Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 53
vaxtaauki!
10%
SPENNU- og gamanmyndin The
Alibi er frumsýnd hér á landi í
dag.
Steve Coogan leikur hinn snjalla
Ray sem vinnur hjá fyrirtæki sem
útbýr fjarvistarsannanir til handa
þeim eiginmönnum sem stunda
framhjáhald. Það kemur svo að
því að Ray mætir jafnoka sínum
og þá taka málin heldur óvænta
stefnu.
Meðal annarra leikara eru Jerry
O’Connell, Jon Polito, Deborah
Kara Unger, Rebecca Romjin,
Selma Blair, Sam Elliot og James
Brolin.
Myndin er frumsýnd í dag í
Sambíóunum.
Fjarvistarsönnunin
Rebecca Romijn í
hlutverki sínu.
Frumsýning | The Alibi
Fjarvistarsönnunin
Ekki hafa birst neinir erlendir
dómar um The Alibi.
Ástand sjónvarpsmannsins Rich-ard Hammond er örlítið betra
en það var á miðvikudag og stöðugt
en Hammond liggur alvarlega slas-
aður á sjúkrahúsi í Leeds. Ham-
mond er einn þeirra sem sjá um
þáttinn Top Gear á BBC en hann
lenti í bílslysi á bifreið knúinni þotu-
hreyfli í fyrradag. Bíllinn var á mikl-
um hraða þegar slysið varð.
Breska ríkisútvarpið BBC segist
ætla að athuga hvernig þetta gerð-
ist. Talið er að bíllinn hafi verið á
tæplega 500 km/klst hraða. Ham-
mond ætlaði að slá breskt hraðamet
á bifreið. Fallhlíf sem á að stöðva bíl-
inn skaust út en hann sveigðist til
hliðar og fór fjölmargar veltur áður
en hann staðnæmdist.
Top Gear er afar vinsæll sjón-
varpsþáttur víða um heim en í hon-
um er fjallað um bíla og allt sem
þeim tengist og prófa umsjón-
armenn iðulega bíla og gefa þeim
dóma. Þátturinn er sýndur í íslensku
sjónvarpi.
Fólk folk@mbl.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
TIL
MEÐ DAGINN
VÍSINDAMENN
HAMINGJU
RANNÍS óskar vísindamönnum til hamingju með 22. september
en dagurinn er tileinkaður vísindamönnum í Evrópu.
● RANNÍS veitir íslensku vísinda- og tæknisamfélagi aðstoð til framþróunar
á innlendum og erlendum vettvangi.
● RANNÍS er samstarfsvettvangur til undirbúnings og framkvæmdar opinberrar
vísinda- og tæknistefnu.
● RANNÍS gerir áhrif rannsókna á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan.
ps. við minnum á Vísindavökuna í Listasafni Reykjavíkur í dag kl. 18:00.