Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ívar Björnssoncand. mag., ís- lenskukennari og skáld, fæddist á Steðja í Flókadal 28. júlí 1919. Hann lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi – Landakoti 14. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Ív- arsson, f. 24. júní 1880, d. 1. apríl 1963, og Pálína Sig- ríður Sveinsdóttir, f. 25. nóvember 1880, d. 23. jan- úar 1966. Bróðir Ívars var Krist- inn Björnsson sálfræðingur, f. 19. júlí 1922, d. 26. desember 2004 og hálfsystir Ívars, sammæðra var Þóra Jónsdóttir, f. 1. október 1907, d. 11. apríl 2004. Ívar kvæntist 16. apríl 1949 Katrínu Sylvíu Símonardóttur frá Vatnskoti í Þingvallasveit, f. 27. september 1912, d. 27. maí 2001. Börn þeirra eru: 1) Gunnar Páll Katrín Sylvía kona Ívars átti fyrir soninn Viggó Alfreð Odds- son, f. 2. desember 1932, d. 7. mars 1983. Ívar Björnsson varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1946.Hann stundaði nám við Há- skóla Íslands og lauk þaðan cand. mag. í íslenskum fræðum vorið 1952. Hann kenndi fyrst íslensku við gagnfræðaskólann í Vest- mannaeyjum, síðar í Keflavík og við Vogaskóla í Reykjavík. Lengst af var Ívar íslenskukennari við Verzlunarskóla Íslands eða í 25 ár. Eftir Ívar liggja nokkur fræði- rit í íslensku, sem enn eru notuð við íslenskukennslu. Ívar var mikill ljóðaunnandi og á árunum 1992-2004 gaf hann út fjórar ljóðabækur, en þær eru „Liljublóm“, „Í haustlitum“, „Á kvöldhimni“ og „Spuni“. Ívar og Katrín bjuggu lengst af í Hamrahlíð 9, en eftir lát hennar flutti hann í Bólstaðarhlíð 41, þar sem hann bjó síðustu ár ævi sinn- ar. Útför Ívars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ívarsson, f. 7. ágúst 1949, kona hans er Jónína Ragn- arsdóttir, f. 6. janúar 1952, þau eiga tvær dætur, Andreu Mar- gréti, f. 25. sept- ember 1968, og Katr- ínu Sylvíu, f. 30. júlí 1974, gift Gunnþóri Jónssyni. Synir And- reu eru, Gunnar Páll Torfason, f. 2. janúar 1988, og Heimir Páll Ragnarsson, f. 12. september 2001. 2) Símon H. Ívarsson, f. 9. mars 1951, kona hans er María Jóhanna Ívarsdóttir, f. 5. júní 1952, þau eiga tvö börn, Ívar, f. 10. júní 1983, unnusta hans er Ástrún Friðbjörnsdóttir, og Svandís Ósk, f. 11. júlí 1990, unnusti hennar er Axel Örn Sigurðsson. Símon á eina dóttur frá fyrra hjónabandi, Katrínu Sylvíu, f. 31. mars 1973, sonur hennar er Hinrik Snær Katrínarson, f. 3. desember 1999. Faðir minn, Ívar Björnsson, er fallinn frá og farinn til forfeðranna eftir stutta sjúkrahúslegu. Hann átti því láni að fagna að vera að mestu heilbrigður og virkur í lífi og leik allt fram undir það síðasta þrátt fyrir áföll á lífsleiðinni. Faðir minn var frekar dulur í almennri umgengni, en því virkari í því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hneigðist fljótt til bókmennta, en búskapur var hon- um síður að skapi. Iðjusemi var hon- um í blóð borin, og minnist ég hans sem barn, gjarnan sitjandi við skrif- borð að fara yfir verkefni nemenda eða undirbúa kennsluna og leiðbeina nemendum. Oft var gestkvæmt í Hamrahlíðinni, stundum voru sam- kennarar að fagna, eða ættingjar og vinir komu í heimsókn og margir komu utan af landi og fengu gist- ingu. Allir voru velkomnir þótt hús- rými væri ekki mikið. Þannig voru foreldrar mínir sveigjanlegir og lög- uðu sig að aðstæðum hverju sinni. Móðir mín var mikill náttúruunn- andi og smitaðist faðir minn af áhuga hennar á þessum vettvangi. Reglu- lega var farið í göngutúra og stað- arheiti og kennileiti skoðuð, einkum um helgar, en lengri ferðir voru farnar þegar aðstæður leyfðu. Myndavélin var þá gjarnan með í farteskinu ásamt flatbrauðssneið og öðru góðgæti. Á ég mjög ljúfar minningar frá slíkum ferðalögum og ósjaldan voru þessar stundir rifjaðar upp með myndasýningum langt fram á nætur með ljúfum veitingum. Faðir minn þótti strangur kennari og skiptust nemendur hans gjarnan í tvo hópa, sumir dáðu hann, en öðrum fannst hann vera kröfuharður. Eitt er víst að nemendur hans komust ekki upp með að læra ekki heima. Eftir að hann hætti kennslustörf- um settist hann niður við ljóðagerð, en ljóðlist hafði alla tíð verið honum einkar hugleikin. Eftir hann liggja fjórar ljóðabækur, sem bera vott um fjölbreytta ljóðagerð, ólíkar stílteg- undir og ríkt hugmyndaflug. Ósjald- an las hann upp úr ljóðum sínum á mannamótum. Tvívegis var haldin kynningardagskrá í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi, þar sem ljóð hans voru kynnt, ýmist í upplestri eða söng, en nokkur tónskáld hafa fundið ástæðu til að semja lög við texta hans. Ég kveð föður minn með söknuði og vona að hann sé kominn á stað sem honum líður vel á. Hvíl í friði. Símon H. Ívarsson. Elsku besti afi minn. Orð fá ekki lýst hve mikið ég sakna þín. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu og mun ég aldrei gleyma þeim ófáu góðu stundum sem við áttum saman. Allt- af þótti mér svo vænt um þegar þú komst til mín þegar ég var krakki í Breiðholtinu og færðir mér uppá- halds súkkulaðið mitt, sem á þeim tíma var gull í augum barna. Meðan ég borðaði súkkulaðið með bestu lyst sátum við öll við eldhúsborðið og spjölluðum um daginn og veginn. Á unglingsárunum flutti ég norður og þótt við hittumst ekki oft, þá töluð- um við mikið saman í símann. Eftir að ég flutti aftur suður urðu heimsóknirnar margar. Það var svo þegar ég varð ófrísk að Hinrik Snæ að samband okkar varð sterkara og þá kynntist ég henni Ólöfu vinkonu þinni sem var þér svo kær. Hún hef- ur reynst þér og okkur öllum mjög vel og þið nutuð góðs félagsskapar hvort annars. Við þrjú áttum oft skemmtilegar stundir og ferðirnar sem við fórum voru oft fróðlegar. Þið gátuð sagt manni allt milli himins og jarðar, um hitt og þetta. Það verður svolítið skrýtið að fá ekki hringingu frá þér og plana hvað við eigum að gera og fara þessa vikuna. Það var alltaf svo gaman hjá okkur þegar við vorum að þvælast um borgina. Fólk- ið í búðunum sem við fórum í var far- ið að þekkja okkur svo vel og hvað þá stelpurnar í blóðrannsókn á Borga- spítalanum, þær voru alltaf bros- mildar og hressar. Oft var sagt við okkur: „Jæja, eru þrjú amigos kom- in?“ sem voru ég, þú og Hinrik Snær. Ég var nú alltaf með ykkur sinn í hvorri hendinni litlu englana mína og vilduð þið báðir halda fast í hana. Hinrik var nú orðinn fær að hjálpa okkur síðustu árin, að halda hurðunum og sitja hjá þér á meðan ég þurfti að hlaupa og ná í bílinn til að koma með hann sem næst dyr- unum til að þú þyrftir ekki að labba langt, því þú varst orðinn hræddur við vindinn. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem afa, þú hefur alltaf stutt mig í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur og sagt við mig: „Maður þroskast ekki nema að gera mistök, Katrín mín.“ Jæja, afi minn, þú áttir gott líf hér á jörðinni og áttir marga að. Núna ertu kominn til elsku ömmu, sem mér finnst svo gott að vita af, því þá veit ég að þú ert ekki einn. Ég gæti skrifað og skrifað endalaust um þig, en ég ætla bara að láta þetta duga og eiga mínar minningar í hjarta mínu. Ég elska þig og sakna, elsku besti afi minn. Ástar- og saknaðarkveðjur. Katrín Sylvía Símonardóttir. Elsku langafi. Ég sakna þín, þú varst alltaf svo skemmtilegur og góður við mig. Margar voru ferðirn- ar sem ég fór með þér og mömmu um bæinn. Þegar heim var komið þá bauð Ólöf okkur alltaf til sín í kaffi og kökur sem við borðuðum með bestu lyst. Ég spilaði á píanóið nokk- ur lög fyrir ykkur, sem var nú bara eitthvað út í loftið. Ég kunni engar nótur en þið sögðuð ekki neitt heldur leyfðuð mér bara að spila (þótt mamma væri að verða gaga). Ég á mér unaðsreit í einangraðri sveit við fjörð í fjallasal í fögrum skógardal. Ég átti æsku þar og unaðslegt það var Nú er það eyðibyggð, hún á þó mína tryggð. Í hennar fang ég flý og fagna enn á ný að mega mæta’ um stund á minninganna fund. Þar finn ég aftur fró og frið og sálarró og eftir liðið líf að lokum þangað svíf. (Ívar Björnsson frá Steðja) Langafi minn, ég veit að núna líð- ur þér vel og þú ert kominn til Guðs. Ég kveð þig og eitt er víst að þú átt eftir að kíkja í heimsókn til mín og mömmu og láta okkur vita að þér líði vel. Saknaðarkveðja. Hinrik Snær Katrínarson. Ívar Björnsson, skáld og kennari, er látinn. Vinskapur okkar stóð lengi og var náinn. Hann hófst þegar við hófum kennslu við framhaldsdeild Langholtsskóla árið 1957. Nokkur næstu ár kenndum við báðir við þá deild í Vogaskóla, en síðan ein 30–40 ár við Verslunarskóla Íslands þar til kennsluferli okkar lauk á eftirlauna- aldri. Strax við fyrstu kynni urðum við góðir vinir og entist vinátta okk- ar allt til láts Ívars og bar aldrei skugga á. Tvennt var það aðallega, sem við Ívar áttum sameiginlegt: lífsskoðanir og náttúrudýrkun. Við hófum snemma dagsferðir til ná- lægra staða og hafði Ívar þá mynda- vélina með. Átti hann mjög gott myndasafn og skoðaði oft með vinum sínum öllum til mikillar ánægju. Borgarfjörðurinn og Dalasýsla voru ákveðnir uppáhaldsstaðir því báðir erum við barnfæddir Borgfirðingar. Ívar fræddi mig um Borgarfjörðinn fyrr og nú. Hann var nánast með alla sögu héraðsins á hreinu: mannlíf og búskaparhætti fyrr og nú, sögustaði og ýmislegt úr íslensku fornsögun- um. Þessi ferðalög með Ívari voru hreint ævintýri því að hann kunni flestum betur að segja frá. Í nágrenni höfuðborgarinnar voru flestar gönguferðir okkar hjónanna farnar í Heiðmörk. Katrín var fædd og alin upp í Þingvallasveit, í Vatns- víkinni, þar sem hraunið, mosinn og kjarrið skapa undurfagra náttúru- paradís allt frá vatninu til fjallstind- anna. Hún var einkar lagin við að lesa alls konar form og kynjamyndir úr Heiðmerkurhrauninu og færa í söguform. Sem kunnugt er kenndi Ívar ís- lensku við Verslunarskólann. Þekk- ing hans á því sviði var einkar víð- feðm. Hann var góður kennari, sem námfúsir nemendur kunna vel að meta. Síðari æviár sín, þegar meiri tími gafst frá kennslustörfum, samdi hann með stuttu millibili nokkrar ljóðabækur. Hann samdi ljóð allt til þess honum þraut þrek vegna aldurs og veikinda. Ljóð hans fjalla um lífið og tilveruna, ástir okkar og sorgir og víða finnast skemmtilegar, heim- spekilegar hugleiðingar og oft er stutt í kímnina. Ívar naut mannfunda, maður er manns gaman, örlátur var hann og heilmikill heimsborgari. Ívar varð fyrir þó nokkrum áföll- um á lífsleiðinni. Eitt það versta var þegar honum dapraðist svo sjón að hann gat ekki ekið bíl sínum lengur né annast bóklestur. Hann reyndi þó að lifa eðlilegu lífi allt til dauðadags. Þannig stundaði hann sund að stað- aldri til að berjast við hrörnunina og sjúkdóma, sem oftast ágerast með ellinni og loks leggja okkur öll að velli. Við hjónin vottum okkar dýpstu samúð sonum Ívars og Katrínar, þeim Símoni og Gunnari, fjölskyld- um þeirra svo og öllu skyldfólki og góðum vinum Ívars. Bjarni Jónsson. Nýr unglingaskóli tók til starfa í Reykjavík haustið 1957, unglinga- deild Vogaskóla. Hann var til húsa í Ungmennafélagshúsinu við Holta- veg. Það var ekki byggt með kennslu fyrir augum, stofur voru langar og mjóar sumar hverjar og aðgreindar með vegg úr texi. Hljóðbært var í húsi þessu og heyrðu nemendur sem aftast sátu stundum betur í kenn- aranum í næstu stofu en þeim sem þeim átti að kenna. Fjórir kennarar komu þarna til starfa haustið 1957, sá sem þetta ritar, Bjarni Jónsson, Ívar Björnsson og Jóhanna Þor- geirsdóttir. Við Bjarni vorum þá að hefja feril okkar sem kennarar en Ívar hafði þegar hlotið eldskírnina og það bæði í Keflavík og Vest- mannaeyjum. Næsta ár flutti skól- inn í nýbyggt hús í Vogunum, raunar ekki fyrr en upp úr áramótum. Á þessum árum fór ég stundum í smiðju til Ívars sem reyndari manns í starfinu og fékk ætíð góðar viðtök- ur. Haustið 1959 breyttust unglinga- deildir Langholtsskóla í Vogaskóla og störfuðum við þremenningarnir þar næstu árin. Við höfðum mikinn metnað fyrir hönd þess skóla og hitt- umst stundum og lögðum á ráðin um betrumbætur á honum. Ekki náðu þær allar fram að ganga enda hurf- um við af vettvangi áður en fullreynt var. Ívar réðst til starfa við Verzl- unarskóla Íslands árið 1964 og við Bjarni komum í humátt á eftir. Ívar kenndi síðan við Verzlunarskólann þar til hann varð að láta af störfum fyrir aldurs sakir. Kennsla var lífs- starf hans. Ívar samdi nokkrar kennslubækur í kennslugrein sinni sem var íslenska. Skýrleiki í fram- setningu einkennir þessar bækur sem og alla kennslu Ívars. Hann var ágætlega hagmæltur en stundaði skáldskap lítt fyrr en á efri árum. Ferðalög eru minnisstæð. Við hjónin fórum ásamt þeim Ívari og Katrínu konu hans til Helsingfors og Leningrad ásamt fleiri Verzlunar- skólakennurum. Frá Helsingfors til Leningrad var farið með skipi og þegar það nálgaðist ósa Nevu glumdi í öllum hátölurum að allar myndatökur væru bannaðar. Ívar skeytti þessu engu og komst upp með það að taka þarna myndir. Hann var mikill áhugamaður um myndatökur. Síðar eyddum við jól- um og áramótum á Kanaríeyjum ásamt þeim hjónum og mörg haust lá leiðin að Bifröst í góðu boði kennara þar. Ívar var oft hrókur alls fagn- aðar í samkvæmum þessum en ætíð hafði ég á tilfinningunni að hann nyti sín betur í fámennum hópi en fjöl- menni. Við Ívar Björnsson vorum sam- starfsmenn í yfir 40 ár. Þetta er langur tími. Ég vil að leiðarlokum færa honum heila þökk fyrir sam- starfið og vináttuna. Ívar var traust- ur samstarfsmaður og góður félagi. Við hjónin flytjum aðstandendum Ívars Björnssonar hugheilar samúð- arkveðjur. Lýður Björnsson. Ívar Björnsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar UNNAR ZOËGA fyrrverandi póstfulltrúa. Guðný Jónsdóttir, Herbert Benjamínsson, Halldóra Jónsdóttir, Gunnar Jónsson, Steinunn Jónsdóttir, Jón Stefánsson, Unnur Jónsdóttir, Sigurjón Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HELGU GUNNLAUGSDÓTTUR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, áður til heimilis í Laugargötu 3. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hlíð fyrir kærleiksríka og góða umönnun. Þórey Sveinsdóttir, Hreinn Hreinsson, Gunnlaugur Búi Sveinsson, Signa Hallsdóttir, Tómas H. Sveinsson, Rannveig Sigurðardóttir. ÁSLAUG ODDSDÓTTIR, Álfhólsvegi 12, Kópavogi, lést á Borgarspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 19. september. Útför auglýst síðar. Aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.