Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 12
Í HNOTSKURN »Haukur er lipur skonnortaí stíl við hákarlaskipin á 19. öld. Skipið lætur vel í ólgu- sjó eins og sannaðist á Breiða- firðinum fyrir skemmstu. »Skútuöldinni á Íslandi lauká fyrrihluta 20. aldar og við tók vélbátaöldin. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is VIÐ hlutum eldskírnina á Breiðafirð- inum í síðustu viku þegar við lentum í austanstormi og mikilli öldu. Við rif- uðum stórsegl og skonnortusegl og tókum niður framsegl en höfðum fokku uppi og skipið sýndi geysigóða takta. Það lá í 20 gráða hliðarhalla án þess að velta mikið en lyfti sér yfir öldurnar,“ segir Heimir Harðarson, markaðsstjóri hjá Hvalaskoðunarfyr- irtækinu Norðursiglingu, um ævin- týralega siglingu á íslensku skonnort- unni Hauki umhverfis landið en fyrirtækið keypti skipið fyrir áratug. Skonnortan er eikarskip í gömlum stíl sem smíðað var árið 1973 í Reykjavík af skútuáhugamanninum Jóni á ellefu eins og hann var kallaður en hann lést fyrir nokkrum árum. Skonnortureiði settur upp árið 2000 Þegar Norðursigling keypti skipið kom í ljós að það myndi henta vel að setja á það svokallaðan gaffalreiða. Skipið var tekið í slipp á Húsavík árið 2000 og settur á það tveggja mastra skonnortureiði og mun þetta nú vera eina hefðbundna seglskip sinnar teg- undar hér á landi og endurspeglar löngu liðna tíð skútualdarinnar á Ís- landi. Siglingin frá Húsavík gekk vel enda skipið lipurt og stöðugt og held- ur hringförin áfram austur fyrir land að lokinni áningu í Reykjavík. „Þetta er eina skonnortan á landinu en henni svipar mjög til gömlu há- karlaskonnortnanna sem notaðar voru norðanlands í lok 19. aldar,“ seg- ir Heimir. „Við erum að þjálfa áhafnir okkar í að sigla skipinu upp á gamla mátann og tókumst því á hendur hringförina.“ Hafa þarf fjögurra manna áhöfn þegar skipinu er siglt við krefjandi aðstæður en Heimir segir sjóhæfni skipsins stórkostlega því þegar öldu- dalir taka að dýpka og vindar að blása sé einstök upplifun að sigla Hauki. Um er að ræða 20 tonna skrokk og er skipið alls 20 metra langt og getur gengið á 10 mílna hraða. Þekking á stjórnun skipsins hefur verið sótt til útlanda og segir Heimir að áhöfnin sé sífellt að verða betri með auknum siglingum. Skonnortan liggur við festar við Ægisgarð og gefst almenningi kostur á að skoða skipið hátt og lágt í dag, föstudag, og á morgun, laugardag. Skipið verður opnað kl. 10 og haft op- ið til kl. 17 báða dagana. Hlutu eldskírnina á Breiða- firði í austanstormi og öldu Morgunblaðið/Golli Ævintýraferð Helga Sigurbjörnsdóttir, Stefán Gunnarsson, Einar Magnússon skipstjóri og Heimir Harðarson. 12 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aflaverðmæti ís- lenskra skipa nam 40 milljörð- um króna á fyrri helmingi ársins 2006 samanborið við 37,3 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverð- mæti hefur aukist um 2,7 milljarða eða 7,3%. Afla- verðmæti júnímánaðar nam 6,3 milljörðum en í júní í fyrra var verð- mæti afla 5,4 milljarðar. Í frétt Hagstofu Íslands kemur fram að aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 30,1 milljarður miðað við 25,5 milljarða á sama tíma árið 2005 og er því um 18% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 14,6 milljarðar og jókst um 3,1%. Afla- verðmæti ýsu nam 5,7 milljörðum sem er 20,2% aukning og ufsaaflinn jókst að verðmætum um 63,7%, var 1,9 milljarðar. Verðmæti flatfiskafla jókst um 4,7% milli ára og nam 3 milljörðum. Aflaverðmæti kolmunna í júnílok var orðið 3,1 milljarður sam- anborið við tæpa 1,3 milljarða í fyrra. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu var 16,1 milljarður króna sem er sam- dráttur um 4,2% milli ára, en verð- mæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 22,7% og var 6,4 milljarðar. Verð- mæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,1 milljarði sem er 15,6% aukn- ing. Afla- verðmæti eykst enn Veiði Aflaverð- mæti jókst um 7%. 40 milljarða aflaverð- mæti á fyrri hluta árs ÁREKSTRAHRINA gekk yfir Reykjavík í gærdag og voru 24 árekstrar tilkynntir til lögreglu frá kl. 7 um morguninn til kl. 21. Fimm bíla árekstur varð á Breiðholtsbraut við Skógarsel síðdegis og var einn fluttur á slysadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss með minniháttar meiðsli. Árekstur varð í Lækjargötu skömmu síðar þar sem rákust saman bifreið og bifhjól. Ökumaður bif- hjólsins var fluttur á slysadeild LSH en ekki var vitað um meiðsl hans í gærkvöldi. Þá voru fjórir kærðir fyr- ir of hraðan akstur en að sögn lög- reglu höfðu tugir fleiri náðst á lög- gæslumyndavél. Hrina árekstra í borginni HVANNEY SF frá Hornafirði var í vikunni á reki við Ingólfshöfða eftir að hafa dregið fyrri netalögn- ina í túrnum. Venjulega eru teknar tvær lagnir þegar báturinn sækir vestur með landinu en hann er að reyna víða fyrir sér þar sem afli í netin hefur enn verið tregur í byrjun nýs fiskveiðiárs eða 5,8 tonn í tvær lagnir. Hvanney SF sem hét áður Happasæll KE var smíðaður í Kína og er mjög nýtískulegur og öflugur netabátur sem einnig getur verið við annan veiðiskap. Að sögn Hermanns Stefánsson, framleiðslustjóra Skinneyjar- Þinganess hf., hafa humarbátarnir reynt fyrir sér síðustu daga aftur eftir sumarfrí og er þar sama sag- an að humarinn gefur sig ekki enn sem komið er og veiði hefur verið sáralítil. Góður árangur með tvílembingstrolli á síldinni Af öðrum veiðiskap er það að segja að síldveiðar nótaflotans hafa gengið vel í sumar en öll síld fer í bræðslu. Í sumar reyndu Björg Jónsdóttir (ÞH) SF og Jóna Eðvalds SF fyrir sér með tvílemb- ingstroll á síldveiðunum með góð- um árangri. Miklar hreyfingar eru í gangi hjá fyrirtækinu en Ásgrím- ur Halldórsson SF var seldur ný- lega til Írlands, en fyrr í sumar keypti fyrirtækið útgerð Bjargar Jónsdóttur ÞH með öllum veiði- heimildum þannig nú er verið að stilla upp bestu hagræðingarkost- um í veiðum. Humarinn gefur sig ekki enn á hefðbundinni veiðislóð Afli frekar tregur á Höfn í Hornafirði Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Léleg veiði Það hefur oft verið góð veiði hjá humarbátunum sem gerðir eru út frá Höfn en því er ekki að heilsa þessar vikurnar. Hermann Stefánsson, framleiðslustjóri Skinneyjar-Þinganess hf., segir að veiði sé sáralítil. ÚR VERINU BJÖRGVIN G. Sigurðsson al- þingismaður hef- ur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sætið á lista Sam- fylkingarinnar í suðurkjördæmi. Björgvin starf- aði sem fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinn- ar frá árinu 1999–2003, hefur verið þingmaður flokksins frá 2003 og tók oft sæti sem varaþingmaður kjör- tímabilið á undan. Björgvin segir í tilkynningu að hann leggi m.a. mikla áherslu á átak í samgöngumálum sem tryggi var- anlegar samgöngubætur við Vest- mannaeyjar og tvöföldun Suður- landsvegar, svo stærstu verkefnin séu nefnd. Þá leggur hann mikla áherslu á uppbyggingu á staðbundu háskólanámi í kjördæminu. Hann telur það mikið verkefni að tryggja atvinnu á Suðurnesjum og vinna úr þeirri stöðu sem uppi er í kjölfar brottfarar varnarliðsins. Björgvin er í sambúð með Maríu Rögnu Lúðvígsdóttur og eiga þau sex börn. Gefur kost á sér í 1. sætið Björgvin G. Sigurðsson ÖNUNDUR Björnsson sókn- arprestur hefur tilkynnt framboð sitt í prófkjöri Samfylkingar í suðurkjördæmi, sem haldið verður 4. nóvember nk. Hann sækist eftir 2. til 3. sæti á lista flokksins. „Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið varaþingmaður flokksins í kjördæminu og setið á Alþingi um skeið. Það er að mínu áliti afar mikilvægt fyrir stóran og öflugan flokk eins og Samfylkinguna að þingmannahópur hennar endurspegli þverskurð sam- félagsins; þar verði að finna konur og karla á ólíkum aldri, með mismun- andi reynslu að baki í starfi og leik. Ég hygg að starfs- og lífsreynsla mín, þ. á m. sem prestur á þremur stöðum í Suðurkjördæmi – Höfn í Hornafirði, Garði á Suðurnesjum og nú starfandi á Breiðabólstað í Fljóts- hlíð auk tímabundinna afleysinga í Vestmannaeyjum – geri mér fært að þekkja vel til vona og væntinga fólks í kjördæminu og þeirra fjölmörgu möguleika sem þar er að finna. Ekki aðeins í náttúrugæðum, heldur ekki síður því afli sem er að finna meðal fólks í Suðurkjördæmi – til sjávar og sveita,“ segir Önundur í tilkynningu. Óskar eftir 2.–3. sæti Önundur S. Björnsson ♦♦♦ ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.