Morgunblaðið - 22.09.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 22. 9. 2006
bílar mbl.isbílar
Nýr Hyundai coupé » 8
INNLENDUR ORKUGJAFI
METANGAS ER FRAMLEITT Í GUFUNESI
VW TOURAN ECOFUEL BRENNIR METANI
VOLVO, sem lengi hefur verið í fararbroddi í ör-
yggismálum varðandi bíla, hefur hannað innbyggð-
an áfengismæli og sérstakt kerfi í sætisbeltum til
varnar akstri undir áhrifum. Ennfremur hafa verk-
ræðingar Volvo hannað forritanlegan lykil í
kveikjulásinn sem takmarkar hámarkshraða.
Ófá umferðarslys verða vegna aksturs undir
áhrifum áfengis. Búnaður Volvo felst í öndunar-
mæli sem er áfastur við bílbeltið og verður ökumað-
ur að anda í hann til þess að geta ræst bílvélina.
Öndunarmælirinn sýnir grænt ljós ef ökumaðurinn
er í lagi til aksturs og þegar bílbeltið hefur verið fest
er hægt að setja í gang eins og venjulega. Ef áfeng-
smagn ökumanns er yfir mörkum lýsir rautt ljós á
öndunarmælinum og er þá ekki hægt að setja bílinn
gang.
Samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu, deyja
u.þ.b. 10.000 manns árlega í umferðarslysum tengd-
um áfengisakstri.
Hin öryggisnýjungin sem Volvo kynnir er sér-
stakur lykill á kveikjulásnum sem hægt er að forrita
til að takmarka hámarkshraða og er beint að yngri
eða minna reyndum ökumönnum sem tölfræðin
sýnir að eru líklegri en aðrir til að valda slysum
vegna hraðaksturs. Með hraðalyklinum er hægt að
forrita hámarkshraða þannig að ekki sé ekið yfir
löglegum hraða. Til dæmis gefur það foreldrum
aukna öryggistilfinningu að lána börnum sínum
með nýtt ökuskírteini bílinn. Volvo hyggst kanna
áhuga almennings og bílgreinarinnar á þessum ör-
yggisnýjungum áður en ákveðið verður að setja
þær í framleiðslu.
Einar M. Magnússon, upplýsingafulltrúi Um-
ferðarstofu, segir að í málflutningi þeirra sem mæla
hvað harðast gegn hugmyndum manna um hraða-
takmarkara hafi komið fram að þetta sé tæknilega
óframkvæmanlegt og kostnaður við þetta sé of mik-
ill. „Þessi frétt um tækniþróun Volvo ber því aug-
ljóst vitni að slíkar fullyrðingar eiga ekki við rök að
styðjast auk þess sem vörubílar og hópferðabílar
hér á landi sem og annars staðar í Evrópu eru með
slíkum búnaði,“ segir hann.
„Í ljósi umræðunnar og mistúlkunar þeirra sem
ekki vilja skoða þennan möguleika má taka fram að
hraðatakmörkun er ein hugmynd af mörgum sem
verið er að skoða til að koma í veg fyrir alvarleg um-
ferðarslys. Miðað við þá þróun sem þegar hefur átt
sér stað má útfæra tæknina á ýmsan máta. Sem
dæmi má nefna að hægt er að skilyrða ökuréttindi
ungra ökumanna þannig að þeim leyfist aðeins að
aka bifreiðum sem komast ekki yfir ákveðinn hraða.
Til eru þau tilfelli þar sem nauðsynlegt getur verið
að fara hraðar en leyfður hámarkshraði segir til um.
Í ljósi þess er ekki verið að tala um að setja mörkin
við nákvæmlega leyfðan hámarkshraða. Ætlunin er
fyrst og fremst að koma í veg fyrir skilgreindan
ofsaakstur,“ segir Einar.
Volvo hannar hraðalykil
Morgunblaðið/Eyþór
Kyron Bílabúð hefur hafið sölu á nýjum jepplingi, SsangYong Kyron. Reynsluakstur er á bls. 4.
EINN af
kynnum Top
Gear-
þáttanna,
Richard
Hammond,
lasaðist al-
varlega við
ökur þegar
hann reyndi
að slá hraða-
met á bíl út-
búnum með
þotumótor. Bíllinn valt á meira en
450 km/klst hraða en Hammond,
em er 36 ára gamall, náði meðvit-
und um stund og gat talað þegar
hann var dreginn út úr flakinu.
Hammond er á taugadeild sjúkra-
húss í Leeds en ástand hans skánaði
örlítið yfir nóttina. Hann kom hing-
að til lands á síðasta ári í þátt-
argerð.
Hammond
slasast
Á Íslandi Ólafur
Guðmundsson hjá
FÍB og Richard
Hammond.
föstudagur 22. 9. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Ingólfur leggur flautuna frá sér eftir 27 skemmtileg ár >> 4
RYDER-BIKARINN Í GOLFI
„ÞEIR VITA ALVEG NÁKVÆMLEGA HVAÐ ÞARF AÐ GERA VIÐ
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR OG ÞEIR SLÁ BOLTANN AF NÁKVÆMNI“ >> 2
GUÐMUNDUR Benediktsson hefur
framlengt samning sinn við knatt-
psyrnulið Vals um eitt ár og verður
hann því samn-
ingsbundinn lið-
inu til loka næsta
leiktímabils. Guð-
mundur, sem á að
baki 10 A-lands-
leiki, hefur verið
lykilmaður í liði
Vals undanfarin
tvö tímabil og
skorað þrjú mörk
í 34 leikjum.
„Mér líst bara
mjög vel á samninginn,“ segir Guð-
mundur sem vill ekki segja til um
hvort næsta leiktímabil verði hans
síðasta. „Það fer bara allt eftir heils-
unni. Ef hún er í lagi þá heldur mað-
ur áfram eins lengi og hægt er.“
Í fréttatilkynningu frá knatt-
spyrnudeild Vals segir að til standi
að Guðmundur taki að sér þjálfun
hjá félaginu eftir að ferli hans lýkur
og segir hann að þetta sé eitthvað
sem hann hafi lengi stefnt að. „Von-
andi getur maður gefið eitthvað af
sér þegar maður hættir að geta
hlaupið á eftir boltanum. Ég held að
það verði ómögulegt að hætta al-
veg.“
Valur mætir KR í síðustu umferð
Landsbankadeildarinnar og er það
úrslitaleikur um annað sæti í deild-
inni. Fyrir síðustu umferð var greint
frá því að Guðmundur hafði leikið 27
leiki í röð án þess að skora, en sú
markaþurrð tók endi gegn Keflavík
er hann skoraði eina mark Vals í 1:1
jafntefli gegn Keflavík. „Það er auð-
vitað gaman að skora en annars er
það ekkert stórmál hver gerir það.
Ég er með góða samherja sem hafa
séð um þetta,“
Áfram
á Hlíðar-
enda
Guðmundur
Benediktsson.
STJÓRN knattspyrnudeildar
Fram hefur ákveðið að segja upp
amningi sínum við þjálfarann
Ásgeir Elíasson, þrátt fyrir að
iðið hafi sigrað 1. deildina með
nokkrum yfirburðum. Ásgeir tók
við liðinu eftir leiktímabilið í
yrra þegar liðið féll úr úrvals-
deildinni í fyrra, en báðir aðilar
höfðu uppsagnarákvæði í samn-
ngnum sem stjórn knatt-
pyrnudeildar Fram ákvað að
nýta sér. Ásgeir segir að ákvörð-
un stjórnarinnar hafi ekki komið
sér á óvart.
„Bæði ég og Fram vorum með
uppsagnarákvæði í samningnum
og ég átti sjálfur eftir að taka
ákvörðun um hvort ég myndi
halda áfram og það var ekkert
endilega víst. En á endanum
þurfti ég ekki að taka neina
ákvörðun,“ segir Ásgeir og segist
ekki vita hverjar ástæður upp-
sagnarinnar séu. „Ég get engu
svarað til um það. Ég tel að ár-
angurinn hjá þeim liðum sem ég
var með hafi verið bærilegur.
Meistaraflokkurinn náði sínum
markmiðum að fara upp. Við tók-
um þátt í fjórum mótum og unn-
um tvö þeirra og 23 ára liðið
vann sinn riðil í Íslandsmótinu
sem verður að teljast viðunandi.“
Guðbjartur Ellert Jónsson, for-
maður knattspyrnudeildar Fram,
sagði að stjórnin hafi ákveðið að
nýta sér uppsagnarákvæðið þar
sem félagið ætli sér að marka
nýja stefnu í framtíðinni og
þakkaði um leið Ásgeiri fyrir frá-
bært starf í þágu félagsins.
Ekki er enn búið að ráða nýjan
þjálfara í stað Ásgeirs en sá orð-
rómur er á kreiki að Guðjón
Þórðarson eða Ólafur Þórðarson
muni taka við stöðunni, en það
mun koma í ljós á næstu dögum. Ásgeir Elíasson Guðjón Þórðarson
Ásgeir hættir störfum hjá Fram
AP
Púttað Bandaríkjamennirnir Tiger Woods, Jim Furyk og Chris DiMarco voru að æfa púttin á elleftu braut á K Club golfvellinum Írlandi í gær en þeir
hefja leik þar í dag í Ryder-keppninni ásamt samherjum sínum í bandaríska liðinu. Þeir freista þess að vinna Evrópumenn í fyrsta sinn frá 1999.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 32
Veður 8 Umræðan 34/36
Staksteinar 8 Minningar 37/44
Viðskipti 14/15 Leikhús 54
Erlent 16/17 Myndasögur 56
Menning 18/19, 47/56 Dagbók 57/61
Höfuðborgin 20 Staður og stund 58
Akureyri 20 Víkverji 60
Suðurnes 20 Velvakandi 60
Austurland 20 Bíó 58/61
Daglegt líf 22/31 Ljósvakar 62
* * *
Erlent
Nýju ráðamennirnir í Taílandi
hertu tökin í gær og bönnuðu stjórn-
málaflokkum að halda fundi eftir
valdarán hersins á þriðjudag.
Thaksin Shinawatra, fyrrverandi
forsætisráðherra, kvaðst vilja að
efnt yrði til þingkosninga sem fyrst
en sagðist vera hættur í stjórn-
málum og hvatti til þjóðarsáttar. » 1
Dómstóll í Tyrklandi sýknaði í
gær rithöfundinn Elif Shafak af
ákærum um að hafa móðgað tyrk-
neska þjóðarsál með skrifum sínum
um fjöldamorð Tyrkja á Armenum í
fyrri heimsstyrjöldinni. »16
Ríkisstjórn Kaliforníu hefur til-
kynnt að hún hafi höfðað mál á hend-
ur sex bílaframleiðendum í Banda-
ríkjunum og Japan fyrirþátt þeirra í
gróðurhúsaáhrifunum. »16
Viðskipti
Richard Branson, breski auðkýf-
ingurinn, hét því í gær að verja sem
samsvarar 210 milljörðum króna á
næstu tíu árum í ýmis verkefni sem
tengjast baráttunni gegn loftslags-
breytingum í heiminum. » 14
Innlent
Það er forgangsverkefni í mál-
efnum barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans að ráðast í stækkun
fyrsta áfanga BUGL og að henni
verði lokið vorið 2008. Þetta kom
fram í máli Sivjar Friðleifsdóttur,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, á fundi þar sem hún kynnti
aðgerðir til að eyða biðlistum og
bæta þjónustu við börn og ungmenni
með geðraskanir. » 6
Vísir að íslenskri leyniþjónustu
eða öryggisdeild var starfrækt hér á
landi skömmu fyrir síðari heims-
styrjöldina en ráðamenn höfðu
áhyggjur af uppgangi nasista og
kommúnista á fjórða áratugnum.
Þetta kemur fram í grein eftir Þór
Whitehead, prófessor, í nýju tölu-
blaði af Þjóðmálum. Hermann Jón-
asson, þáverandi forsætisráðherra,
fól lögreglustjóranum í Reykjavík að
stofna „eftirgrennslanadeild“ en tíu
árum síðar beitti Bjarni Benedikts-
son, þáverandi dómsmálaráðherra,
sér fyrir stofnun strangleynilegar
öryggisþjónustudeildar. »32
Í grein í ritinu Þjóðmálum segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor og ævisöguritari að gögn í
lokuðu skjalasafni Sænska lærdóms-
listafélagsins í Stokkhólmi, sýni að
það var einkum andróður virtra bók-
menntamanna á Íslandi sem kom í
veg fyrir að bókmenntaverðlaunum
Nóbels var ekki skipt milli Gunnars
Gunnarssonar og Halldórs Kiljans
Laxness árið 1955. Jón Helgason og
Sigurður Nordal skrifuðu Elíasi
Wessén, félaga í sænsku Aka-
demíunni, bréf þar sem þeir réðu frá
því að Halldór og Gunnar deildu
verðlaununum. » 50
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra sat í gær sinn fyrsta
fund með utanríkisráðherrum Atl-
antshafsbandalagsins sem fram fór
í New York samhliða allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna. Í sam-
tali við Morgunblaðið sagði Val-
gerður fundinn hafa verið haldinn
til undirbúnings leiðtogafundi
bandalagsins sem verður í Ríga,
höfuðborg Lettlands, í lok nóvem-
ber nk. „Það sem var rætt hvað
mest á fundinum var ástandið og
þróun mála í Afganistan,“ sagði
Valgerður og tók fram að mikil
áhersla hefði verið lögð á það á
fundinum að enduruppbyggingin í
landinu geti ekki orðið farsæl nema
hægt verði að samhæfa betur þá
starfsemi sem þar fari fram á veg-
um alþjóðastofnana og annarra að-
ila í samstarfi við þarlend stjórn-
völd.
„Ég sannfærðist um það á fund-
inum að okkar framlag í sambandi
við þessa enduruppbyggingu geti
verið í borgaralegum verkefnum,“
segir Valgerður og nefnir í því sam-
hengi viljayfirlýsingu íslenskra
stjórnvalda um að leiða starfið á al-
þjóðaflugvellinum í Kabúl og koma
honum í hendur afganskra stjórn-
valda. Einnig sagðist Valgerður sjá
möguleika á því að Íslendingar
tækju að sér þjálfun lögreglu- og
slökkviliðsmanna í Afganistan.
„Þetta hefur verið til skoðunar hjá
ráðuneytinu að undanförnu og við
munum fljótlega taka ákvörðun í
þessum efnum.“
Af öðrum umræðuefnum á fund-
inum var rædd möguleg stækkun
bandalagsins og aukið samstarf Atl-
antshafsbandalagsins við samstarfs-
ríki þess innan Evró-Atlantshafs-
ráðsins og alþjóðastofnanir á borð
við Sameinuðu þjóðirnar og Örygg-
is- og samvinnustofnun Evrópu.
Í dag mun utanríkisráðherra
taka þátt í vinnuhádegisverði utan-
ríkisráðherra aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins og Evrópusam-
bandsins, þar sem fjallað verður um
hin ýmsu alþjóðamál. Einnig mun
utanríkisráðherra eiga sérstaka tví-
hliða fundi með ráðherrum fleiri
ríkja.
Ræddu þróun og ástand
mála í Afganistan
FUNDUR Valgerðar Sverrisdóttur með utanríkis-
ráðherrum Atlantshafsbandalagsins í gær var til und-
irbúnings leiðtogafundi bandalagsins sem fram fer í
lok nóvember. Í dag ræðir hún ýmis alþjóðamál við
utanríkisráðherra NATO og Evrópusambandsins
(ESB). Á myndinni sést Valgerður ásamt Gunnari
Gunnarssyni, fastafulltrúa Íslands hjá Atlantshafs-
bandalaginu.
Reuters
Leiðtogafundur NATO undirbúinn
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI fékk á
síðasta ári tilkynningu um mann sem
sýndi áhuga á sprengjugerð m.a.
með því að skoða síður um slíkt á
netinu. Að sögn Jóns H. Snorrason-
ar, yfirmanns efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra, var málið skoð-
að eins og aðrar ábendingar sem
embættinu berast og ekki hefði þótt
tilefni til aðgerða lögreglu.
Í samtali við Morgunblaðið benti
Jón á að embætti Ríkislögreglu-
stjóra bæri ábyrgð á málum sem
varða öryggi borgaranna og þjóðar-
öryggi almennt og það fengi til með-
ferðar ýmis mál sem bærust úr ólík-
um áttum, m.a. með ábendingum frá
almennum borgurum. „Þetta mál
sem nú er til umfjöllunar í fjölmiðl-
um og kom upp á síðasta ári, það er
dæmi um upplýsingar sem embættið
hefur fengið og tekið til athugunar
og reyndust ekki gefa tilefni til að-
gerða af hálfu lögreglu,“ sagði hann.
Meira vildi hann ekki segja um rann-
sókn málsins.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagðist ekki þekkja umrætt
mál og gæti hann því ekkert tjáð sig
um það. Á hinn bóginn mætti hafa í
huga að heimildir lögreglu væru
þannig að hún gæti ekki hafið rann-
sókn nema rökstuddur grunur væri
um að afbrot hefði verið framið. Nú-
verandi heimildir lögreglu gætu því í
ákveðnum tilvikum sett skorður við
rannsóknum.
Í skýrslu tveggja sérfræðinga frá
ráðherraráði Evrópusambandsins,
sem kynnt var í sumar, kemur fram
að engar reglur séu til um beitingu
sérstakra rannsóknarúrræða, eink-
um forvirkra, sem öryggisþjónustur
beita venjulega áður en til opinberr-
ar rannsóknar lögreglu kemur og því
eru forvirkar aðgerðir óheimilar að
lögum. Björn sagði aðspurður að í
sjálfu sér væri ekki byrjað að smíða
lagafrumvarp til að veita lögreglu
slíkar heimildir. Rætt hefði verið um
þessa skýrslu, m.a. við starfsmenn
Persónuverndar.
Ekki tilefni til aðgerða
vegna áhuga á sprengjum
Í HNOTSKURN
»Embætti Ríkislög-reglustjóra ber ábyrgð á
málum sem varða öryggi
borgara og þjóðaröryggi.
»Engar reglur eru til umbeitingu sérstakra rann-
sóknarúrræða sem örygg-
isþjónustur beita venjulega
fyrir rannsókn lögreglu.