Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is SVO mæltist Benedict XVI páfa þegar hann endurtók ummæli keis- arans af Byzantíum, Manuels II Pa- leologus, frá 14. öld. „Sýnið mér hvað Múhameð hafði fram að færa, sem talist gæti nýtt, en þar munuð þér aðeins finna vonda hluti og ómannúðlega, þar sem hann fyr- irskipar útbreiðslu Serkjatrúar með sverðinu“ . Varla kemur þetta neinum á óvart sem hefur lesið 8. og 9. kafla Kórans- ins. Bókstafstrúarmenn segja að Kóraninn gildi fyrir alla tíma og að- lagist aðstæðum allra tíma. T.d. er sprengiefnið C4 miklu áhrifaríkara í dag en sverðið. Það sem Múhameð sagði og gerði er af Serkjum talin hin æðsta dyggð og því til eft- irbreytni á öllum öldum og tímum. En er einhver grundvöllur fyrir þessu í aðalritningu Serkja, ,,Kór- aninum“? Kóraninn, 009.005, – 9. kafli, ,,Iðr- un“ vers nr. 5. En þegar bannmán- uðirnir eru liðnir, þá skuluð þið berj- ast við og drepa (aqtuloo) hina vantrúuðu, takið þá fasta, sitjið um þá, veitið þeim fyrirsát alls staðar á öllum sviðum hins Heilaga Stríðs; Ef þeir iðrast (gefast upp), ganga til bæna, og gjalda verndarskatt (Jit- zya), skulu þeir frjálsir fara, (sem dhimmar – ríkisfangslausir und- irsátar Serkja). Um 123 sverðvers af þessu tagi eru í Kóraninum. Skýr- ingar: 009:005. Sverðversið. Engir friðarsamningar gilda við Serki, að- eins vopnahlé. Til eru aðeins þrír möguleikar fyr- ir vantrúaða: 1) Dauðinn. 2) Ánauð og verndarskattur (Aðeins boðið kristnu fólki og Gyð- ingum til bráðabirgða.). 3) Að gerast Serki. Heimsyfirráð, berjist þangað til allir dýrka Allah. Kóran. ,,Þýfið“. 008:039. Og berjist (qaatiloohum) við þá þangað til að engin ringulreið, óregla eða nauðung (skurðagoðadýrkun eða vantrú á Al- lah) ríkir lengur, og það ríkir rétt- læti (sharia-lög) og trú eingöngu og allstaðar á Allah. Skýringar: 008:039 m30. Serki á að berjast þangað til ekki eru lengur til nein freisting (vantrú). Jafnvel þeir sem eru frið- samir verða að berjast. Kóran, 002:216. Herskylda hvílir á yður (sem Serkja), þó yður kunni að mislíka það. En það er hugsanlegt að yður líki ekki það sem er gott fyrir yður (að leiðarlokum), og að þér haf- ið dálæti á hlutum sem eru yður ekki til góðs. Skýringar: 002:216 m4. Múhammeð vissi fullvel að ekki voru allir Serkir herskáir. En þeir urðu jú að gjöra eins og Allah skip- aði fyrir. Allah krefst stríðs fyrir Múhameðstrú. Heimild versa: http:// www.usc.edu/dept/MSA/quran. Er Serkjatrú friðsöm? Þessu má svara með bæði já og nei. Sé litið á Mekka-kafla Kóransins, þá boðar sá hluti hans frið og umburðarlyndi. Séu seinni Medina-kaflar Kóransins skoðaðir, þá er mælt svo fyrir að boða skuli trúna á Allah með sverði og ofbeldi. Medina-kaflarnir voru boðaðir síðar en Mekka-kaflarnir og eru taldir hafa ógilt þá síðarnefndu. Sjá 002:106. Serkir fara eftir Mekka-köflunum á meðan þeir eru fáliðaðir í viðtöku- samfélögunum, en séu þeir í meiri- hluta nota þeir fyrirmyndir Medina- kaflanna. SKÚLI SKÚLASON, framkvæmdastjóri. Ill og ómannúðleg trúarbrögð Frá Skúla Skúlasyni: „MORGUNBLAÐIÐ, blað allra landsmanna“. Ég gerðist áskrifandi og líkaði vel. Blaðið kom inn um lúg- una að morgni hvers dags og helg- arblaðið skilvíslega um helgar, þökk sé umboðsmanni Morgunblaðsins í Ólafsfirði, Sveini Magnússyni, sem nú er hættur. Nú er öldin önnur og blaðið stend- ur ekki lengur undir því að vera „blað allra landsmanna“. Hvers vegna? Jú, nú er blaðið borið út með póstinum og kemur um eða eftir há- degi og laugardags- og sunnudags- blað kemur með mánudagsblaðinu um hádegisbilið á mánudögum! Ef völ væri á öðru nokkurn veginn sam- svarandi dagblaði myndi ég að sjálf- sögðu kaupa það en því er ekki til að dreifa, því miður. Ég held ég hafi skilið það rétt sem forsvarsmaður Árvakurs sagði í sjónvarpi fyrir stuttu að markmið fé- lagsins sé að vaxa hratt til að ná skráningu í Kauphöllinni eftir þrjú ár. Það er svo sem ágætt markmið út af fyrir sig en vilji útgefendur gefa blaðið út á landsvísu þarf svolítið meira; að blaðið sé öllum lands- mönnum alvöru dagblað. Kauphall- arskráning útgáfufélags dagblaðs, sem ég kaupi, er mér algjörlega óvið- komandi. Ég greiði sama áskrift- argjald og aðrir og sætti mig ekki við þá þjónustu sem mér er nú boðin. Að óbreyttu segi ég hér með áskrift minni að Morgunblaðinu upp frá og með 1. október næstkomandi. Virðingarfyllst, ÞÓRIR JÓNSSON, Bylgjubyggð 16, Ólafsfirði. Blað allra landsmanna Frá Þóri Jónssyni: Í GREIN sinni sl. fimmtudag átelur Kolbrún mig fyrir að full- yrða að enginn flokkur hafi sett fram raunhæfa áætlun um vernd- un íslenskrar náttúru fyrr en Samfylkingin nú með ramma- áætlun um náttúruvernd. Ég las spenntur áfram og vonaðist til að finna nú eitthvað sem ég hefði misst af, leið vinstri grænna að settu marki. Því miður var slíkt hvergi að finna. Einungis stikkorð úr stefnu og upptalningu á þing- málum (nokkrum sem Samfylk- ingin hefur reyndar tekið þátt í að flytja). Sem sagt, óskir um kökur og brauð en engin uppskrift. Rammaáætlun um nátt- úruvernd er hins vegar uppskrift, fær leið til að skapa sátt um verndun íslenskrar náttúru. Áætl- un um að hefja nú þegar rann- sóknir á öllum náttúrusvæðum landsins svo það sé hægt að fá heildstæða mynd af mögulegum þjóðgörðum og verndarsvæðum og tryggja verndun þeirra. Þegar þessi heildarmynd liggur fyrir sést einnig hvar hægt er að leggja hálendisvegi, byggja aðstöðu fyrir ferðafólk og virkja, ef þörf verður talin á því. Þetta sér Kolbrún vel og ætti frekar að styðja en spilla. Kolbrún grípur til líkinga við spariföt. Henni virðist líða eins og hún hafi farið á ball í sérsaum- uðum kjól, dansað dágóða stund en svo uppgötvað sér til hrell- ingar að önnur kona væri mætt á ballið í sams konar kjól. Nátt- úruvernd er hins vegar ekki ball og skoðanir, þrotlaus vinna og til- lögur fólks sem að henni vinnur eru ekki spariföt. Vinstri grænir eiga mína dýpstu virðingu og þakkir fyrir baráttu sína fyrir náttúruvernd. Þeim væri sæmst að fagna því án beiskju að fleiri taki undir með þeim. Líka þeim sem koma með snjallar tillögur að lausn vandans. Þótt barátta fyrir náttúruvernd hafi að mörgu leyti verið þrauta- ganga þá má ekki gera píslarvætti íslenskrar náttúru að forsendu fyrir þingsætum. Ég á mér aðrar óskir íslenskri náttúru til handa. Dofri Hermannsson Eru þau svona súr? Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hálslón, leita orkunnar annars stað- ar, bæta álverinu á Reyðarfirði fram- leiðslutapið og verkamönnum verk- smiðjunnar launatapið er kostnaður sem hljómar brjálæðislegur við fyrstu sýn. Afskrifa glænýja 100 milljarða króna virkjun? Til- lagan er álíka dýr að sögn Ómars og árlegur stuðningur okkar við landbúnaðarkerfið, en aðeins í fimm ár. Það er áreiðanlega vanmat, en þó svo að á vanti önnur fimm ár? Þá er tillagan samt mjög ódýr á mælikvarða þeirra nátt- úruverðmæta sem á móti koma og bera merki hugrekkis okkar ef verð- ur þyrmt. Ég vil reikna þetta dæmi til enda. Við skuldum okkur sjálfum að gera það, lið fyrir lið. Því Ómar hefur rétt fyrir sér: Aðeins einn kostur fékk fulla könnun og umræðu, hinn kost- urinn fékk aldrei áheyrn. Blaðamannafundur Ómars Ragnarssonar á fimmtudag var sögu- legur. Ómar er fyrir löngu þjóðargersemi. Hann sté fram til að tala máli ókominna kynslóða Íslendinga næstu þús- und ár. Ákall um þjóð- arsátt er ákall um að Kárahnjúkavirkjun verði minnisvarði um hugrekki Íslendinga, þeirra Íslendinga sem nú lifa, að hún standi áfram til heiðurs þeirri djörfu ákvörð- un að drekkja ekki náttúrugersemum sem einstæðar eru í heiminum og okkur fólgnar til varðveislu fyrir komandi kynslóðir. Engum dylst að tillaga Ómars Ragnarsson um þjóðarsátt er sárs- aukafull og dýr. Að hætta við að fylla Kunnasti fréttamaður þjóðarinnar neyðist til að segja sig frá störfum í nafni sannleikans. Hvað segir það okkur um þá ,,þöggun“ sem hann hef- ur upplifað í starfi? Þann lýðræð- isbrest sem orðið hefur í deilunni um Kárahnjúkavirkjun? ,,Ég var í stöð- ugri sjálfsritskoðun í mörg mörg ár,“ segir Ómar Ragnarsson, ,,ég get ekki lifað við þetta lengur“. Við munum að honum var ógnað og hótað. Þetta er einstæð yfirlýsing fréttamanns hjá sjálfu Ríkisútvarpinu. Hún lýsir slíku hugrekki að enginn íslenskur blaða- maður stendur jafnfætis eftir. Verður Ómar Ragnarsson hin nýja Sigríður í Brattholti okkar tíma? Það skiptir engu, því Ómar er bara eins og hann segir sjálfur, á stærð við sandkorn sem Jökla ber fram. Nú skiptir meiru hvort Íslendingar eru þjóð sem horf- ist í augu við sjálfa sig, land sitt og Ís- lands þúsund ár. Þjóðhetjan Ómar Ragnarsson Stefán Jón Hafstein skrifar um blaðamannafund Ómars Ragnarssonar »Kunnasti frétta-maður þjóðarinnar neyðist til að segja sig frá störfum í nafni sann- leikans. Stefán Jón Hafstein Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. vaxtaauki! 10%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.