Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  NA-átt, 13–18 m/s við s-ströndina síðdegis, annars 5– 13. Víða léttskýjað. Þykknar upp á SA- og A-landi og fer að rigna er líður á daginn. » 8 Heitast Kaldast 15°C 7°C MEÐALVERÐ flestra fisktegunda hefur hækkað um u.þ.b. 10% frá því í janúar sl. en dæmi eru um allt að 28% verðhækkun. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun verð- lagseftirlits ASÍ á fiski sem gerð var í verslunum á höfuðborgarsvæðinu sl. miðvikudag og borin var saman við könnun sem verðlagseftirlitið gerði í janúar síðastliðnum. Könnunin leiddi ennfremur í ljós að mestur var munur á hæsta og lægsta verði nú á hausaðri heilli rauðsprettu eða 113%. Þá reyndist 102% munur á hæsta og lægsta verði á útvötnuðum saltfiskflökum. Í átján tilvikum af tuttugu og níu var munur á hæsta og lægsta verði yfir 50%. Lægsta verðið var oftast í fiskborði Fjarð- arkaupa í Hafnarfirði eða í alls átta tilfellum. Hæsta verðið var oftast í versluninni Gallerý Fiski við Nethyl í Reykjavík eða í ellefu tilvik- um. Ýsa er oft á borðum landsmanna. Í ljós kom að meðalverð á roðflettum beinhreinsuðum ýsu- flökum hefur hækkað um 10% frá því í janúar síðastliðnum. Mest hækkun á ýsuflökum hefur orðið hjá Fiskisögu við Sundlaugaveg. Þar kost- aði kílóið 880 krónur í byrjun árs en kostar nú 1.090 krónur sem er 24% verðhækkun. Miklar verð- hækkanir á fiski  Allt að 113% | 30 SIV Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir for- gangsverkefni í málefnum barna- og unglingageðdeildar Landspítal- ans að ráðast í stækkun fyrsta áfanga BUGL og verði verkinu lokið vorið 2008. Þetta kom fram á fundi sem ráðherra hélt í gær þar sem hún kynnti aðgerðir til að bæta þjónustu við börn og ung- menni með geðraskanir, með það að markmiði að eyða biðlistum á BUGL. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir- læknir BUGL, fagnar því að ráð- herra skuli kynna hugmyndir um hvernig bæta megi þjónustuna. „Sérstaklega líst mér vel á að grunnþjónusta heilsugæslunnar á dagsins ljós og aðgerðir séu í sjón- máli. Hefur stjórnin þó efasemdir um að aðgerðir ráðherra muni stytta biðlista. Telur stjórnin það sæta furðu að ekki sé í áætlun ráð- herra gert ráð fyrir sérfræðiþekk- ingu barna- og unglingageðlækna og að beina eigi grunnþjónustunni til Miðstöðvar heilsuverndar barna og heilsugæslunnar þar sem slík sérfræðiþekking sé ekki fyrir hendi. Gagnrýnir stjórnin að ráð- herra skuli ekki bregðast við gagnrýni sænsku sérfræðinganna þess efnis að nýliðun í sérfræði- greininni sé áhyggjuefni. Stjórnin harmar það jafnframt að samráð við barna- og unglingageðlækna skuli hafa verið talið óþarft við vinnslu aðgerðaáætlunar ráðherra og segist vonast til að slíkt samráð verði viðhaft í framtíðinni. | 6 geðraskana á að færast þangað strax á næsta ári ef ég skil að- gerðaáætlunina rétt,“ segir Ólafur og bendir á að hafa beri í huga að ætla megi að 2–5% barna þurfi á sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu að halda árlega en BUGL sinnir í dag innan við 1%. „Þá er miður að ráðherra kjósi að horfa fram hjá harðri gagnrýni sænsku sérfræð- inganna á stjórnunarfyrirkomulag BUGL sem þeir telja að dragi úr skilvirkni deildarinnar og mögu- leikum hennar til að sinna lykil- hlutverki sínu á sviði þjónustu, kennslu og rannsókna,“ segir Ólaf- ur. Í yfirlýsingu frá stjórn Barna- geðlæknafélags Íslands kemur fram ánægja með að opinber stefna í málefnum barna og ung- linga með geðraskanir hafi litið þessu sviði verði aukin og bætt. Ég lýsi þó eftir aðgerðaáætlun um hvernig það verði gert, hvaða heilsugæslustöðvar ráðherra hef- ur í huga og hver beri ábyrgð á framkvæmd þessarar áætlunar,“ segir Ólafur og bendir á að það veki athygli hversu takmarkað samræmi sé milli tillagna sænsku sérfræðinganna sem ráðherra leit- aði sérstaklega eftir og þeirra til- lagna sem kynntar voru í gær, t.d. hvað varðar það stóra hlutverk sem Miðstöð heilsuverndar barna í Reykjavík sé ætlað í meðferð geð- raskana upp að 18 ára aldri. Efasemdir um að aðgerðir ráðherra stytti biðlista „Það á greinilega að fjölga starfsfólki miðstöðvarinnar veru- lega úr því að meðferð algengra Fyrsti áfangi stækkun- ar BUGL tilbúinn 2008 Yfirlæknir BUGL segir heilbrigðisráðherra horfa framhjá harðri gagn- rýni sænsku sérfræðinganna á stjórnunarfyrirkomulag deildarinnar Eftir Steinþór Guðbjartsson og Silju Björk Huldudóttur Í GREIN sinni sem birtist í tímaritinu Þjóðmálum segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor og ævisöguritari að gögn í lokuðu skjalasafni Sænska lærdómslistafélagsins í Stokkhólmi, sem hann fékk sérstakt leyfi til að skoða, sýni að það hafi einkum verið andróður virtra bókmenntamanna á Íslandi sem kom í veg fyrir að bókmenntaverðlaunum Nób- els væri skipt milli Gunnars Gunnarssonar og Hall- dórs Kiljans Laxness árið 1955. Hafa varla legið á skoðunum sínum Jón Helgason og Sigurður Nordal skrifuðu Elíasi Wessén, félaga í sænsku Akademíunni, bréf þar Í samtali við blaðamann Morgunblaðsins sagði Hannes ósannað með öllu hvað réð úrslitum um ákvörðun Akademíunnar, en Gunnar hefði þó komið miklu sterkar til greina en áður hefur verið talið. Að mati Halldórs Guðmundssonar hafa, þegar gögn um fundi Akademíunnar í október 1995 eru skoðuð, bréf íslenskra áhrifamanna ekki haft úr- slitaáhrif á val Akademíunnar á sínum tíma, þegar Halldór Laxness hlaut einn Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. sem þeir réðu frá því að Gunnar hlyti verðlaunin. Að sögn Halldórs Guðmundssonar ævisöguritara hlaut tillaga um að Gunnar deildi verðlaununum með Halldóri engan stuðning í umræðum Aka- demíunnar 13. október 1955, en bréf Jóns Helga- sonar var dagsett 14. október og bréf Sigurðar Nordal 29. október. Hannes Hólmsteinn segir í grein sinni: „Þótt bréf Sigurðar væri ekki skrifað fyrr en eftir hina op- inberu tilkynningu um verðlaunaveitinguna er það eflaust prýðileg heimild um skoðanir hans, sem hann hefur varla legið á við menn mánuðina á und- an.“ Hafði andstaða á Íslandi áhrif?  Gunnar kom miklu | 50 BJÖRGVIN Halldórsson hyggst á næstunni halda þrenna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fór fyrsta æfing hans og sveitarinnar fram í gær. Þar tók Björgvin m.a. lagið með Svölu dótt- ur sinni. Fyrstu tónleikar Björgvins og sveit- arinnar fara fram á morgun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björgvin æfir með Sinfóníuhljómsveitinni TVEIR ungir karlmenn voru dæmdir í gæsluvarðhald til 20. október nk. í héraðsdómi Reykja- ness í gærkvöldi. Lögreglan í Reykjavík handtók mennina í fyrrinótt á stolnum jeppa en til að stöðva þá þurfti eftirför sem end- aði með því að jeppanum var ekið á húsvegg í Breiðholti. Þrátt fyrir ungan aldur, en þeir eru 18 og 21 árs, teljast mennirnir góðkunn- ingjar lögreglunnar og eiga að baki langan sakaferil. Mennirnir komust í fréttir fjöl- miðla þegar þeir voru handteknir í nágrenni Selfoss sl. þriðjudag fyrir innbrot í félagsheimilið Ár- nes í Gnúpverjahreppi, en þá var auk þess með þeim í för sextán ára stúlka sem lýst hafði verið eft- ir. Við handtöku kom í ljós að bif- reiðinni sem fólkið var á hafði ver- ið stolið á Húsavík nokkrum dögum áður og talið er að þau hafi skilið eftir sig slóð innbrota á leið sinni um landið, s.s. í sumarbú- staði, en rannsókn lögreglu er ekki lokið. Þýfið úr Árnesi fannst allt í bifreiðinni, auk þess sem tal- ið er að þýfi úr fleiri ránsferðum hafi leynst þar. Einbeittur brotavilji Lögreglan í Reykjavík flutti mennina til Keflavíkur í gærdag. Fengu þeir að dvelja í fangaklefa þar til farið var með þá fyrir dóm- ara síðdegis. Ljóst var að ein- beittur vilji lá að baki brotum mannanna og þar sem þeir höfðu ekki látið sér segjast þrátt fyrir handtöku á þriðjudag þótti ekki annað úrræði fyrir hendi hjá lög- reglunni en að krefjast gæslu- varðhalds yfir þeim þar til mál þeirra verða að fullu rannsökuð og ákæra ákveðin. | 6 Ungir sí- brotamenn dæmdir í gæslu- varðhald
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.