Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 17
ERLENT
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
ÞAÐ er haft fyrir satt að meirihluti
þeirra sem hlýddu á Hugo Chavez,
forseta Venesúela, í allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í fyrradag hafi
klappað honum lof í lófa eftir ræðu
hans, en þar úthúðaði Chavez
George W. Bush Bandaríkjaforseta,
kallaði hann „lygara“, „djöful“ og
„harðstjóra“. Viðbrögðin eru ekki
góð tíðindi fyrir bandarísk stjórn-
völd sem vilja fyrir alla muni koma í
veg fyrir að Venesúela takist að ná
kjöri til sætis Rómönsku Ameríku í
öryggisráði SÞ næstu tvö árin, en
kosið verður 15. október nk.
Chavez hefur verið í harðri kosn-
ingabaráttu undanfarna mánuði,
m.a. farið í mikla reisu í því skyni að
tryggja stuðning við framboð Venes-
úela. Hefur Chavez til að mynda ný-
verið heimsótt lönd eins og Rúss-
land, Kína, Íran, Hvíta-Rússland,
Víetnam og Sýrland og í ræðu sinni í
fyrradag fullyrti hann, að hann hefði
stuðning flestra þessara ríkja
(þ.á m. Kína og Rússlands, sem eru
tvö þeirra fimm ríkja sem eiga fasta-
fulltrúa í öryggisráðinu), sem og
Arababandalagsins eins og það legg-
ur sig og meirihluta ríkja á Karíba-
hafssvæðinu og í Rómönsku Amer-
íku.
Sagði Chavez að tilraunir Banda-
ríkjastjórnar til að koma í veg fyrir
að Venesúela næði kjöri væru „sið-
lausar“, en ráðamenn í Washington
hafa stutt Gvatemala með ráðum og
dáð í þessari baráttu; svo opinber-
lega raunar að þarlendir embættis-
menn óttast að það hafi skaðað
framboð landsins. Sú stjórn sem nú
ræður ríkjum í Bandaríkjunum nýt-
ur nefnilega lítilla vinsælda meðal
þjóða þriðja heimsins, sem finnst
Bandaríkin helst til fyrirferðarmikil;
sumir vilja síðan síður virðast vera í
vasa Bandaríkjamanna, en stuðning-
ur við Gvatemala gæti verið túlk-
aður með þeim hætti miðað við það
hversu mikið Bandaríkin hafa beitt
sér.
Við þetta bætist svo að Chavez
hefur gjarnan komið færandi hendi í
umræddum heimsóknum sínum er-
lendis; en sem kunnugt er er Venes-
úela auðugt af olíu og getur boðið
þjóðum olíu á góðu verði, samninga
tengda olíuvinnslu eða beina fjár-
hagsaðstoð.
Ástæða þess að Bandaríkjamenn
vilja fyrir alla muni koma í veg fyrir
kjör Venesúela er sú að í öryggis-
ráðinu gæti Chavez gert Bandaríkj-
unum mjög erfitt fyrir í málefnum
sem kunna að koma upp á næstu
tveimur árum og hljóta að teljast
mikilvæg. Ræðir þar m.a. um hugs-
anlega atkvæðagreiðslu um að Íran
verði beitt viðskiptaþvingunum
vegna kjarnorkutilrauna sinna.
Mun embættismönnum í Wash-
ington lítast miður vel á að Mahm-
oud Ahmadineja, forseti Írans, eigi
svo tryggan bandamann í öryggis-
ráðinu og þá hrýs þeim hugur við til-
hugsunina um að Chavez sitji jafnvel
sjálfur marga fundi öryggisráðsins
fyrir hönd Venesúela, og fái þannig
tækifæri til að láta gamminn geisa
eins og hann lystir á þeim vettvangi,
í sjálfri miðborg New York-borgar,
höfuðvígi hins vestræna kapítalisma.
Misráðin ræða?
Sérfræðingar um málefni SÞ
segja þó mögulegt að ræða Chavez í
fyrradag kunni að skaða möguleika
Venesúela í kosningabaráttunni,
enda hafi Chavez gengið þar alltof
langt. Er m.a. haft fyrir satt að segja
hafi þurft utanríkisráðherra Kína,
Li Zhao Xing, það tvisvar sinnum, að
Chavez hefði látið umrædd ummæli
falla. „Sagði hann þetta virkilega?
Ertu viss? Gekk hann svona langt?“
sagði Li.
Þá bendir Edward Luck við Col-
umbia-háskóla á að ræða Chavez
staðfesti verstu hugmyndir manna
um allsherjarþing SÞ sem hring-
leikahús, þar sem Bandaríkjahatur
ræður ríkjum. „Ég hefði aldrei trúað
því að neinn gæti látið Ahmadinejad
líta út sem hófsemdarmann, en Cha-
vez hefur tekist það,“ sagði hann.
Forsmekkur-
inn að því sem
koma skal?
AP
Fór mikinn Margir viðstaddra í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fögn-
uðu Hugo Chavez innilega eftir ræðu hans. Fulltrúar Bandaríkjanna voru
hins vegar víðs fjarri á meðan Chavez lét gamminn geisa.
Hugo Chavez flutti umdeilda ræðu hjá
SÞ. Nú vill hann komast í öryggisráðið.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Er skiptinemadvöl eitthva› fyrir flig?
Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl,
3 mána›a dvöl og 4-6 vikna dvöl. Haf›u samband!