustu misserum hafa allmargar áskoranir borist stjórn- völdum um undanþágur og eða breytingar á virðisaukaskattkerfinu. Matarverð og lyfjaverð Hátt matvælaverð hefur verið mik- ið í umræðunni. Ein af þeim leiðum sem bent hefur verið á til að lækka matvælaverð er að lækka virð- isaukaskatt á matvæli. Matvæli bera 14% vsk en sælgæti ber 24,5% vsk. Hvar liggja mörkin? Tvö skattþrep bjóða upp á vandamál, í hvoru þrep- inu vörurnar eiga að vera. Er hafra- kex matvæli eða sælgæti? Hvað ef kexið er með súkkulaði? Tökum sem dæmi kakóduft. Kakóduft sem notað er til að blanda við vatn og drekka ber 24,5% vsk, ef það er aftur á móti flokkað sem bökunarvara ber það einungis 14% vsk. Rökin fyrir slíkri ákvarðanatöku eru engin og hið op- inbera á ekki að taka þátt í neyslu- stýringu með þessum hætti enda kemur ríkinu ekkert við hvort kakóið er notað til að baka súkkulaðiköku eða blanda kakódrykk. Hátt lyfjaverð hér á landi hefur verið mikið til umræðu. Lyf bera 24,5% vsk og hafa Samtök eldri borg- ara krafið ríkisstjórnina um aðgerðir til lækkunar lyfjaverðs. Ein af þeim leiðum sem þeir hafa nefnt er að lækka vsk á lyfjum. Samkeppnisforskot ríkisstofnana Samtök verslunar og þjónustu og Samtök sprotafyrirtækja hafa lagt til að ríkisfyrirtæki fái endurgreiddan virðisaukaskatt af allri aðkeyptri þjónustu. Samtökin telja háan virð- isaukaskatt valda því að ríkisfyrirtæki veigri sér við að kaupa þjónustu af einkafyrirtækjum og ráði frekar til sín starfs- menn til að annast stoð- þjónustu sem einkaað- ilar á samkeppnismarkaði sérhæfa sig í að veita. Dæmi um þetta er t.d. tölvuþjónusta, örygg- isgæsla og bókhalds- þjónusta. Ríkisstofnanir selja sjaldnast út þjónustu með virðisaukaskatti og hafa því takmarkað svigrúm til að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af að- föngum. Þessi staða getur líka komið upp í fjármála- og tryggingafyr- irtækjum sem almennt eru ekki að selja skattskylda þjónustu. Skekkir þetta mjög samkeppnisstöðu fyr- irtækja og bitnar hart á t.d. fyr- irtækjum í upplýsingatækni. Ferðaþjónusta Samtök aðila í ferðaþjónustu hafa bent á hversu flókið virðisaukaskatt- kerfi þeirra félagsmenn búa við. Fólksflutningar bera ekki vsk, gist- ing ber 14% vsk en veitingahús selja veitingar sínar með 24,5% vsk. Hótel sem gjarnan selja nóttina með morg- unverði þurfa að sundurliða reikn- inga sína og sýna fram á hlutfall morgunverðarins í heildarverðinu. Veitingahúsin greiða 14% vsk af flestum aðföngum þ.e. matvælum og þarf því sérstaka reiknireglu til að ákvarða skatt þeirra þar sem þeim ber að selja veitingar sínar með 24,5% vsk. Samtök aðila í ferðaþjón- ustu hafa margoft skorað á rík- isstjórnina að einfalda virð- isaukaskattkerfið enda ljóst að flókið kerfi veldur miklum kostnaðarauka við úrvinnslu þess. Einföldum kerfið – flatan virðisaukaskatt Hvernig á ríkisstjórnin að bregð- ast við kröfum um undanþágur og breytingar á virðisaukaskattkerfinu? Á að bregðast við með sértækum að- gerðum eða almennum aðgerðum sem gagnast öllum? Að mínu viti er ljóst að sértækar aðgerðir bera sjald- an tilskildan árangur og flækja alltaf málið. Næstu skref ríkisstjórn- arinnar á sviði skattamála á að vera að einfalda virðisaukaskattkerfið. Gott skattkerfi aflar hinu opinbera tekna án þess að valda neyslustýr- ingu. Besta leiðin til að tryggja skil- virka skattlagningu er lágt skatthlut- fall og breiður skattstofn. Einnig þarf skattkerfið að vera einfalt til að halda kostnaði við framkvæmd og eftirlit í lágmarki. Ég vil því sjá ríkisstjórnina beita sér fyrir einu lágu virð- isaukaskattþrepi. Almennt virðisaukaskatthlutfall á Íslandi er eitt það hæsta í heimi. Í ESB-ríkjunum er skatthlutfallið að meðaltali tæplega 20%. Ísland á að keppast við að vera meðal þeirra ríkja sem innheimtir hvað lægstan skatt hvort sem það er af tekjum eða vörum. Eftir því sem virðisauka- skatthlutfall er hærra, því meiri áhrif hefur skatturinn á almennt vöruverð og því meiri verður hvatinn til und- anskota. Næstu skref í skattamálum Bryndís Haraldsdóttir fjallar um skattamál » Gott skattkerfi aflarhinu opinbera tekna án þess að valda neyslu- stýringu. Besta leiðin til að tryggja skilvirka skattlagningu er lágt skatthlutfall og breiður skattstofn. Bryndís Haraldsdóttir Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi. VONARNEISTINN sem kvikn- aði þegar friðarsamningurinn í Darf- ur var undirritaður fyrir fjórum mánuðum er við það að slokkna eftir að bardagar blossuðu upp á milli stríðandi fylkinga að nýju. Þúsundir súdanskra stjórnarhermanna hafa verið fluttar til héraðs- ins í trássi við frið- arsamkomulagið og gripið hefur verið til loftárása að nýju. Ég fordæmi kröft- uglega þessa stig- mögnun átaka. Rík- isstjórn Súdan ætti að stöðva nú þegar fram- sókn sína. Allir aðilar ættu að axla ábyrgð sína og standa við lof- orð sín og hlíta álykt- unum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Síðustu bardagar hafa kallað enn meiri hörmungar yfir íbúana sem hafa mátt þola alltof mikið nú þegar. Enn einu sinni hefur fólki verið stökkt á flótta. 1,9 milljónir manna hafa nú flosnað upp. Nærri þrjár milljónir manna í Darfur verða að treysta á alþjóðlega aðstoð til að fá mat, húsaskjól og læknisþjónustu. Bardagarnir gera hjálparstarfs- mönnum illa kleift að ná til þessa fólks. Hjálparstarfsmenn hafa mátt þola hrottalegt ofbeldi, harðræði og illskeyttan róg. 12 hjálparstarfs- menn hafa verið drepnir á síðustu tveimur mánuðum Leiðtogar heimsins samþykktu fyrir ári síðan að öllum ríkjum bæri skylda til að vernda þegna sína gegn þjóðarmorði, stríðsglæpum, þjóð- ernishreinsunum og glæpum gegn mannkyninu. Ef ríkisstjórn Súdans bregst þessari heilögu skyldu sinni mun hún uppskera lítilsvirðingu og skömm allrar Afríku og alls heims- ins. Hvorki þeir sem taka slíkar ákvarðanir eða framfylgja þeim skulu halda að þeir komist hjá ábyrgð. Ég hvet ríkisstjórn- ina enn einu sinni til að koma í veg fyrir þetta með því að fallast á ályktun Öryggisráðsins um að senda frið- argæslusveitir Samein- uðu þjóðanna á vett- vang en þær yrðu betur tækjum búnar og betur fjármagnaðar en nú- verandi sveitir Afríku- sambandsins og hafa skýrara umboð til að vernda þá sem eru í hættu staddir. Um 10 þúsund liðsmenn Samein- uðu þjóðanna eru nú þegar í Súdan. Þeir hafa í meira en ár lagt lóð sitt á vogarskálarnar til að framfylgja friðarsamkomulagi á milli Norður- og Suður-Súdan. 31. ágúst heimilaði Öryggisráðið að senda skyldi allt að 17.300 manna friðargæslulið til Darfur um leið og ráðið ítrekaði áframhaldandi virðingu fyrir full- veldi, einingu, sjálfstæði og landa- mærum Súdans. Markmið liðsins væri að framfylgja friðarsam- komulaginu í Darfur og gera íbúum héraðsins kleift að búa við frið og virðingu. Það eru engin dulin mark- mið að baki þessu; einungis vilji til að hjálpa. En ríkisstjórn Súdans hef- ur hingað til neitað að fallast á þetta. Það mun taka talsverðan tíma að flytja liðsauka SÞ til Súdans. Þess vegna samþykkti Öryggisráðið einn- ig að efla sveitir Afríkusambandsins (AMIS) til þess að þær geti haldið áfram störfum þar, uns SÞ liðið kemur á vettvang. Afríkubúar sjálfir hafa margsinnis sagst tilbúnir að brúa þetta bil en jafnframt sagt skýrum orðum að liðsmenn þeirra sem hafa sýnt hugprýði við erfiðar aðstæður, þurfi meiri styrk. Sameinuðu þjóðirnar og Afríku- sambandið hafa af þessum sökum gert með sér samkomulag um þá að- stoð sem Afríkusambandið þarf á að halda til að brúa bilið. En einnig er þörf fyrir að aðrir veitendur að- stoðar styðji við bakið á verkefninu. Það hefur Arababandalagið gert en jafnframt gefið til kynna að það telji að AMIS eigi að gegna störfum til áramóta. Ég hef margsinnis reynt að út- skýra þetta fyrir ríkisstjórninni og reynt að kveða í kútinn allan mis- skilning og bábiljur. Ég hef lagt áherslu á það hve mannúðarvandinn er mikill jafnt opinberlega sem í einkasamtölum og reynt að höfða til skynsemi ríkisstjórnarinnar. En mín rödd nægir ekki. Jafnt einstaklingar sem ríkisstjórnir verða að láta rödd sína heyrast. Hver sá, í Afríku sem annars staðar, sem hefur tök á að beita áhrifum sín- um við ríkisstjórn Súdans, ætti að gera það án tafar. Aðildarríki öryggisráðsins og þá einkum fastafulltrúanna fimm, Bandaríkjamanna, Breta, Frakka, Kínvrjar og Rússa bera þá ábyrgð að tala einni, styrkri og skýrri röddu við ríkisstjórn Súdans. Ég hvet alla til að taka undir með mér í þeirri bón til ríkisstjórnar Súdans að hún fylgi anda ályktana Öryggisráðsins og samþykki að sveitir SÞ taki við af Afríkusambandinu og að hún taki þátt af auknum krafti þátt í frið- arferlinu. Það er engin hernaðarlausn á ástandinu í Darfur. Deilendur hljóta að gera sér það ljóst núna. Eftir alla þá tortímingu og eyðileggingu sem orðið hefur, hljóta stríðandi fylk- ingar að skilja að einungis verður stillt til friðar í héraðinu með póli- tísku samkomulagi með fullri þátt- töku allra. Fyrir tólf árum brugðust Samein- uðu þjóðirnar og heimurinn allur íbúum Rúanda á ögurstundu. Getum við nú, með góðri samvisku setið að- gerðalaus hjá á meðan harmleik- urinn versnar í Darfur? Sameiginleg ábyrgð okkar allra Kofi A. Annan hvetur rík- isstjórnir til að beita áhrifum sínum í sambandi við frið- arferlið í Darfur » ...að taka undir meðmér í þeirri bón til ríkisstjórnar Súdans að hún fylgi anda ályktana Öryggisráðsins og sam- þykki að sveitir SÞ taki við af Afríkusamband- inu... Kofi Annan Höfundur er framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Í DAG fagnar Félag íslenskra leikara 65 ára afmæli sínu. Það var þann 22. sept- ember 1941 sem haldinn var fundur í Iðnó, húsi iðnaðarmanna, við Tjörnina en þar hittist hópur leikara til að stofna með sér félag. Í Reykjavík á þessum tíma var ekkert atvinnu- leikhús. Þeir leikarar sem léku hjá Leikfélagi Reykjavíkur fengu ekki laun fyrir æfingar en einhverja umbun fyrir sýningar en oft vildi það bregðast því fyrir kom að Leikfélagið var rekið með halla og þá fékk enginn neitt. Rík- isútvarpið var í rauninni eini vísirinn að atvinnu- leikhúsi hér á landi, það var stofnun sem ríkið rak og ekki var ætlast til þess að fólk ynni kaup- laust. Fyrsti formaður Félags íslenskra leik- ara var kjörinn Þor- steinn Ö. Stephensen. Hlutverk félagsins hefur verið hið sama frá upphafi og í fyrstu lögum félagsins segir í annarri grein: „Markmið félags- ins er: A) að gæta hagsmuna íslenskra leikara innan félags- ins með því að ákveða lágmarkstaxta fyrir öll störf þeirra. B) að reyna að hafa áhrif á úthlutun fjár- og styrkveitinga til leik- listarmála. C) að fé- lagið komi fram fyrir hönd stéttarinnar gagnvart ein- staklingum og op- inberum fyrirtækjum í öllum hagsmuna- málum hennar.“ Þessi lög eru enn í fullu gildi hjá félaginu þótt ýmislegt hafi breyst í starfsum- hverfi félagsmanna. Félag íslenskra leikara er stéttarfélag leikara, dans- ara, söngvara og leikmynda- og bún- ingahöfunda. Í félaginu eru um 430 félagar sem að stórum hluta hafa at- vinnu af list sinni. Hlutirnir hafa tekið gríðarlegum breytingum frá árinu 1941. Útvarpsleikhúsið – okk- ar fyrsti launaði vettvangur – er enn að en í dag eru starfandi þrjár stór- ar leiklistarstofnanir; Þjóðleikhús, Borgarleikhús og Leikfélag Ak- ureyrar, og þar að auki eru fjöl- margir sjálfstæðir leikhópar sem veita listamönnum atvinnu. Leik- listin hér á Íslandi er í miklum blóma og hefur verið í fjölda ára. Gríðarleg aðsókn er að leikhúsunum á ári hverju og ætla má að aðsókn- artölur nálgist íbúafjölda hér á landi. Á síðustu 65 árum hafa orðið hér miklar breytingar til góðs á menn- ingarlífi þjóðarinnar og fjölbreytnin er gríðarleg en það sem ekki hefur breyst til batnaðar eru laun leik- húslistamanna sem enn eru allt of lág að okkar mati og því eru helstu baráttumál félagsins þau sömu og við stofnun, þ.e. að reyna að bæta kjör þess fólks sem stundar þessa listgrein. Hér hjá félaginu eru gerðir samningar við helstu leiklistarstofn- anir, einnig við Ríkisútvarpið, kvik- myndaframleiðendur, Íslensku óp- eruna og hin ýmsu fyrirtæki í auglýsingum, talsetningum og hljóð- diskum. Í núverandi stjórn félagsins eru eftirtaldir: Edda Arnljótsdóttir varaformaður, Jóna Guðrún Jóns- dóttir ritari, Valur Freyr Einarsson gjaldkeri, og Björn Ingi Hilmarsson meðstjórnandi. Framkvæmdastjóri félagsins er Hrafnhildur Theodórs- dóttir. Félagið er til húsa á Lind- argötu 6 í Reykjavík. Ég óska félagsmönnum FÍL til hamingju með afmælisbarnið og bið um stuðning til að það megi dafna. Félag íslenskra leikara 65 ára Randver Þorláksson skrifar í tilefni af 65 ára afmæli FÍL Randver Þorláksson » Gríðarleg að-sókn er að leikhúsunum á ári hverju og ætla má að að- sóknartölur nálgist íbúa- fjölda hér á landi Höfundur er formaður FÍL. Úr Geggjuðu konunni í París, 1979.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.