Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 19
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Í KVÖLD verður Sjónlistarorðan
veitt í fyrsta sinn með viðhöfn í Sam-
komuhúsinu á Akureyri. Er orðan
veitt annars vegar á
sviði myndlistar og hins
vegar á sviði hönnunar.
Þrír listamenn eða hóp-
ar eru tilnefndir í hvor-
um flokknum fyrir sig og
nær tilnefningin til ein-
stakra sýninga eða
verka sem voru sýnd
einhvern tímann á tólf
mánaða tímabili frá
2005. Við sama tilefni
verður heiðursorða
Sjónlistar afhent mynd-
listarmanni fyrir ævistarf hans. Sýnt
verður frá athöfninni í beinni út-
sendingu Sjónvarpsins.
Danskur styrktaraðili
Vegsemd Sjónlistarorðunnar
fylgja peningaverðlaun sem eru með
þeim veglegri sem þekkjast hér-
lendis, eða tvær milljónir króna í
hvorum flokknum. Inn fjárfesting
leggur til verðlaunafé fyrir myndlist
og mun forstjóri fyrirtækisins, Ing-
unn Wernersdóttir, afhenda verð-
launin í kvöld.
Það vekur svo athygli að það er
danskt fyrirtæki, Montana, sem
leggur til verðlaunaféð fyrir hönnun.
Forstjóri og aðaleigandi fyrirtækis-
ins, Peter J. Lassen, mun færa
sigurvegaranum verðlaunin en Las-
sen er sjálfur þekktur húsgagna-
hönnuður. Hann er maðurinn á bak
við húsgagnalínu Montana en sú
framleiðsla myndar kjarnann í ört
útvíkkandi starfssviði fyrirtækisins.
Lassen, sem er á 76. aldursári,
hefur um langt árabil stutt við bakið
á listmönnum af rausnarskap og
þykir hann gjarnan djarfur í vali
sínu á listafólki. Meðal þeirra sem
hann hefur styrkt er Ólafur Elías-
son. Þá styrkir hann einnig verkefni
á vegum dönsku óperunnar.
Aðspurður segir Lassen að Lista-
safnið á Akureyri hafi upphaflega
leitað til hans og spurt hvort hann
vildi koma með þessum hætti að
Sjónlistarverðlaununum. Hann hafi
einfaldlega slegið til. Hann segist
enda hafa trú á að verðlaun sem
þessi efli listalífið í landinu. Listina
telur Lassen svo hafa mikilvægu
hlutverki að gegna.
„Ég styð listir þar sem listin göfg-
ar. Hún veitir kraft og frelsar and-
ann; gerir fólk frjálst til að fara sínar
eigin leiðir. Það eru svo margir sem
lúta harðstjórn vanans og almenn-
ingsálitsins.“
Lassen segist hafa nokkra þekk-
ingu á íslenskri hönnun. Þeirri þekk-
ingu hefur hann viðað að sér í þó-
nokkrum Íslandsheimsóknum sínum
og í gegnum dönsku húsgagnahátíð-
ina sem haldin er árlega í Bellacen-
ter þar í landi. Þá segir hann að við-
skiptavini Montana á Íslandi, Eyjólfi
í Epal, sé mjög umhugað um upp-
gang íslenskrar hönnunar og það sé
hans vilji að styðja vin sinn í þeirri
viðleitni.
Vegleg bókaútgáfa á vegum
Listasafnsins á Akureyri
Hinir tilnefndu listamenn eru ólík-
ir og list þeirra fjölbreytt. Þetta eru
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönn-
uður, Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður, arkitektarnir Margrét
Harðardóttir og Steve Christer hjá
Studio Granda og myndlistar-
konurnar Hildur Bjarnadóttir, Katr-
ín Sigurðardóttir og Margrét H.
Blöndal. Nú stendur yfir sýning á
verkum þeirra í Listasafninu á Ak-
ureyri en safnið verður opið frá kl.
10 til 22 í dag og á morgun í tilefni
verðlaunaafhendingarinnar. Sýn-
ingin stendur til 22. október.
Safnið gefur einnig út 120 síðna
bók á íslensku og ensku um lista-
mennina af þessu tilefni. Þar er að
finna upplýsingar um feril þeirra,
umfjöllun og viðtöl ásamt niðurstöðu
dómnefndar og völdum myndum.
Ritstjóri er Hannes Sigurðsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Akur-
eyri, sem jafnframt er sýningar-
stjóri og upphafsmaður
verkefnisins.
Sjónlist | Hátíðarhöld vegna Sjónlistarverðlaunanna 2006 fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld
Sjónlistarorðan veitt í fyrsta sinn
Danskt fyrirtæki
styrkir verkefnið
um tvær milljónir
Mikill listavinur Fyrirtæki Peter J. Lassen, Montana, leggur til verðlaunaféð í flokki hönnunar á Sjónlist 2006.
Lassen hefur styrkt marga listamenn í gegnum tíðina, m.a. Ólaf Elíasson, og er sjálfur framúrskarandi hönnuður.
Ráðstefnan er öllum opin.
Aðgangseyrir kr. 1.500
Fundarstjóri: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir