Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 61
NACHO LIBRE kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 7.ára.
NACHO LIBRE VIP kl. 4:50 - 8 - 10:20
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
THE WILD m/ensku tali kl. 4 - 6:15 - 8:10 LEYFÐ
THE ALIBI kl. 8:10 - 10:20 B.i.16.ára.
BÖRN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára.
STEP UP kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl.3:50 LEYFÐ
LADY IN THE WATER kl. 10:20 B.i. 12.ára.
OVER THE HEDGE m/Ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ
BÍLAR m/Ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
/ KRINGLAN/ ÁLFABAKKI
NACHO LIBRE kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
STEP UP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
UNITED 93 kl. 8 - 10:15 B.i.14.ára.
MAURAHRELLIRINN m/Ísl tali kl. 3:50 LEYFÐ
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ TÆKIFÆRI
ÞARFTU AÐ TAKA FYRSTA SPORIÐ.
FRÁBÆR DANSMYND HLAÐIN GEGGJAÐRI TÓNLIST EN MYNDIN
KOM HELDUR BETUR Á ÓVART Í USA FYRIR NOKKRU.
MEÐ KYNTRÖLLINU CHANNING
TATUM (“SHE’S THE MAN”)
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
FRÁ EINHVERJUM MEST SPENNANDI
LEIKHÓP SEM ÍSLENDINGAR EIGA Í
DAG, VESTURPORT, KEMUR HREINT
ÚT SAGT MÖGNUÐ KVIKMYND BÖRN!
eeee
HEIÐA MBL
eee
ÓLAFUR H. TORFASON
RÁS2
BÖRN ER EIN BESTA
ÍSLENSKA MYNDSEM
FRAM HEFUR KOMIД
eeeee
LIB - topp5.is
“ógleymanleg og mögnuð
upplifun sem mun láta
engan ósnortinn”eeeeHJ, MBL
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
Takið þátt í spennandi ferðalagi þar sem vil-
lidýrin fara á kostum. Ekki missa af fyndnustu
Walt Disney teiknimynd haustins.
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
THE
ALIBI
Hnyttin spennumynd og frábær flétta.Með
þeim Steve Coogan (Around the World in
80 Days), Rebecca Romjin (X-Men) ofl.
Hann var meistari á
sínu sviði þar til hann
hitti jafnoka sinn.
DEITMYNDIN Í ÁR
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tárakirtillinn framleiðir tár gleði og
sorgar en hrúturinn hikar oft við að
láta þau streyma af síðara tilefninu.
Gleði og sorgir eiga sér sömu upp-
sprettu – hjartað. Leyfðu sjálfum þér
að upplifa allan tilfinningaskalann.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið veltir því fyrir sér hvernig það
eigi að þekkja sanna vini. Þeir eru fólk-
ið sem þú getur hugsað upphátt við og
dæmir þig ekki. Allt í lagi, kannski
dæma þeir þig, en ekki of harkalega.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það sem tvíburinn skilur af veröldinni
hefur kennt honum að treysta því sem
hann getur ekki eða mun aldrei skilja.
Bogmenn og fiskar eru líklega þeir
sem kunna best að meta þína klikkuðu
dýpt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Að kveikja eld er lykillinn að því að lifa
af í óbyggðunum. Að viðhalda neist-
anum í sambandi krefst álíka færni.
Höfum í huga að jafnvel hinn mesti logi
slokknar á endanum ef við gáum ekki
að okkur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það krefst ekki vitsmuna að taka rétta
ákvörðun núna. Þekking og rökhugsun
hafa ekkert með það að gera. Þú veist
hvað er rétt þótt þú vitir kannski ekki
hvernig. Sálin hefur talað, hlýddu leið-
sögn hennar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gátan í lífi meyjunnar bíður þess að
verða leyst. Að finna til stærðar sinnar
er hluti af henni. Líka að finna til
smæðar sinnar. Besta svarið er líklega
einhvers staðar þarna á milli. Einhver í
merki fisksins er besti ráðgjafinn þinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hentu reglunum. Ástalífið endurnýjast
ef þú gerir uppreisn. Reyndu eitthvað
nýtt, gerðu mistök og skemmtu þér
betur en þú hefðir gert með því að fara
rétt að í fyrstu atrennu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er skrýtið, en sporðdrekinn er oft
til í að þiggja ráð frá hverjum sem er,
jafnvel ókunnugum. Á sama tíma fær
óöryggið þig til þess að draga eigin
eðlisávísun í efa. Svörin eru gild. Það
ætti að fækka einhverjum spurningum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skilningur bogmannsins á orsök og af-
leiðingu nær ekki utan um atburði
dagsins. Reyndar hafa aðgerðirnar
sem hann hvetur til ekki jafna svörun
eða gagnverkun. Kannski kanntu að
galdra og ert að komast að því núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin elskar fjölskylduna en upp-
lifir óútskýranlegan frið þegar hún er
fjarri. Fólk í merkjum fisks eða vogar
lætur þér líða eins og mest aðlaðandi
manneskju í veröldinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Heimili vatnsberans er yfirráðasvæði
hans, staðurinn þar sem hann finnur
mesta kraftinn. Samskiptamynstur
fjölskyldunnar flækist. Ef þú ert ekki
fær um að hjálpa skaltu að minnsta
kosti passa að gera ekki illt verra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn fær oft að upplifa það besta í
lífinu, vegna þess að hann hlustar. Ein-
hver gefur þér tækifæri til þess að láta
ljós þitt skína. Gjafir af því tagi berast
ekki á hverjum degi, svo þú skalt passa
að herða þig.
Sólmyrkvi og nýtt tungl í
meyju jafnast á við endur-
ræsingu, á alheimsvísu.
Maður endurnýjar sig á
augabragði. Nýtt sjónar-
horn gerir manni kleift að
hegða sér öðruvísi og njóta annars konar
niðurstöðu. Hin töfrum gæddu haust-
jafndægur eru á næsta leiti.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Eminem stendur í miklu stappivið skilnaðarlögfræðinga um
þessar mundir en hann og fyrrum
kona hans eru að
reyna að skilja í
annað sinn. Em-
inem, sem heitir
réttu nafni Mars-
hall Mathers III,
sótti um skilnað
frá eiginkonu
sinni aðeins 82
dögum eftir ann-
að brúðkaup
þeirra. Samband Eminem við fyrr-
um konu sínu, Kimberley Mather,
hefur reynst honum drjúgur efnivið-
ur í texta á farsælum ferli.
Fyrrum hjónin eiga eina dóttur,
Hailie Jade Scott, og segjast þau
fyrst og fremst hafa velferð hennar í
huga. Eins og með Kimberley, hefur
Hailie einnig verið söguhetja í mörg-
um opinskáum textum eftir
Eminem.
Á öllu hamingjusamari nótum er
hægt að tilkynna um næstu skref
Eminem á tónlistarbrautinni. Um er
að ræða einslags „blanddisk“ eða
„mix-tape“ og kallast hann Eminem
Presents: The Re-Up. Kemur hann
út í desember en sex ný lög með
Eminem munu prýða diskinn. Disk-
urinn kemur út á merki Eminem,
Shady Records.
Framleiðendur kvikmyndarinnarDays of Glory, sem gerist í síð-
ari heimsstyrjöldinni og fjallar um
Afríkumenn sem
var fórnað í
fremstu víglínu í
baráttunni við
Nasista, vonast
til að myndin
breytti viðhorfi
franskra stjórn-
valda í garð fyrr-
um nýlenda
sinna.
Leikstjórinn Rachid Bouchareb
sýndi myndina fyrir stuttu fyrir val-
inn hóp áhorfenda, og þar á meðal
var forseti Frakklands, Jacques
Chirac. Málið er, að mati Bouch-
areb, að þessir innfæddu hermenn
njóta ekki sömu réttinda og franskir
kollegar þeirra, hvað varðar bætur
og ellilífeyri. Þessir hermenn, sem
töldu nokkur hundruð þúsund
manns, komu frá Alsír, Marokkó,
Túnis og Senegal. Aðalleikarar
myndarinnar eru Jamel Debbouze
(Amelie), Samy Naceri (Taxi),
Roschdy Zem (Live and Become) og
Sami Bouajila (The Siege), allt leik-
arar sem rekja ættir sínar til Norðu
Afríku og byggði samþykki þeirra á
því að taka þátt meðal annars á til-
finningalegum ástæðum.
Söngkona Black Eyed Peas ogverðandi sólóstjarna, Fergie,
spilar nú út öllum slúðurtrompunum
með mögnuðum, hneykslanlegum
yfirlýsingum í hverju viðtalinu á fæt-
ur öðru. Um að gera líka þegar það
þarf á plötuauglýsingum að halda og
greinileg allt gert til að vekja athygli
á plötu hennar, The Dutchess. Nú
hefur hún ekki aðeins aukið á yfir-
lýsingar sínar um eiturlyfjaneyslu
heldur og lýst því yfir að hún hafi átt
í kynferðislegu sambandi við annað
kvenfólk. Þannig hefur hún sagt að
hún myndi glöð skipta um kyn-
hneigð ef hún ætti kost á því að næla
í kærustu Marilyn Manson, „pinn-
öpp“ stúlkuna Ditu von Teese.
Fergie barðist við eiturlyfjapúk-
ann er hún var meðlimur í stúlkna-
bandinu Wild Orchid og fjalla nokk-
ur laganna á The Dutchess um þetta
tímabíl í lífi hennar. Lagið „Voodoo
Doll“ fjallar um baráttu englanna og
djöflanna sem búa í hverjum manni
og „Losing My Ground" fjallar um
það, er Fergie fór hvað lengst niður í
neyslunni.
Einni af fremstu rokksveitum sjö-unda áratugarins, The Byrds,
hefur verið pakkað inn í box öðru
sinni. Árið 1990 kom út veglegur
fjögurra diska kassi, samnefndur
sveitinni. Hann innihélt öll bestu lög
sveitarinnar auk nokkurra óútgef-
inna laga. Nýi kassinn heitir hins
vegar There Is A Season og þar
verður farið yfir feril sveitarinnar í
tímaröð. Meðal annars verða lög frá
þeim tíma er sveitin kallaðist The
Beefeaters og var lagavalið unnið í
samvinnu við fyrrverandi Byrds-
meðlimi, þá Roger McGuinn og
Chris Hillman. Hljómdiskar eru
fjórir (með 99 lögum) en auk þess
verður mynddiskur, með sjónvarps-
upptökum frá því er Byrds voru að
finna upp þjóðlagarokkið með lögum
á borð við „Mr. Tambourine Man“
og „Turn, Turn, Turn“.
Það er Íslandsvinurinn og Byrds-
fræðingurinn David Fricke sem
skrifar upplýsingatexta með kass-
anum en auk þess skrifa þeir Tom
Petty, Gary Louris (úr Jayhawks)
og Roger McGuinn texta.
Hljómleikaferðalagi Madonnu,hinum svofellda „Játningar-
túr“ Confessions tour) lauk í gær í
Tókíó. Madonna
hefur slegið met,
en um er að ræða
það tónleika-
ferðalag kven-
manns sem hefur
rakað að sér hvað
mestum fjár-
hæðum í sögunni.
Um 1.2 milljónir
manna sóttu tón-
leikanna og hagnaður var um 190
milljónir bandaríkjadala.
Fólk folk@mbl.is