Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
LEYFILEGT verður að veiða 45
þúsund rjúpur í haust, samkvæmt
fyrirkomulagi umhverfisráðherra.
Veiðitími verður styttur úr 47 dög-
um í 26 en tímabilið verður óbreytt
frá sl. hausti. Sölubann verður áfram
og eru veiðimenn hvattir til að gæta
hófs og stunda ábyrgar veiðar. Jón-
ína Bjartmarz umhverfisráðherra
segir brýnt að takmarka veiðitímann
til að draga úr sókninni en talningar
hafa sýnt að rjúpnastofninn sé á nið-
urleið eftir tveggja ára uppsveiflu.
„Þetta er þessi rannsóknarspurn-
ing og viðfangsefni okkar allra, ekki
síst Náttúrufræðistofnunar,“ segir
Jónína um minnkandi stofn. „Út frá
því hvernig stofninn þróaðist árin
2003 og 2004 má segja að það hafi
komið verulega á óvart núna að
stofninn sé minni og virðist minnk-
andi.“ Jónína segir helstu ástæður
líklega slæmt veðurfar sl. haust og
vor, sem valdið hafi vanhöldum.
Á síðasta ári var stefnt að 70 þús-
und fugla veiði og nemur fækkunin
því um 25 þús. fuglum. Talið er að
um fimm þúsund rjúpnaveiðimenn
stundi veiðarnar og því hægt að
álykta sem svo að um níu rjúpur séu
á mann. Ráðherra segir hins vegar
engan kvóta vera settan á.
„Við erum ekki að tala um neinn
kvóta, hvorki níu, tíu eða fimmtán
rjúpur. Frekar er viðmiðunin sú að
hver og einn veiði á sitt jólaborð –
fyrir sína fjölskyldu. Það getur verið
að það dugi sex rjúpur á eitt borðið
en það þurfi fimmtán á annað. Þetta
er svona inntakið í þessari hófsem-
ishvöt sem hvatningarátakið gengur
út á,“ segir Jónína.
Óheimilt verður að veiða á mánu-
dögum, þriðjudögum og miðviku-
dögum, að tillögu Skotvís, en tíma-
bilið verður það sama og í fyrra, frá
15. okt. til 30. nóvember. „Þetta var
þannig að Náttúrufræðistofnun
lagði til að veitt yrði í 3 vikur í nóv-
ember en við vorum á móti því,“ seg-
ir Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotvís, sem telur að með fækkun
veiðidaga í miðri viku verði magn-
veiðimönnum gert erfiðara fyrum
vik.
Lélegt eftirlit í fyrra
Samkvæmt fyrirkomulagi um-
hverfisráðuneytis verður haldið
áfram með hvatningarátak meðal
veiðimanna um hófsamar og ábyrgar
veiðar og segir Sigmar að hafist
verði strax handa við að brýna það
fyrir veiðimönnum. Hann segir að
ríkisvaldið verði hins vegar einnig að
standa sig.
„Það er ekki nóg að við stöndum
okkur aðeins, við viljum að eftirlit
verði aukið,“ segir Sigmar en til-
kynnt hefur verið um að eftirlit verði
virkt, í samvinnu við dómsmálaráðu-
neytið, og úr lofti þegar kostur er á.
„Það var mjög lélegt eftirlit í fyrra,
bæði að menn væru að veiða á fjór-
hjólum eða vélsleðum og einnig að
menn væru að selja rjúpur. Við
leggjum að auki til að verndartollar
á innfluttri villibráð verði felldir nið-
ur. Þá geti menn keypt sér villibráð
á hagstæðu verði og það mun þá
draga úr eftirspurninni,“ segir Sig-
mar.
Viðunandi veiði talin
vera 45 þúsund rjúpur
Veiðitími styttur
úr 47 dögum frá
fyrra ári í 26 daga
á þessu hausti
Morgunblaðið/Ómar
Á jólaborðið Rjúpnaveiðimenn eru hvattir til að vera hófsamir og stunda
ábyrgar veiðar. Viðmiðunin er að veiða til þurftar fyrir sína fjölskyldu.
Í HNOTSKURN
»Leyfilegt er að veiða 45þúsund rjúpur í haust, 25
þúsund fuglum minna en í
fyrra.
»Veiðitímabilið verðuróbreytt frá fyrra ári, frá
15. október til 30. nóvember,
en óheimilt verður að veiða á
mánudögum, þriðjudögum og
miðvikudögum.
»Áfram verður friðað svæðiá Reykjanesskaga og virkt
eftirlit verður með veiðimönn-
um, á landi og úr lofti.
»Skotvís hefur farið fram áað verndartollar á inn-
fluttri villibráð verði felldir
niður.
Sigmar B.
Hauksson
Jónína
Bjartmarz
ARNBJÖRG Sveinsdóttir,
alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins í Norðaust-
urkjördæmi, sækist eftir að
leiða lista Sjálfstæðis-
flokksins í Norðaust-
urkjördæmi í komandi
kosningum til Alþingis.
Arnbjörg var fyrst kosin
á Alþingi árið 1995 og þá
sem þingmaður fyrir Aust-
urlandskjördæmi, leiddi
lista flokksins að afloknu
prófkjöri í kosningunum 1999 og
hefur verið þingmaður Norðaust-
urkjördæmis frá árinu 2004. Hún
hefur frá því hún var kjörin á þing
setið í flestum fastanefndum þess
og lengst í fjárlaganefnd, þar sem
hún á sæti nú. Árið 2005 tók Arn-
björg við stöðu þingflokksformanns
Sjálfstæðisflokksins en hún hefur
einnig átt sæti í miðstjórn flokksins
frá árinu 1995.
Arnbjörg hefur einnig gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum utan
þings á undanförnum árum, til
dæmis á vettvangi sveitarfélag-
anna. Hún situr einnig í stjórn
Byggðastofnunar og átti um tíma
sæti í stjórn Íbúðalána-
sjóðs.
„Byggðamál og byggða-
þróun eru mér mjög hug-
leikin og sér í lagi í
Norðausturkjördæmi. Við
blasa tækifæri í eflingu Ak-
ureyrar og Eyjafjarðar-
svæðisins, frekari upp-
bygging orkufreks iðnaðar
í kjördæminu, samgöngu-
verkefni sem geta skilað
bættum búsetuskilyrðum
og nýjum möguleikum í atvinnulífi
og sömuleiðis ýmis ný tækifæri sem
uppbyggingin á Austurlandi á und-
anförnum árum skapar.
Við sjálfstæðismenn skulum
ganga til næstu kosninga af krafti
og einurð. Við höfum sýnt fram á
styrkleika við stjórn landsins á und-
anförnum árum og sá kraftur er
svo sannarlega til staðar fyrir kom-
andi ár.
Með mína reynslu og áhuga í far-
teskinu er ég reiðubúin að leiða
lista okkar sjálfstæðismanna í kom-
andi kosningum og býð mig þess
vegna fram í fyrsta sæti listans,“
segir í yfirlýsingu frá Arnbjörgu.
Arnbjörg Sveinsdóttir
stefnir á forystusætið
Arnbjörg
Sveinsdóttir
KOLBRÚN Baldursdóttir
sálfræðingur hefur ákveðið
að gefa kost á sér í sjötta
sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins sem haldið
verður sameiginlega fyrir
Reykjavíkurkjördæmin tvö
í lok október nk.
Hún skipaði 9. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur í síðustu alþingiskosn-
ingum.
Kolbrún hefur verið virk í Sjálf-
stæðisflokknum undanfarin ár og
setið í stjórnum félaga þar. Hún
hefur verið löggildur sálfræðingur
frá 1992 og rekið eigin sálfræðistofu
í Reykjavík frá sama ári. Hún sat í
stjórn Stéttarfélags sálfræðinga á
Íslandi (SSÍ) frá 1994–2003, var for-
maður þess félags á árunum 1998–
2000 en sat sem ráðgjafi stjórnar
þess til ársins 2003. Hún átti sæti í
stjórn BHM árin 2001 til 2006.
„Vegna sérþekkingar eru heil-
brigðis- og félagsmálin
Kolbrúnu sérlega hugleik-
in. Málaflokkar, sem snúa
að börnum og unglingum
og hvernig hægt er að
tryggja enn frekar að hags-
munir þeirra séu ávallt
hafðir að leiðarljósi, eru
henni sérlega hugstæðir.
Aðrir málaflokkar eru
henni einnig ofarlega í
huga og má þar nefna at-
vinnumál svo og endurskoðun á
tollalögum með það fyrir augum að
lækka matarverð. Áhugi Kolbrúnar
beinist einnig að utanríkismálum í
tengslum við alþjóðasamstarf,“ seg-
ir m.a. annars í tilkynningu vegna
framboðsins.
Kolbrún hefur ritað fjölda greina
og má finna þær og fleira efni á vef-
slóðinni kolbrun.ws.
Frétt um framboð Kolbrúnar er
birt aftur vegna mistaka við birt-
ingu hennar í gær. Er beðist vel-
virðingar á þeim mistökum.
Kolbrún Baldursdóttir
gefur kost á sér í 6. sæti
Kolbrún
Baldursdóttir
GYLFI Arnbjörnsson sæk-
ist eftir 3.–4.sæti á lista
Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Gylfi hefur starfað fyrir
Alþýðusamband Íslands,
fyrst sem hagfræðingur
samtakanna og síðar sem
framkvæmdastjóri þeirra.
Hann er hagfræðingur að
mennt frá Verslunarhá-
skólanum í Kaupmanna-
höfn.
Auk starfa hans fyrir ASÍ hefur
hann meðal annars starfað sem sér-
fræðingur hjá Kjararannsóknar-
nefnd um þriggja ára skeið og
framkvæmdastjóri Eignarhalds-
félagsins Alþýðubankans, EFA hf. í
fjögur ár.
„Íslendingar standa um þessar
mundir frammi fyrir ýmsum ögr-
andi tækifærum aukinnar hnatt-
væðingar. Við erum órofa hluti af
alþjóðlegu samfélagi og samkeppn-
ishæfni okkar á meðal þjóða heims
er lykilatriði til þess að varðveita og
efla verðmætasköpun og hagsæld í
landinu. Við höfum alla burði til
þess að treysta enn frekar undir-
stöður öruggs velferðarkerfis sem
tryggir landsmönnum í
senn félagslegt réttlæti og
efnahagslegt öryggi. Í
þeim efnum skipta jöfn
tækifæri og hvetjandi að-
stæður til aukinnar mennt-
unar miklu máli og sömu-
leiðis aðstæður atvinnu-
lífsins til þess að virkja
ólíka þekkingu og hæfileika
á vinnumarkaðnum til fulls.
Nauðsynlegt er að
tryggja bæði atvinnulífinu og ein-
staklingum aukinn efnahagslegan
stöðugleika til langs tíma. For-
senda hans er félagslegt réttlæti og
jöfnuður. Á þá þætti hafa samtök
launafólks og atvinnulífsins lagt
mikla áherslu í kjarasamningum
sínum og samstarfi. Nokkuð virðist
hins vegar skorta á að skilningur á
grundvallarforsendum stöðugleika
sé fyrir hendi hjá ýmsum þeirra
stjórnmálamanna sem haldið hafa
um stjórnvölinn á undanförnum ár-
um, bæði á vettvangi landsstjórnar
og einstakra sveitarstjórna. Það er
meðal annars þess vegna sem ég vil
leggja mitt af mörkum á vettvangi
stjórnmálanna og miðla þar af
reynslu minni á liðnum árum.“
Gylfi Arnbjörnsson sækist
eftir 3.–4. sætinu
Gylfi
Arnbjörnsson
FRÆÐSLA er grundvallaratriði í
að ráðast gegn orsökum brunaslysa
og hafa Orkuveita Reykjavíkur og
Sjóvá Forvarnarhús gert sam-
komulag um samstarf um forvarn-
arverkefni, sem bráðlega verður
hrint í framkvæmd. Forvarnarhús
mun standa að verkefninu, með
stuðningi og fulltingi OR, sem mið-
ar að þróun og kynningu lausna til
að koma í veg fyrir brunaslys af
völdum heits vatns en nokkuð hef-
ur borið á slíkum óhöppum að
undanförnu.
Gert er ráð fyrir að verkefnið
muni kosta um fjórar milljónir
króna og það standi í eitt ár. Meðal
annars verður lögð rík áhersla á
markvisst upplýsingastarf til að fá
almenning, opinbera aðila, fagfólk
og fleiri til að takast á við viðfangs-
efnið en auk þess verður lagt mat á
þær tæknilegu lausnir sem eru á
boðstólum og þær settar fram á
einfaldan og auðskilinn hátt.
Unnið verður úr upplýsingum
frá heilbrigðisstofnunum um
brunaslys af völdum heits vatns og
greining gerð á orsökum, áhættu-
þáttum og afleiðingum. Meg-
inþungi starfsins snýr að því að
draga sem flesta aðila að borðinu,
opinbera sem einkaaðila, til að sem
víðtækust sátt náist um lausnir til
að draga úr slysum vegna heits
vatns.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
stjórnarformaður OR, og Herdís L.
Storgaard, forstöðumaður Sjóvár
Forvarnarhúss, undirrituðu samn-
inginn í gær. Fyrir aftan þau
standa Guðmundur Þóroddsson,
forstjóri OR, og Þór Sigfússon, for-
stjóri Sjóvár.
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðist gegn orsökum brunaslysa