Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 47
EINN farsælasti söngvari Bret-
landseyja Sir Cliff Richard heldur
tónleika í Laugardalshöll miðviku-
daginn 28. mars næstkomandi.
Þar mun Sir Cliff koma fram
ásamt stórri hljómsveit og flytja
öll sín þekktustu lög. Að sögn
Guðbjarts Finnbjörnssonar sem
stendur að komu söngvarans verð-
ur engu til sparað og með í för
verður rúmlega 20 manna hópur
og tækjakostur upp á á fimmta
tonn.
Hefur selt yfir
250 milljónir platna
Segja má að á sjötta áratug síð-
ustu aldar hafi Cliff Richard, sem
heitir réttu nafni Harry Webb,
verið svar Englendinga við Elvis
Presley og eins og kollegi hans
vestanhafs var hann svo til einráð-
ur á breskum dægurlagamarkaði
þar til að Bítlarnir komu fram á
sjónarsviðið. Í kjölfarið færði hann
sig yfir í léttari gerð tónlistar sem
hann hefur svo tileinkað allt til
dagsins í dag.
Fyrsti smellur Cliffs Richards
var lagið „Move It“ sem kom út
árið 1958 en síðan þá hefur honum
tekist að koma hvorki meira né
minna en 60 lögum inn á topp 10 í
Bretlandi og þar af fóru 14 þeirra
alla leið á toppinn. Með þeirri
mælistiku verður að segja að Cliff
Richard sé vinsælasti tónlist-
armaður Bretlandseyja fyrr og
síðar því þar verða sjálfir Bítlarnir
að játa sig sigraða. Þess má einnig
geta að Sir Cliff hefur selt yfir 250
milljónir platna um allan heim.
Hefði átt að vinna Evróvisjón
Richard hefur tvisvar sinnum
sungið fyrir hönd Bretlands í
Söngvakeppni Evrópska sjón-
varpsstöðva. Fyrst árið 1968 með
„Congratulations“ og svo árið 1973
lagið „Power to All Our Friends“.
„Congratulations“ er enn þann
dag í dag talið með þeim allra
bestu sem keppt hafa í keppninni
en það er kannski merkilegra að
það ár þurfti Richard að láta sér
lynda annað sætið.
Ennþá gríðarlega vinsæll
Sir Cliff mun halda í tónleika-
ferðalag um Bretlandseyjar í nóv-
ember á þessu ári og að sögn Guð-
bjarts Finnbjörnssonar hafa þegar
verið seldir 150 þúsund miðar á þá
tónleika. Richard mun meðal ann-
ars koma fimm sinnum fram tón-
leikahöllinni Wembley Arena í
London en þar hefur stúlknasveit-
in Nylon gert sig heimakomna að
undanförnu. Á meðal þeirra laga
sem hann mun syngja á þeirri tón-
leikaferð og að öllum líkindum í
Laugardalshöllinni í mars eru:
„Living Doll“, „Travelling Light“,
„Please Don’t Tease“, „I Love
You“, „The Young Ones“, „Bache-
lor Boy“, „Summer Holiday“, „The
Minute Your Gone“, „Congratula-
tions“, „We Don’t Talk Any
More“, „Misteltoe and Wine“,
„Saviours Day“, og „The Milleni-
um Prayer“.
Tónlist | Sir Cliff Richard heldur stórtónleika í Laugardalshöll í mars 2007
Stærri en Bítlarnir
AP
Fjölhæfur hjartaknúsari Árið 2004 setti Sir Cliff á markað nýja ilmvatns-
línu Miss You Nights sem hann skírði í höfuðið á samnefndu lagi.
Miðasala hefst 3. október á midi.is
og í Skífuverslunum í Reykjavík og
BT á landsbyggðinni. Bæði verður
selt í sæti og stæði. Miðaverð gef-
ið upp síðar.
Staðurstund
Bragi Ásgeirsson minnist
myndlistarmannsins Magnúsar
Kjartanssonar sem er jarð-
sunginn í dag. »51
af listum
Bergur Þór Ingólfsson fer með
hlutverk Hitlers í gamanleikn-
um Mein Kampf sem frum-
sýndur verður á morgun. »52
leiklist
Aðalsmaðurinn Reynir Lyngdal
hefur tekið að sér það vanda-
sama verk að leikstýra Ára-
mótaskaupinu í ár. »52
sjónvarp
Það eru fjórar nýjar kvikmyndir
frumsýndar hér á landi í dag.
Allir ættu að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. »54
kvikmynd
– heldur aðeins áform um stefnu – tilgang.
Það sem heillaði hann mest við tónlistin, er
hvað hún getur verið ánægjuaukandi en líka
vekjandi. En þar sem hún er þessum eigin-
leikum búin geti hún líka valdið miklum von-
brigðum því væntingarnar vilja verða miklar.
„Manni hefur lærst á löngum tíma að vinna
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
„JÁ, þetta er fjórða platan en það hefur farið
fremur hljótt um mína útgáfu enda er það í
mínum anda,“ segir Egill yfir kaffibolla og
böku á Súfistanum þar sem spjallið fer fram við
kliðmjúkt undirspil kaffivélarinnar og gesta á
næstu borðum. Fyrsta sólóplata Egils kom árið
1991 og heitir Tifa, tifa, 1992 kom út Blátt, blátt
og sú þriðja kom út 2001 og heitir Nýr engill.
Nýja platan, sem væntanleg er í verslanir á
næstu dögum, heitir Miskunn dalfiska. Sér-
kennilegur titill voru fyrstu viðbrögð. Það ligg-
ur beinast við að ráða strax þá gátu.
„Dalfiskur hlýtur að vera fiskur í dal, syndir
í moldinni, með öðrum orðum ormur. Miskunn
dalfiska er skáldakenning. Þegar miskunnin
kemur yfir dalfiskinn hlýtur að vera komið
sumar. Miskunn dalfiska stendur því fyrir
sumar og er sótt í ljóð eftir Egil Skalla-
grímsson sem hann orti á Eyrarsundi í fyrnd-
inni þegar hann var spurður ráða um að herja á
Lund. Hann taldi rétt að ráðast til atlögu eða
eins og segir í vísunni: “ … eigum dáð að
drýgja í dalmiskunn fiska“, sum sé í sumar. En
um leið skírskotar titillinn til lífs mannanna
sem má segja hliðstæðu við líf ormsins. Menn-
irnir eru að brjóta ýmislegt til mergjar, finna
sér tilgang í jarðvegi lífsins. Öðrum þræði er
platan upprifjun á bernsku minni úr Voga-
hverfinu, á sumri lífsins, lýsingar og stemn-
ingar þaðan og úr Norðurmýrinni. Þaðan er
einmitt ein fyrsta
bernskuminning
mín um gríð-
arlega stóran ána-
maðk sem lá einn
fagran sumardag
á eldhúsgólfinu
heima. Fyrir lít-
inn mann var
hann eins og
stærsti eit-
ursnákur. Mér finnst líka skemmtilega músík-
alskt klang í titlinum og ég hrífst af sérkenni-
legum orðmyndum. Menn eru ef til vill hættir
að nota þessi orð en þau eru enn hlaðin merk-
ingu. Þá er ekki verra ef orðanotkun af þessu
tagi kveikir áhuga einhverra til að kafa dýpra
og þá gerist það oftar en ekki að nýjar hugsanir
kvikna hjá viðkomandi – þá verða öngvir tveir
hlutir eins, og lífið verður þannig jafnan inni-
haldsríkara.“
Vinnur ekki í skorpum
Egill segist hafa fundið snemma fyrir
ánægju og tilgangi í músíkinni. Það var þó erf-
itt val – möguleikarnir á öðru voru þó nokkrir –
en örlögin hafa verið honum góð og hann hefur
fengið tækifæri til að prófa margt í þeim efnum,
syngja nánast allar tegundir tónlistar, semja
fyrir leikhús, skrifa söngleikjatónlist og enn
segist hann vera að leggja drög að sínu ferða-
lagi, svona eins og ferðalangur yfir landakorti –
en það er auðvitað ekki ferðalagið eða lífið sjálft
eins vel og mögulegt er og þá að stilla vænting-
unum ávallt í hóf – búast ekki neinu,“ segir Eg-
ill.
Egill semur tónlist jafnt og þétt og vinnur
ekki í skorpum í þeim efnum. „Stundum líða
nokkrir dagar án þess að ég geri nokkuð en svo
koma tímabil þegar ég geri þetta dag hvern.
Tónsmiðurinn Á eftir dalmiskunn fiska kemur haustið. Egill í garðinum heima hjá sér.
Bensín fyrir
mjúkar vélar
Innan tíðar er von á fjórðu sólóplötu Egils Ólafs-
sonar sem kallast Miskunn dalfiska
Morgunblaðið/Kristinn
|föstudagur|22. 9. 2006| mbl.is
Athafnamennirnir Kormákur
Geirharðsson og Skjöldur Sig-
urjónsson opna veitingastað í
Þingholtsstræti » 48
veitingar