Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 4
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo 18 ára pilta í hálfs árs fangelsi fyrir rán sem framið var á Laugaveginum að morgni 7. ágúst sl. Sannað þótti að þeir hefðu elt uppi konu, veist saman að henni, beitt hana ofbeldi hvor á sinn hátt og náð af henni hliðartösku með verðmætum. Við árásina meiddist konan nokkuð og voru piltarnir dæmdir til að greiða henni 315 þúsund krónur í bætur. Piltarnir voru drukknir þegar þeir frömdu ránið og. samkvæmt öðrum þeirra kom upp hugmynd um að ræna einhvern til þess að verða sér úti um peninga svo þeir kæmust heim. Á leiðinni niður Laugaveg hafi verið talað um fyrirhugað rán en ekki hvernig það yrði framkvæmt. Síðan hafi hlutirnir æxlast eins og raun varð á. Konan var á leið til vinnu þegar að henni var veist og sagðist hún hafa orðið hrædd á meðan á árásinni stóð og eftir atburðinn hafi hún verið í losti, bæði skolfið og grátið. Hlaut hún bólgur í kinnbein og mar í andliti auk sára eftir árásina. Þetta var fyrsti refsidómur piltanna og fengu þeir dóminn á skilorði en alls þurfa þeir að greiða tæpar 900 þúsund krónur vegna samanlagðs sakarkostnaðar og bóta. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari dæmdi málið. Verjendur voru Bjarni Hauksson hdl., Guðrún Birgisdóttir hdl. og Herdís Hallmarsdóttir hrl. Sækjandi var Kolbrún Benediktsdóttir fyrir hönd ríkissaksókn- ara. Hálfs árs fangelsi fyrir að ræna konu 4 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FYRIRHUGUÐ grjótnáma í Hrossadal, norðan Nesjavallaveg- ar, mætir harðri andspyrnu hjá landeigendum við Selvatn. Benda þeir á að framkvæmdin muni hafa mikil áhrif á frístundabyggð við Selvatn vegna hávaða frá námunni og mikillar umferðar þungaflutn- ingabíla. Frummatsskýrsla um mat á um- hverfisáhrifum er til umsagnar hjá Skipulagsstofnun ríkisins og hefur Félag landeigenda í nágrenni Sel- vatns með bréfi komið mótmælum sínum á framfæri við stofnunina og bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Í bréfinu eru framkvæmdirnar sagð- ar mikið óráð og þær gangi þvert á stefnu stjórnvalda í Mosfellsbæ sem á sínum tíma hafi heimilað legu millibili verði sprengingar í námunni sem muni vísast hrella hesta en vinsælar reiðleiðir liggja meðfram námunni. Hávaðinn sem berst frá stórvirkum vinnuvélum sé þó öllu meiri og benda landeig- endur á að í kyrrlátu veðri heyrist umferðardynur frá Suðurlandsvegi að Selvatni. Fnykur frá Nesjavöllum Landeigendur telja ótraustar þær fullyrðingar sem koma fram í matsskýrslunni um að lítil áhrif verði vegna hávaða frá efnistöku, vinnslu og akstri, ryks frá nám- unni og umferðar og losunar eitur- efna við sprengingar. Benda þeir á að ríkjandi vindátt á svæðinu sé austnorðaustan og austsuðaustan og í þeim áttum finnist iðulega fnykur af brennisteinsvetni alla leið frá Nesjavöllum. Frestur til að skila inn at- hugasemdum til Skipulagsstofn- unar rennur út 27. september. traffíkinni? Það er morgunljóst að þessi umferð er hættuleg og hún veldur hávaða- og loftmengun. Þá virðist umfang námunnar benda til þess að sókn í hana geti orðið mun meiri,“ segir í bréfinu. Einnig er bent á að með reglu- Efnistakan í Hrossadal sé ógn við þann frið, enda sé gert ráð fyrir að 30 stórir bílar sæki efni á hverjum degi og aki á um 60-80 km hraða. „Það þýðir 60 ferðir fram og til baka og hver ætlar að líta eftir að hver og einn bílstjóri aki á lögleg- um hraða? Hver ætlar að stjórna eiganda Miðfells að selja land und- ir frístundabyggð. Landeigendurnir benda á að þeir hafi keypt land sitt fyrir um hálfri öld, sumir miklu fyrr. Á öllu svæðinu sé frístundabyggð og eðli málsins samkvæmt komi menn þangað í leit að kyrrð og friði. Mótmæla námuvinnslu í Hrossadal Hávaði og þunga- umferð í frí- stundabyggð                                                                Í HNOTSKURN » Fyrirhuguð náma er ílandi Miðdals í Mosfellsbæ. » Frístundahús við Selvatnverða í um þriggja kíló- metra fjarlægð frá fyrirhug- aðri námu. » Tilgangur með fram-kvæmdinni er að finna stórgrýti, einkum til að gera grjótgarða á höfuðborgar- svæðinu en í matsskýrslunni er sagt ljóst að talsverð þörf verði á slíku, m.a. vegna lagn- ingar Sundabrautar. VEITINGAHÚSIÐ Nauthóll við Nauthólsvík var í nótt flutt í heilu lagi á nýjan framtíðarstað í Borg- arnesi. Farið var af stað með húsið, sem er tæplega 80 fermetrar, rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi en reiknað var með að ferðin tæki um fimm klukku- stundir. Það mun standa við Þjóðveg 1 rétt við Borg- arnes og verður að öllum líkindum opnuð veit- ingaþjónusta þar næsta vor. Nýr Nauthóll mun rísa þar sem sá gamli stóð við Nauthólsvík og munu framkvæmdir hefjast í næsta mánuði. Verður nýja húsnæðið töluvert stærra en það gamla og sam- kvæmt forsvarsmönnum veitingastaðarins verður þjónustustigið aukið til muna. Stefnt er að því að staðurinn verði opnaður á vormánuðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nauthóll fluttur úr bænum „NIÐURGREIÐSLA sveitarfé- laga með skólamáltíðum er eins ólík og sveitarfélögin eru mörg,“ segir María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla. Bend- ir hún á að víða úti á landi niður- greiði sveitarfélögin skólamáltíðir að öllu eða verulegu leyti. Aðspurð segist María vilja sjá annars vegar að komið væri til móts við barnmargar fjölskyldur í formi systkinaafsláttar, sem enn ekki tíðkast í neinum mæli, og hins vegar að tekjulágar fjölskyldur fengju aðstoð eða afslátt. Nefnir hún í því samhengi að eðlilegt væri að styðja betur við bakið á einstæðum foreldrum sem hafi eðlilega minni ráðstöfunar- tekjur en þau heimili sem hafi tvær fyrirvinnur. Kostnaður vegna skólamáltíða eru víða á bilinu 4–6 þúsund krónur á mánuði. Samkvæmt upplýsing- um blaðamanns kaupa á bilinu 80- 90% barna frá fyrsta og upp í sjö- unda bekk heitar máltíðir, en hin 10-20% koma yfirleitt með heima- smurt nesti, ýmist vegna mat- vendni, ofnæmis eða fjárskorts. Dæmi um að foreldrar hafi ekki efni á skólamáltíðum Eftir því sem blaðamaður kemst næst færist það sífellt í vöxt að unglingar kjósi að kaupa heitar máltíðir í hádeginu. Dæmi eru um að foreldrar hafi ekki efni á að kaupa heitar máltíðir fyrir börn sín og hafa Morgunblaðinu borist ábendingar frá foreldrum grunn- skólabarna sem blöskraði það að félagar barna þeirra sætu úti í horni með eigið nesti þar sem þeir hefðu ekki efni á heitu máltíðinni. Í samtölum við skólastjóra á höf- uðborgarsvæðinu var ljóst að ástandið væri mismunandi eftir hverfum og bæjarhlutum, en sumir vildu meina að ástandið hefði þó farið batnandi með bættu efna- hagsástandi í þjóðfélaginu. Félagsþjónustan hleypur und- ir bagga vegna skólamáltíða Samkvæmt upplýsingum frá skólastjórum leita þær fjölskyldur sem ekki hafa efni á skólamáltíðum til félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags sem aðstoða þær með greiðslum fyrir matnum. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er ekki mikið um það að foreldrar snúi sér beint til skólayfirvalda um úrlausn sinna mála, sem helgast, eins og einn skólastjóri komst að orði, eflaust af því að margir eru of stoltir til að biðja um aðstoð. Formaður Heimilis og skóla kallar eftir systkinaafslætti vegna skólamáltíða Ekki hafa allir efni á heitum máltíðum í skólum Í HNOTSKURN »Heit skólamáltíð kostará bilinu 185–300 kr. »Víðast er kostnaðurinnvegna máltíða á bilinu 4–6 þúsund krónur á mán- uði. »Misjafnt er eftir skólumhversu hátt hlutfall nem- enda borðar heitan mat í há- deginu. UNGUR ökumaður á sportbíl var stöðv- aður á 160 km hraða í Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu í gær. Hann ók beint í flas- ið á sérsveit ríkislögreglustjóra sem var í eftirlitsferð um sveitirnar. Ekki var þó um sérsveitarútkall að ræða vegna aksturs- lagsins en sérsveitarmennirnir eru stað- settir á Akureyri og voru í almennum lög- gæslustörfum þegar þeir mættu mann- inum á þessum ofsahraða. Ók í flasið á sérsveit- inni á 160 km hraða LÖGREGLAN í Reykjavík hafði nýverið afskipti af grunnskólanema sem hafði meðferðis loftskammbyssu í skólann. Nemandinn hafði skotið úr byssunni á tvo skólafélaga sína og marðist annar þeirra. Um óviljaverk var að ræða að sögn lög- reglunnar en þó var lagt hald á byssuna eins og alltaf í málum sem þessum. Lögreglan tekur fram að loftbyssur séu stórhættulegar og eigi aldrei að vera í höndum barna og unglinga, séu ekki leik- fang heldur öflug vopn. Í þeim eru plast- kúlur sem geta stórslasað fólk. Á síðasta ári var lagt hald á þrjár loftbyssur í jafn- mörgum grunnskólum. Vitað er að slíkar skammbyssur hafa verið keyptar í sólar- landaferðum og þeim smyglað til landsins. Skaut úr loftskamm- byssu á skólafélaga ERLA Ósk Ás- geirsdóttir var í gærkvöldi kjörin formaður Heim- dallar á langfjöl- mennasta aðal- fundi í 80 ára sögu félagsins með 772 atkvæð- um. Mótfram- bjóðandi hennar, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, hlaut 692 atkvæði. Alls greiddu 1.550 félagsmenn at- kvæði, auðir seðlar voru 13 og ógildir 73. „Þetta kom mér mjög á óvart, enda vissi maður að þetta stæði tæpt,“ sagði Erla og tók fram að hún væri afar ánægð með það hversu málefnaleg og drengileg kosningabaráttan hefði verið. Spurð um helstu verkefni fram- undan sagði Erla mikilvægt að breikka málefnavídd félagsins og nefndi í því samhengi umhverfis- mál og málefni nýrra Íslendinga. Sagði hún mikilvægt að í aðdrag- anda næstu Alþingiskosninga að félagið veitti frambjóðendum flokksins öflugt aðhald, enda væri það hlutverk Heimdallar að vera samviska Sjálfstæðisflokksins. Erla Ósk sigraði Erla Ósk Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.